Morgunblaðið - 20.01.1990, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 20.01.1990, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LAUGARDAGUR 20. JANÚAR 1990 43 Þórdís og Broddi á sigurbraut segirGuðni Bergsson sem leikurekki meðTottenham gegn Arsenal. SigurðurJónsson ekki með vegna meiðsla Guðni Bergsson á hér í höggi við Brian Marwood í leik Tottenham og Arsenal í fyrra. Guðni leikur ekki með Tottenham í dag og Sigurður Jónsson er ekki í iiði Arsenal. Trewor Francis er nú kominn til Sheffield Wednesday. Étém FOLK ■ RON Atkinson, framkvæmda- stjóri Sheffield Wednesday, hefur gert 18 mánaða samning við tvo „gamlingja“ í ensku deildinni, Tre- vor Francis, frá QPR og Kevin Moran, frá spánska félaginu Sporting Gijon. Atkinson sagðist vera alsæll með kaupin enda hafi hann fengið þá báða á tombólu- verði. Báðir leikmennirnir fá aðeins greitt fyrir þá leiki sem þeir spila. ■ BRYAN Robson leikur ekki með Manchester United gegn Norwich í dag. Hann hefur lítið leikið’með United síðustu vikurnar en liðið er í sjötta neðsta sæti. Paul Ince, Danny Wallace og Lee Sharpe koma hinsvegar inní liðið að nýju. ■ STEFÁN Arnarson, fyrrum markvörður KR og Vals, hefur ver- ið orðaður við Tindastóí frá Sauð- árkróki sem leikur í 2. deild. Stefán, sem er 26 ára, hvíldi knatt- spyrnuskóna síðasta sumar, en hef- ur hug á að taka þá fram aftur í sumar. Hann leikur nú handknatt- leik með Gróttu í 1. deildinni. Gísli Sigurðsson, sem verið hefur í marki Tindastóls, hefur gengið til liðs við Skagamenn. Sauðkræk- ingar hafa því sett sig í samband við Stefán og mun hann gefa þeim svar eftir helgina. ■ GÍSLI Eyjólfsson hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari Þorsteins Ólafssonar hjá IBK í sumar. Gísli mun einnig þjálfa 2. flokk félags- ins. „ÍSLENDINGASLAGURINN" svokallaði í ensku knattspyrn- unni, viðureign Arsenal og Tottenham, verður íslendinga- laus því Guðni Bergsson og Sigurður Jónsson eru ekki í leikmannahópi liðanna fyrir þennan leik. Guðni leikur með varaliðinu en Sigurður er meiddur. að er mjög svekkjandi að missa af þessum leik enda eru leikir Arsenal og Tottenham alltaf sér- stakir. Það er uppselt á leikinn en ég get ekki einu sinni horft á hann, ’ því á sama tíma verð ég að leika með varaliðinu gegn Millwall á White Hart Lane að viðstöddu fá- menni og finnst það heldur fúl skipti,“ sagði Guðni Bergsson, leik- maður Tottenham. „Það er alltaf erfítt að spá um svona leiki en ég hef þó trú á að mínir menn hafi betur. „Það hefði verið gaman að mæta Sigurði og ég held að við höfum ekki leikið hvor gegn öðrum síðan í úrslitaleik í 3. flokki sem Sigurður og félagar unnu með grís. En því miður er allt útlit fyrir að Bjarni Fel verði eini íslendingurinn á vell- inum,“ sagði Guðni Bergsson. Hefði verið gaman að mæta Guðna „Það hefði verið mjög gaman að mæta Guðna á Highbury og það er alltaf mikil stemmning í kringum leiki þessara liða. En ég hef ekki náð mér af meiðslum sem ég hlaut á þriðjudaginn í leik með varaliðinu og verð því ekki með,“ sagði Sigurð- ur Jónsson. „Eg fékk högg á bakið og læknarnir te.lja að liðband hafi skaddast. En ég vona að ég verði ekki lengi að ná mér af því og nái næstu leikjum Arsenal,“ sagði Sig- urður. „Það er alltaf erfitt að spá um svona leiki og ef við leikum eins og gegn Wimbledon um síðustu helgi þá eigum við ekki möguleika. En ég hef trú á að við tökum þá í lokin,“ sagði Sigurður. Þess má geta að lið Guðna og Sigurðar hafa tvívegis leikið. Fyrst er Sigurður var hjá Sheffield Wed- nesday en þá lék Guðni með en Sigurður.var á varamannabekknum og síðar