Morgunblaðið - 11.02.1990, Síða 18

Morgunblaðið - 11.02.1990, Síða 18
18 C MORGUNBLAÐIÐ FJOLMIÐLAR SUNNUDAGUR 11. FEBRÚAR 1990 Sunnudagsblöð í harðri baráttu NYTT sunnudagsblað, Independent on Sunday, hóf göngu sína í Bretlandi 28. janúar. Þá voru aðeins fjórir mánuðir síðan útgáfa annars sunnudagsblaðs hófst. Brezku sunnudagsblöðin eru samtals 1500 blaðsíður og þessi markaður virðist fullmettað- ur. Eitthvert þeirra kann að leggja upp laupana áður en langt um líður og talið er að The Observer standi verst að vígi. Það blað eyddi ný- lega þremur milljónum punda í sjónvarspauglýsingar á einni viku og mun veija 14 milljónum punda til stækkunar á blaðinu og auglýs- inga í sjónvarpi á þessu ári. Ein skýringin á hræringunum á sunnudagsmarkaði brezku blað- anna að undanfömu er talin sú að hann hafði verið frekar daufleg- ur í þijá áratugi. Sunnudagsblöðin forðuðust samkeppni og skiptu markaðnum bróðurlega á milli sín. Þetta ástand breyttist þegar ofur- valdi prentara var hnekkt fyrir um fímm árum (þá hóf dagblaðið Inde- pendent göngu sína). Síðan hafa verið gerðar róttækar breytingar á öllum brezku sunnudagsblöðun- um og fyrsta nýja sunnudags- blaðið bættist í hópinn í september sl. þegar útgáfa Sunday Corre- spondent hófst. Sunday Times selst mest og mun skila einnar milljónar punda hagnaði á viku. Markaðurinn hef- ur lítið breyst í fjölda ára, en viku- salan hefur þó minnkað um 300.000 eintök síðan 1977. Útgef- endur nýju sunnudagsblaðanna segja að ástæðan sé ekki sú að fólk hafí annað með tíma sinn að gera á sunnudögum en að lesa blöðin heldur sú að það sé ekki nógu ánægt með efni blaðanna. Auglýsendur sem sérhæfa sig í„lífsstíl“ hafa mikinn áhuga á sunnudagsmarkaðnum, því að þeir vilja höfða til smekks vellaunaðs fólks á framabraut. Minna sé að græða á dýrum sjónvarpsauglýs- ingum, sem aðeins efnalítið, gam- alt fólk horfí á. Fólk sökkvi sér niður í sunnudagsblöðin, en gluggi aðeins í dagblöðin. í fyrra námu auglýsingatekjur Sunday Times 67 milljónum punda. % 110] 100 90 80 70 60 50 40 30 20 10 0 -10 •20 -30 -40 J MISJAFNT GENGI SUNNUDAGSBLAÐANNA BRESKU Bl Vönduðu sunnudagsblöðin 1965 1970 1979 1980 1985 1989 ■Kynningarfyrirtséki erlendis setja sjónuarpsfréttamenn æ oftar í klemmu meðþuí að bjóða þeim fréttatilkynningar og yfir- íýsingar áhrifamanna á mynd- bandssnældu WjSÍOOWjÍK* Fréttir fyrir hveria Sjónvarpsfréttastofa ein í Bandaríkjunum fékk ekki alls fyrir löngu í hendumar almenna frétt unna af sjálfstæðum sjónvarpsfréttaaðila, að því að talið var, sem fjallaði um hversu ástand þjóðvega færi versnandi. Fréttin þótti góð og því var talið eðlilegt að kaupa hana og sýna. Þegar í ljós kom hins vegar að myndbandið var unnið af kynningarfyrirtæki og kostað af Landssambandi vegagerðarverk- taka, sem fjölga vildi verkefnum handa sínum skjólstæðingum, þá breyttust forsendur, — eða hvað? Kynningarfyrirtæki eru um margt hin gagnlegustu. Þeirra sérþekking felst í því að setja upp- lýsinga og kynningarefni -fram á skipulegan og aðgengilegan hátt. Þau greina hismið frá kjamanum og geta með því móti vakið athygli á markverðum hlutum. Flestir blaða- og