Morgunblaðið - 05.04.1990, Blaðsíða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. APRIL 1990
ATVIN N UA UGL YSINGAR
Kennarastöður
Framhaldskólinn á Laugum auglýsir lausar
kennarastöður skólaárið 1990-1991.
Meðal kennslugreina:
íslenska, danska og viðskiptagreinar.
Umsóknarfrestur er til 5. maí.
Upplýsingar gefur skólameistari í síma
96-43112 eða 96-43113.
Sjúkrahúsið í Húsavík sf.
Hjúkrunarfræðingar
- sjúkraliðar
Óskum að ráða hjúkrunarfræðinga og sjúkra-
liða til starfa nú þegar og til sumarafleysinga.
Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri í síma
96-41333.
Reykjavík
Hjúkrunarfræðingar
- sjúkraliðar
- starfsfólk
Aðstoðardeildarstjóri óskast í fullt starf frá
15. maí á heilsugæslu Hrafnistu. Sérnám í
heilsugæslu eða öldrunarhjúkrun æskilegt
og góð starfsreynsla.
Aðstoðardeildarstjóri óskast í 80-100%
starf frá ca. 1. júní á hlýlega hjúkrunardeild
með 30 vistmönnum.
Hjúkrunarfræðinga vantar á 23ja manna
deild. Vinnutími frá kl. 17-22 aðra hvora viku
(frí föstud. og laugard.)
Hjúkrunarfræðingar og eða hjúkrunarnemar
óskast til sumarafleysinga á ýmsar vaktir.
Sjúkraliða og annað starfsfólk vantar í föst
störf og sumarafleysingar á ýmsar vaktir.
Bítibúrskonu vantar nú þegar í 50% starf.
Vinnutími frá kl. 17-21.
Atvinna óskast
Ung kona með verslunarmenntun óskar eftir
framtíðarstarfi.
Upplýsingar í síma 670867 næstu daga.
Sölumaður
Heildverslun í Kópavogi óskar eftir duglegum
og vönum sölumanni til að selja hreinlætis-
og snyrtivörur í matvöruverslanir. Þarf að
geta byrjað sem fyrst.
Tilboð merkt: „Duglegur - 6267“ skilist til
auglýsingadeildar Mbl. fyrir 11. apríl.
Lager
Heildsölufyrirtæki í Reykjavík óskar eftir
starfsmanni á lager. Um framtíðarstarf er
að ræða á reyklausum vinnustað og eru
byrjunarlaun 60 þúsund á mánuði.
Umsóknir ásamt upplýsingum um aldur og
fyrri störf sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir
10. apríl merktar: „Lager - 8678“.
ST. JÓSEFSSPÍTALI, LANDAKOTI
Hjúkrunardeildar-
stjóri -
hjúkrunarfræðingar
Hjúkrunardeildarstjóra vantar á speglunar-
deild/meðferð krabbameinssjúklinga. Deildin
er opin frá kl. 8.00-16.00 virka daga.
Umsóknarfrestur er til 15. apríl.
Einnig vantar hjúkrunarfræðinga á hinar
ýmsu deildir sjúkrahússins.
Nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu
hjúkrunarforstjóra í síma 604311.
Siglufjörður
Blaðberi óskast á Hólaveg.
Upplýsingar hjá umboðsmanni í síma 71489.
flltrjgiiiitMafeife
Félagsmálastofnun Selfoss
Starfsmaður
Félagsmálastofnun Selfoss óskar eftir að
ráða starfsmann til að hafa umsjón með þjón-
ustu við aldraða. Óskað er eftir félagsráð-
gjafa en til greina kemur að ráða starfsmann
með aðra menntun. Um er að ræða 50%
stöðu frá 1. maí til 31. desember 1990.
Nánari upplýsingar veitir félagsmálastjóri í
síma 98-21408.
Félagsmálastofnun Selfoss.
Félagsmálastjóri
Ólafsfjarðarbær auglýsir laust til umsóknar
starf félagsmálastjóra. Laun eru samkvæmt
launakerfi bæjarstarfsmanna.
í starfi félagsmálastjóra felst umsjón með
þeim málaflokkum, sem heyra undir félags-
málaráð, þ.e. dagvistun, vímu- og áfengis-
mál, félagshjálp, öldrunarmál o.fl. Þá á fé-
lagsmálastjóri að gegna starfi æskulýðs- og
íþróttafulltrúa.
Æskilegt er að umsækjendur hafi reynslu í
félagsmálastörfum svo og uppeldis- og
íþróttamálum, einnig að umsækjendur hafi
einhverja menntun á þessum sviðum.
Umsóknir er tilgreini aldur, menntun og fyrri
störf sendist undirrituðum fyrir 20. apríl
1990.
Allar nánari upplýsingar veitir undirritaður.
Óla fsfirði 2 7. mars 1990.
