Morgunblaðið - 20.01.1990, Page 30

Morgunblaðið - 20.01.1990, Page 30
30 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. JANÚAR 1990 Minning: Páll Ólafsson á Starrastöðum verustundirnar þar efra og heima- fyrir á Starrastöðum þakka ég með djúpri saknaðarkennd og fyrir hönd konu minnar og bama okkar, sem í æsku nutu einstakrar alúðar Páls og Guðrúnar á Starrastöðum, skulu sendar þakkarkveðjur minninga- daginn. Agúst Sigurðsson Fæddur 15. maí 1910 Dáinn 12. janúar 1990 Bóndi er bústólpi, bú er landstólpi, því skal hann virður vel. Með Páli á Starrastöðum er genginn merkilegur skammtími í þjóðfélaginu. Reisnartími land- búnaðarins milli heimskreppunnar og hins nýja efnahagsvanda, er blómaskeið, sem atorkumennimir, sem breyttu móum og mýram í túnsléttur og reistu varanleg íveru- og útihús á jörðum sínum, lifðu óhikað og af aldagróinni hugsjón, sem loksins fékk að rætast í landinu. Þótt vér horfum fram í spum og eftirvænting á nýju ári, vitum vér og viðurkennum, að þar er aðeins að vona. Sýnin til baka er, í vild og brigðum, mynd þeirrar lausnar viðfangsefnanna, sem vænzt var. Kom eins og hógvær aðdragandi á búskapartíma Ólafs á Starrastöðum 1901-1937, en fékk fullgildi á dögum Páls sonar hans á þeim búnaðartíma í landinu, sem stóð, og við svo mikla framför, að kalla má stökkbreytingu, allan hans búskapartíma á Starrastöðum. Þess er getið í bókum að Ólafur á Starrastöðum færði túnið út um 30 dagsláttur á fyrsta þriðjungi aldarinnar, nýjaði öll hús og vann til búverðlauna í danska ríkinu fyr- ir hinar miklu framkvæmdir og girðingar. Er það nefnt, vegna þess að Páll sonur hans var slíkra verð- launa meir en verður. í lýðveldi á íslandi var umbunin önnur: Bóndi er bústólpi. Þjóðmæringarnir Helgi Hjörvar og síra Sigurður í Holti hófu bóndatitilinn á loft. Loks var áþján kyrrstöðu, átakanna milli feigs og ófeigs í íslenzku þjóðfé- lagi, af létt, og landstólpi þjóðarinn- ar alla sögu var ekki aðeins við réttur, en stóð fullvel, landi og Iýð til blessunar. Páll Ólafsson bjó þennan blómg- unartíma góðbúi sínu á Starrastöð- um í Mælifellssókn. Hann var mik- ill bóndi. Gæfumaður að lifa þessa hagfelldu tíð á íslandi. Gróinn í ald- anna hefð og von. Loks hafði iýst af þeim morgni, er birti af nýjum degi búnaðarins, verkmiklum og gjöfulum. Er Páll einn Starrastaða- bænda alla íslandssöguna, er slíkur kostur bauðst. Hann neytti færis, enda þrekmikill til lífs og sálar, frá- bær að líkamsorku og ýttist aldrei með mótbáram. Hann var „Dala- maður“, eins og vér köllum fólk úr Skagaijarðardölum, ogbærðist ekki með bylgjum við fjarlæga strönd- ina. Hins vegar varjiann bæði bóka- og sagnavinur, er skildi aðstöðu annarra og virti um íslendingsins mörgu og erfiðu ár. Miidur við þá, sem töpuðu, hvort sem þeir höfðu barizt lengur eða skemur í þjóð- stríði fátæktarinnar. Hann lifði tímana tvenna, unglingurinn oft við hæpna heilsu vegna endurtekinnar lungnabólgu, hraustmenni uppkom- inn og fær til átaka. Margreyndur og trúr maður í yfirveguðum huga, en duldi hið heita hjarta og gæzku- þel með óvenju hnyttinni gaman- semi, orðspaugi og glettni. Þau Þorbjörg eldri systir hans vora mjög lík. Sterk að greind hlut- anna og minni hversdagsins á heimaslóðum, ásamt varfæmu mati á því, sem þau höfðu lesið, var ein- kenni skoðunar