fréttamenn þekkja það af eigin reynslu hversu þægilegt það getur verið að vinna úr fréttatil- kynningum eða undirbúa umfjöllun, grein eða viðtal með lestri á kynn- ingarefni allskonar. Að sama skapi gera flestir blaðamenn sér grein fyrir mikilvægi þess að halda sjálf- stæði gagnvart efni af þessu tagi því um það gildir að þótt fagmann- lega sé frá því gengið og framsetn- ingin sé að því er virðist hlutlaus, þá er markmið þess ávallt að hlúa að og gæta hagsmuna þeirra aðila sem unnið er fyrir. Að þessu leyti eru kynningarfyrirtæki allt annarr- ar náttúru en sjálfstæðir fjölmiðlar því þeirra er fyrst og fremst að gæta hagsmuna almennings og neytenda. Því er það að vandaður blaða- maður nýtir sér efni af þessu tagi í samræmi við þá meginhugmynd sem hann hefur — hugmynd sem viðkomandi fjölmiðill sér ástæðu til að koma á framfæri við almenning eða neytendur. Víða erlendis verður það sífellt meira áberandi að kynningarfyrir- tækin vilja hafa meiri og meiri áhrif á endanlega umfjöllun fjölmiðla um skjólstæðinga sína. Viðskiptavinir fyrirtækjanna vilja í æ ríkari mæli nýta sér mátt miðlanna og fá að ráða ferðinni sjálfir. Þeir vilja stýra því sem sagt er og helsta leið þeirra til þess er að forðaSt að svara spurningum. Þetta er í raun ekkeit nýtt því úr heimi stjórnmála er það gamalkunnugt ráð að gefa einungis yfirlýsingar en leyfa ekki fyrir- spurnir. Það sem er hins vegar nýtt er að kynningarfyrirtæki bjóða við- skiptavinum sínum nú að búa til fréttatilkynningar á myndbandi. Á þeim eru sjónarmið viðskiptavin- anna kynnt og þeir menn sem kast- ljósið beinist að í viðkomandi máli fá að skýra mál sitt ótruflaðir og uppstilltir í viðeigandi og vinsam- legu umhverfi. í desember á síðasta ári stóðu bandarískar sjónvarpsfréttastofur framrhi fyrir þeirri spurningu hvort þær ættu að sýna eintal forstjóra fjárfestingafélags þar sem hann lýsir því yfir að fyrirtækið hafi ákveðið að fallast á sekt í svindl- máli og greiða sekt að upphæð um 35 milljarðaríslenskra króna. Þegar sjónvarpsfréttastofunum barst myndbandið í hendur var þessi yfir- lýsing sjóðandi heit frétt og tals- menn fyrirtækisins gáfu engin önn- ur fjölmiðlafæri á sér. Það varð úr að fjölmargar sjónvarpsstöðvar sýndu þessa fréttatilkynningu sem frétt og er talið að um sextíu millj- ónir áhorfenda hafi fylgst með og haldið að þarna væri á ferð venju- legt sjálfstætt fréttaviðtal. Sjónvarpsfréttamenn eru flestir mjög andsnúnir svona fréttatil- kynningum en hins vegar segja þeir að það sé betra að heyra eitt- hvað frá einhvetjum en ekki neitt frá öllum. Það er ijóst að þetta fyrir- bæri sem á enskri tungu er kallað VNR sem stendur fyrir „video news release" ógnar mjög sjálfstæði sjón- varpsfréttamanna því það synjar þeim um möguleikann á að spyija spurninga, en spurningar eru eitt af mjög fáum vopnum í búri rann- sóknarblaðamannsins. Fyrirbærið þekkist enn ekki hér á iandi eftir því sem næst verður komist. Erfitt er að segja um hversu mikilvægur þáttur þessi myndbönd verða hér á landi en vestan hafs er langmesti vöxturinn í þessum þætti í starfsemi kynningarfyrir- tækja. E.t.v. nær þetta ekki fót- festu