Morgunblaðið - 05.04.1990, Side 42
42
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. APRIL 1990
HÓTEL ÖDK
Sparidagar
Bænadagar
11 .'14. apríl
Gestgjafi: Hermann
Ragnar Stefánsson
með fjölbreytta dagskrá
“ZífafiAeÉt
Óstaðfestar bókanir
seldar fimmtudaginn
5. apríl.
PÁSKAR
14.'17. apríí
Fjölskyldudagar:
ð Frá eldhúsinu gómsætir
hátíðarréttir.
®Vilberg Viggósson með
léttklassíska hádegis-
píanótónleika
frákl. 13.00-13.30
laugardag
®Tískusýning.
S'Teiknikeppni bamanna.
®Þátttakendur fá
Arkar-Kjörís.
®Píanóbar um helgina.
^Hestaleiga.
Verð: 2 nœtur kr. 5.700,-*
3 nœtur kr. 8.500,-*
4nœtur kr. 11.400,-*
5 nœturkr. 12.500,-*
* pr. mann í 2ja manna herb.
Innifalið íverði: gisting,
morgunverður og kvöldverður
'páel* úesUfoupl Ceucd.
BONEY-M
Skírdag kl. 22
Annan í páskum
kl. 22
Verð með
hátíðarkvöldverði
kr. 2.950,-
Muniö vinseelu gjafakortin
HÓTEL ÖI2K
- æ Sfmi:
l-.y j 98-34700
Freysteinn á Alþjóðaþingi FIDE.
Upphaf heimsmeist-
araeinvígis á Islandi
eftir Eddu
Þórarinsdóttur
Á námsárum sínum í Rússlandi,
nánar tiltekið árið 1957, horfði
Freysteinn Þorbergsson á heims-
meistaraeinvígi í skák milli þáver-
andi heimsmeistara Smyslovs og
fyrrverandi heimsmeistara Bot-
winniks, sem þá var að endur-
heimta titilinn. Skrifaði Freysteinn '
um þetta einvígi í dagblaðið Tímann
á sínum tíma.
Skömmu eftir að við giftum okk-
ur í mars 1960, sagði Freysteinn
mér frá því er hann horfði á þetta
einvígi. Frásögnin var svo lifandi
að það var eins og ég væri komin
í iðandi mannþröngina í kæfandi
hitanum og andaði að mér blöndu
af reykingarlykt, svitalykt og
sterkri hvítlaukslykt sem var svo
megn að litlu munaði að Freysteinn
hyrfi frá skákinni. En þá komu svo
spennandi leikir, að Freysteinn
gleymdi stund og stað og horfði á
skákina til enda. Gaman vaéri að
koma slíku einvígi hingað heim,
sagði Freysteinn með löngunar-
hreim í röddinni. Það held ég að
verði aldrei hægt, sagði ég. Held-
urðu að hinar stóru og ríku þjóðir
mundu nokkurn tíma samþykkja
slíkt?
Aðalatriðið er að vera á undan
að fá hugmyndina og hafa sterkan
vilja, þá er hægt að ná langt. Við
ræddum þetta ekki frekar þá.
Salmson
Miðstöðvardœlur
M
Þróuð.
framleiðsla.
Hagstœtt verð.
LANDSSMIÐJAN HF.
Verslun: Sölvhólsgötu 13
SlMI (91) 20680* FAX (91)19199
Árið 1968 erum við búsett í
Varmahlíð í Skagafirði. Freysteinn
er þar skólastjóri. Ég fer að tala
um hve lítið sé um vinnu í sveit-
inni, sérstaklega fyrir konur sem
vilji vinna utan heimilis. Þá segir
Freysteinn: „Ég verð sannfærðari
um það með hveiju árinu sem líður
að hingað þarf að fá verulega stór-
an viðburð, sem vekur heimsat-
hygli í nokkurn tíma, til þess að
vekja athygli á landi okkar og þjóð.
