Morgunblaðið - 05.04.1990, Side 58

Morgunblaðið - 05.04.1990, Side 58
58 MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 5. APRÍL 1990 ÚRSLIT Körfuknattleikur NBA-DEILDIN Leikir aðfararnótt miðvikudags: Detroit Pistons - Boston Celtics...93:82 New York Knicks - Cleveland.......106:97 Golden State - Orlando Magic.....127:126 Philadelphia 76ers - Houston.....133:112 Chicago Bulls - Indiana Pacers...109:102 Minnesota - Sam Antonio Spurs......92:90 Utah Jazz - Charlotte Hornets....127:104 LA Clippers - Sacramento Kings...114:105 Seattle Supersonics - Portland...136:134 (eftir framlengingu) Phoenix Suns - Dallas Mavericks.117:111 Knattspyrna HOLLAND Úrvalsdeildin í fyrrakvöld: NEC Nijmegen - FC Groningen...1:1 Ajax - Haarlem................5:0 Staða efstu liða: PSV Eindhoven.28 17 6 5 85:31 40 Ajax..........28 16 8 4 55:19 40 RodaJC........28 13 10 5 46:30 36 Vitesse.......28 13 8 7 44:27 34 Handknattleikur ÁLFUKEPPNIN Norðmenn unnu V-Þjóðveija í gær í álfu- keppninni (C-keppninni) í handknattleik, sem fram fer i Finnlandi. Síðustu úrslit: A-riðill V-Þýskaland-Grikkland.............23:14 Belgía-Tyrkland...................26:19 Noregur-ísrael....................27:19 Noregur-V Þýskaland...............20:18 Staðan: Noregur...............4 4 0 0 103:70 8 V-Þýskaland............3 3 0 1 80:60 6 ísrael.................3 2 0 1 69:68 4 Belgía.................3 1 0 2 60:59 2 Grikkland..............3 0 0 3 51:73 0 Tyrkland................3 0 0 3 48:81 0 IÞROTTAHREYFINGIN / STYRKVEITINGAR Frumvarp á Alþingi um afreksmannasjóð íslenskra íþróttamanna: „Mikilvægt að fá svona sjóðM - segir Ingi Bjöm Albertsson, annarflutningsmanna frumvarpsins stjórnarfrumvarps um launasjóð stórmeistara í skák er brautin rudd og ber að fagna því. Frum- varp þetta er af sömu rótum run- nið, en sniðið að þörfum íþrótta- hreyfingarinnar." f Ingi Björn sagði að viðbrögð á Alþingi væru ekki merkjanleg enda væri frumvarpið hvorki kom- ið í umræðu eða á dagskrá. „Ég hef hins vegar fengið góð við- brögð utan Alþingis og mjög margir hafa sýnt þessu máli áhuga.“ Hreggviður og Ingi Björn hafa báðir starfað mikið innan íþrótta- hreyfingarinnar. Hreggviður sem formaður Skíðasambands íslands og Ingi Björn sem landsliðsmaður í knattspyrnu og knattspyrnu- þjálfari. INGI Björn Albertsson og Hreggviður Jónsson hafa dreiftá Alþingi frumvarpi til laga um stofnun afreksmannasjóðs fslenskra íþróttamanna. Samkvæmt frumvarpinu á sjóðurinn að fá árlega ríkisframlag sem samsvarar launum fjörutíu há- skólakennara. „Ég geri mér grein fyrir að tíminn til vors er naumur og því hætta á að ekki vinnist tími til að afgreiða málið, en fari svo þá endurf lytjum við það í haust. Aðalatrið- ið er að það er mikilvægt að fá svona sjóð,“ sagði Ingi Björn við Morgunblaðið. Frumvarpinu var dreift á Al- þingi á þriðjudag og sagðist Ingi Björn vona að það yrði tekið á dagskrá á morgun. í frum- varpinu segir að tilgangur afreks- mannásjóðs íslenskra íþrótta- manna sé að skapa efnilegum íþróttamönnum fjárhagslegan grundvöll til að