Morgunblaðið - 05.04.1990, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. APRIL 1990
áfram: „Eins og þér vitið hef ég
búið tvö ár í Svíþjóð, önnur tvö ár
í Rússlandi, samanlegt hef ég dval-
ið hálft annað ár í Þýskalandi auk
fjölmargra annarra landa austan
hafs og vestan sem ég hef gist á
skákferðalögum mínum. Ég hef
lagt mig fram um að læra tungu-
mál viðkomandi landa til að geta
kynnt mér þjóðfélagsgerð þeirra og
stjórnmálaástand sem best. Lesið
blöð og tímarit á þeirra eigin máli
og rætt við þegnana. Ég tel mig
því nokkuð dómbæran á stöðu Is-
lendinga gagnvart öðrum þjóðum.
Á íslandi býr harðduglegt og vel
gefið fólk, fólk sem vílar ekki fyrir
sér að vinna myrkranna á milli til
að bjarga verðmætum. í okkar litla
landi eru allir sem komnir eru til
vits og ára læsir og skrifandi og
margir tala eitt eða tvö tungumál
auk íslenskunnar. Það er meira en
hægt er að segja um margar þær
þjóðir sem ég hef gist á ferðalögum
mínum.“
Freysteini er orðið heitt í hamsi
9g heldur langa ræðu um dugnað
íslendinga, náttúrufegurð landsins
sem hafi upp á margt að bjóða er-
lendum ferðamönnum. Hann gjör-
samlega gleymir sér. Af og til skýt-
ur dr. Euwe inn spurningum sem
Freysteinn svarar greiðlega. Allt í
einu tekur Freysteinn eftir því að
dr. Euwe er farinn að líta á klukk-
una aftur og aftur. Hún er að verða
tólf á miðnætti. Hann stendur upp
og þakkar fyrir sig og biður dr.
Euwe afsökunar á hve langorður
hann hafi orðið.
Dr. Euwe fylgir honum til dyra.
Um leið og hann kveður, klappar
hann á öxl Freysteins og segir: „Ég
mun ekki leggjast gegn íslandi sem
einvígisstað."
Hjarta Freysteins tók kipp. Þetta
var meiri árangur en hann hafði
vænst.
Kannski var það þetta kvöld öðru
fremur sem varð til þess að dr.
Euwe stakk sjálfur upp á Freysteini
í þriggja manna opnunarnefnd ein-
vígisins, þótt ísland ætti ekki fasta-
fulltrúa á þingi FIDE og hafði aldr-
ei átt og þótt Freysteinn væri ekki
meðlimur í stjórn Skáksambands
íslands.
Gífurlega hörð andstaða reyndist
vera á þinginu gegn Islandi sem
einvígisstað. Fannst sumum fulltrú-
anna sem væri verið að reyna að
fela einvígið með því að senda það
út í hafsauga. Freysteinn sá að
vonlaust yrði að tala alla þá þing-
fulltrúa til. Bar hann þá upp þá
tillögu að þær þjóðir sem boðist
hefðu til að halda einvígið á fyrsta
þingi FIDE, yrðu látnar gera tilboð
í einvígið og tilboðsupphæð látin
ráða staðarvali. Var sú tillaga sam-
þykkt.
Höfundur er aðalgjnldkeri
Rafveitu Hafnarfjaröar.
Matvörukaup-
menn vilja
selja bjór
AÐALFUNDUR Félags matvöru-
kaupmanna, sem var haldinn fyrir
skömmu beindi þeirri áskorun til
fjármálaráðlierra, að hann beiti
sér fyrir því að bjór verði seldur
í matvöruverslunum eins og aðrar
neysluvörur heimilanna.
Jafnframt var því eindregið mót-
mælt, að vínverslunum hefur að
undanförnum verið valinn staður í
nánd við verslanir tveggja aðila í
smásöluverslun, þannig að nánast
er um helmingaskiptareglu að ræða.
Vitni vantar
Slysarannsóknadeild lögregl-
unnar í Reykjavík lýsir eftir vint-
um að árekstri tveggja bíla sem
varð við umferðarljós á mótum
Breiðholtsbrautar og Reykjanes-
hrautar laust etir miðnætti að-
faranótt miðvikudagsins 21. mars.
Þar rákust saman Mazda og BMW
fólksbílar. Vitni eru beðin að hafa
samband við Slysarannsóknadeild
lögreglunnar í Reykjavík.
43 '
■ FORSTJÓRI Grundar, Gísli
Sigurbjörnsson, hefur fært Guð-
fræðistofiiun Háskóla íslands að
gjöf eitt hundrað þúsund krónur frá
Stofnendasjóði Grundar. Gjöfin
er til minningar um hjónin séra
Lárus Halldórsson, f. 10. janúar
1851, d. 24. júní 1908,_stofnandi
Fríkirkjusafnaðarins á Islandi og
frú Kirstínu Pétursdóttur Guð-
jónsen, f. 6. maí 1850 d. 28. sept.
1940. I gjafabréfi sem fylgir þess-
ari gjöf, segir; „Starf þeirra fyrir
kirkju og kristni á íslandi er minnst
með þakklæti og virðingu. Guðs
blessun fylgi virðingu þeirra" .
(Frétt frá Guðfræðistofiiun Háskóla ís-
lands)
Ritvinnsla -Töflureiknir
60 stundir, frábært verð
Tölvuskóli íslands
. JÚ Íli
HEILDARVERÐMÆTI VINNINGA KR. 18.000.000.
DREGIÐ VERÐÍJR FÖSTUDAGINN 6. APRÍL 1990.
HAPP
DRÆTTI
SLYSAVARNAFÉLAGS
ÍSLANDS