Morgunblaðið - 05.04.1990, Síða 40
40
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. APRÍL 1990
Bíóborgin:
„I blíðu og
stríðu“
BÍÓBORGIN hefur hafið sýning-
ar á kvikmyndinni „I blíðu og
stríðu“. í aðalhlutverkum eru
Michael Douglas, Kathleen Turn-
er og Danny DeVito. Leikstjóri
er Danny DeVito.
Gavin D’Amato er lögfræðingur
að mennt og hefur gert skilnaðar-
mál að sérgrein sinni. Þar af leið-
andi hefur hann séð um að ganga
frá mörgum skilnaðarmálum á
starfsferli sínum. í þessari mynd
er rakin saga hjónanna Olivers og
Barböru, hvernig fundum þeirra ber
fyrst saman, svo og hjónabandið
Kathleen Turner, Danny DeVito
og Michael Douglas í hlutverkum
sinum í mynd Bíóborgarinnar,
„í blíðu og stríðu“.
allt þar til fjandskapur kviknar
milli þeirra og skilnaðarstríðið hefst
fyrir alvöru.
H^AINl/ðURENT
snyrtivörukynningar
★ Sandra, Reykjavíkurvegi 50, Hafnarfirði,
fimmtudaginn 5. apríl kl. 13.30-18.00.
★ Bylgjan, Hamraborg 16, Kópavogi,
föstudaginn 6. apríl kl. 13.30-18.00.
•k Clara, Kringlunni,
laugardaginn 7. apríl kl. 11.00-16.00.
Láttu ekki rafmagnið
fara með þig-þegar það fer!
Varaaflgjafinn er trygging þín fyrir því
aö þú missir ekki út upplýsingar viö
spennufall eöa rafmagnsleysi. Hann er
ætlaöur tölvum, allt frá elnkatölvum til
stórra tölvukerfa.
Við rafmagnstruflun ver varaaflgjafinn
tölvur og gefur þór ófram fulla rafmagns-
þörf. Vio algjört rafmagnsleysl veitir var-
aaflgjafinn svigrúm til aö gera viöeigandi
ráðstafanlr.
Láttu ekki næstu rafmagnstruflun eöa
rafmagnsleysi valda þér skaöa, hafðu
strax samband við sölumenn okkar I
slma 68 1 6 65.
£
TÆKNIVAL
SKEIFUNNI 17, SlMI 68 16 65
Spennufall í síðustu um-
ferð Búnaðarbankamótsins
__________Skák______________
Bragi Kristjánsson
Búnaðarbankaskákmótinu lauk á
fimmtudagskvöld. Fyrir síðustu
umferð voru níu skákmeistarar
jafnir í efsta sæti og skákáhuga-
menn bjuggust við harðri baráttu í
lokin. Annað kom á daginn. „Sátta-
semjari" hafði fyrir umferðina náð
samkomulagi um „félagsmála-
pakka“ og aðeins þeir áhorfendur,
sem mættir voru fyrir kl. 17.30
náðu að sjá meistarana á fjórum
efstu borðunum sitja við skákborð
þetta kvöld. Skákirnar Helgi Ólafs-
son — Jón L. Árnason, Vaganjan —
Dolmatov, Ernst — Pólúgajevskíj
og Seirawan — Razúvajev urðu 11
upp í 18 leiki, áður en samningar
voru undirritaðir. Síðar um kvöldið
sátu sumir þessara meistara á barn-
um og tefldu hraðskák sér og áhorf-
endum til skemmtunar. Allra augu
beindust að skák deFirimians og
Sókólovs, en Bandaríkjamaðurinn
gat náð óskiptu fyrsta sætinu, ef
hann vann. Vonsviknir áhorfendur,
sem komnir voru til að sjá spenn-
andi skákir á toppnum, vonuðu
margir, að deFirmian tækist að
vinna og „stela“ óskiptum fyrstu
verðlaunum frá samningamönnum.
Sókólov var þó ekki á því að gefa
eftir. Hann hafði örlítið hagstæðara
tafl lengst af, en jafntefli var sa-
mið eftir nokkrar sviptingar í tíma-
hraki. Danski alþjóðameistarinn,
Erling Mortensen, náði hlutdeild í
samningsfjárhæðinni fneð því að
leggja Finegold að velli. Halldór
Grétar Einarsson, Bolvíkingurinn
vaski, hélt upp á fyrsta áfanga að
alþjóðlegum meistaratitli með
kröftugri _ taflmennsku við Walter
Browne. Ótrúlegar flækjur og tíma-
hrak var uppi á teningnum í skák-
inni, sem að lokum endaði með jafn-
tefli. Tómasi Björnssyni tókst ekki
að fylgja eftir góðum spretti í 8.-10.
umferð og tapaði illa fyrir Túkm-
akov. Hannes Hlífar Istefánsson
vann góðan sigur á Wedberg frá
Svíþjóð og Snorri Bergsson gerði
jafntefli við Carsten Höi. Margeir
Pétursson lauk daufu móti með
jafntefli við Efim gamla Geller.
