Morgunblaðið - 20.01.1990, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 20.01.1990, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. JANÚAR 1990 Minning: Sigríður Siguijóns- dóttir, Húsavík Fædd 6. ágfúst 1895 Dáin 11. janúar 1990 í dag, þegar Sigríður í Framnesi verður lögð til hinstu hvíldar, koma margar minningar upp í hugann. Okkar leiðir lágu fyrst saman árið 1968 er ég kom til hennar og Jóhannesar í Framnesi með tilvon- andi eiginkonu minni og dótturdótt- *^ir þeirra hjóna. Mér eru enn í minni þau fyrstu kynni, sú reisn, sá myndarskapur og hin mikla hlýja sem yfir því heimili var, og varð það mitt lán að eignast hana sem vin. Máltækið „Sælla er að gefa en þiggja“ kemur upp í huga mér er ég nú minnist og kveð þessa merku konu, því fyrir hana skipti það mestu, hvað hún gat fyrir aðra gert, en ekki hvað aðrir gátu fyrir hana gert. Er við hjónin fluttum til Akur- eyrar gafst oftar tækifæri til að fara á æskuheimili konu minnar að Fjöllum. Var þá ævinlega ánægjuefni að koma við hjá Sigríði, og var henni viðbrugðið ef færri en 8-10 köku- tegundir voru ekki fram bomar á skömmum tíma. Þegar við fluttum til Húsavíkur 1974 urðu samskiptin tíðari. Sigríður var mörgum kostum búin og væri of langt mál að telja þá alla upp, en nokkurra þeirra vil ég þó geta. Aldref heyrði ég hana hallmæla nokkrum manni og ávallt var hún reiðubúin að rétta hvers manns hlut. Hún var mjög sjálfstæð og það var henni ekki að skapi að vera upp á aðra komin. Hafi almættið þökk fyrir að veita henni heilsu til að búa svo lengi í Framnesi, íjarri öllum stofnunum, sem ekki hefði átt við hana að bíða á, eftir sínum brottfarardegi. Sigríður hafði mjög gaman af að spila, og ófáar voru þær stundir sem setið var og spilað, spjallað og drukkið kaffi annað hvort í Fram- nesi eða á heimili okkar hjóna. Hún hafði létta lund, var frá á fæti og sá ætíð hið jákvæða í öllu, stutt var í húmorinn hjá henni og hláturinn smitandi. Engri eldri manneskju hef ég kynnst sem virtist yngjast upp með ári hveiju og fylgja tíðarandanum jafn vel, og minnið var óskert til síðasta dags. Oft ræddum við saman, um hvað tæki við eftir þetta líf, og var Sigríð- ur vel lesin um þau mál, og hafði trú á framhaldslíf, og vissa mín er sú, að margir hafi tekið á móti henni, og hún fylgist áfram með sínum. Með þessum fátæklegu orðum t Eiginmaður minn og faðir, JÓN HÓLM FRIÐRIKSSON, Háaleitisbraut 105, andaðist á Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund að kvöldi 17. janúar. Anna Pálsdóttir, Reynir H. Jónsson. t Sonur minn og bróðir, PÉTUR KRISTINSSON, sem andaðist 29. desember hefur verið jarðsettur í kyrrþey. Þeir sem vildu minnast hans er vinsamlegast bent á Vernd. Fyrir hönd ættingja, Anna Sigríður Lorange. t Elskulegur eiginmaður minn, BJÖRGVIN ANGANTÝSSON, sjómaður, Rjúpufelli 29, Reykjavík, lést á heimili sínu 13. janúar sl. Bálför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Þeim sem vildu minnast hans er bent á Krabbameinsfélag (slands. Fyrir hönd aðstandenda, Guðbjörg Bryndfs Sigurðardóttir. t Innilegar þakkir fyrir hlýhug og samúð vegna andláts STEFANÍU GUÐJÓNSDÓTTUR, Suðurgötu 4. Lára Lárusdóttir, Þórir Jónsson, Guðjón Lárusson, Auður Guðmundsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Sendum öllum þeim er sýndu okkur hluttekningu og samúð við andlát og útför móður okkar, tengdamóður og ömmu, MONU G. SIGURÐSSONAR ANDERSSONAR, Hjallabraut 7, Hafnarfirði. Stefán S. Sigurðsson, Róbert F. Sigurðsson, tengdadætur og barnabörn. vil ég þakka fyrir allan þann hlý- hug, hjartagæsku ög göfuglyndi sem ég varð aðnjótandi, og er þess fullviss að við eigum eftir að hitt- ast seinna, og hver veit nema við eigum eftir að taka saman í spil. Hafi hún þökk fyrir okkar kynni. Evert Kr. Evertsson Með fáum orðum langar mig að minnast ömmu minnar, Sigríðar Siguijónsdóttur, en hún lést á Sjúkrahúsi Húsavíkur þann 11. jan- úar