Morgunblaðið - 05.04.1990, Síða 31

Morgunblaðið - 05.04.1990, Síða 31
30 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. APRÍL 1990 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. APRIL 1990 31 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aðstoðarritstjóri Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri Árvakur, Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033. Áskrift- argjald 1000 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 90 kr. eintakið. Gamlar pólitískar lummur Davíð Oddsson borgarstjóri komst þannig að orði í ræðu, sem hann flutti þegar framboðslisti sjálfstæðismanna vegna borgarstjórnarkosning- anna í Reykjavík var kynntur, að vænta mætti kosningabar- áttu sem einkenndist annars vegar af málefnafátækt vinstri manna og hins vegar persónu- legum árásum. Þegar borgar- stjóri flutti þessa ræðu var allt í óvissu með framboð vinstri- sinna í Reykjavík. Þær línur hafa nú skýrst og samtök sem kenna sig við nýjan vettvang koma í stað Alþýðuflokks, hluta Borgaraflokks og hluta Al- þýðubandalags. Alþýðublaðið virðist ætla að taka að sér hlutverk málgagns þessa nýja framboðs. Ef marka má málflutning þess í forystu- grein í gær, hefur framboðið ekkert nýtt fram að færa, þvert á móti hverfur það mörg ár aftur í tímann og vegur að andstæðingum sínum með skætingi og persónulegum svívirðingum. Fyrir skömmu varð Ólafur Ragnar Grímsson fjármálaráð- herra sér til skammar með því að líkja Davíð Oddssyni við Nicolae Ceausescu, einræðis- herra og ofbeldismann í Rúm- eníu. Alþýðublaðið fetar í fót- spor Ólafs Ragnars í gær með setningum eins og þessari: „Kommúnistaleiðtogar Austur- -Evrópu þurftu áður fyrr ekki að hlusta á raus alþýðunnar og fóru sínu fram. Davíð og meirihluti sjálfstæðismanna búa hins vegar í lýðræðisríki og þurftu að þola mótmæli al- mennings en fóru sínu fram.“ Og ennfremur segir Alþýðu- blaðið: „Líkt og í hrundum valdakerfum Austur-Evrópu, ákvað foringinn og hirð hans uppstillingarlista og auðvitað var Davíð efsti maður.“ Ef Al- þýðublaðið og skjólstæðingar þess ætla að heyja komandi kosningabaráttu á þessum nót- um geta engir sem hafa ein- hveija sómatilfinningu átt við þá orðastað í alvöru. Það er engum sæmandi að láta ný framboð með gamlar og úreltar baráttuaðferðir draga sig niður á þetta lága plan. Glundroði hefur jafnan ein- kennt framboð vinstri manna í Reykjavík. Hann hefur síður en svo minnkað við að brot og brotabrot úr að minnsta kosti þremur flokkum taki sig saman og segist fara fram á nýjum vettvangi. Vinstrisinnum tekst ekki að breiða yfir sundurlynd- ið innan eigin raða með per- sónulegu skítkasti í Davíð Oddsson eða aðra forystumenn Sjálfstæðisflokksins. Sjálf- stæðismenn hafa staðið þannig að stjórn borgarmálefna und- anfarin fjögur ár, að andstæð- ingar þeirra þurfa að nota gamlar og myglaðar pólitískar lummur í von um að geta kom- ið á þá höggi. Slík vinnubrögð dæma sig sjálf. Flokkur í molum Borgaraflokkurinn hefur enn klofnað. Er furðulegt að stjórnmálaflokkur sem nýtur einskis fylgis meðal kjósenda, ef tekið er mið af skoðanakönn- unum, skuli klofna jafn oft og Borgaraflokkurinn. Valda- streitan í forystuliði flokksins er meiri en í flestum