Morgunblaðið - 20.01.1990, Qupperneq 42
42
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LAUGARDAGUR 20. JANÚAR 1990
KNATTSPYRNA / EVROPA
Þrír íslendingar yrðu
með í „stórdeild“ Evrópu
ÞRÍR íslendingar yrðu með í
baráttunni í „stórdeild" Evr-
ópu i knattspyrnu, ef deildin
verður stofnuð. Það hefur
lengi verið draumur margra
forráðamanna stóru félag-
anna í Evrópu að koma á
sérstakri deild þar sem fjör-
utíu frægustu félagslið Evr-
ópu taki þátt í.
Anderlecht, Tottenham og
Arsenal eru á listanum yfir
þau félög sem eiga rétt á að leika
í deildinni. íslensku landsliðs-
mennimir Arnór Guðjohnsen,
Guðni Bergsson og Sigurður Jóns-
son leika með þessum liðum.
ítalski milljónamæringurinn og
sjónvarpskóngurinn Silvio Berlus-
coni er aðalmaðurinn á bak við
þá hugmund að stofna stórdeild-
ina, en aðaltekjulind deildarinnar
yrði hagnaður af beinum útsend-
Arnór
Guðni
ingum frá leikjum deildarinnar.
Það eru ekki allir yfir sig hrifn-
ir af hugmyndinni um stórdeild.
Evrópukeppnin í knattspymu
myndi að öllum líkindum falla
niður í núverandi mynd. Þá yrðu
meistarakeppni hinna ýmsu landa
ekki lengur áhugaverðar. Hvað
er ítalska knattspyman án Ju-
ventus, Napolí, Róma og Mílanó-
Sigurður
liðanna. Og hveijir myndu hafa
áhuga á spönsku deildarkeppninni
án Barcelona, Real Madrid og
Atletico Madrid?
Stórkeppni Evrópu myndi
skaða meistarakeppni í hinum
ýmslu löndum. Eftirtalin félög
hafa verið nefnd þegar umræður
um stórkeppnina hafa verið:
Hílalía: Napolí, Intfir Mllanó,
AC Mílanó, Juventus, Roma, Fiorentina
og Sampdoría.
ISpánn: Real Madrid, Barcelona,
Atletico Madrid, Valencia, Real Zaragoza
og Atletico Bilbao.
■V-Þýskaland: Bayem Miinchen,
Borussia Mönchengladbach, Hamburger
og Köln.
■England: Manchester United, Liver-
pool, Everton, Tottenham og Arsenal.
■Skotland: Glasgow Rangers og Celtic.
■Holland: Ajax, Feyenoord og PSV
Eindhoven.
■Frakkland: París St. Germain, Mar-
seilles, Bordaux og Mónakó.
■Austurriki: Austría Vín.
■Grikkland: Olympiakos og Panathin-
aikos.
■Tyrkland: Galatasaray.
■Belgia: Anderlecht.
■ Svíþjóð: IFK Gautaborg.
■Portugal: Benfica, Sporting Lissabon
og Porto.
Eins og sést á þessu þá em
þetta allt mjög fræg og fjársterk
félög. Félög sem hafa margsinnis
orðið Evrópumeistarar.
TENNIS / OPNA ASTRALSKA MEISTARAMOTIÐ
Ivan Lendl þurfti íjórar lotur til að vinna landa sinn, Karel Novacek.
Lendl í basli
með IMovacek
IVAIM Lendl, besti tennisleikari
heims um þessar mundir, átti
í mesta basli með að komast
í 16 manna úrslitin á opna ástr-
alska meistaramótinu. Hann
lék gegn landa sínum, Karel
Novacek, í gær og þurfti fjórar
loturtil að ná að sigra.
Lendl vann fyrstu lotuna eftir
jafnan leik, 6:4. Novacek gerði
sér lítið fyrir og vann næstu 3:6
og var næstum búinn að vinna
þriðju lotuna eftir að hafa komist
1:3, en þá tók meistarinn til sinna
ráða og vann 6:3. Lendl vann síðan
ijórðu lotuna sannfærandi, 6:1.
„Ég var allan leikinn í vörn vegna
þess að Karel hitti boltann mjög
vel,“ sagði Lendl sem mætir Simon
Youl frá Ástralíu í næstu umferð.
