Morgunblaðið - 05.04.1990, Side 20

Morgunblaðið - 05.04.1990, Side 20
20 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. APRÍL 1990 Um flármálavald og flytj- endur vondra tíðinda eftir Jón Sigurðsson í Borgarleikhúsinu við Listabraut í Reykjavík er nú verið að sýna nýtt leikverk, Hótel Þingvelli, þar sem höfundurinn bregður upp með sínum hætti mynd af því, hvernig mannlífið er orðið í lýðveldinu, sem stofnað var til á þeim sögufræga stað 1944. í því leikverki er ekki tekið á þróun mála í stjómmálum eða stjórn ríkisins. Það gerist hins vegar í öðru húsi við Austurvöll og fjölmiðl- unum, sem flytja okkur fréttir af því, sem þar fer fram. Annað þessara húsa er hús leiks- ins, en hitt er hús alvörunnar, þar sem velgengni okkar sem þjóðar eða niðurlæging er að heilmiklu leyti ráðin. Undanfarið höfum við, áhorfend- ur að sýningunum í þessu húsi al- vörunnar, fylgst með því, að íj'ár- veitinganefnd, sem hinn rétti aðili innan Alþingis, hefur undir forystu formanns nefndarinnar, Sighvats Björgvinssonar, tekið til við löngu tímabært verkefni, að ná af hálfu þingsins tökum á fjármálum ríkisins með þeim hætti sem ætlast er til í stjórnarskrá lýðveldisins. Verkefnið er mikilvægt og brýnt, enda liggur skjalfest fyrir þinginu, að ríkis- stjórnir hafa besta partinn af tveim- ur áratugum ekki kunnað að fara með það tjármálavald, sem ríkis- stjórnir höfðu löngu fyrr tekið sér, þvert ofan í stjómarskrána. Það er ekkert óalgengt fyrir- bæri, að í átökum um meiri háttar stefnumál eins og þetta, springi í loft upp smámál og yfirtaki sviðið, þannig að meginmálið gleymist, a.m.k. um hríð. Þetta gerðist nú á dögunum, þegar fjölmiðlar komust yfír skýrslu ríkislögmanns til fjármálaráðherra, sem hann síðan sendi fjárveitinga- nefnd samkvæmt hennar kröfu og í tengslum við afgreiðslu fjárauka- laga, um margrætt mál fræðslu- stjórans í Norðurlandsumdæmi eystra. Skýrslan er venjuleg, vönduð umsögn og ályktanir um þetta mál. Staðreyndir eru raktar og rök- réttar ályktanir dregnar eins og vera ber í störfum embættismanns. Þegar sjónvarpsfréttamaður náði viðtali við menntamálaráðherra um þessa skýrslu og spurði út úr um framferði ráðherra, sem í skýrsi- unni er lýst, gerðust undarlegir at- burðir. Ráðherra rangfærði hlut fyrirrennara síns í embætti, Birgis ísleifs Gunnarssonar, gaf mjög vill- andi mynd af dómi þeim, sem gekk í Sturlumálinu og jós fúkyrðum yfir skýrslu ríkislögmanns. Raunar var þetta viðtal til marks um, að í aðkomu ráðherrans að þessu máli eru fáar vamir góðar, ef nokkrar. Sem vænta mátti tók Birgir ísleifur málið upp utan dagskrár á Alþingi strax næsta dag, 28. mars, og gerði þar grein fyrir rangfærsl- um ráðherra í áðurgreindu viðtali. „Öll er þessi saga aumkunarverð fyrir þá ráðherra, sem í algeru heimiidarleysi og þvert ofan í góða hefð tóku vonda ákvörðun. Hitt er miklu verra hvernig þeim verður eftirleikur- inn tilefni til árása á vandaðan embættis- mann af því að hann gegnir starfi sínu vel.