þeirra, þegar þau horfðu til baka. Þó var eins og þau álitu hinn mikla umrótstíma í þjóð- félaginu ekki svo margslunginn. íslenzki bóndinn og húsfreyja vora frá landnámstíð búin undir aðra reynd en aldalöng kefjun varð. Þeg- ar breyttist, tók þetta þroskaða fólk hinu nýja eins og af gróinni erfð vonar kynslóðanna. í fyrra sið vora Starrastaðir út- býli frá Mæiifelli, síðar kirkjujörð með kvöðum og skyldum. Þegar sú skipun breyttist 1907, fjölda bú- enda til heilla, keypti Ólafur Sveins- son frá Bjamastaðahlíð jörðina, en hann hóf búskap á Starrastöðum ungur 1901. Lagði hann þannig grundvöll að framtíð Páls og þess óðalsréttar, að nú er Eyjólfur Páls- son tekinn við jörð og búi. Mannlýsingar Þormóðs Sveins- sonar og annarra í Skagfirzkum æviskrám eru svo haldgóðar, að þeim er sjaldan mótmælt. Segir þar frá Sveini Guðmundssyni frá Fremri Svartárdal, bónda í Bjarnastað- arhlíð, og Þorbjörgu Olafsdóttur konu hans frá Litluhlíð, að hann væri hár og þrekinn og orkumaður mikill og áræðinn. Góðmannlegur og skipti sjaldan skapi. Hestamaður og ötull ferðamaður. Verkmaður mikill og búhöldur og bætti jörð sína. Um hana, að væri þrekkona til orðs og æðis, en greiðasemi hjóna við brugðið. Ólafí á Starrastöðum kippir í kynið. Endurtekning er óþörf, einnig er víkur að Páli. Hann var ekki aðeins, sem frá er sagt um þá feðga, föngulegur, hár og breiðvaxinn, en hestamaður og á gönguferðum svo, að fáir fylgdu eftir. Hinn hái og líkamaþungi maður, mæddur af lungnabólgu frá fermingaraldri, rann á brekkurnar og gekk ávallt beint á brattleiðið, er þurfa þótti. Hanij var ham- hleypa, sem unni sér ekki hvíldar, nema aðeins af gestrisni. Þá virtist aldrei standa illa á. Eða, þegar til var kallað úr nágrenni. Þannig kynntist ég honum fyrst og hef æ síðan reynt traustið og vináttuna. Páll var fæddur á Starrastöðum hinn 15. maí í 910 og var móðir hans síðari kona Ólafs, Margrét Eyjólfsdóttir frá Stafni. Hún dó ung 1923 og stýrði Þorbjörg síðan búi innanhúss, unz Páll var kvæntur Guðrúnu Kristjánsdóttur frá Krit- hóli og tók við jörðinni 1937, en Þorbjörg giftist Birni Hjálmarssyni og bjuggu þau lengst á Mælifellsá. Milli þeirra að aldri var Eydís, hjúkranarkona á Vífílsstöðum og dó liðlega fertug. — Það var gæfa Páls, áð hann var bóndi á hagfelld- um tímum í landi. Enn var ham- ingja hans, að hann átti Guðrúnu Kristjánsdóttur, frábæra að atorku og mýndarskap og undu þau hvors annars hag í samlyndi og einurð. Áttu þau barnaláni að.fagna. Sig- urður er fltr. syðra, en Ólafur raf- virkjameistari og Reynir trésmíða- meistari búsettir í héraði og Eyjólf- ur, hinn yngsti þeirra bræðra, býr með prýði og framkvæmd á jörð föður síns og afa. Bóndinn Páll á Starrastöðum var bústólpi og sem slíkur landstólpi á sinni tíð. Hann var góðbóndi, rækt- unarmaður og mikill skepnuvinur. Sparaði og aldrei sporin um Hamra- heiðina, Mælifellsdal og heiðalönd. Kunni hann þar ömefnin og á öllum löndum skil. Frá unglingsáram þekkti hann öræfin úr göngum, en Kjalveg til hlítar, enda hafði faðir hans varðað veginn og þeir feðgar haldið við og haft eftirlit. Sam- t Systir okkar og mágkona, SOFFÍA KRISTINSDÓTTIR, Flókagötu 16A, verður jarðsett frá Dómkirkjunni mánudaginn 22. janúar kl. 13.30. Vilhelm Kristinsson, Ólína Guðbjörnsdóttir, Sigríður Kr. Johnson. Páll