Morgunblaðið - 20.01.1990, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. JANÚ.AR 1990
31
á örnefni sem birtust við hvert fót-
mál og einnig að meta og njóta
þeirrar stórfenglegu náttúrufegurð-
ar sem Skagafjörðurinn er. Og af
þeirri reynslu mun ég búa alla tíð.
Mikið vatn rennur til sjávar á
átta árum og nú þegar komið er á
leiðarenda koma upp í hugann orð
skáldsins:
Kveð ég fagra fjörðinn Skaga,
farðu vel um alla daga.
Blessuð sé þín’byggð og saga,
bæir, kot og höfuðból.
Heyr mig, göfgi, glaði lýður,
gæt þess vel, sem mest á ríður.
Meðan tíminn tæpi líður,
trúðu þeim, er skapti sól.
Þá skal sólin sælu og friðar,
sú er löngu gekk til viðar,
fegra byggðir fagrar yðar,
fóðra gulli Tindastól.
(Matthías Jochumsson)
Mig langar til að enda þessi fá-
tæklegu kveðjuorð mín á því að
þakka ævarandi vinskap og það sem
sú vinaátta hefur gefið mér og
mínum, um leið og ég votta eftirlif-
andi eiginkonu Páls, Guðrúnu
Kristjánsdóttur, sonum þeirra hjóna
og fjölskyldum þeirra innilegustu
samúð og megi algóður Guð styrkja
ykkur í sorg ykkar.
Minningin lifir.
Ólafúr Eggertsson,
Keflavík.
Kynni mín af Páli Ólafssyni og
Guðrúnu Kristjánsdóttir konu hans
hófust vorið 1971. Þá varð ég þeirr-
ar gæfu aðnjótandi að vera send í
sveit 10 ára gömul til þeirra hjóna
að Starrastöðum í Skagafirði.
Reyndar hafði ferðinni verið heitið
á annan bæ sem þau hjón höfðu
haft milligöngu um að útvega vist
á en þegar það svo brást óvænt
buðu þau móður minni sem hafði
orðið ekkja þá um veturinn að hafa
telpuna í nokkrar vikur. Það er
óþarfi að rekja hver áhrif föður-
missis er á 10 ára barn. Kvíði og
öryggisleysi fylla hugann og barns-
leg gleði víkur fyrir áhyggjum hins
fullorðna. En gott atlæti og hlýja
þeirra hjóna var sem smyrsl á sárin
og vikurnar urðu að tveim heilum
sumrum. Útiverkin, sem voru í
umsjá Páls og Eyjólfs, yngsta sonar
þeirra hjóna, heilluðu meira en hefð-
bundin heimilisstörf. Þolinmæði
Páls var nær óendanleg við að svara
fávíslegum spurningum borgar-
barns um gang lífsins í sveitinni.
Góðlátleg stríðni hans eyddi
áhyggjum ef illa tókst til, hvort sem
ég datt af baki á fetgangi, ruglaði
saman reiða og gjörð eða datt í
gegnum þakið á hænsnakofanum
sem telpan átti vafalaust brýnt er-
indi upp á. Hann átti líka til hvatn-
ingarorð þegar við átti og ánægjan
var óblandin við hrósyrði frá Páli
og líka þegar hann fól manni vanda-
verk eins og til dæmis að hreyta
kýmar þegar búið var að vélmjólka
þær. Vinátta mín og Páls rofnaði
ekki þegar kaupakonustörfunum
lauk. Flest sumur kom ég að Starra-
stöðum, fyrst með móður minni og
fóstra frænda Páls, og seinna sem
fullorðin kona með mína fjölskyldu.
Páll og Guðrún dvöldu einnig oft á
bernskuheimili mínu þegar þau
komu suður og var þá fagnaðar-
fundur. Nokkur ár eru síðan Páll
og Guðrún fluttu á Sauðárkrók en
við búinu á Starrastöðum tók
bernskufélagi minn, Eyjólfur,
yngsti sonur þeirra hjóna, og kona
hans, María. Síðustu tvö ár dvaldi
Páll á sjúkrahúsi Sauðárkróks far-
inn að heilsu og kröftum.