er Sigurður kom inná sem varamaður hjá Arsenal en Guðni var ekki með hjá Tottenham. Ríkissjónvarpið verður með beina útsendingu frá leiknum í dag. BADMINTON KNATTSPYRNA / ENGLAND „Mjög svekkjandi að missa af þessum leik“ Sigruðu á einliðaleiksmóti KR órdís Edwals og Broddi Kristj- ánsson, TBR, nýkrýndir meist- arar TBR, héldu sigurgöngu sinni áfram er þau sigruðu á einliðaleiks- móti TBR í fyrrakvöld. Góð þátt- taka var í mótinu og flestir sterk- ustu leikmenn landsins voru með. Broddi sigraði Jón P. Zimsen, TBR, í undanúrslitum, 15:12 og 15:12, og í hinum leiknum sigraði Þorsteinn Páll Hængsson, TBR, Guðmund Adolfsson, TBR, 15:11, 15:12. Broddi sigraði svo Þorstein í úrslitaleiknum, 15:9 og 15:6. í undanúrslutm í kvennaflokki sigraði Birna Petersen, TBR, Maríu Thors, KR, 11:4 og 11:4 og Þórdís sigraði Sigrúnu Erlendsdóttur, 11:1 og 11:1. Þórdís sigraði svo Birnu í úrslitaleiknum 11:7 og 11:4. María Thors sigraði í aukaflokki kvenna, vann Sigrúnu Erlendsdótt- ur, 7:11, 12:10, 11:8 og í auka- flokki karla vann Reynir Guð- mundsson, HSK, Viðar Gíslason, Víkingi, 18:14 og 15:2. GETRAUNIR Sprengivika: Fyrsti vinningur tvær milljónir S.prengivika er nú hjá íslenskum getraunum og því til mikil að vinna fyrir tippara. Búist er við að fyrsti vinningur verði rúmar tvær milljónir króna. Sölukössum lokar kl. 14.55. Bein útsending verður í ríkissjónvarpinu frá viðureign Arsenal og Tottenham og mun Bjarni Feiixson lýsa beint frá Highbury. Broddi Kristjánsson sigraði í einliðaleik karla á einliðaleiksmóti KR í bad- minton. Árni Friðleifsson leikur ekki með Víkingi í dag. Ámií leikbann Missiraf leikVíkings og Stjörnunnar átr Arni Friðleifsson, einn markahæsti leikmaður Víkings, leikur ekki m_eð liðinu gegn Stjörnunni í dag. Árni fékk rautt spjald um síðustu helgi er Víkingar töpuðu fyrir Gróttu og fær því eins leiks bann. Víkingar, sem eru í næst neðsta sæti deildarinnar, leika einnig án Hrafns Margeirssonar og Jóhanns Samúelssonar sem eru meiddir. KNATTSPYRNA Boris þjátfapo Valsstúlkur Sovétmaðurinn Boris Abkashev sem þjálfar handknattleikslið Breiðabliks í 2. deild, hefur tekið við þjálfun knattspyrnuliðs Vals í 1. deild kvenna í knattspyrnu. Bor- is þjálfaði áður lið Vals í 1. deild í handknattleik. Boris tekur við af Loga Ólafssyni sem þjálfar lið Víkings í 4. deild karla næsta sumar. íptímtR FOLX fl LEONEL Alvares, kólumbísk- ur landsliðsmaður í knattspyrnu, æfir nú með Derby og segist vo- anst eftir að fá samning hjá liðinu. Alvares hefur leikið 40 landsleiki fyrir Kólumbíu en liðið tekur þátt í lokakeppni HM í sumar. Lítið hef- ur verið um knattspyrnu í Kól- umbíu því deildakeppninni var hætt eftir að dómari var myrtur. Landsliðið heldur þó hópinn en margir leikmenn eru að reyna fyrir sér í Evrópu, þ.á.m. nokkrir í Sviss. ÚRSLIT NBA-deildin ÚrsliL leika í NBA-deildinni á fimmtudags- kvöld: Mil waukee Bucks — W ashington.115:112 Chicago Bulls — Golden State.....132:107 Charlotte Hornets — Denver.......110:108 Phoenix Suns — Minnesota..........113:96 LA Clippers — Seattle Supersonics.... 105:95 Handknattleikur Alþjóðlegt mót í París A-riðill: Frakkland—Veszprem (Ungverjal.) 26:23 Alsir—Milbertshofen..............23:22 ■ Frakkland er með 6 stig, Alsír 4, Vesz- prem 2 og Milbertshofen ekkert stig. B-riðill: Neva Leníngrad (Sov.)—Iviy (Frakkl.) 34:20 Rúmenía—Empor Rostoek (A-Þýskalandi) .................................29:16 ■ Neva er með 6 stig, Rúmenía 4, Rostock 1 og Ivry 1. Frakkland mætir Rúmeníu í undanúrslit- um og Alsír mætir Neva.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.