á Starrastöðum andaðist 12. þ.m. á Sjúkrahúsi Sauðárkróks, tæplega 80 ára að aldri. Hann var í hærra meðallagi, ljóshærður, hrokkinhærður og fölur í andliti en vel á sig kominn bæði andlega og líkamlega; prúður í framkomu, hjálpsamur og drengur góður. Foreldrar hans vora Margrét Eyjólfsdóttir frá Stafni í Svartárdal og Ólafur Sveinsson frá Bjarna- staðahlíð. Þau bjuggu á Starrastöð- um allan sinn búskap. Páll átti tvær systur: Þorbjörgu sem er gift Birni á Mælifellsá og Eydísi Guðrúnu hjúkranarkonu á Vífílsstöðum en hún dó 1951 ógift og barnlaus. Margrét dó þegar Páll var aðeins 13 ára að aldri, árið 1923, og hefur það verið mikið áfall fyrir bömin og heimilið. Páll var kominn út af hinni Ijöl- mennu Hlíðarætt sem kennd er við Bjarnastaðahlíð í Vesturdal. Ólafur faðir Páls var sonur Sveins Guð- mundssonar sem þar bjó um langan aldur og konu hans Þorbjargar Ólafsdóttur. Þetta er talið mikið kjarnakyn, frændliðið er fjölmennt og orðlagt atorku- og dugnaðarfólk. Ólafur var góður bóndi enda hlaut hann verðlaun úr Styrktarsjóði Kristjáns konungs IX. fyrir búnað- arframkvæmdir. Móðir Páls, Mar- grét, var Skagfirðingur í móðurætt. Hún var dóttir Herdísar Eiríks- dóttur hreppstjóra í Djúpadal Eiríkssonar. Páll vann að búi foreldra sinna strax og hann hafði aldur til enda í eðli sínu mikið náttúrabarn. Þó Starrastaðir séu í lágsveit á jörðin land til hárra fjalla með bröttum hlíðum og hamrabeltum upp á Hamraheiði, Járnhrygg og Mæli- fellshnjúk, konungs skagfirskra fjalla. Þama í brekkunum og gras- geiranum við læki og lindir liggja bemskuspor Páls á Starrastöðum. Ég sé hann í anda tylla sér á þúfu í kvöldkyrrðinni, hlýða á margradd- aðan fuglasöng og horfa yfir hina dásamlegu fegurð Skagafjarðar. En árin liðu við leik og störf og nú kom að því að Páll ákvað að hleypa heimdraganum og leita sér aukinnar menntunar. Árið 1930 ákvað hann að fara í Laugaskóla í Reykjadal þar sem hann dvaldi einn vetur við nám. Af frekara námi varð ekki því Ólafur faðir hans var farinn að reskjast og þurfti örugga hjálp við búskapinn. Páli fannst sjálfsagt að hann settist að heima enda hans framtíðarsýn að verða bóndi á æskuheimili sínu sem og varð, því á Starrastöðum bjó Páll meðan kraftar entust. Hann vissi vel að þar þurfti að taka til hendi. Þó faðir hans væri í fremstu bænda- röð voru búskaparhættir með gömlu og grónu sniði, m.a. vora allar byggingar úr torfi og gijóti. Páli var ljóst að þarna beið hans mikið verk við byggingar og aðrar fram- kvæmdir á jörðinni enda varð það hans ævistarf að fegra og bæta jörðina og verður að því vikið síðar. Árið 1937 giftist Páll eftirlifandi konu sinni, Guðrúnu Kristjánsdótt- ur frá Nautabúi, en þar var hún að miklu leyti alin upp hjá Ingi- björgu Sigfúsdóttur og Sigurði Þórðarsyni hreppstjóra og síðar al- þingismanni. Hennar raunveralegu foreldrar voru Ingibjörg Jóhanns- dóttir frá Saurbæ og Kristján Árna- son frá Krithóli. Systkini Ingibjarg- ar voru Eymundur bóndi í Saurbæ, Sigmar bóndi á Steinsstöðum og Jóhanna í Tunguhlíð, sem er lang- amma Jóns Páls Sigmarssonar heimsmethafa í kraftlyftingum. Kristján var búfræðingur frá Olafs- dal, sá eini sem þar hlaut menntun úr Lýtingsstaðahreppi. Hann naut aldrei sinnar menntunar og hæfí- leika vegna fátæktar. Ingibjörg kona hans var vel verki