Morgunblaðið - 07.03.1990, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. MARZ 1990
Á LOÐNUMIÐUNUM MEÐ HÁBERGI GK 299 FRÁ GRINDAVÍK:
bíða löndunar eða eru á ferðinni til
og frá miðunum.
Hábergið GK, sem áður hét
Hrafn GK, er kominn með um 14
þúsund tonn eða sama magn og á
þessum tíma í fyrra, þar af 3 þús-
und tonn í frystingu.
„Tíðin frá áramótum hefur leikið
við okkur. Sérstaklega er febrúar
búinn að vera góður. Einmuna blíða
þennan tíma,“ segir Sveinn og bæt-
ir við að sennilega skipti ekki máli
hvort aukið verði við kvótann á
skipunum eins og sjómenn vilji því
tíminn sem eftir er rétt dugi til að
ná því sem heimilt er að veiða.
„Það breytir samt ekki því að
eitthvað er skrítið við hvernig stað-
ið er að loðnumælingum af hálfu
Hafrannsóknastofnunar því magnið
sem við verðum varir við er miklu
meira en rannsóknir gefa til
kynna,“ segir Sveinn.
Nokkrir bátar, Beitir NK, Víkur-
berg GK, 'Hilmir SU og Guðmundur
VE voru að snúast í kringum gríðar-
lega stóra torfu sem stóð of djúpt
5 mílur út af Grindavík fyrir helg-
ina þegar Hábergið kom á miðin.
Júpiter RE var lagður af stað aust-
£* ,
itóll
Sveinn ísaksson skipstjóri í brú-
arglugganum og fylgist grannt
með á tækjunum í leiðinni.
Hilmir SU í loðnuleit og þá er fúglinn oft besta hjálparhellan.
„Gífurlegt magn af
loðnu um allan sj ó “
7 segirSveinn
Isaksson
skipstjóri
„OKKUR skipstjórunum, sem
höfum verið við þessar veiðar í
15-20 ár, finnst vera miklu meiri
loðna á miðunum en oft áður.
Óhætt er að segja að það sé miklu
betri loðna en rannsóknir sýna,“
segir Sveinn Isaksson skipsljóri
á Hábergi 299, þegar fréttaritari
Morgunblaðsins fór með Hábergi
á loðnu fyrir skömmu. Það er
mikið að gera hjá Sveini þó hann
sé að svara spurningum því fram-
undan sýnir fisksjáin góða loðnu-
torfu, sem nú á athygli hans alla.
Beitir NK lónar hjá og Guðmund-
ur VE er að dæla góðu kasti rétt
aftan við á stjórnborða.
„Segðu strákunum að vera
klárum, Snorri,“ kallar Sveinn
til 1. vélstjóra sem stendur við
glugga aftan til í brúnni. Svo
heldur hann áfram að fylgjast
með tækjunum, þögull og hugs-
andi, á meðan hann hringsólar
um torfuna. „Lago,“ kallar hann
svo skyndilega og Snorri endur-
tekur skipunina út um gluggann
og skömmu seinna rennur nótin
aftur af.
Spennan sem fylgir loðnuveiðun-
um hefur ekkert breyst, þó ekki séu
eins mörg skip á miðunum og oft
áður því flotinn er dreifður um allt
svæðið auk þess sem mörg skip
Loðnan streymir niður í lest og áhöfnin fylgist með. Framundan sér
í Sunnuberg GK og Hilmir Su.
Það er létt yfir loðnusjómönnum þessa dagana enda gengið vel frá
áramótum og loðnan fyllir bátana trekk í trekk.
Morgunblaðið/Kristinn Benediktsson
Nótin dregin um borð og gerð klár fyrir næsta kast.