öðrum flokkum enda var flokksmönn- um hópað saman í spennu- ástandi rétt fyrir kosningar 1987 og minnir tilurð flokksins þannig á fæðingu Nýs vett- vangs fyrir þessar kosningar. Enginn veit í raun, hvernig slík skyndikynni í pólitík endast og oftast eru þau fljót að breytast í óvild undir mikilli pressu. Þetta hefur gerst í Borgara- flokknum. Júlíus Sólnes formaður Borgaraflokksins sýnist alls ekki átta sig á stöðu eigin flokks, ef marka má ummæli hans í Morgunblaðinu í gær. Hann segir: „En þetta allt sam- an [klofningur Borgaraflokks- insj sýnir að það er gífurlegt umrót í íslenskri pólitík og rennir stoðum undir þá skoðun mína að á næstu árum verður mikil breyting þar á. Við erum að sjá greinileg merki þess að gamla flokkakerfið er að stokk- ast upp, þótt margir hafi talið það ómögulegt.“ Hvað er for- maðurinn að fara? Það er flokk- ur hans, yngsti stjórnmála- flokkurinn, sem er að brotna í mola. Flokkurinn sem Júlíus Sólnes vildi sérstaklega koma höggi á, Sjálfstæðisflokkurinn, sem hefur starfað í rúm sextíu ár, nýtur hins vegar vaxandi styrks. AF INNLENDUM VETTVANGI STEINGRÍMUR SIGURGEIRSSON Upplausn hjá andstæðing- um Sjálfetæðisflokksins SUNDRUNG og upplausn einkennir nú vinstri væng íslenskra stjórn- mála. Alþýðubandalagið hefur klofnað vegna framboðs í Reykjavík og þróunar mála í Austur-Evrópu. Bendir margt til að klofningur þess sé að verða óhjákvæmilegur. Alþýðuflokkurinn býður ekki fram undir eigin nafni í Reykjavík og hefur haft frumkvæði að stofnun „nýrra“ framboða í höfuðborginni og víðar á landinu. Borgaraflokkur- inn, sem samkvæmt skoðanakönnunum undanfarna mánuði virðist ekki eiga neitt fylgi, er að Ieysast upp í frumeindir sínar. Hefur ekk- ert framboð á hans vegum vegna komandi sveilarsljórnarkosninga verið kynnt ennþá. Einn þingmanna flokksins í Reykjavík tekur þátt í prófkjöri Nýs vettvangs. Þótti einum fyrrum þingmanna Framsóknar- flokksins, Haraldi Ólafssyni, ástæða til að vekja athygli á þessu ástandi á fiindi framsóknarfélaganna í Reykjavík í síðustu viku og sagði Fram- sóknarflokkinn þurfa að hugsa meira til framtíðar vegna stöðunnar í samstarfsflokkunum í rikisstjorn Haraldur Ólafsson sagði að einn samstarfsflokkanna væri ekki til, annar væri svo margklofinn að ekki væri nokkur leið til að vita hver stjórnaði honum og þriðji flokkurinn væri hættur við að bjóða fram. Hann sagði menn verða að gera sér grein fyrir því að Alþýðubanda- lagið væri í upplausn og verið væri að halda þeim flokki á floti með því að halda honum í ríkisstjórn. Alþýðuflokkurinn óttaðist gífurlegt fylgishrun en hefði samt eitthvað á bak við sig. Haraldur sagðist ekki vita af hveiju í ósköpunum Borg- araflokkurinn væri þarna inni. Líklega væru einu mennirnir sem styddu þann flokk ráðherrarnir tveir. Borgaraflokkur Borgaraflokkurinn hefur enn ekki kynnt framboð neins staðar á landinu vegna sveitarstjórnarkosn- inga. í Reykjavík hefur Borgara- flokkurinn boðað til prófkjörs en samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins mun ekki vera einhugur um þá ákvörðun. Er ætlunin að boða til almenns félagsfundar á næstunni þar sem endanleg ákvörð- un verður tekin um framboðsmál flokksins í höfuðborginni. Einn