á 95. aldursári eftir fárra daga legu. Margar góðar stundir áttum við saman í Framnesi og var þá oftar en ekki setið yfir kaffi og kökum og málin rædd. Dugnaður og atorka einkenndu ömmu alla tíð og vildi hún gera hlutina sjálf. Ekki gat hún hugsað sér að vera upp á aðra komin og var nánast fram á síðasta dag á heimili sínu sem henni var svo kært. Fyrir fáeinum vikum hringdi ég í hana og spjölluðum við lengi vel og sagðist ég sakna þess að kom- ast ekki í kaffisopann til hennar. Já, sagði hún, ég helli alltaf uppá kaffi kl. 10 á morgnana eins og þú veist. Vegna fjarveru minnar hittiimst við ekki oft síðustu mánuði, en mikið þótti mér af henni dregið er við sáumst um jólin. Hún bar sig þó vel og áttum við saman nokkra góða daga. Það var gripið i spil eins og svo oft áður, og engu hafði hún gleymt. Langömmustrákarnir Arnar Þór og Gunnar Illugi nutu góðs af að geta komið í Framnes, þá fengu þeir mjólk og kökur og svo var set- ið við spilin, því langamma gaf sér alltaf nægan tíma fyrir börnin. Söknuðurinn er því mikill hjá þeim. Og erfitt að skilja að nú verði ekki farið í Framnes meira, en við eigum góðar minningar um ömmu í Framnesi sem við búum að alla tíð. Guð blessi minningu hennar. Guðrún Gunnarsdóttir og fjölskylda. Amma á Húsavík, eins og við systkinin kölluðum hana, fæddist á Tjörnesi, en bjó á Húsavík frá tveggja ára aldri. Foreldrar hennar, Guðrún Kristjánsdóttir og Siguijón Þorbergsson, byggðu sér bæ sem kallaður var Garður. Þar ólst amma upp ásamt tveimur systkinum er upp komust, Soffíu og Páli, en þau eru bæði látin fyrir nokkrum árum. Einkar kært var með þeim systkin- um og mikill samgangur, enda bjuggu þau öll á Húsavík. Amma naut ekki langrar skóla- göngu frekar en almennt tíðkaðist um stúlkur á þeim tíma. Hún fór snemma að vinna fyrir sér og var meðal annars kaupakona í-Ysta- felli. Þegar Sigurður Jónsson varð ráðherra fékk hann kaupakonuna tíl Reykjavíkur og var amma frosta- veturinn imkla við störf í ráðherra- bústaðnum. Hafði hún mikla ánægju af þessari dvöl og minntist hennar iðulega. Hinn 12. nóvember 1922 giftist amma Jóhannesi Guðmundssyni, sem þá hafði starfað sem kennari á Húsavík um nokkurt skeið. Þeim varð fjögurra barna auðið: Sjöfn, gift Héðni Ólafssyni, Siguijón, kvæntur Herdísi Guðmundsdóttur, Asgeir Guðmundur, kvæntur Sæ- Minning: Elín Oddsdóttir Fædd 2. maí 1901 Dáin 9. janúar 1990 Mig langar að minnast tengda- móður minnar, Elínar Oddsdóttur, sem lést 9. janúar á hjúkrunar- heimilinu Grund. Hún dvaldist þar í 8 ár og síðustu árin var hún rúm- liggjandi og var henni því hvíldin kærkomin. Elín fæddist á Þæfusteini í Nes- hreppi 2. maí 1901 og var því á 89. aldursári er hún lést. Foreldrar hennar voru hjónin Oddur Kristján Jónsson og Jóhanna Elíasdóttir. Eignuðust þau 11 börn, Elín var elst ásamt tvíburasystur sinni Kristínu. Elín missir föður sinn 16 ára gömul, og fer því mjög ung að vinna fyrir sér og nærri má geta hvort það hafi ekki mótað ungling- inn bæði fátæktin og erfiðleikarnir. Þá voru ekki styrkir og bætur til að aðstoða ekkjur, ekki annað en að koma börnunum fyrir og leysa upp heimilin þegar engin var fyrir- vinnan. Jóhann fór í sambúð með Þor- varði Ketilssyni og eignaðist með honum einn son. Þijú af systkinum Elínar eru á lífi. Elín stofnaði heim- ili með manni sinum, Haraldi Guð- mundssyni ættuðum af Hellissandi. Þau bjuggu á Hellissandi þar til að þau flytja til Reykjavíkur 1949. Þau eignuðust fjögur börn, Guðmundu, Kristin, dáinn 1987, Harald og Guðbjörgu. Haraldur maður hennar lést fyrir 27 árum. Eftir að hann lést bjó hún á heimili Guðbjargar dóttur sinnar og hennar manni. Þau voru þá að stofna sitt heimili. Það var mjög kært með þeim mæðgum og voru þær alla tíð sam- an þar til hún fór á Grund fyrir 8 árum. Tengdamóðir mín var mjög snyrtileg og reglusöm húsmóðir, hafði auga fyrir því sem fallegt var, handlagin og saumaði og pijón- aði