helga sig íþrótt sinni. Rétt til greiðslu úr sjóðnum hafa þeir íþróttamenn sem sýnt hafa ótvíræða hæfileika í íþrótta- grein sinni og eru líklegir til af- reka á því sviði. í greinargerð flutningsmanna segir: „Aflvakinn í þessu öllu eru keppnisíþróttirnar þar sem dug- miklir og fórnfúsir einstaklingar leggja á sig ómælt erfíði og taka oft og tíðum á sig mikil fjár- hagsleg útgjöld. Það má raunar fullyrða að án keppnisíþrótta ætti almenningur þess ekki kost að iðka ýmsar íþróttagreinar í hinum fjölmörgu íþróttamannvirkjum sem reist hafa verið fyrir for- göngu forustumanna íþrótta- hreyfingarinnar. Jafnfram hefur geta íslenskra keppnismanna aukist ár frá ári og árangur þeirra vakið atygli víða um heim. Það hefur þó háð markvissri uppbyggingu og langtímaþjálfun afreksmanna okkar að þeir hafa ekki getað gefið sig óskipta að æfingum, t.d. fyrir ólympíuleika og heimsmeist- arakeppni, vegna baráttu fyrir daglegu brauði.“ Enn fremur seg- ir í niðurlagi greinargerðarinnar: „Nú er og komið fordæmi fyrir því að afreksmenn njóti náðar Alþingis, en með framlagningu KNATTSPYRNA / LANDSLEIKUR „Góður leikur“ - sagði BoJohansson, landsliðs- þjálfari, eftir 4:0 sigurgegn Bermuda B-riðilI Finnland-Búlgaría................21:18 Lúxemborg-Portúgal...............21:17 Holland-Ítalía...................24:18 Staðan: Finnland..............3 3 0 0 73:59 6 Búlgaría..............3 2 0 1 72:62 4 Holland...............3 2 0 1 70:64 4 Italía................3 1 0 2 58:59 2 Lúxemborg.............3 1 0 2 55:68 2 Portúgal..............3 0 0 3 53:69 0 HSex efstu liðin úr keppninni komast í B-keppnina i Austurríki 1992, þrjú úr hvor- um riðli. Keiia LAUGARDAGSMÓT KFR Haldið í Keilusalnum Öskjuhlíð 31. mars A-flokkur: Esko Saami..'........................615 Bogi Guðbrandsson...................546 Tómas Tómasson.......................545 B-flokkur: Stefán Sigurbjörnsson................529 Gunnar Kjartansson...................515 Siguijón Harðarson..................497 C-flokkur: Óskar Óskarsson.....................445 Hjördís Alfreðsdóttir................440 Theódóra Ólafsdóttir.................434 D-flokkur: Daníel Guðlaugsson...................472 Einar Kristinsson....................439 Unnar Gils Guðmundsson..............436 Skotíþróttir VORMÓT SÍH Skotíþróttafélag Hafnarfjarðar, leirdúfu- skotfimi, 75 dúfur: Einar Páll Garðarsson, Skotf. Kefl.69 HjálmarÆvarsson, Skotf. Suðuri.65 Óskar Páll Sveinsson, SlH.....62 Gunnar Þór Þórarinsson, Skotf. Kefl. .56/20 Þorbjörn Vignisson, Skotf. A-Skaftaf. 56/20 Islenska landsliðið í knattspyrnu átti ekki í erfiðleikum með lands-. lið Bermuda í fyrrinótt og vann 4:0. „Þetta var góður leikur, allir stóðu sig með sóma og leikaðferðin gekk vel,“ sagði Bo Johansson, landsliðsþjálfari,“ við Morgunblaðið eftir leikinn. Liðið lék 4-4-2 með Alexander Högnason sem aftasta mann, en Sævar Jónsson, fyrirliði, var fyrir framan hann. íslenska iiðið fékk óskabyijun á góðum velli í Hamilton — Pétur Pétursson gerði glæsilegt mark á fjórðu mínútu og Pétur Ormslev bætti