Morgunblaðið - 05.04.1990, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. APRÍL 1990
47
Sigurlína Símon-
ardóttir - Minning
Fædd 6. desember 1912
Dáin 26. mars 1990
Um héraðsbrest ei getur, þó hrökkvi sprek
í tvennt,
er hríðarbylur geisar; það liggur gleymt og
fennt.
(G.F.)
Þessar hendingar úr kvæði Guð-
mundar Friðjónssonar, Ekkjan við
ána, komu í hug mér þegar ég
heyrði fregnina af skyndilegu and-
láti Sigurlínu Símonardóttur, eða
Línu frænku eins og hún var jafnan
nefnd í fjölskyldu minni. Þó að
ýmsu leyti sé ólíku saman jafnað,
þá var hún í ríkum mæli gædd flest-
um þeim eiginleikum, sem skáldið
sér hjá ekkjunni. Báðar voru af
hjarta lítillátar, örlátar á allt sem
þær áttu og skylduræknar án þess
að horfa til endurgjalds eða launa.
Hvorug vann til opinberrar viður-
kenningar, en báðar veittu vinum
og vandalausum af „gestrisninnar
einlægni". En þar sem hins vegar
var lítil „sorg á ferðum" við andlát
ekkjunnar við ána, verður Línu sárt
Vinnsla en
ekki veiðar
SÚ meinlega villa varð í frásögn
í Morgunblaðinu í gær af fundi
Samtaka fiskvinnslustöðva um
mótun fiskvinnslustefnu, að
tvívegis var talað um fiskveiði-
stefnu í stað fiskvinnslustefnu.
Villa þessi er bæði í fyrirsögn
og höfð eftir formanni samtakanna
í niðurlagi fréttarinnar. Morgun-
blaðið leiðréttir hér með þessi mis-
tök um leið og það biðst velvirðing-
ar á þeim.
saknað af öllum þeim sem til þekktu
og urðu elsku hennar og alúðar
aðnjótandi.
Sigurlína var fædd 6. desember
1912, dóttir hjónanna Símonar
Kristjánssonar bónda í Ölversgerði
í Eyjafirði og Maríu Sigtryggsdótt-
ur, Sigurðssonar bónda frá Æsu-
staðagerði. Hún ólst þó að mestu
leyti upp á Æsustöðum hjá móður-
systur sinni, Sigurlínu Rósu, og
manni hennar, Níels Sigurðssyni.
Önnur börn Maríu og Símonar voru
Sigtryggur og Svanhildur, sem dóu
ung, Sigtryggur, bifreiðarstjóri á
Akureyri, og María Brynjólfsdóttir,
húsmóðir og tónlistarkona í
Reykjavík. María eldri hafði veikst
af berklum og lést þegar Sigurlína
var á sjöunda árinu, en hún hafði
áður komið dætrum sínum í gott
fóstur. Sigurlína yngri hefur vafa-
lítið hlotið gott uppeldi hjá nöfnu
sinni og orðið fyrir góðum áhrifum
á Æsustöðum, en frá því merka
heimili segir nokkuð í endurminn-
ingum uppeldissystur hennar,
Helgu M. Níelsdóttur, ljósmóður.
Sigurlína eldri lét félagsmál mikið
til sín taka og meðal baráttumála
hennar voru hjúkrunar- og líknar-
mál, og ef til vill hafa veikindi syst-
ur hepnar orðið til þess að hún lagði
sig sérstaklega fram í baráttunni
fyrir bættri aðstöðu til meðhöndlun-
ar á berklum. Sigurlína yngri smit-
aðist þó ekki af félagsmálaáhgua
nöfnu sinnar, en ekki skorti hana
dugnað og ákefð til góðra verka.
Hún var bókhneigð og frá fyrstu
tíð talin vel greind, skapmikil en
glaðsinna. Um sextán ára aldurinn
fór Sigurlína frá Æsustöðum og
flutti þá suður til Reykjavíkur. Hun
vann fyrst hjá Helgu frænku sinni
en síðan við ýmis störf þar til er
hún kynntist mannsefninu sínu,
Albert Jónssyni. Albert var Þingey-
ingur að uppruna, f. 1893, en alinn
upp hjá séra Ludvig Knudsen, presti
á Bergsstöðum í Svart ú’dal og
Breiðabólstað í Húnavatnssýslu.