bæði á sín börn og einnig fyrir vandalausa. Hún þurfti oft að vinna utan heimilisins til að drýgja tekj- umar. Það tók mig tíma að kynnast henni enda var hún dul og fáskipt- in kona en þegar vinskap við hana var náð, þróaðist með okkur tryggð sem var til æviloka enda var hún mjög trygglynd þeim sem hún tók. Henni þótti vænt um æskustöðv- arnar, kom á hveiju sumri vestur á Sand meðan heilsan leyfði enda var hugurinn jafnan þar. Ég minnist þess með hlýhug er hún var að koma í heimsókn til okkar á sumrin, hvað gaman var að ræða við hana í rólegheitum, hún hélt sér alltaf frá margmenni, vildi helst vera þar sem minnst var um að vera. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (Vald. Briem) Nú veit ég að tengdamóðir mín er komin til þeirra sem hún elskaði og á undan henni eru farnir, og bið ég henni blessunar drottins með þakklæti fyrir allt. Blessuð sé minning hennar. Ester Friðþjófsdóttir Hin langa þraut er liðin, nú Ioksins hlaustu friðinn, og allt er orðið rótt, nú sæll er sigur unninn, og sólin björt upp runnin, á bak við dimma dauðans nótt. unni Sveinsdóttur, og Gunnar Páll, kvæntur Arnbjörgu Sigurðardóttur. Amma starfaði ekki utan heimil- is eftir að hún giftist og öll hennar orka fór í það að hlúa að börnum sínum og síðar meir áttu barnabörn- in og barnabarnabörnin ævinlega öruggt athvarf hjá henni. Fjölskyld- an var henni allt og ekkert var henni meira ánægjuefni en að hafa hana samankomna. Hún fylgdist grannt með afkomendunum sem voru orðnir um fimmtíu talsins og lagði háöldruð á sig langferðir til að geta verið viðstödd tímamót í lífi þeirra. Hún gladdist mjög yfir því að lifa það að sjá fyrsta langa- íangömmubarnið í desember. Við systkinin vorum einu barna- börnin sem ekki ólumst upp í ná- grenni við afa og ömmu. Við bætt- um okkur það hins vegar upp með tíðum ferðum til Húsavíkur. Ég fékk að dvelja hjá þeim á sumrin frá 6 ára aldri og það var aðaltil- hlökkunarefnið er skóla lauk á vor- in að fá að fara sem fyrst norður. Það var lærdómsríkt að fá að dvelja hjá þeim. Afi stundaði alla tíð kennslu, en fékkst gjarnan á sumr- in við ritstörf og þýðingar. Hann var í sambandi við skólamenn víða um land og var gestkvæmt á heimil- inu. Við barnabörnin, sem dvöldust á heimilinu um lengri tíma, nutum ekki aðeins ánægjunnar af sam- vistum við þau heldur var sífellt verið að fræða okkur og vekja at- hygli á ýmsu sem fólk lætur nú til dags fram hjá sér fara. Mér verður sífellt ljósara hversu ómetanlegur þessi tími var. Við krakkarnir fengum ýmiss konar verkefni og talað var við okkur eins og fullorðið fólk. Afi lagði upp úr uppeldislegu gildi starfs og leikja og amma var okkur skjól með hlýju sinni og mildi. Hún var undanláts- samari við okkur. Við vissum að henni gat orðið þungt í skapi, en hún hafði svo mikla sjálfstjórn að þess varð ekki vart. Afi lést árið 1970 og hafði þá stundað kennslustörf nánast óslitið í 56 ár. Þetta hafði eðlilega mikla breytingu í för með sér á líf ömmu. Ég dvaldi hjá henni veturinn eftir Með þessum orðum langar okkur að byija minningarorð um Elínu ömmu, sem fékk hvíldina þann 9. janúar sl. eftir langa sjúkralegu á elliheimilinu Grund. Við minnumst hennar á æskuár- um okkar, þegar hún kom á hveiju sumri vestur og dvaldist í Rifi eða á Hellissandi. Hún kom jafnan á æskuheimili okkar og þegar hún birtist þá vildum við gjarnan fylgj- ast með hvað hún var að gera. Það var svo gott þegar hún kom, því hún hafði svo róandi áhrif á alla sem í kringum hana voru. Við systkinin bárum mikla virð- ingu fyrir ömmu, þar sem hún var svo yfírveguð og róleg þó ýmislegt væri að gerast í kringum hana. En ætíð hélt amma ró sinni þar sem hún sat með pípuna sína. Minningin um ömmu mun ávallt lifa í hjörtum okkar. Guð blessi minningu góðrar konu. Baldur, Elvar, Dóra, Jóhann, Helena, Hafalda, Jófríður, Snædís og Guðbjörg.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.