þingmanna Borgaraflokks- ins í Reykjavík, Ásgeir Hannes Eiríksson, hefur lýst því yfir opin- berlega að hann styðji Nýjan vett- vang og gefi kost á sér í prófkjör þeirra samtaka. Óánægja virðist ríkja víðar í Borgaraflokknum en í Reykjavík. Gunnar Sigurðsson, formaður kjör- dæmafélags flokksins á Vestjörð- um, hefur lýst því yfir að kjördæma- félagið hafí sagt skilið við flokkinn. Þrír stjómannenn kjördæmafélags- ins á Reykjanesi hafa sagt af sér trúnaðarstörfum fyrir flokkinn þar sem Óli Þ. Guðbjartsson dómsmála- ráðherra skipaði Hjört Torfason í embætti hæstaréttardómara en ekki Jón Oddsson. Einnig má nefna að á Akranesi hefur stjórnarmaður í borgaraflokksfélaginu ákveðið að ganga til liðs við Alþýðuflokkinn í bæjarstjórnarkosningunum. Loks ber að geta að tveir þingmenn, Ingi Björn Albertsson og Hreggviður Jónsson, sögðu skilið við Borgara- flokkinn þegar á síðasta ári og mynduðu nýjan flokk, flokk Fijáls- lyndra hægri manna. Aðalstjórnarmaður í Borgara- flokknum sagði við Morgunblaðið að lítið fylgi flokksins samkvæmt skoðanakönnunum gerði það að verkum að erfiðlega gengi að fá fólk til að taka þátt í prófkjöri. Samkvæmt skoðanakönnun sem Félagsvísindastofnun vann fyrir Morgunblaðið í febrúar fengi flokk- urinn 0,6% fylgi. í sambærilegri könnun Félagsvísindastofnunar í október á síðasta ári sögðust 0,3% ætla að kjósa flokkinn. Fylgi flokks- ins í síðustu kosningum var 10,9%. Þessi sami aðalstjórnarmaður sagði mikla gagnrýni hafa komið fram á forystu flokksins á fundi aðalstjórnar síðasta laugardag. For- maður flokksins hefði hins vegar túikað fundinn sem svo að einhugur ríkti. „Það er alveg ljóst að það hefur ekki tekist að vinna að neinu uppbyggilegu vegna innanflokks- átaka. Það er erfitt að gera eitt- hvað uppbyggilegt í sókninni ef maður þarf sífellt að vera í vörn. Aðalstjórnin hefur ekki tekið á þessu máli af nægilegri festu og flokkurinn gleymt að skilgreina hlutverk sitt.“ Alþýðuflokkur Alþýðuflokkurinn býður ekki fram eigin lista á fjölmörgum stöð- um á landinu og hefur haft frum- kvæði að því að hér og þar hafa verið mynduð ný samtök um fram- boð, m.a. í Reykjavík. I samtölum við alþýðuflokksmenn kemur oft fram sú skoðun að þetta sé ekki .síst gert vegna ágreiningsins í Al- þýðubandalaginu. Menn vilji ganga á lagið og fá til fylgis við Alþýðu- flokkinn fólk í Alþýðubandalaginu sem telur sig fylgja ,jafnaðar- stefnu“. Ákvörðunina um að bjóða ekki fram í eigin nafni má eflaust líka rekja til hræðslu innan flokks- ins við að gjalda afhroð í sveitar- stjórnarkosningunum vegna óvin- sælda ríkisstjórnar Steingríms Her- mannssonar. Samkvæmt skoðana- könnun Félagsvísindastofnunar í febrúar fengi flokkurinn einungis 8,1%, í október 1989 sögðust 8,3% ætla að kjósa flokkinn og í septem- ber 1989 8,9%. í síðustu alþingis- kosningum var fylgi Alþýðuflokks- ins 15,2%. Farið er að bera á vaxandi óánægju innan Alþýðuflokksins vegna stjómarsamstarfsins og hafa ýmsir forystumenn flokksins verið með þreifingar í átt til Sjálfstæýis- flokksins. Lýsti til dæmis Árni Gunnarsson, alþingismaður, því yfir á fundi á dögunum að hann teldi að mynda bæri ríkisstjórn Alþýðu- flokks og Sjálfstæðisflokks. „Það er skylda stjórnmálahreyf- ingar