farin og fyrirmyndar húsfreyja. Guðrún á Starrastöðum var og er höfðingskona, hreinlynd og trygg, skaprík nokkuð en glaðlynd og ræðin. Hún er fyrirmyndar hús- móðir, hjálpsöm og gestrisin og hafði óskorað yndi af að veita gest- um, háum sem lágum. Þau Guðrún og Páll eignuðust saman fímm syni. Þeir era: Ólafur rafvirkjameistari, búsettur á Sauð- árkróki, giftur Hjörtínu Vagnsdótt- ur og eiga þau tvö börn; Sigurður bifreiðastjóri hjá Ölgerð Egils Skallagrímssonar, búsettur í Kópa- vogi, hans kona er Sigurbjörg Stef- ánsdóttir og eiga þau þijú börn; Reynir húsasmíðameistari, búsettur í Varmahlíð, hans kona er Soffía Kristjánsdóttir og eiga þau tvö börn; Ingimar'umsjónarmaður Bifrastar á Sauðárkróki, giftur Halldóru Helgadóttur og eiga þau þijú börn; yngstur er Eyjólfur bóndi á Starrastöðum, hans kona er María Haukdsdóttir Reykdal og eiga þau tvö börn. Eyjólfur átti einnig barn með Kristbjörgu Einarsdóttur áður en hann kynntist Maríu. Páll keypti Starrastaði af föður sínum 1937 og bjó þar af miklum dugnaði síðan. Eins og áður segir vora allar byggingar á jörðinni gamlar og með fornu sniði. Rúmur áratugur fór í að byggja upp öll hús á jörðinni. Fyrst byggði hann bæjarhúsin síðan fjárhús, fjós og geymslur — allt úr steini sem var besta byggingarefni sem þá þekkt- ist. Jafnhliða stækkaði hann bú- stofninn svo að hann varð með þeim stærstu í hreppnum. Framkvæmda- viljinn og vinnuþrekið var með ólík- indum enda varð honum mikið ágengt í ræktun lands og búpen- ings. Páll var meðal þeirra manna sem stóðu fremstir í flokki sem fóra í fjallaferðir, göngur og smala- mennsku. Hann var ávallt vel ríðandi, átti frábæra íjárhunda, var snar í snúningum og svo fljótur að hlaupa að með ólíkindum var með mann sem ekki hafði iðkað þá íþrótt. Fjárglöggur var hann svo að af bar og þekkti flest fjármörk í hreppnum og einnig í nágranna- hreppunum. í stóðréttum var Páll svo óragur við að svífa á fullorðin ótamin hross að manni stóð stuggur af en harkan í honum var svo mik- il að fyrir hann var þetta ekkert mál. Ég fór nokkram sinnum í Vest- flokk, sem svo er kallaður, en þá var farið fram Goðdaladal að Hraunlæk og gist þar fyrstu nótt- ina. Morguninn eftir var farið upp á Skiptabakka og þar skipt göngum. Ég var ungur að árum þá, milli fermingar og tvítugs, og fór ég alltaf með þeim Páli á Starra- stöðum og Sigfúsi Sigurðssyni á Nautabúi upp að Eyfirðingahólum og Jökulkrók, vestur með jöklinum og upp fyrir Sátu og niður í Áfanga- flá sem þá var náttstaður. Ég man enn hvað mér fannst þessi leið löng og erfið en jafnframt skemmtileg. Ferðafélagarnir léku á als oddi, voru alltaf með lögg í glasi en fóru vel með það. í minni fyrstu ferð með þeim félögum drakk ég minn fyrsta brennivínssopa, þeir félagar voru mér góðir og nærgætnir eins og ég væri eitthvað brohætt sem ekki mætti skemma. Ég kynntist Páli fyrst þegar ég var innan við tíu ára aldur. Þá kom hann að Mælifellsá og var með Sigmari á Steinsstöðum sem þá mun hafa verið fjallskilastjóri. Þeir voru að fara í heiðarleit fram á Haukagilsheiði ásamt fóstra mínum, Jóhanni á Mælifellsá, en þeir fóru oft saman í leitir. Þetta var fyrrihluta vetrar og kominn snjór. Þeir leituðu fram heiðina fyrsta daginn og gistu í Bugakofa (við Almannavatn), en næsta dag niður Stafnsgil, upp Einarsdal og