Morgunblaðið - 05.04.1990, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. APRÍL 1990
45
_________________Elohim_______________________
Elohim heitir hljómsveit af Akranesi, sem ekki náðist að mynda,
en þá sveit skipa Þorbergur Auðunn Viðarsson gítarleikari og söngv-
ari, Orri Harðarson gítarleikari, Logi Guðmundsson trommuleikari
og Hrannar Hauksson bassaleikari. Allir koma þeir af Skipaskaga
og hafa áður tekið þátt í Músíktilraunum, sumir oft og þá með
ýmsum hljómsveitum, s.s. Óþekkkt andlit, Tregaþlandin lífsgleði
og Plastgeir og Geithildur. Þess má svo geta að á síðasta ári leiddi
Þorbergur hljómsveitina Lalli og sentimetrarnir og komst með henni
í úrslit, en Orri og Logi léku þá í hljómsveitinni Bróðir Darvins, sem
náði þriðja sæti það sinn. Elohim leikur rokktónlist og meðalaldur
sveitarmanna er óráðinn.
Næst á svið er hljómsveitin Fröken Júlía frá Hvolsvelli og Hellu.
Hana skipa Þorsteinn Aðalbjörnsson trommuleikari, Jón Guðfinns-
son bassaleikari, HelgiJónsson hljómborðsleikari, Snæbjörn Rafns-
son gítarleikari og Lárus Magnússon söngvari. Meðalaldur sveitar-
manna er nítján ár og þeir segjast spila blandaða tónlist enda alæt-
ur á því sviði.
Morgunblaðið/Sverrir
__________Strigaskór nr. 42________________
Strigaskór nr. 42 heitir hljómsveit úr Kópavogi, sem skipuð er
Þeim Kjartani Róbertssyni bassaleikara, Ara Þorgeir Steinarssyni
trommuleikara og Hlyn Aðils Vilmarssyni gítarleikara. Ekki er Ijóst
hvort einhver þeirra syngur líka. Meðalaldur sveitarmanna er fjórt-
án ár, en þeir segjast leika hrátt rokk í þyngri kantinum; frekar
Megadeth en Metallicu.
Borgarleikhúsið:
Sýningum á þrem-
ur verkum lýkur
ÞRJAR synmg-ar
heimsins, Kjöt og Töfi-asprotinn.
Ljós heimsins í leikgerð og und-
■ir leikstjórn Kjartans Ragnarsson-
ar, unnin upp úr Heimsljósi Hall-
dórs Laxness, var opnunarsýning
Leikfélags Reykjavíkur á litla svið-
inu. Pjöldi sýninga er að nálgast
80. Síðustu sýningarnar verða
fimmtudags-, föstudags-, laugar-
dags- og sunnudagskvöld.
Síðasta sýning á Kjöti eftir Ólaf
Hauk Símonarson verður á laugar-
dagskvöld. Leikritið gerist bakatil
í kjötbúð á árunum eftir 1960.
Leikstjóri er Sigrún Valbergsdótt-
ir.
ns hætta um næstu helgi, Ljós
Barna- og fjölskylduleikritið
Töfrasprotinn eftir- Benóný Ægis-
son var frumsýnt á annan í jólum.
Síðustu sýningar verða á laugar-
dag og sunnudag klukkan 14.
Leikstjóri er Þórunn Sigurðardótt-
ir.
Hótel Þingvellir var frumsýnt
17. mars sl. Það verður sýnt
fimmtudags-, föstudags-, og
sunnudagskvöld. Næsta sýning
eftir páska verður laugardaginn
21. apríl. Höfundur er Sigurður
Pálsson, leikstjóri Hallmar Sig-
urðsson.
Landslagið 1990
Landslagið 1990
Duni dúkarúllur
kalla fram réttu stemmninguna
við veisluborðið.
Fallegir litir sem fara vel við
borðbúnaðinn geta skapað þetta litla
sem þarf til að veislan verði fullkomin.
Duni dúkarúllurnar eru 50m á lengd
og l,25m á breidd og passa því á öll borð.
Og þú þarft ekki að þvo dúkinn á eftir.
Fannir hf. - Krókhálsi 3
Sími 672511