að skapa valkosti og við vild- um taka þátt í að búa til sem víðtækastan valkost fyrir borgar- ana,“ sagði Birgir Dýrljörð, for- maður Fulltrúaráðs Alþýðuflokks- ins í Reykjavík, þegar hann var spurður hvort það hefði ekki verið ótti við fylgistap sem hefði ráðið þeirri ákvörðun flokksins að bjóða ekki fram undir eigin nafni. „Það sem skiptir máli núna er að Sjálf- stæðisflokkurinn kynni sinn val- kost. Sá valkostur sem fær flest atkvæði er bestur og hann fær umboðið. Ef niðurstaðan verður sú að Sjálfstæðisflokkurinn fær flest atkvæði þá verður bara að una því. Menn skilja ekki almennilega svona pólitík. Þetta er einfaldlega lýðræðið í sinni víðustu og bestu mynd. Alþýðuflokkurinn er bara að sinna skyldum sínum við fólkið og lýðræðið.“ Birgir sagðist telja að ríkisstjórnin myndi ekki hafa nei- kvæð áhrif á þessi framboð. Honum virtist sem ríkisstjórnin væri að vinna sér aukið traust almennings og áhrif hennar yrðu jákvæð ef ein- hver. Alþýðubandalagið Illvígar deilur innan Alþýðu- bandalagsins eru engin nýlunda. Þar hafa löngum tekist á tvær fylk- ingar sem kallaðar hafa verið „flokkseigendafélagið" og „lýðræð- iskynslóðin“. Þrátt fyrir mjög hörð átök á köflum hefur flokkurinn samt komið fram sem ein heild hingað til. Það virðist nú vera liðin tíð og virðist fátt geta stöðvað klofning flokksins. Eftir fall sósíalismans í Austur- Evrópu á síðasta hausti gerðust þær raddir æ háværari innan flokksins sem kröfðust uppgjörs við fortíð flokksins og tengsl hans við komm- únistaflokka austantjalds. Miklar umræður voru um þetta atriði á miðstjórnarfundi flokksins í febr- úar. Urðu þeir aðilar ofan á sem töldu sögu flokksins heijast árið 1968 við stofnun Alþýðubandalags- ins og vildu þar með afneita tengsl- um þess við Sósíalistaflokkinn og Kommúnistaflokkinn. Sömu fylkingar tókust einnig á um framboðsmálin í Reykjavík og vildi sá hópur sem myndaði félagið Birtingu á síðasta ári samstarf við hina vinstri flokkana um framboð gegn Sjálfstæðisflokknum. Var til- laga þess efnis felld á félagsfundi Alþýðubandalagsfélags Reykjavík- ur og ákveðið að bjóða fram G-lista. Æskulýðsfylkingin hefur samt sem áður lýst yfir stuðningi við annað framboð, Nýjan vettvang, og einnig eru félagar í Birtingu, sem er félag innan Alþýðubandalagsins, áberandi í hinum nýju samtökum. Einn borgarfulltrúa Alþýðubanda- lagsins Kristín Á. Ólafsdóttir tekur þátt í prófkjöri Nýs vettvangs sem og aðrir alþýðubandalagsmenn. „Sama og í Austur-Evrópu" „Upplausn vinstri flokkanna sýn- ir og sannar að sósíalisminn á enga framtíð," sagði Kjartan Gunnars- son, framkvæmdastjóri Sjálfstæðis- flokksins, þegar Morgunblaðið spurði hann álits á stöðu mála á vinstri vængnum. Hann sagði sós- íalismann vera andstæðan mann- legu eðli og skynsemi og þeir aðilar sem hingað til hefðu stutt hann væru smám saman að átta sig á þessum staðreyndum. Þá sæju þeir að borgaraleg viðhorf Sjálfstæðis- flokksins sem væru reist á virðingu fyrir manninum, sjálfsákvörðunar- rétti hans og fijálsum vilja væru einu viðhorfin _sem skiptu máli í stjórnmálum. „Ég get því ekki sagt að mér komi upplausn vinstri flokk- anna á óvart,“ sagði Kjartan. „Það sem gerist hér á landi endurspeglar líka það sem hefur gerst undanfar- in misseri í Austur-Evrópu þar sem flokkum er boða samsvarandi stefnu og íslensku vinstri flokkarnir hefur hveijum á fætur öðrum verið hafnað í kosningum og ekki hlotið fylgi annarra en þeirra sem hafa haft beina atvinnu af að vera við völd.