hér á landi þar sem allir þekkja alla en hins vegar virðast ýmis kynningarfyrirtæki og auglýs- ingastofur vera mjög vel i stakk búnar til þess að mæta þessari þörf því hjá þeim starfa ófáir einstakl- ingar sem unnið hafa við frétta- mennsku á ljósvakamiðlum og hafa því bæði kunnáttu og ímynd sem þarf. Aðalheimild: Broadcast Inter- national, 13. október 1989. BAKSVIÐ eftir Ásgeir Fridgeirsson Athugasemdir vegna ummæla ogfrétta laðamennska af þessu Itagi þar sem 90% eru heimildarlausar gróusögur og 10% sannleikur er eftir þ’ i sem ég veit einsdæmi í 'íeiminum,“ segir í ummæl- um Jóns Óttar Ragnarssonar fyrrverandi sjónvarpsstjóra á Stöð 2 um grein í nýjasta tölublaði tímaritsins Heims- myndar. Ritstjóri tímaritsins er sakaður um að birta gróu- sögur án minnstu viðleitni til að leita traustra heimilda. Þessi ummæli birtust hér í Morgunblaðinu síðastliðinn miðvikudag og daginn eftir leitar blaðið álits ritstjóra Heimsmyndar, Herdísar Þor- geirsdóttur. Ritstjórinn svar- ar ummælum fyrrverandi sjónvarpsstjórans meðal annars með því að fyrir öllu í greininni séu áreiðanlegir heimildarmenn og að virt- ustu blöð og tímarit erlendis vaði jafnvel eld og brenni- stein til að vemda trúnaðar- sambandið við ónafngreinda heimildarmenn og að hér í kunningjaþjóðfélaginu ís- landi sé enn meiri ástæða til að virða þessa nafnleynd. Ekki er meiningin hér í þess- um pistli að fjalla um hvað geti verið rétt eða rangt í grein tímaritsins heldur að- eins að nota tilefnið til að velta upp nokkmm spuming- um um eiginleika blaða- og fréttamanna. Með reglulegu millibili sjáum við eða heyr- um athugasemdir vegna fréttaflutnings í útvarpi, sjónvarpi, dagblöðum eða tímaritum. Frétta- og blaða- inenn em sakaðir um kunn- áttuleysi, ónóga • eftir- grennslan í sambandi við við- komandi mál eða jafnvel áminntir um að gæta betur að hlutlægum, máefnalegum flutningi eða skrifum. Mennta- og siðamál blaða- og fréttamanna em mjög til umfjöllunar á þessum síðustu og vandasömu tímum fjölmiðlunar. í fyrsta tölu- blaði Blaðamannsins í ár, félagstíðindum Blaðamanna- félags íslands, em mennta- og siðamál blaðamanna helsta umfjöllunarefnið. Greinar sem bera þessar yfír- skriftir er að finna í blaðinu: Betri siðareglur — öflugra aðhald, Siðir og siðanefndir, Þurfum við að samræma samskiptareglumar. Ég hef áður hér í þessum pistlum komið aðeins inn á siðamál blaðamanna og fjall- að lítillega um gildi mennt- unar fyrir fjölmiðlafólk. Að sjálfsögðu þarf fjölmiðlafólk aðhald í starfí og almenning- ur á að geta gagnrýnt vinnu- brögð fjölmiðlafólks. Eins er mikilvægt að fólk geti fengið leiðréttingu sinna mála verði það fyrir óþægindum eða meiðyrðum í umfjöllun fjöl- miðla. Öflugar siðareglur fyrir blaðamenn eru nauð- synlegar í fjölmiðlaheimi nútímans. Blaða- og frétta- maðurinn í dag stendur á nokkurs konar tímamótum. Það eru nýir tímar og nýjar kröfur. En hvað ergóð blaða- mennska? Frá sjónarhóli út- gefanda er það líklega-blaða- mennska sem er í samræmi við stefnu blaðsins eða mið- ilsins sem blaðamaðurinn er hjá en sú stefna miðast ef til vill við góða og rétta umfjöllun. Hún getur einnig miðast við