Hér er paradís fyrir sólbrennda
Suðuriandabúa og svo þarf að hrista
upp í fólki hér heima. Hér gæti
fólk unnið við að búa til minjagripi
á vetrum og þjónustað ferðafólk á
sumrin." Ég vissi hvað klukkan sló.
Freystinn var enn að hugsa um
heimsmeistaraeinvígi á Isiandi.
Þegar Freysteinn var að tefla á
ólympíumóti í skák í Siegen í
Vestur-Þýskalandi haustið 1970,
kom dr. Euwe til Freysteins til að
ræða við hann um næsta heims-
meistaraeinvígi í skák. Dr. Euwe
var fyrrjverandi heimsmeistari og
þáverandi forseti alþjóðaskáksam-
bandsins FIDE. Ljóst var að næsta
einvígi mundi standa á milli Banda-
ríkjamannsins Róberts Fischer og
rússnesks skákmeistara. „Um mitt
næsta ár mun koma til kasta al-
þjóðaþings FIDE,“ mælir Dr. Euwe.
„Ég vænti þess að þér sjáið yður
fært að mæta því nú ríður á að vér
vestrænar þjóðir stöndum jsaman
svo einvígið fari ekki austur fyrir
járntjald." Ræddu þeir síðan nokk-
uð um tilhögun væntanlegs einvígis.
Ekki hefði Freysteinn þurft þess-
ara hvatningarorða við því hann
hafði fyrir löngu hugsað sér að
reyna að komast á þetta þing.
Mánuði áður en þingið átti að hefj-
ast hringdi dr. Euwe í Freystein
og ítrekaði við hann að mæta.
Slíkur var áhuginn.
Ég er að láta niður í tösku Frey-
steins sem er full fyrir af bókum
„Gífurlega hörð and-
staða reyndist vera á
þinginu gegn íslandi
sem einvígisstað.
Fannst sumum fulltrú-
anna sem væri verið að
reyna að fela einvígið
með því að senda það
út í hafsauga.“
og pappír. Freysteinn hafði alltaf
mikið af bókum meðferðis, bókum
eftir Turgeniev og Tolstoy á frum-
málinu og fleiri heimsfræga rithöf-
unda sem honum fannst ómissandi
í farteski sínu. Af innlendum höf-
undum voru Þórbergur Þórðarson
og Gunnar Dal efstir á lista.
„Hvernig á ég að korna fötunum
í töskuna?" spyr ég og horfi vonlitl-
um augum á allt þetta bókaflóð í
töskunni. „Settu þau bara ofan á,“
segir hann. Síðan er sest ofan á
töskuna til að freista þess að geta
pressað lokið nógu langt niður svo
smelli í læsingunum. Að pakka nið-
ur var orðinn hversdagslegur við-
burður í lífi mínu. I þau tólf ár sem
við Freysteinn höfðum verið gift,
fannst mér hann alltaf vera að
koma eða að fara. Að taka upp úr
töskum eða pakka niður eins og
núna var fyrir löngu orðið að vana.
Það var alltaf eitthvað heillandi og
spennandi við ferðir hans. Þegar
hann kom aftur og sagði frá öllum
ævintýrunum var eins og ég upp-
lifði þau með honum. Svo lifandi
voru frásagnirnar og svo einstakur
maður var Freysteinn.
„Ætlarðu ekki að halda fund með
Skáksambandinu og segja þeim
hvað þú hyggst fyrir?“ segi ég og
horfi spyijandi augum á eiginmann
minn. Freysteinn horfir á mig, lítur
síðan til hliðar og segir: „Ég hafði
hugsað mér það en þegar ég fór
að hugsa málið betur, sá ég að
þessir menn í Skáksambandinu hafa
ekki reynst mér hliðhollir. Ef ég fer
að segja þeim frá þessu núna, get
ég alveg eins reiknað með því að
a.m.k. 60% þeirra séu efasemdar-
og úrtölumenn. Ég mundi því lenda
í þeirri aðstöðu að verða að beijast
fyrir einvíginu bæði hér heima og
erlendis samtímis og slíkt tel ég
óvinnandi einum manni. Ég hef því
hugsað mér að fara á þingið og
stinga upp á íslandi sem einvígis-
stað. Senda síðan fréttir hingað
heim, tala við skáksambandsmenn
og skrifa greinar um málið þegar
heim er komið. Þá trúi ég ekki öðru
en ýmsir frammámenn muni fá
áhuga á málinu og þrýsta á skák-
sambandsmenn."