“ Spurður um riý framboð vinstri flokkanna á borð við Nýjan vett- vang sagði Kjartan að þetta væri nákvæmlega það sama og menn hefðu gert í Austur-Evrópu. Þar hefðu sósíalistar farið að kalla sig sósíaldemókrata og gamla eða nýja vettvanga. „Breitt er yfir nafn og númer með sama hætti og landhelg- isbijótamir gerðu í þorskastríðinu. íslensku sósíalistaflokkarnir hafa unnið með þessum aðferðum í meira en sextíu ár en þjóðin ávallt séð betur og betur í gegnum sauðar- gæruna og skilið þau óheilindi sem að baki hafa búið,“ sagði Kjartan að lokum. Norræna húsið: Sýning og dagskrá um ævi Alfreds Wegeners UM þessar mundir eru 60 ár síðan þýski heimskautafarinn og jarðeðlisfræðingurinn Dr. Alfred Wegener varð úti á Grænlands- jökli. Wegener var einn helsti höfundur landrekskenningarinn- ar um tilurð meginlanda og út- hafa. A morgun 6. apríl eru 60 ár síðan Grænlandsfarið Diskó undir forystu' Wegeners kom til Islands til að taka 25 hesta og 3 islenska leiðangursmenn. Af þessu tilefiii efiiir sendiráð Sam- bandslýðveldisins Þýskalands, Norræna húsið og þýsk-íslenska félagið Germanía til sýningar og dagskrár er tengjast ævistarfi Wegeners. Borgin Bremerhaven er styrktaraðili sýningarinnar. Alfred Lothar Wegener fæddist í Berlín 1. nóvember 1880. Á árun- um 1899-1904 stundaði hann nám í raunvísindum, einkum stjörnu- fræði, í Berlín, Heidelberg og Inns- bruck. Árið 1906 setti hann ásamt Kurt Wegener heimsmet í loftbelgs- flugi (52 klst). Á árunum 1906- 1911 kom út fjöldi ritgerða eftir Wegener um veðurfræði háloftanna sem flestar byggðust á mælingum með loftbelgjum og flugdrekum, bæði í Þýskalandi og á Grænlandi. Árið 1912 flutti hann fyrsta fyrir- lestur sinn um landrekskenninguna. Veturinn 1912-1913 kom Wegener til Islands á leið til Grænlands til að reyna íslenska hesta. Þá fór hann ásamt J.P. Koch og Vigfúsi Morgunblaðið/Bjarni Giinter Langenberg (t.v.) hefur unnið að undirbúningi Alfred Weg- ener-sýningarinnar fyrir hönd sendiráðs Sambandslýðveldisins Þýskaíands og prófessor Sigurður Steinþórsson mun flytja erindi þriðjudaginn 24. apríl um Wegener. Sigurðssyni ríðandi frá Akureyri suður Vatnajökul til Esjufjalla og til baka. Árið 1915 kom út bók hans Uppruni meginlanda og út- hafa. Wegener gegndi herþjónustu í fyrri heimsstyijöldinni og særðist tvívegis. Eftir stríð setti hann fram tilgátu um að gígarnir a tunglinu væru för eftir loftsteina. Árið 1930 hélt Wegener í mikinn leiðangur til Grænlands. Komið var til Reykjavíkur 6. apríl til að taka 25 M 0 R GUNBLAÐIÐ Uegeners-lelðaneurlm til Græniandsjðkla. i ----- Merkilegar rannsúknír. Uiðtal við prófessor Wegener. Grænlandsfarið „Disko“ kom lingað til Reykjavikur í fyrra-1 icvöld. Með skipinu er hinn hýski frægi vísindamaður We- ■ener, og fjelagar hans 12,.er Vla að hafa vetursetu vestur ] Grænlandsjöklum að vetri. — luk þess eru með skipinu yfir aðrir farþegar á leið til Irænlands. Skipið kom hjer upp