Að Páli stóðu sterkar skagfirskar
ættir. Frændgarðurinn er stór og
því margir sem eiga um sárt að
binda. Við lát hans er horfinn einn
af máttarstólpum síns héraðs, einn
af þeim mönnum sem með þrot-
lausri vinnu byggði upp þjóðfélag
okkar daga. Á stundu sem þessari
ber að þakka það sem liðið er og
varðveita góðar minningar sem dýr-
an fjársjóð.
Eftirlifandi eiginkonu, Guðrúnu,
sonum og fjölskyldum þeirra sendi
ég hugheilar samúðarkveðjur.
Ragnheiður Gunnarsdóttir
Fleiri greinar um Pál Ólafsson
munu birtast íblaðinu næstu daga.
rTEPPALAN DS
UTSALAN
Teppi, dúkur, parket og flísar
Stórglæsilegt úrval af gólfefnum á ótrúlega lágu verði.
Útsalan er á tveimur hæðum.
í kjallaranum er Dúkaland með gólfdúk, flísar,
parket og kork. En í Teppalandi, á fyrstu hæðinni, eru
gólfteppin og motturnar í glæsilegu úrvali.
Eitt glæsiiegasta úrval teppa og búta á
útsölu til þessa. Margir gæðaflokkar og allir
verðflokkar. Bútar allt að 30 fermetrar að
stærð með 50% afslætti.
Dæmi:
Einlit uppúrklippt teppi, 100% polyester.
Óhreinindavörn. Fallegir litir.
Verð áður 2126-
AFSLÁTTUR 20% 1699—
Lykkjuteppi (Berber) úr gerviefni með viður-
kenndri óhreinindavörn. Fallegt og efnismikið
teppi í tveimur litum; Ijósgráu og „beige".
Einstakt tilboð.
Verð áður 1.785-
AFSLÁTTUR 25% 1.339-
Grimmsterkt teppi á skrifstofur, stofnanir og
stigahús. Fallegir litir.
Verð áður 1.495-
AFSLÁTTUR 20% 1.196-
Fallegt einlitt teppi með „velúr“áferð úr 80% ull
og 20% nælon.
Endingargott heimilisteppi í háum gæðaflokki.
Verð áður 2.732-
AFSLÁTTUR 22% 2.156-
AFSLÁTTUR AF GÓLFTEPPUM
ER 10-50%
Fjölbreytt mynstur og margar þykktir.
Ýmsar breiddir. Bútar á heiiu herbergin
með 50% afslætti.
Dæmi:
„Art design" 2ja metra breiður dúkur sem er 2
mm að þykkt.
Verð áður 914—
AFSLÁTTUR 47% 484—
„Strong super" 2ja metra breiður dúkur
sem er 2,5 mm að þykkt.
Verð áður 1755-
AFSLÁTTUR 55%
790-
„Tricastle'13ja metra breiður dúkur
sem er 1,8 mm að þykkt.
Verð áður .1.188-
AFSLÁTTUR 25% 891
Úrvalsparket frá ýmsum framleiðendum
á lækkuðu verði.
Eitt glæsilegasta úrval landsins af stökum
teppum í mörgum stærðum úr bæði uil og
gerviefnum. Klassísk og nýtískuleg mynstur
við allra hæfi.
AFSLÁTTUR 10-25%
Mikið úrval af keramikflísum á gólf
og veggi á lágu verði.
Mikið af góifteppum í fullri breidd í heilum
rúllum sem eru allt að 70-80 fermetrar.
Góðir gólfdúkabútar.
Hafðu málin með þér og þú getur gert
ótrúleg kaup fyrir heimiiið eða vinnustaðinn.
Börnin una sér í Boltalandi meðan
foreldrarnir spara stórar upphæðir.
Staðgreiðsluafsláttur. Góðir greiðsluskilmálar. Greiðslukort. Euro og Visa afborgunarsamningar.
E
EUROCARD
vrsA
Samkort
Teppaland • Dúkaland
Grensásvegi 13, sími 83577, Rvík.
öll verö eru uppgefirí i fermetrum