Þau Sigurlína og Albert giftust i
Reykjavík 9. október 1936, en flutt-
ust norður _til Siglufjarðar í ársbyij-
un 1939. Á Siglufirði vann Albert
lengst af við trésmíðar og eftir að
þau fluttust aftur til Reykjavíkur
árið 1952 starfaði hann hjá Tré-
smiðju Reykjavíkurborgar. Albert
lést árið 1969 eftir stutta en erfiða
sjúkdómslegu.
Sigurlína og Albert eignuðust
einn son, Lúðvíg Björn, viðskipta-
fræðing, f. 1938, sem er frkvstj.
heildverslunarinnar Nordic sf. í
Reykjavík. Lúðvíg er kvæntur
Kristjönu Halldórsdóttur, kennara,
og eiga þau tvo syni, Halldór, verk-
fræðinema, f. 1967, og Albert f.
1976. Sonur Lúðvígs og fyrri konu
hans, Lucindu Grímsdóttur, er
Grímur, f. 1961.
Hin litla fjölskylda sonarins var
Sigurlínu allt eftir að maður hennar
lést. Auðsætt var að hún harmaði
Albert stöðugt enda hafði samband
þeirra verið mjög náið. Albert var
hlédrægur maður eins og Sigurlína
kona hans og ekki mannblendinn.
Hann var skapmaður mikill ef því
var að skipta, en undir niðri bjó þó
hlý lund og örlát, og skopskyn hafði
hann ágætt. Það var undirrituðum
stöðugt gleðiefni á árum áður að
fylgjast með sambandi þessara
ágætu hjóna. Glaðværðin, sem
geislaði af konunni, léttur hláturinn
og hugarflugið fengu enn meiri
fyllingu þegar góðlátleg alvörugefni
og kímni eiginmannsins voru með
í ieiknum. Einnig var það oft undr-
unarefni hve vel alvörumaðurinn
tók ærslum og stríðni hinnar gáska-
fullu eiginkonu. Ærslin annars veg-
ar og umburðarlyndið hins vegar
hafa vafalítið átt traustar rætur í
heitum tilfinningum, sem þau hjón
báru hvort til annars _og erfitt var
að tjá á annan hátt. — Á óvitaaldrin-
um átti undirritaður víst athvarf á
látlausu heimili þeirra á Túngötu
10 á Siglufirði. Óteljandi voru ferð-
BANDALAG ÍSLENSKRA SKÁTA, LANDSSAMBAND HJÁLPARSVEITA
SKÁTA OG HJÁLPARSTOFNUN KIRKJUNNAR
Söfnunardagur
7. apríl
Allar einnota öl- og gosdrykkjaumbúöir
L..
7. apríl
Skátar veröa viö dósakúlurnar og taka viö dósum og flöskum
7. apríl
Viö veitum þjónustu þennan dag. Viö sækjum heim.
Þú hringir — við komum. Síminn er 26440 og 621390.
Hentu ekki öl- og gosdrykkjaumbúðum.
Notaðu dósakúlurnar, þannig styrkir þú okkur.