„Þó svo að Karel hafði veitt mér
harða keppni var ég aldrei hræddur
um að mér tækist ekki að vinna.“
Steffi Graf, sem á möguleika á
að vinna ástralska mótið þriðja árið
í röð, byijaði illa gegn Leila Meshki
frá Sovétríkjunum. Graf sló tennn-
isspaðanum óvart í höfuðið á sér í
upphafi leiks og það tók hana smá
tíma að komast inní leikinn aftur.
Meshki komst í 3:1 í fyrstu lotu,
en þá var Graf búin að jafna sig
og tók völdinn, vann 6:4 og 6:1.
Graf, sem hefur ekki enn tapað lotu
á ástralska mótinu síðan _ 1988,
mætir Raffaellu Reggi frá Ítalíu í
næstu umferð.
Edberg fékk tertu
Mótshaldarar komu Svíanum,
Stefan Edberg, heldur betur á óvart
er þeir færðu honum risastóra tertu.
Tilefnið var 24 ára afmæli kapp-
ans. Hann sagðist ekki gera mikið
meira en að blása á þau 24 kerti
sem á tertuni væru.
Edberg og Ástralinn, Pat Cash,
léku saman í tvíliðaleik í gær unnu
Peter Kord og Cyril Suk frá Tékkó-
slóvakíu, 7:6, 3:6 og 6:4 og eru
komnir í 3. umferð.
Laugardagur kl.14:55
3, LEIKV IKA* 20. ian.1989 1 m im
Leikur 1 Arsenai 1 Tottenham m§ §§!
Leikur 2 AstonVilla - Southampton
Leikur 3 Chelsea - Charlton
Leikur 4 C. Palace - Liverpool
Leikur 5 Derbv - Nott. For.
Leikur 6 Everton - Sheff. Wed.
Leikur 7 Luton - Q.P.R.
Leikur 8 Man. City - Coventry
Leikur 9 Millwall - Wimbledon
Leikur 10 Oldham - Newcastle
Leikur 11 Oxford - Blackburn
Leikur 12 Wolves - Swindon
Símsvari hjá getraunum er 91-84590 og LUKKULÍNAN S. 991002 SprengÍDOttur!!! -84464. [íA-xlí/feÆxíjíxJíx-ííx:
ÍH&m
FOLX
H WIM Kieft, hollenski landsliðs-
maðurinn hjá PSV Eindhoven,
lýsti því yfir á fimmtudag að vildi
fara frá félaginu. Kiefl sat á vara-
mannabekknum í leik PSV og Fey-
enoord í bikarleiknum á miðviku-
dag og kunni hann því afar illa.
Danski leikmaðurinn, Flemming
Povlsen, tók stöðu hans. Kees
Plögsma, stjómarformaður PSV,
sagðist ekki skilja Kieft og vonað-
ist til að hann myndi endurskoða
afstöðu sína og vera áfram hjá fé-
laginu. Kieft hefur átt fast sæti í
hollenska landsliðinu og gert níu
mörk í 21 landsleik.
H NOTTINGHAM Forest eða
Tottenham leikur gegn Sunder-
land eða Coventry í undanúrslitum
enska deildarbikarsins í knatt-
spyrnu, en dregið var í gær. í hinum
undanúrslitaleiknum mætast Sout-
hampton/Oldham og West
Ham/Derby. Leikið er heima og
Wim Kieft.
heiman og fara leikirnir fram 14.
febrúar og 28. febrúar.
H STEUA Búkarest frá Rúm-
eníu lék æfingaleik við Montpellier
í Frakkiandi á fimmutdag og sigr-
aði með tveimur mörkum gegn einu.
Þetta er fyrsta ferð rúmenska liðs-
ins síðan byltingin hófst í Rúm-
eníu. Steaua, sem varð Evrópu-
meistari 1986, leikur annan leik í
Frakklandi um helgina og mætir
þá liði frá Nice.
H MEXÍKÓ sigraði heimsmeist-
ara Argentínu, 2:0, í vináttulands-
leik í knattspyrnu í Los Angeles á
fimmtudagskvöld. Carlos Munoz
og Lis Robegto Alves skoruðu
mörkin fyrir Mexíkó.
SJÓNVARP
RUV sýnir
beintfrá
Kitzbuhel
Ríkissjónvarpið sýnir í dag í
fyrsta sinn beint frá heims-
bikarkeppninni í skíðaíþrótt-
um. Að sögn Ingólfs Hannes-
sonar, forstöðumanns íþrótta-
deildar RUV, er hér um tilrau-
naútsendinguað ræða.
