Morgunblaðið - 11.02.1990, Page 14
14 C
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 11. FEBRÚAR 1990
MITSUBISHI
miANT
1990
BÍLL FRA HEKLU BORGAR SIG
I. A uc VERÐ FRÁ KR.
H HEKIA HF 1.229.760 ^
* ---------- 1.387.200 (sitengt oldril)
*
Páll Olafsson, Starra-
stöðum - Kveðjuorð
Mig langar með þessum fáu orð-
um að minnast Palla eins og hann
var alltaf kallaður. Páll Ólafsson
var fæddur 15. maí 1910 á Starra-
stöðum í Tungusveit. Þar ólst hann
upp og varð merkur maður. Alls
staðar vel látinn þar sem hann kom
sökum mannkosta sinna. Páll giftist
eftirlifandi konu sinni, Guðrúnu
Kristjánsdóttur frá Nautabúi, árið
1937. Þau eignuðust fimm mann-
RATVIS
SÉRHÆFÐ FERÐASKRIFSTOFA
MEÐ LIPRA PERSÓNULEGA PJÓNUSTU
OG SNJALLAR LAUSNIR
1-4 vikna ferðir.
Sérferð 16.-30. mars.
Ferðaskrifstofan Ratvís er með ferð til
Möltu dagana 6.-30. mars. Með í ferðinni
verður Gunnar Gunnarsson sálfræðingur
og mun hann bjóða farþegum upp á létt
námskeið meðan á dvölinni stendur.
Á námskeiðinu verður kennd slökun,
sjálfskönnun og kvíðastjórnun.
Námskeið af þessu tagi hafa verið haldin
hér heima og líkað vel, þau veita þér
aukinn lífskraft og auðvelda þér að takast .
á við vandamál dagsins'.
Fáið nánari upplýsingar
THAILAND
HEIMSMEISTARAKEPPNIN
ÍFÓTBOLTA
Á ÍTALÍU 1990
Aðgöngumiðar á leiki, hótel og
ferðir milli staða innifalið í
pökkum.
Þegar er
byrjað að
bóka í
þessar
ferðir.
Fáðu þér
bækling.
■ffAt/4 ’go
HllTíiS
mM
íslenskur fararstjóri
aðstoðar alla okkar
farþega. Skipuleggjum
ferðir eftiróskum
þínum. Bankok, Pattaya,
Phuket, N-Thailand,
Ko Samui.
Sérferðir og fargjöld.
FERDIRI
LEIGUFLUGI
Costa del Sol
Portúgal
Mallorca
Seljum ferðir fyrir
ÚRVAL/ÚTSÝN.
Bæklingurinn kominn.
Mikið úrval gististaða í
Orlando og nærliggjandi
ströndum.
Þú ákveður dvalartíma
og við skipuleggjum
ferðina.
Sértilboð. lOdaga ferðir
til 15. mars.
«1«™ BOBBY
ensku- CHARLTON
OG
ÍÞRÓTTA■
SKÓLI
BOBBY
CHARLTON s p o r t s
Ratvfs er með einkaumboð á
íslandi fyrirensku- og íþrótta-
skóla Bobby Charlton þar sem
hægt er að velja um 19 íþrótta-
greinar auk enskunáms.
Vikulegar ferðir í sumar.
KYPUR - FLUGOGBÍLL
TYRKLAND - EGYPTALAND
ÍSRAEL - BRASILÍA
&
Greyhound
FLUGLEIDIR
33SSS33
OPIÐ
SUNNUDA GINN
11. FEBRÚAR
KL 13-17
UMBOÐSMENN:
|ÍL
VESTURLAND: AUSTURLAND: NORÐURLAND:
Anna Rós Bergsdóttir, Guðlaug Ólafsdóttir. B|örn Kristjánsson,
sími 94-7560 sírpi 97-11488 Sfmi96-2I967
VESTMANNAEYJAR: SUDURNES:
Inga lónsdóttir, Ægir Már Kárason,
sími 98-11166 sími 92-54263
RATVIS
' "iravel
HAMRABORG 1-3,
200 KÓPAVOGUR
SÍMI641522
FAX: 641707
vænlega drengi sem allir komust
upp og eni þeir allir giftir góðum
konum. Ég gleymi aldrei fyrstu
kynnum mínum af Starrastaðafólk-
inu. Ég kom þangað fyrst ung
stúlka með kærasta mínum og kveið
ég því reglulega að koma þar. Ég
hafði aldrei séð þetta fólk, en heyrt
mikið talað um það sökum myndar-
skapar.
En það var ástæðulaus kvíði, mér
var tekið opnum örmum og boðin
velkomin og ég man að við sett-
umst við eldhúsborðið og Palli sett-
ist á móti mér og virti mig fyrir
sér með glettni í augunum og ekki
var laust við smá stríðnisglampa,
hann átti erfitt með að sitja á strák
sínum, en góðmennskan skein úr
augum hans. Ég fann strax að
þarna var maður mér að skapi og
hófust því fjörugar samræður við
borðið. Palli kunni frá mörgu að
segja og sagði vel frá, já, það var
oft helgið dátt við kaffiborðið á
Starrastöðum og fór svo að ég
hlakkaði alltaf til að koma þar.
Slíkar móttökur fengum við alltaf
og þessi fjölskylda alltaf kærkomn-
ir gestir á okkar heimili. Þau hjón-
in brugðu búi og fluttust til Sauðár-
króks 1981 og.eftirlétu yngsta syni
sínum jörðina og var því hugur
Palla oft á Starrastöðum. Ég heim-
sótti Palla vin minn í síðasta sinn
fyrir ári síðan og var hann þá á
sjúkrahúsi Sauðárkróks, þar dvaldi
hann tvö síðustu árin. Það skar
mig í hjartað að sjá hann svo illa
farinn. Enn nú eru allar þrautir á
enda hjá honum, hann andaðist í
sjúkrahúsinu 12. þ.m.
Ég og maðurinn minn eigum
honum svo margt að þakka, fyrir
alla hans góðmennsku og kærleik
í okkar garð gegnum árin. Bið ég
svo Guð að blessa konu hans og
börn og alla hans ættingja. Með
innilegri samúðarkveðju.
Oddný Guðnadóttir
Brids
ArnórRagnarsson
Bridsdeild
Húnvetningafélagsins
Spennan í sveitakeppninni er í al-
gleymingi. Lokið er 10 umferðum af
13 og skiptast sveitirnar á um að hafa
forystu í mótinu.
Staðan:
Hermann Jónsson 195
Magnús Sverrisson 190
Kári Sigurjónsson 188
ValdimarJóhannsson 188
JónÓlafsson 180
Tvær umferðir verða spilaðar nk.
miðvikudagskvöld kl. 19,30 í Skeifunni
17.
Bridsfélag Siglufj'arðar
Eftir 5 umferðir af 9 í aðalsveita-
keppni félagsins er staða efstu
sveita þessi:
Sveit Þorsteins Jóhannssonar 109
SveitBjarkar Jónsdóttur 102
Sveit íslandsbanka 96
Sveit Ingu Jónu Stefánsdóttur 80
Sveit Birgis Björnssonar 78