öðru marki við 10 mínútum síðar. „Það var aldrei spuming eft- ir það,“ sagði Hörður Magnússon, sem fiskaði vítaspyrnu á síðustu mínútu í sínum fyrsta landsleik og Pétur Pétursson skoraði örugglega. Kjartan Einarsson gerði hins vegar gott mark í sínum fyrsta landsleik — á 43. mínútu. ísland lék undan vindi í fyrri hálfleik. „Við hefðum getað bætt þremur eða fjórum mörkum við,“ sagði Bo um hálfleikinn. Eftir hlé fengu heimamenn fleiri tækifæri, einkum eftir hornspyrnur, en Birkir Kristinsson var öryggið uppmálað í markinu og varði m.a. í tvígang uppi í vinklinum. Heimamenn léku skipulagslaust og voru harðir, en íslendingar gáfu ekkert eftir, tóku vel á móti og réðu gangi leiksins lengst af. í bytj- un var reynt að beita rangstöðu- gildru, en því var snögglega hætt eftir að Birkir hafði varið glæsilega með úthlaupi frá mótheija, sem var um fimm metra fyrir innan vörn íslands, þegar hann fékk boltann, en ekkert dæmt. Bo sagðist ekki geta dæmt liðið eftir þennan leik. „Ég veit í raun ekki við hveiju á að búast, en strák- arnir léku allir vel. Mestu skiptir hvernig þeir taka breyttu skipulagi og byijunin lofar góðu, leikmenn- irnir voru ánægðir." Hann vildi ekki hæla einstökum mönnum, en var sérstaklega ánægður með Pétur Pétursson og Birki Kristinsson. Pétur Pétursson, miðheiji KR, hefur heldur betur sannað til- verurétt sinn í íslenska landsliðinu, síðan hann kom inn úr kuldanum s.l. haust. Hann byijaði á því að gera bæði mörk íslands í 2:1 sigri gegn Tyrklandi, gerði annað mark Islands í 2:1 sigri gegn Lúxemborg á dögunum og bætti tveimur lands- liðsmörkum í safnið í fyrrinótt. Áður lék hann síðast haustið 1987 og gerði þá annað markið í 2:1 sigri gegn Norðmönnum eða sex mörk í síðustu fjórum leikjum. „Kannski maður fari bara að Pétur Pétursson fagnar öðru marka sinna gegn Tyrkjum sl. haust. snúa sér alfarið að landsliðinu! Ann- ars var þetta frekar auðvelt — það var engin skynsemi í leik Bermuda, en liðið er örugglega betra í sól- inni. Rigningin átti greinilega ekki við heimamenn," sagði Pétur. Hann var mjög ánægður með allar aðstæður og dásamaði veðrið. „Það er engu líkt að spila á grænu grasi í góðu veðri,“ sagði miðheij- inn, sem hefur alls gert 10 mörk fyrir Island. Aðeins Ríkharður Jóns- son (17 mörk) og Matthías Hallgr- ímsson (11) hafa gert fleiri mörk í landsleikjum. ■ SEX nýliðar tóku þátt í leikn- um gegn Bermuda. Alexander Högnason lék allan leikinn, Bjarni Jónsson byrjaði, en meiddist líti- lega og fór af velli, Kjartan Einars- son var einnig í byijunarliðinu, en skipti við Hörð Magnússon, og Þormóður Egilsson og Ólafúr Kristjánsson, sem komu inná und- ir lokin. Auk þeirra léku Birkir Kristinsson, Ingvar Guðmunds- son (Ólafur Kristjánsson), Sævar Jónsson, Viðar Þorkel'sson, Pétur Ormslev, Pétur Arnþórsson, Rúnar Kristinsson (Þormóður Egilsson) og Pétur Pétursson. Þá kom Kristinn R. Jónsson inná fyr- ir Bjarna. H BO Johansson, landsliðsþjálf- ari reyndi menn í nýjum stöðum í landsleiknum og gafst það vel. Ing- var Guðmundsson var hægri bak- vörður, Bjarni