Efstu menn mótsins voru flestir
nokkuð friðsamir. Pólúgajevskíj,
t.d., tefldi enga skák eftir fjórðu
umferð, heidur samdi 15 leikja jafn-
tefli í 7 síðustu umferðunum!! Vag-
anjan, Razúvajev og Seirawan hófu
sama jafnteflissönginn, um leið og
þeir komust í efsta sætið. Dolmatov
og deFirmian reyndu að tefla til
vinnings, en tókst ekki, þótt þeir
væru stundum nálægt því. Ernst
og Mortensen komust ekki í efstu
sætin fyrr en í mótslok. Þeir eru
báðir baráttumerin, og var sérstak-
lega ánægjulegt fyrir íslenska
skákáhugamenn að sjá, hve Mort-
ensen er sterkur skákmaður, því
hann var lítið þekktur á íslandi
fyrir Stórveldaslaginn.
Helgi Ólafsson tefldi geysilega
vel á þessu móti, svo vel, að hann
vann báðar þær skákir, sem líkleg-
astar eru til að hljóta fegurðarverð-
laun mótsins. Sum jafnteflin voru
að vísu nokkuð stutt, en ekki verð-
ur hann sakaður um jafnteflið í
síðustu umferð, því hann hafði sól-
arhringinn á undan orðið að veija
mjög erfiða stöðu í 9 klukkustundir
gegn Dolmatov.
Jón L. Árnason tefldi mjög vel á
köflum, vann m.a. þijá sovéska
ofurstórmeistara, þá Vaganjan,
Azmajparasvílí og Dreev. Margeir
Pétursson virkaði þreyttur og óör-
uggur, aldrei þessu vant, og komst
ekki í takt við mótið. Alþjóðameist-
ararnir okkar stóðu sig ekki eins
vel og vonast hafði verið eftir.
Hannes Hlífar komst þó í gott sæti
í síðustu umferð, en Þröstur Þór-
hallsson náði aldrei að fóta sig á
efri borðum mótsins. Mest voru þó
vonbrigðin með frammistöðu Karls
Þorsteins. Hann vann þijár fyrstu
skákirnar, en fékk svo aðeins 2
vinninga úr 8 síðustu skákunum.
Halldór Grétar Einarsson, Tómas
Björnsson, Héðinn Steingrímsson
og Snorri Bergsson komu skemmti-
lega á óvart. Halldór Grétar er
geysilega harður baráttumaður,
sem hættir til að bera of litla virð-
ingu fyrir andstæðingnum, jafnvel
þótt hann sé þekktur stórmeistari!
Hann vann m.a. sovéska stórmeist-
arann Razúvajev glæsilega í fyrstu
umferð, og náði fyrsta áfanga að
alþjóðlegum meistaratitli. Tómas
fékk sama vinningafjölda og Hall-
dór, en náði ekki áfanga, því and-
stæðingarnir voru ekki eins sterkir.
Árangur Héðins Steingrímssonar,
sem aðeins er 15 ára, er einnig
mjög glæsilegur. Þar fer mikið
skákmannsefni. Áfangi að alþjóð-
legum titli verður þó að bíða betri
tíma, því í þetta sinn voru andstæð-
ingarnir ekki nógu stigaháir. Snorri
Bergsson hélt sínu á þessu móti
LAUSBLAÐA-
MÖPPUR
. þær duga sem besta bók.
frá Múlalundi... |
5
2
Múlalundur §
SlMl: 62 84 50 £
tineke C 11
rolKene ut#á
Stórar stærðir M m !fí; V '■ fi vH
Ný sending
Blæsilegur, tiiillirerttiir tatmúer
Hár:A. Ðpryði V y/ Sérverslun
Háaleitisbraut 58-60 Sími 32347
Ferming í
Heydala-
kirkju
Ferming í Heydalakirkju,
Breiðdal, pálmasunnudag, 8.
apríl kl. 13.30. Prestur sr. Gunn-
laugur Stefánsson. Fermd verða:
Birna Kristín Ómarsdóttir,
Selnesi 34, Breiðdalsvík.
Hilda Karen Garðarsdóttir,
Selnesi 32, Breiðdalsvík.
Rósa Elísabet Erlendsdóttir,
Fellsási, Breiðdalsvík.
Þóra Margrét Aradóttir,
Sólbakka 1, Breiðdalsvík.
I SAMKOMA verður á Hvann-
eyri fimmtudaginn 5. apríl í tilefni
þess að Hagþjónusta landbúnað-
arins hefur tekið til starfa. Á sam-
komunni mun landbúnaðarráðherra
Steingrímur J. Sigfússon flytja
ávarp og flutt verða 4 stutt erindi
um verkefni Hagþjónustunnar og
þau viðfangsefni sem tengjast
starfsemi hennar.
H SKÓLAJÓGÚRT er ný afurð
sem Mjólkurbú Flóamanna fram-
leiðir og er ætluð yngstu kynslóð-
inni. Skólajógúrt er framleidd úr
nýmjólk með 2% undanrennudufti
og fæst í tveimur bragðtegundum,
með ferskjum og með súkkulaði og
jarðarbetjum. Við þróun jógúrtsins
var miðað við óskir og smekk
yngstu neytendanna.
■ STOFNFUNDUR nýrrar ITC-
deildar verður haldinn. í kvöld,
fimmtudagskvöld, kl. 20.30 í vest-
urbæ Seltjarnarness í framhaldi
af kynningarfundi III. ráðs ITC á
íslandi sem haldinn var fimmtu-
daginn 15. mars sl. á Seltjarnar-
nesi í húsi SPRON við Áustur-
strönd 3. Stofnfundurinn verður
haldinn á sama stað og síðast.
Markmið ITC er m.a. að efla hæfi-
leika til samskipta og forystu, auka
starfsafköst og styrkja sjálfstraust
félagsmanna sinna.