Dagskrá íþróttaþátta sjónvarps-
stöðvanna tveggja um helgina:
RUV
laugardagur:
11:15 Sýnt frá fyrri ferð í brunkeppni heim-
bikarsins í karlaflokki sem fram fer
í Kitzbuhel í Austurríki.
11:45 Bein útsending frá síðari umferð
brunkeppninnar.
14:00 Meistaragolf.
14:55 Bein útsending frá leik Arsenal og
Tottenham í ensku 1. deildinni.
Bjarni Felixson lýsir frá Highbury
leikvanginum.
17:00 Bein útsending frá 1. deild karla í
handknattleik, sýnt frá tveimur
leikjum.
18.10 Úrslit dagsins og fleira.
Sunnudagur:
11.30 Sýnt frá fyrri ferð í svigi karla, sem
fram fór fyrr um morguninn i heims-
bikarkeppninni í Kitzbúhel í Aust-
urríki.
11:45 Bein útsending frá síðari umferð í
svigi karla í Kitzbúhel.
Stöð2
Laugardagur:
17:00 Iþróttasyrpa.
17:10 Bein útsending frá 1. deild karla í
handknattleik.
Sunnudagur:
13:30 Bein útsending frá einvígi bandarísks
pool-meistara og íslandsmeistarans
í snóker, Brynjars Valdimarssonar.
Einvígið fer fram í Sportklúbbnum
við Borgartún. Þeir munu keppa
bæði í snóker og pooli. Síðan verður
ítölsk knattspyma_ og bandaríski
NBA-körfuboltinn. íþróttaþættinum
lýkur kl. 16:30.
íþrótlir helgarínnar
Handknattleikur
Laugardagur 1. deild karla: .kl. 16.30
Hafnarfjörður FH — KA .kl. 16.30
Höllin Víkingur — Stjarnan ... .kl. 16.30
Valsheimili Valur —Grótta.... .kl. 16.30
Vestmannaeyjar ÍBV — ÍR.... 1. deild kvenna: ,kl. 16.30
Hafnarfj. Haukar — Stjarnan „kl. 13.30
Höllin Víkingur —FH ,kl. 15.00
Valsheimili Valur — Grótta.... ■kl. 18.00
2. deild karla: Digranes UBK — ValurB ..kl. 15.00
Hafnarfj. FHB —Haukar 2. deild kvenna: .kl. 15.00
Akureyri Þór — Þróttur ..kl. 14.00
Vestm. ÍBV — UMFA Sunnudagur ■kl. 15.00
3. deild karla: Garðabær Stjaman B — ÍR B. ..kl. 14.00
Sandgerði Reynir — Fram B.. ..kl. 14.00
Seljaskóli Fylkir —Ögri ..kl. 14.00
Seljaskóli KRB —VíkingurB..kl. 15.15
Körfuknattleikur
Laugardagur 1. deild karla: Bolungarv. UMFB — UBK ..kl. 14.00
Grundarfj. Snæfell — UÍA.... ,.kl. 14.00
Hagaskóíi Léttir —Víkveiji.. 1. deild kvenna: ..kl. 14.00
Seljaskóli ÍR-ÍS ..kl. 14.00
Sunnudagur Úrvalsdeild:
Njarðvík UMFN —Valur ..kl. 16.00
Sauðárkrókur UMFT — ÍR ... „kl. 16.00
Hafnarfj. Haukar — ÍBK ..kl. 16.00
Grindavík UMFG — Þór ..ki. 20.00
Seltjamames KR — Reynir... 1. deild karla: ..kl. 20.00
Borgames UMSB —UÍA ..kl. 14.00
1. deild kvenna: Grindavík UMFG —Haukar. ..kl. 18.00
Njarðvík UMFN-KR ,.kl. 14.00
Hlaup
Kópavogshlaupið fer fram í dag, laug- ardag, og hefst kl. 14.00 við Vallar-
gerðisvöll í Kópavogi. Keppt verður í þremur flokkum; karlar 6 km, konur
og drengir 3 km. Skráning á staðnum.
Sund
Hagvirkismót SH í sundi fer fram i
Sundhöll Hafnarfjarðar um helgina.
Pílukast
íslenska pílukastfélagið heldur upp á fimm ára afmæli sitt í dag í félags- heimilinu Súðavogi 7. Haldið verður opið afmælismót sem hefst kl. 11.