Morgunblaðið - 05.04.1990, Qupperneq 28
28
MORGUNBLAÐIÐ' FIMMTUDAGUR 5. APRÍL 1990
Réttarhöld í Bandaríkjunum:
Bush sagður hafa ráðlagt
Marcos um fasteignakaup
um í staðinn?“, spurði hann. „Þau
vildu halda góðu sambandi við
Bandaríkjastjórn og í stað þess að
senda peningana til Líbýu hófu þau
fasteignakaup á Manhattan," sagði
Spence.
Hann andmælti þeirri fullyrðingu
ákæranda að Ferdinand Marcos og
forsetafrúin hefðu verið þjófar.
Imelda hefði hvergi komið nærri
ijármálastjórn manns síns. „Hún
var bara eiginkona hans og hafði
engin afskipti af fjármálum," sagði
lögmaðurinn.
Alkirkjuráðið gagnrýnt:
Sveik lýð-
ræðissinna
í A-Evrópu
ALKIRKJURÁÐIÐ lét sem það
vissi ekki um atferli harðstjór-
anna í Austur-Evrópu og ein-
beitti sér þess í stað að baráttu
gegn stjórn Suður-Afríku, hefur
danska dagblaðið Jyllands-Post-
en eftir rúmenska prestinum
Laszlo Tökes.
Er öryggissveitir Nicolae
Ceausescus reyndu í desember
síðastliðnum að handtaka Tökes,
sem er af ungverskum ættum, í
borginni Timisoara til að flytja
hann á brott frá borginni hófst
uppreisn sem nokkrum dögum
síðar leiddi til falls einræðisher-
rans.
Tökes sagði fyrir skömmu í Vín
að kirkjuráðið hefði svikið málstað
lýðræðissinna í A-Evrópu. Tals-
menn þess hefðu sýnt Ceausescu
traust og almennt látið sem þeir
vissu ekki um svívirðilegt fram-
ferði kommúnistastjórnanna í álf-
unni. v
Svíþjóð:
Hætt við skattalækkanir
vegna efiiahagserfiðleika?
Stokkhólmi. Frá Erik Liden, firéttaritara Morgunbladsins.
EKKI er víst, að fyrirhugaðar
breytingar á sænsku skattalög-
gjöfinni nái fram að ganga á
þessu þingi eins og að var þó
stefnt. Höfðu jafhaðarmenn og
þjóðarflokksmenn samvinnu um
breytingarnar, sem felast aðal-
lega í því að lækka skattþrepin,
en vegna ástandsins í efiiahags-
málunum er óvíst, að þeim verði
fylgt eftir að öllu leyti.
hækkanir hefði hann haldið, að um
aprílgabb væri að ræða enda vægju
þær að miklu leyti upp á móti skatt-
þrepalækkuninni. Sagði hann þess-
ar hugmyndir fáránlegar og má því
búast við heitum umræðum á
sænska þinginu eftir hálfan mánuð
þegar frumvarp ríkisstjórnarinnar
um strangar aðhaldsaðgerðir verð-
ur lagt fram.
Svíar vilja ekki fleiri
flóttamenn til landsins
Reuter
Imelda Marcos gengur út úr réttarsal í New York í fyrradag og
streyma tárin niður kinnar hennar.
Allan Larsson fjármálaráðherra
sagði í gær, að líklega yrði að fresta
um sinn að taka upp sjöttu sumar-
leyfisvikuna og lengja barnsburðar-
leyfið í 15 mánuði og hann sagði
einnig, að verið væri að ræða
skattahækkanir, sem gefa ættu
ríkissjóði um 50 milljarða ísl. kr.
Olof Johansson, formaður Mið-
flokksins, sagði í gær, að þegar
hann hefði fyrst'frétt af hugmynd-
um ríkisstjórnarinnar um skatta-
Stokkhólmi. Frá Erik Liden, fréttaritara Morgunblaðsins.
ÖLLUM Pólveijum, sem koma með feijunum til Ystad og vilja fá
landvist í Svíþjóð, er nú vísað beint til síns heima aftur en þeir
eru þó ekki á því að gefast upp. Hafa þeir brugðið á það ráð að
fara yfír til Austur-Þýskalands og þaðan með feiju frá Sassnitz
til Trelleborgar á Skáni.
Til Trelleborgar komu einnig í
gær sjö Afríkumenn og er búist
við, að þeim verði vísað aftur til
Póllands, þaðan sem þeir komu.
Fyrir viku voru nærri 300 manns,
frá arabalöndum og Afríku, reknir
þangað aftur en reglan er sú að
vísa fólki, sem ekki hefur vega-
bréfsáritun, aftur til þess lands, sem
hefur veitt því áritun.
í Póllandi eru nú nokkrar þús-
undir manna, sem ætluðu að fara
áfram til Vesturlanda en komast
ekki lengra enda er ekki um flótta-
menn að ræða í hefðbundnum skiln-
ingi, heldur fólk, sem er að leita
að betri kjörum.
New York. Reuter.