pólitíska hags- muni útgefandans eða einka- hagsmuni hans. Aðalatriðið er að lesendur séu ánægðir og að blaðið seljist og auki hag fyrirtækisins. Lesandinn vill svo aftur góða umij'öllun sem skýrir satt og rétt frá og ekki sakar að afþreying sé fyrir hendi og að umfjöll- unin staðfesti lífsskoðun le- sandans. Blaðamaðurinn sjálfur vill oft gjarnan ná athygli og þar með persónu- legu áliti. Heimildarmaður- inn sem ef til vill kemur þarna inn í dæmið vill svo aftur að rétt sé eftir honum haft og að skrifin séu honum hliðholl en félagsfræðilegar skiptakenningar ganga út frá því að jafnvægi ríki í sambandi blaðamanns og heimildarmanns. Þetta eru nokkur atriði sem meðal ann- ars geta einkennt góða blaðamennsku. Á síðustu tímum aukinnar fjölmiðlunar er meiri hætta á lélegri blaðamennsku ef vandaðra vinnubragða er ekki gætt. Óvönduð eftir- grennslan og léleg eða engin heimildarrýni i annríki dags- ins er hættumerki og eins er hætta á ferðum þegar blaða- eðafréttamaður sann- prófar ekki það sem heimild- armaður hans gefur honum upp. I umræðum og umfjöll- unum um blaðamennsku er einnig oft bent á almennt hirðuleysi blaða- og frétta- manna sem felst til dæmis í því að fara með rangar tölur og röng nöfn. I sömu grein er einnig lögð áhersla á spill- ingu í blaðamennsku eins og þegar lesanda er ekki gefið til kynna að skrifað sé í ákveðnum pólitískum eða fjárhagslegum tilgangi. Ástæður lélegrar blaða- og fréttamennsku geta verið margvíslegar. Þar getur ein- faldlega komið til lélegur blaðamaður með slæmt mál- far, blaðamaður án stefnu eða blaðamaður sem býr ekki yfir viðtalstækni. Þá getur blaðamanninn skort siðferð- isvitund þannig að hann skrifar ef til vill frásögn vit- andi að hún getur komið við- mælanda illa, notfærir sér viðmælandann. Blaðamenn tala stundum um að tíma- pressa komi í veg fyrir að þeir geti kannað hlutina bet- ur og vissulega er tímapress- an í blaðamennsku fyrir hendi en ef til vill má draga úr henni með því að skipu- leggja betur. En hvernig vinnur þá góður blaða- og fréttamaður? Er hann til? Er það sá sem ekki lætur spillast og er áreiðanlegur, vakandi og forvitinn, heim- ildarrýninn og ekki trúgjarn? Er það sá sem sækist eftir öllum staðreyndum málsins og kann að vinna úr þeim upplýsingum sem hann aflar sér. Er það blaðamaðurinn sem ekki heldur neinu leyndu fyrir almenningi? Er það blaðamaðurinn sem ekki er leiðinlegur og vekur athygli? Fyrirmyndarblaðamaðurinn er líklega sá sem uppfyllir ofangreind atriði og sem strax í upphafi getur náð athygli lesandans og um leið sett sig í spor hans, því næst útskýrt fyrir lesandanum og upplýst hann um ákveðið mál og þannig vakið áhuga hans á áframhaldandi lestri eða athygli. Hún gildir líklega ennþá gamla formúlan úr elstu bókinni um blaða- mennsku frá árinu 1880. „Hafðu vit á því sem þú ætlar að segja og segðu það síðan á skýran og áhuga- verðan hátt.“ Það getur hins vegar reynst erfiðara að fara eftir formúlunni á því her- rans fjölmiðlaári 1990 — en þá er að veita aðhald og gera athugasemdir vegna umljöllunar... og frétta. Guðrún Birgisdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.