Jónsson var á hægri vængnum og Rúnar Kristinsson vinstra megin. ■ ÞJÓÐARLEIK VANG URINN í Bermuda er nýr og er fram- kvæmdum ekki að fullu lokið. Bún- ingsklefar eru ekki tilbúnir, en leik- menn fengu tjald, þar sem þeir gátu rætt málin. H HEIMAMENN vildu fresta leiknum vegna mikillar rigningar, en ekkert hafði rignt síðan í fyrra. Meðan menn voru að þrátta um þetta stytti upp og var þá ákveðið að leika, en um leið og viðureignin byijaði, 15 mínútum of seint, hófst úrhellið á ný. Ekki var þurr spjör á áhorfendum í leikslok, en þeir voru um 200. Fararstjórar íslenska liðsins voru í frökkum, en þeir komu að engu gagni að þessu sinni. H VEL fer um landsliðshópinn á Bermuda. Leikmennirnir höfðu á orði að þeir hefðu aldrei kynnst öðru eins glæsihóteli, en eins manns herbergi með morgunmat kostar um 15 þúsund krónur og tveggja manna herbergi um 17 þúsund. KSÍ þarf ekki að greiða fyrir gistingu og fæði — um boðsferð er að ræða. H 25 ár eru síðan Bermuda lék fyrst knattspyrnulandsleik. Hann var einmitt gegn Islandi á Laugar- dalsvelli 10. ágúst 1964 að við- stöddum 9.716 áhorfendum og þá unnu okkar menn 4:3. Ellert B. Schram og Þórólfur Beck skiptu þá mörkunum bróðurlega á milli sín. Þjóðirnar léku síðan tvo leiki 1969. ísland vann 2:1 í Reykjavík með mörkum frá Ellert og Matt- híasi Hallgrímssyni, en tapaði 3:2 í Hamilton. Matthías og Björn Lárusson skoruðu þa'fyrir Island. H JÓN Gunnlaugsson, varafor- maður landsliðsnefndar, var fyrir leikinn eini maðurinn í hópnum, sem hafði leikið í Hamilton. Það gerði hann fyrir 20 árum, er Skagamað- urinn var lánsmaður hjá Keflvík- inguin í æfingaferð til Bermuda. Firmakeppni ' meistaraflokks Vals í knattspyrnu í nýja íþróttahúsinu dagana 28. og 29. apríl. Leikið eftir nýju reglunum: 5 í liði með markmanni. Dómarar með réttindi sjá um dómgæslu. Upplýsingar og skráning í símum: 11051 - Steinar 685057 - Þorgrfmur 11134 - íþróttahús Vals Knattspyrnu- og frjálsiþróttaþjálfarar Ungmennafélagið Fram á Skagaströnd óskar eftir knattspyrnuþjálfara til að sjá um þjálfun á 4. deildar liði sínu á komandi sumri. Æskilegt væri ef viðkomandi gæti einnig séð um þjálfun í frjálsum íþróttum. Nánari upplýsingar veita Halldór í sima 95-22701 og 95-22702, Páll Leó í síma 95-22800 og Krist- inn í síma 95-22837 eða 95-22747. Ungmennafélagið Fram, Skagaströnd. KORFUBOLTI / URSLITAKEPPNIN Leikið í Keflavík í kvöld Slagurinn um íslandsmeistaratitilinn í körfuknattleik heldur áfram í kvöld, er meistarar ÍBK fá KR-inga í heimsókn. Leikur liðanna hefst kl. 20.30. KR vann fyrstu viðureign liðanna, á Seltjarnarnesi á mánu- dagskvöld, 81:72. Þriðji leikurinn verður á Seltjarnarnesi á laugardag- inn og hefst kl. 15.00. Sá fjórði, ef þarf, verður svo í Keflavík á sunnu- daginn kl. 20.30. Það lið verður íslandsmeistari sem fyrr vinnur þijá leiki þannig að fimmta leikinn gæti þurft til — ef svo fer verður hann á Seltjarnarnesi miðvikudagskvöldið 11. apríl kl. 20.30. Sex mörk hjá Pétri í fjórum leikjum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.