FERDINAND Marcos, fyrrum forseti Filippseyja, og eiginkona hans,
Imelda, létu fiytja hundruð milljóna dollara af almannafé til útlanda
með fiillri vitneskju bandarísku leyniþjónustunnar, CIA. Hjónin Qár-
festu í skýjakljúftim og fasteignum í Bandaríkjunum að ráði þáver-
andi varaforseta, George Bush, að því er lögmaður Imeldu hélt fi-arn
fyrir dómstólum í gær.
Reuter
Fulltrúar skæruliða í E1 Salvador undirrita samkomulag um að hefja
friðarviðræður við fulltrúa stjórnar hægri manna.
E1 Salvador:
Samkomulag- um að
heija íriðarviðræður
Genf. Reuter.
SAMKOMULAG náðist í gær í
viðræðum fiilltrúa stjórnvalda í
EI Salvador og skæruliða um
að hefja friðarviðræður. Verða
þær haldnar fyrir milligöngu
Sameinuðu þjóðanna en ekki
var skýrt frá því hvenær við-
ræðurnar hæfiist.
Fulltrúar stjómar Alfredos
Cristianis og fulltrúar vinstrisinn-
aðra skæraliða undirrituðu í gær
skjal þar sem þeir heita því að
setjast að samningaborði til þess
að binda enda á strið, sem staðið
hefur í áratug og kostað um
75.000 manns lífið.
í skjalinu er kveðið á um vopna-
hlé, undirbúning að því að koma
á fullu lýðræði, mannréttindamál
og viðurkenningu samtaka skæra-
liða sem stjórnmálasamtök.
Ekki er gert ráð fyrir vopnahléi
þegar í stað heldur, að sögn tals-
manns skæruliða, heldur mun það
ráðast af því hvemig samningavið-
ræður ganga hvenær því verður
lýst yfír. Eftir að samkomulag
náðist um að hefja friðarviðræður
er þó ekki búist við miklum bar-
dögum í stríði stjórnarhersins og
skæraliða.
Lögmaður Imeldu, Gerry Spence,
áskildi sér rétt til þess að kalla
Bush forseta fyrir réttinn sem vitni
í málinu, er höfðað er á hendur eig-
inkonu forsetans sem nú er látinn.
Hún er sökuð um fjárglæfrastarf-
semi, svindl og ráðabrugg um að
stela hundruðum milljóna dollara
sem verið hefðu eign filippeysku
þjóðarinnar. Saksóknari hefur sak-
að Imeldu um að hafa gengið i ríkis-
ijárhirslur eins og þær hefðu verið
hennar eigin. Spence sagði hins
vegar að Marcos hefði haft ótv-
íræða heimild til að flytja ríkisfjár-
muni úr landi. Hann hefði stjórnað
með herlögum og allar ákvarðanir
hans hefðu því haft lagagildi. Að
sögn Spence voru fjármunir sem
fluttir voru með leynd frá Filipps-
eyjum og notaðir til að kaupa fjóra
skýjakljúfa á Manhattan í New
York eins konar varasjóður, sem
átti að nota til að fjármagna valda-
baráttu Marcosar kæmust komm-
únistar til valda á Filippseyjum.
Spence sagði að árið 1981 hefði
stjóm Ronalds Reagans forseta ótt-
ast að Marcos ætlaði að flytja fjár-
muni til Líbýu þar sem vinátta hefði
tekist með þeim Moammar Gaddafí
Líbýuleiðtoga og Marcos. „Þáver-
andi varaforseti, George Bush, fór
til Filippseyja og lýsti andstöðu við
samskipti Marcos-hjónanna við
Gaddafí. „Hvers vegna fjárfestið
þið ekki í fasteignum í Bandaríkjun-
Laszlo Tökes
Noregur:
Sovésk herþota ógnaði flugvél
Ósló. Frá Rune Timberlid, fréttaritara Morgunblaðsins.
LITLU munaði í júlí í fyrra að sovésk herþota skyti niður norska
flugvél með 12 manns innanborðs, þ. á m. 10 fréttamenn, þegar
hún kom í námunda við sovéskt yfírráðasvæði í því skyni að taka
mynd af brennandi kafbáti á Barentshafi. Sovéska þotan, er var
vopnuð eldflaugum, flaug í aðeins 25 metra fjarlægð frá norsku
vélinni sem stefndi í áttina að Kólaskaga.
„Við teljum að sovéskar flug-
vélar hafí fyrirskipanir um að
skjóta niður sérhveija vestræna
flugvél sem gerir sig líklega til
að fljúga inn yfir Sovétríkin," seg-
ir Geir Anda, ofursti í norska
hernum. Sovétmenn hafa hert
mjög á loftvörnum sínum síðan
vestur-þýski pilturinn Mathias
Rust flaug á lítilli vél inn í Sov-
étríkin og lenti skammt frá
Kremlarmúrum í Moskvu í maí
1987.
Norsk heryfirvöld hafa staðfest
að heyrst hafi fíarskiptasamtöl
þar sem flugmenn þotunnar fengu
leyfi til að skjóta norsku vélina
niður ef nauðsyn krefði.