Æ
L.H.S
D kej
LANDSSAMBAND
HJÁLPARSVEITA
SKÁTA
BANDALAG ÍSLENSKRA SKÁTA
HJALPARSTOFNUN
KIRKJUNNAR
irnar yfir götuna til að sníkja kleinu,
heyra sögu eða bara til að vera
samvistum við þetta kærleiksríka
fólk. Þau hjón höfðu á þeim tíma
tekið að sér netahnýtingar og á
kvöldin að lokinni annarri vinnu
stóð heimilisfaðirinn gjarnan við
hnýtingarnar meðan húsmóðirin
sinnti heimilisstörfum. Oft var óvit-
inn notaður til að bera skilaboð og
smástríðni á milli hjónanna þar sem
þau kepptust við störf sín. Sigurlína
hóf þá oftast leikinn: „Ósköp geng-
ur þetta hægt hjá þér, Albert minn!“
eða „Flýttu þér nú Albert minn!“
Barnið bar orðin á milli og svörin
létu ekki á sér standa: „Ekki hitnar
kaffið við það, Lína mín!“ eða „Það
er svo laust í nálunum hjá þér, Lína
mín!“ Minningarnar um þessa góð-
látlegu gamansemi eru meðal fjár-
sjóða bernskunnar og víst er að
fleiri smásveinar og meyjar áttu
öruggt athvarf hjá þeim hjónum
þegar hríðarbylur geisaði. Gestrisn-
inni lauk ekki þó að lengra yrði
milli vina og þakka ber gistinætur
og margar ánægjustundir í litlu
ibúðinni á Kleppsveginum.
Sigurlína starfaði utan heimilis-
ins eftir að þau hjón voru komin
til Reykjavíkur og tók þá að sér
störf sem mörgum öðrum hefðu
þótt erfið, en hún veigraði sér ekki
við. Hun starfaði meðal annars um
árabil sem gæslukona á Kleppsspít-
ala og þá aðallega á næturvöktum.
Síðan, þegar aldurinn færðist yfir
og þrekið tók að minnka, starfaði
Sigurlína í nokkur ár á Hrafnistu,
Dvalarheimili aldraðra sjómanna,
og loks sinnti hún aðhlynningu aldr-
aðra á vegum heimilishjálparinnar
í Reykjavík. í þessum störfum komu
dugnaður, æðruleysi og hið létta
skap Sigurlínu að góðum notum.
Auðheyrt var að allir skjólstæðing-
arnir voru henni kærir og áttu sam-
úð hennar óskipta. Á sínum yngri
árum var Sigurlína glæsileg kona,
létt í hreyfingum og nær alltaf
geislandi af gleði. Hún veitti óspart
af þessum innri eldi fram eftir
árum. Síðustu árin átti hún sjálf
við heilsubrest að stríða, og naut
þá traustrar og öruggrar umhyggju
fjölskyldu sonar síns sem var henni
svo kær. Stoltið, dugnaðurinn og
viljinn til að vera sjálfri sér nóg
leyfðu ekki ölmusur, en augasteinn-
inn hennar, sonarsonurinn yngsti,
var ömmu sinni sú stoð og stytta
sem nægði til að gera ævikvöldið
bjart.
Megi hinn hæsti höfuðsmiður
himins og jarðar blessa minningu
góðrar konu og líkna þeim sem
sárt syrgja.
Jóhann Heiðar Jóhannsson
íslensk fegurö meö
NO NAME
-.... ■ COSMETICS ..
Vib kynnum no NAME sumarlitina
— COSMETICS —
Vid sýnum íslenska fegurb fyrir íslenskar konur
Kynnlngar á sðlustððum okkar næstu daga:
Paradís, Laugarnesvegi
Gimll, Miðleiti
Ingöllsapðtek, Kringlunni
60tt Ótiit, Nýbýlavegi,
föstudoginn 6/4, kl. 12-15
Garósapótek, Sogovegi
Snyrtistotan Lit, Mjóddinni
fösfufoginn 6/4, kl. 15-18
Snyrtivöruverslunin Brá, Lougavegi
laugardag 7/4, kl. 11-14
Perlan, Akranesi
Snyrtilínan, Fjarðarkaupi, föstudaginn 6/4, kl. 15-18
Snyrtistolan RÓS, Engihjalla
Snyrtihöllin, Garðabæ,
fimmtudoginn 5/4 Id. 15-18
Snyrtistofan Anita, Skólavegi, Vestmannaeyjum
Helga Kristjánsdóttir, Blómsturvöllum, Grindavik
Fðta- og snyrtistotan Táin, Sauðórkróki
Gloría, Samkaupum, Njarðvík
Snyrtistofan NH, Laugavegi