Bæjarstlórinn í Ólafsfirði,
Olafsvegi 4
625 Ólafsfirði,
sími 96-62151.
FUNDIR - MANNFA GNAÐUR
Lionsfélagar - Lionessur
Síðasti samfundur starfsársins verður hald-
inn föstudaginn 6. apríl í Lionsheimilinu, Sig-
túni 9, Reykjavík kl. 12.00.
Fjölbreytt og áhugaverð dagskrá.
Fjölmennið.
Fjölumdæmisráð.
EB-EFTA og neytandinn
Föstudaginn 6. apríl kl. 15.00 efna Neytenda-
samtökin til fundar í Borgartúni 6 um EB-EFTA
og neytandann.
Ræðumenn:
Setning: Jóhannes Gunnarsson, formaður
Neytendasamtakanna.
Ávarp: Jón Sigurðsson, viðskiptaráðherra,
Benedicte Federspiel, forstjóri
danska Neytendaráðsins,
Ólafur Davíðsson, framkvæmda-
stjóri Félags íslenskra iðnrekenda,
Sólrún B. Jensdóttir, deildarstjóri í
menntamálaráðuneytinu.
Þeir, sem áhuga hafa á að sitja þennan fund,
eru beðnir um að tilkynna þátttöku í síðasta
lagi kl. 12.00 á föstudag.
Neytendasamtökin.
Skeljungur hf.
sheii Aðalfundur 1990
Aðalfundur Skeljungs hf. verður haldinn
föstudaginn 27. apríl nk. kl. 17.00 á Suður-
landsbraut 4, 8. hæð.
Dagskrá:
1. Skýrsla félagsstjórnar.
2. Ársreikningar félagsins.
3. Tillaga stjórnar um greiðslu arðs til hlut-
hafa.
4. Tillaga um heimild til stjórnar um útgáfu
jöfnunarhlutabréfa.
5. Tillaga um þóknun til stjórnar og endur-
skoðenda.
6. Tillögur um breytingar á samþykktum fé-
lagsins: -
6.1. Hömlur á viðskipti með hlutabréf í
félaginu felldar út úr samþykktunum.
6.2. Heimild til stjórnar um að hækka
hlutafé um allt að 50 millj. kr. með
áskrift nýrra hluta.
6.3. Formleg breyting nafns félagsins úr
Olíufélagið Skeljungur hf. í Skelj-
ungur hf.
7. Kosning stjórnar.
8. Kosning endurskoðenda.
9. Önnur mál.
Tillögur að breytingum á samþykktum félags-
ins liggja frammi á skrifstofum félagsins á
Suðurlandsbraut 4, Reykjavík.
Skeljungur hf.
HÚSNÆÐIÓSKAST
Leiga
Reglusöm hjón með tvö börn vilja taka á
leigu 4ra-5 herb. íbúð frá 1. maí eða 1. júní.
Leigutími þarf helst að vera lengri en ár.
Upplýsingar í síma 78321 (fyrir kl. 21.00).
íbúð óskast
Tveggja til þriggja herbergja íbúð óskast til
leigu fyrir erlend hjón í tólf mánuði.
Upplýsingar í síma 38636.
NA UÐUNGARUPPBOÐ
þriðja og síðasta fer fram á eftirtöldum eignum fimmtudaginn 5.
apríl 1990 á eignunum sjálfum:
Kl. 14.00, jörðin Refsstaðir 2, Vopnafirði, þingl. eign Siglaugs Bryn-
leifssonar og Ingibjargar Þ. Stefensen. Uppboðsbeiðendur eru Trygg-
ingastofnun rikisins, Búnaðarbanki íslands, Byggingasjóöur rikisins,
veðdeild Landsbanka Islands og Samvinnubankinn, Vopnafirði.
Kl. 15.00, Hafnargata 47, ásamt öllum vélum, tækjum og búnaði,
Seyðisfirði, þingl. eign Fiskvinnslunnar hf. en talin eign þrotabús
Fiskvinnslunnar hf. Uppboðsbeiðendur eru Ríkissjóður Islands, oliufé-
lagið Skeljungur, Brunabótafélag Islands, Trésmiðja Fljótsdalshér-
aðs, Byggðastofnun og Landsbanki Islands, lögfræöingadeild.
Kl. 17.00, Hafnargata 46, Seyðisfirði, þingl. eign Lárusar Einarsson-
ar. Uppboðsbeiðendur eru Helgi Jóhannesson, lögfræðingur, veð-
deild Landsbanka íslands og Tryggirigastofnun ríkisins.
Leiðrétting á áður birtri auglýsingu frá 4. april 1990. Réttur upp-
boðsdagur er fimmtudagurinn 5. apríl 1990.
Sýslumaður Noröur-Múlasýslu.
Bæjarfógetinn á Seyðisfirði.