Eftir að Skáksambandið hafði
staðfest að Freysteinn mætti sitja
þing FIDE fyrir þeirra hönd, hélt
Freysteinn til Amsterdam. Margir
fulltrúar stungu upp á löndum
sínum sem einvígisstað og þar á
meðal Freysteinn, einn Norður-
landabúa.
(Á næsta þingi FIDE vildu fleiri
þjóðir fá að bætast í hóp þeirra sem
halda vildu einvígið, þar á meðal
Svíar, en dr. Euwe tók af skarið
og sagði að þar sem svo margar
þjóðir hefðu nú þegar boðist til að
halda einvígið, yrði ekki fleirum
bætt við. Freysteinn hafði þó nokkr-
um sinnum áður setið þing FIDE
fyrir hönd SÍ og aldrei fengið
greiddan kostnað^ eða laun fyrir.
Eini kostnaður SÍ var skeyti sem
senda þurfti til staðfestingar.)
En það voru ekki allir sáttir við
uppástungu Freysteins og þar á
meðal var sjálfur dr. Euwe. Margir
hinna fulltrúanna litu á uppástungu
Freysteins sem kjánalega og jafnvel
hreina móðgun við stórþjóðirnar.
Að íbúar lítillar eyju norður í ballar-
hafi sem vart væru fleiri en íbúar
í einu úthverfi stórborgar skyldu
voga sér að bjóðast til að halda svo
mikilvægt mót og heimsmeistara-
einvígið í skák. Þannig hugsuðu
reyndar sumir hér heima þá þó
engum þyki það nema sjálfsagt nú
að íslendingar héldu einvígið.
Dr. Euwe hringdi á hótelherbergi
Freysteins eftir uppástungu hans á
fundinum og bauð honum heim til
sín um kvöldið. Stundvíslega kl.
20.00 mætti Freysteinn að húsi hins
aldna höfðingja. Dr. Euwe býður
honum inn en er óvenju þurr á
manninn. Þegar þejr ganga til stofu
segir dr. Euwe: „Ég ætla að biðja
yður að draga til baka þessa fárán-
legu tillögu yðar um ísland sem
einvígisstað. Island er vanþróað ríki
sem ekki er fært um að sjá um ein-
vígi sem þetta." Freysteinn gengur
nær glugganum og horfir út. Nú
ríður á að vanda mál sitt. Hann
hugsar sig lengi um. Dr. Euwe er
farinn að ókyrrast, hefur ræskt sig
nokkrum sinnum, þegar Freysteinn
snýr sér seinlega við og segir: „Dr.
Euwe, ég hef setið alþjóðaþing
FIDE af og til frá 1953. Ég hef
verið einlægur aðdáandi yðar ög
met yður afar mikils en nú get ég
ekki verið yður sammála." Dr.
Euwe bendir Freysteini á að setjast
sem hann þiggur en heldur síðan
Viðtalstimi borgarfulltrúa i
Sjálfstæðisflokksins i Reykjavík
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins
verða til viðtals í Valhöll, Háaleitisbraut 1,
á laugardögum í vetur frá kl. 10-12.
Er þá tekið á móti hvers kyns fyrirspurnum
og ábendingum.
Allir borgarbúar velkomnir.
Laugardaginn 7. apríl verða til viðtals Páll Gíslason, formaður bygginganefndar aldr-
aðra, sjúkrastofnana og veitustofnana, Helga Jóhannsdóttir, í stjórn umferðarnefndar og
SVR, og Sigurjón Fjeldsted, formaður stjórnar SVR, í stjórn skólamálaráðs og fræðsluráðs.