út Reykjafjall. Svona ferðir vora algengar á þessum tíma og alltaf farið gangandi, um annað var ekki að ræða og mundi mörgum þykja þetta þröngir kostir nú á dögum. Á meðan slátrað var stórgripum í sláturhúsinu á Laugarbóli og Sveinn á Varmalæk hafði þar að- stöðu til slátranar, var Páll verk- stjóri hjá honum og hans hægri hönd enda þrifinn og allur hans frágangur á kjötinu eins og best var á kosið. Þegar stórgripaslátran- in fluttist til Slátursamlags Skag- firðinga varð Páll fastur starfsmað- ur þegar á slátran stóð meðan kraftar og heilsa leyfði. Páll var mikill sjálfstæðismaður en hógvær og öfgalaus. Hann var umboðsmaður frambjóðenda Sjálf- stæðisflokksins við Steinsstaðakjör- deild og átti að gæta þess að allt væri í röð og reglu á kjörstað á kosningadaginn. Þar kom sér vel trúmennska hans og lipurð. Það varð aftur á móti mitt hlutskipti að gæta hagsmuna fyrir Framsókn- arflokkinn og er ég ekki dómbær á hvor hefur staðið sig betur í hlut- verkinu. En það gerðist margt skondið og skemmtilegt á slíkum dögum sem lífgaði upp á tilveruna. Þá vora kosningabílamir merktir með blaktandi flokksmerkjum og áróðursspjöldum. Páll keyrði á sínum jeppa og var ötull í starfi. Hins vegar átti ég engan bíl en það kom ekki að sök því Gunnar á Varmalæk ók fyrir mig og var það góður kostur því hann var bæði mælskur og orðheppinn. Síðan hófst kapphlaupið um þá sem óákveðnir voru og gekk á ýmsu að keyra fólki á kjörstað. Ég held að það hafi verið samdóma álit okkar allra að starfið hefði skilað því einu að greiða fyrir því að fólk kæmist á kjörstað en hafi ekki haft nokkur áhrif á skoðanir manna og fór vel á því. Páll var hlédrægur í eðli sínu og tranaði sér ekki fram til mannvirð- inga. Þó fór svo að hann varð eins og svo margur annar að taka þátt í félagsmálum sveitar sinnar í nefnda- og trúnaðarstörfum. Hann var kosinn í hreppsnefnd Lýtings- staðahrepps 1958 og átti þar sæti til 1966. Hann var tillögugóður og vinsæll hreppsnefndarmaður og vildi öll mál leysa í sátt og sam- lyndi enda er það venjulegast þegar menn þurfa að vinna saman að velferðarmálum sveitarinnar að Iáta flokkspólitík ekki rugla sig. Páll hætti búskap 1981 og flutti til Sauðárkróks enda farinn að heilsu. Að endingu sendum við hjón- in og synir okkar Guðrúnu, sonum hennar og fjölskyldum þeirra inni- legar samúðarkveðjur. Guð blessi ykkur. Jóhann Hjálmarsson frá Ljósalandi. í dag, laugardaginn 20. janúar, verður til grafar borinn frá Mæli- felli í Skagafirði Páll Ólafsson bóndi, Starrastöðum. Margar koma þær upp í hugann minningarnar þegar við lítum um farinn veg, ekki síst þegar við stöndum í þeim sporum að kveðja góðan vin sem kallaður hefur verið burt. Það má segja að vinátta okkar Páls hafi byrjað með brúun kyn- slóðabilsins þegar ég óharðnaður borgarstrákurinn við fermingu kom fyrst í Starrastaði. Og margar voru þær ánægju- stundirnar sem við áttum, ungling- urinn og hinn aldraði lífs lærði bóndi, jafnt við leik og störf í því annríki hversdagsins sem sumarið er fyrir bóndann. En efst standa þær þó í minningu hugans þær ófáu ferðir sem við Páll fórum til þess að líta eftir stóðinu og telja folöld- in. Og í þeim ferðum virtist gamli maðurinn óþreytandi í að kenna unga manninum og benda honum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.