að hafn- trbakka um kl. 5 í gær. En hVegener prófessor var kominn kemur strax í Ijós á skjálftl mælinum, sem þar er rjett hjj] En titringsins gætir gegn u jökulbreiðuna, og alla leið nið f i jarðlögin. Titringuriim end varpast frá jarðlögunum uj] eftir jöklinum aftur, og hefj þetta endurvarp áhrif á skjálf J mæli þann sem í fjarlægð Eftir því hve langur tími liil milli þess, að skjálftin ko| fram á mæli þeim, sem er hjá1 sprengingunni, og mælhj Úrklippa úr Morgunblaðinu þriðjudaginn 8. apríl 1930 þar sem er viðtal við Wegener við komuna til Islands á leið til Grænlands. Alfred Wegener. hesta og 3 íslenska leiðangurs- menn. Bækistöðvar og veðurathug- unarstöðvar voru reistar á Græn- landsjökli. 1. nóvember á fimmtugs- afmæli sínu lagði Wegener af stað frá Miðjökli í grimmdarfrosti í átt til vesturstrandarinnar ásamt eski- móanum Rasmus Willumsen og urðu báðir úti. Á sýningunni í Norræna húsinu verða 30 töflur með myndum og texta sem varða ævi og störf Weg- eners. Það er Heimskauta- og haf- rannsóknadeild Alfred Wegener- stofnunarinnar í Bremerhaven sem hefur látið þessi gögn í té. Sýning- in verður opnuð annað kvöld klukk- an 18.00 og stendur hún til 3. maí. Sunnudaginn 8. apríl kl. 16.00 verða haldnir tveir fyrirlestrar í Norræna húsinu í tengslum við sýn- inguna. Fyrirlesarar eru Mathias Peters og Niels Reeh sem báðir starfa við Alfred Wegener-stofnun- ina. Þriðjudaginn 24. apríl kl. 20.30 flytur prófessor Sigurður Steinþórs- son erindi sem nefnist „Wegener, ísland og landrekskenningin". Laxveiðibáturinn Onkel Sam: Um 5% aflans merktur lax Geysihátt hlutfall, segir Orri Vigfússon í LJÓS hefiir komið að um 5% afla laxveiðibátsins Onkel Sam er merktur lax. Onkel Sam var kyrrsettur í Hirtshals í Dan- mörku í byrjun marsmánaðar vegna gruns um ólöglegar lax- veiðar á alþjóðlegu hafsvæði. Danski ríkissaksóknarinn hef- ur lagt fram kæru á hendur útgerðinni og er búist við að dómur falli í dag, að sögn Orra Vigfússonar, forsvarsmanns níu landa hóps um bann við laxveiðum í úthafínu. Orri segir þetta hlutfall vera geysihátt og það gefi tilefni til að allur aflinn verði rannsakaður, en ekki hefur enn verið athugað meira en eitt tonn af aflanum, sem er alls um 23 tonn. Orri segist hafa snúið sér til Veiðimálastofnunar með ósk um að afli bátsins verði rannsakaður með tilliti til merkja. Veiðimála- stofnun hafi snúið sér til Dana og þarjend stofnun kannað aflann. Ákveðið var fyrir nokkrum dög- um að selja afla bátsins þótt dóm- ur væri ekki fallinn í málinu og við það tækifæri fór rannsóknin fram. Laxinn reyndist vera veið- iuggaklipptur og því þarf að sögn Orra að leita að örmerkjum í hon- um. Örmerkjunum er komið fyrii í trjónu laxins og er hægt að lesa úr þeim hvar og hvenær hann vai merktur og rekja þannig uppruna hans. Til þess að finna örmerkin þarf að kaupa allan veiðiugga'- klippta laxinn og verður það gert í samráði við kaupanda aflans. Orri segir að mál þetta veki allmikla athygli ytra, enda sé um eins konar prófmál að ræða, sem skeri úr um rétt manna til fiskjai í úthafinu og hvort það dugi mönn- um að sigla undir skjólfána til ac geta stundað veiðarnar óáreittir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.