“ Þar tók raunar steininn úr fyrir ráðherra, því að hann klykkti út af þessu tilefni með að gefa til kynna, að embætti ríkislögmanns mætti leggja niður. Minna þessi viðbrögð óneitanlega á framferði valdhafa hér fyrr á öldum, sem áttu það til að aflífa boðbera vondra tíðinda til að þjóna lund sinni. í þessari umræðu tók ekki betra við, þegar fjármálaráðherra tók að veija sínar hendur í meðferð máls- ins. Laut hann raunar svo lágt að reyna að kasta rýrð á ríkislögmann með því að nota tölur um ijárveit- ingar umfram fjárlög til embættis Jón Sigurðsson ríkislögmanns árið 1986, sem höfðu fullkomlega eðlilegar skýringar. Öll er þessi saga aumkunarverð fyrir þá ráðherra, sem í algeru heimildarleysi og þvert ofan í góða hefð tóku vonda ákvörðun. Hitt er miklu verra hvernig þeim verður eftirleikurinn tilefni til árása á vandaðan embættismann af því að hann gegnir starfí sínu vel. Ég, sem þessar línur skrifa, læt mig nú orðið litlu máli skipta hvort stjórnmálamenn verða sér til háð- ungar eða koma óorði á það mikil- væga starf, sem þeir hafa boðið sig fram til, en geri sömu kröfur til þeirra, hvort sem þeir hafa náð kosningu eða ekki. Hitt þykir mér sem gömlum embættismanni vera mikið alvörumál, þegar stjórnmála- menn ráðast á embættismann fyrir það að sinna eins og maður því verki, sem hann hefur ráðið og svar- ið sig til. Eðli málsins samkvæmt getur embættismaður aldrei varið sig fyrir árás stjórnmálamanns, auk þess sem hann á aldrei kost á að misnota íjölmiðlana eins og stjórn- málamaðurinn. Gunnlaugur Claessen ríkislög- maður er einn af nokkrum afburða- mönnum, sem ég er afarhreykinn af að hafa átt hlut í að ráða unga og lítt reynda í þjónustu ríkisins. Slíka embættismenn eiga stjórn- málamenn að sjá sóma sinn í að virða og meta sem þann styrk, sem þeir eru stjórnsýslunni í landinu, í stað þess að sýna af sér þau ómerki- legheit í þeirra garð, sem við áhorf- endurnir höfum orðið vitni að í þessu máli. Að lokum vil ég treysta því, að ljárveitinganefnd láti ekki deigan síga í því verkefni, sem rakið var hér að framan og skiptir svo miklu meiru en það, sem einstakir ráð- herrar gera sér til skammar. Höfundur er lögfræðingur og fyrrverandi ráðuneytisstjóri í fjármálaráðuneytinu. ■ AÐALFUNDUR EDI-félags- ins og ICEPRO verður haldinn í dag, fimmtudaginn 5. apríl að Hót- el Sögu. Á fundinum um kl. 15.20 mun Hollendingurinn P.J. Munst- erman flytja erindi sem fjalla um reynslu Hollendinga af skjalalaus- um viðskiptum með tölvum. ■ EFTIRTALIN hlutu vinninga í getraun Útivistar og Sportvals í tengslum við „Heilsudaga í Kringlunni" 1.-7. mars síðastlið- inn. 1. vinningur: Skíðapakki frá Sportvali. Hafdís Grétarsdóttir, Giljaseli 3. 2.-3. vinningur: Ferða- pakki frá Útivist. Bára Snorradótt- ir, Kirkjuteigi 18 og Jóhanna Konráðsdóttir, Krummahólum 8. 4.—10. vinningur: Dagsferð fyrir tvo með Útivist. Arndís Baldurs- dóttir, Dalalandi 1, Þorvaldur Einarsson, Smyrlahrauni 36, Hafnarfirði, Jóhannes Reynisson, Teigaseli 2, Karen Guðmunds- dóttir, Grettisgötu 66, Uggi Agn- arsson, Frotaskjóli, Hafsteinn Þór, Háaleitisbraut 102 og Ólafur Örn Gunnarsson, Laugarásvegi 48. Vinninga skal vitja í Sportvali, ar. Grofmm 1. 1 Síðustr dagar rýmingar Gerið g<j ðkaup HUOMFLUTNINGSl * •• VIDE0T0KUVELA. 0G ÝMSAR G ÆKI, SJ0NV0RP, HEIMILISTÆKI AFAV0RUR. RONf nIING KRIN gLUNNI

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.