Morgunblaðið - 12.04.1990, Síða 6

Morgunblaðið - 12.04.1990, Síða 6
6 1 C ________________MO’Mnl’lé'LlMri, friktáfcflÁáúR i»: 'Apnlí. í9<jo'_ Nýir áfengar í viðskipta- samstarfi þióða á milli eftir Kjartan Jóhannsson Evrópubandalagið (EB) ætlar að koma á óskiptum heimamarkaði. EFTA-löndin leggja áherslu á að Vestur-Evrópa öll fylgist að, eins og frekast er kostur. í því skyni hafa staðið yfír könnunarviðræður um það sem nefnt er Evrópska efnahags- svæðið (EES), og á að ná til bæði EB- og EFTA-landanna. Samvinna EFTA og EB er ekki ný af náiinni, enda hafa samskiptin við EB verið eitt aðalviðfangsefni EFTA frá upphafi. Merkasti áfang- inn í starfí EFTA fram undir þetta er fríverslunarsamningar EFTA- landanna við Evrópubandalagið, sem tóku gildi 1973. Með þeim var kom- ið á sameiginlegu fríverslunarsvæði yfír öll aðildariönd EB og EFTA. Afnám verndartolla var að mestu lokið 1977, en að fullu 1984. Strax að því loknu var lagður grunnur að frekara samstarfi með svonefndri Lúxemborgaryfírlýsingu 1984, sem sameiginlegur ráðherra- fundur EB og EFTA stóð að. Þar var ákveðið að stefna að því að EB og EFTA mynduðu í sameiningu evrópskt efnahagssvæði. í ræðu í Strassborg 17. janúar 1989 tók Deiors, aðalframkvæmda- stjóri EB, samskipti EB og EFTA til umfjöllunar. Þar gerði hann m.a. tiliögu um að komið yrði á skipulegu samstarfí milli EB og EFTA með sameiginlegum stjórnarstofnunum. Leiðtogafundur EFTA-landanna í Ósló í mars sama ár lýsti áhuga á hugmyndinni og markaði stefnu EFTA gagnvart henni. Þar með var teningunum kastað og hófst nú nýtt samningaferli sem gjaman er kennt við Ósló og Bruss- el. Ákveðið var að nálgast samskipt- in á grundvelli þessara yfirlýsinga og byija á því að kanna að hve miklu leyti EFTA-löndin gætu fallist á grundvallarmarkmið EB um það sem nefnt er frelsin fjögur, þ.e.a.s. um hindrunarlaus vöruviðskipti, hindr- unarlaus þjónustuviðskipti, atvinnu- og búseturétt og fijálst fjármagns- flæði auk samstarfs um ýmis önnur verkefni. Þessar könnunarviðræður um myndun sameiginlegs efnahags- svæðis (EES) hafa staðið fram undir það síðasta en nú eru eiginlegar samningaumleitanir framundan. Hvað er EES? Hvað er þá átt við með EES, hvers vegna er sóst eftir því og hvaða ávinning telja menn sig hafa að sækja? Sameíginlegt efnahagssvæði þýðir • að fyrir viðskiptaaðila gilda sömu eða. sambærileg réttindi og skilyrði innan svæðisins í heild án tillits til þess í hvaða þjóðlandi á svæðinu þeir búa, reyndar rétt eins og þeir byggðu sama land. Samkvæmt þessu á því að ryðja úr vegi þeim hindrunum sem felast í landamærum — a.m.k. í mjög ríkum mæli. Landamæri eru nefni- lega dýr, draga úr samkeppni milli landa og torvelda hagkvæmni. Þau takmarka jafnframt réttindi fólks og fyrirtækja. Hugmyndir EB um sam- eiginlegan heimamarkað eru ekki síst reistar á þessum forsendum. Með myndun hans er ætlunin að draga úr tilkostnaði og bæta starfsskilyrði fólks og fyrirtækja. Árangurinn mun þá koma fram í auknum hagvexti og meiri samkeppnishæfni. Nærtækt er að minna á að við höfum vanist því að okkar land væri eitt efnahagssvæði. Land okkar hef- ur þá skilgreinst sem efnahagssvæði m.a. með því að settar hafa verið reglur um vöru- og fjármagnsvið- skipti við landið, um rétt til atvinnu- starfsemi í því og um aðgang er- lendra aðila að vinnumarkaði í landinu. Þegar efnahagssvæði á að ná til fleiri Ianda en eins, verður að éamræmaþessar regiur milli viðkom-'Vv andi landa, þannig að innan efna- hagssvæðisins alls gildi sömu reglur, hvert sem þjóðemið er, rétt eins og sömu reglur hafa gilt innan þjóð- landsins sem efnahagssvæðis. Hugmyndin um sameiginlegt efnahagssvæði felur þó fleira í sér. Innan hvers þjóðlands gilda ekki bara sömu lög fyrir alla. Þar eiga lika allir möguleíka á að leita réttar síns innan dómskerfís landsins og þeir eiga að geta treyst því að lögin séu túlkuð eins gagnvart öllum. Æðsti dómstóll hvers lands sér rti.a. um slíka samræmingu. Sömuleiðis er af hálfu opinberra aðila fylgst með því að lögunum sé fylgt. I sameiginlegu efnahagssvæði koma þessi sömu atriði til athugunar fyrir svæðið í heild — að vísu alls ekki varðandi öll lög og reglur — heldur einungis þau sem gilda eiga yfir svæðið í heild. Af þessum sökum verður að skilgreina hinn sameigin- lega grundvöll laga og reglugerða, sem þar á að gilda, hvernig viðskipta- aðilar innan svæðisins geti leitað réttar síns, hvemig tryggð sé sam- ræmd túlkun á reglum og hvernig litið sé eftir að reglum sé fylgt innan svæðisins. Hvaða reglur? Fyrst kemur þá til úrlausnar hvaða reglur eigi að gilda innan EES. Um þessi atriði eru yfírleitt ekki til sameiginlegar reglur meðal EFTA-landanna, en þær eru fyrir hendi innan EB. Þegar af þeim ástæðum liggur beint við að reglur um útfærslu á þessum hugmyndum og hvemig hið sameiginlega efna- hagssvæði skilgreinist af þeim hljóta að byggjast á reglum þeim sem við- teknar eru innan EB. Það er á þess- um forsendum sem EFTA-löndin hafa fallist á að réttararfur EB verði lagður til grundvallar í væntanlegum samningaviðræðum milli EB og EFTA um sameiginlegt efnahags- svæði. Ástæðan er nánast sú að ekki er annar raunhæfur valkostur. í framhaldi af þessu verður að leita ráða til þess að lögunum eða reglunum sé framfylgt með sama hætti, allir hafa sömu réttarstöðu gagnvart þeim svo og til þess að leita réttar síns. Að öðrum kosti ríkir ekki jafnstaða. Innan þjóðlands er eftirlit á hönd- um ýmissa opinberra aðila. Innan EB og þá að því er varðar EB-reglur fer eftirlit fram í framkvæmdastjórn- inni. Innan EES yrði að sjá fyrir þessu eftirliti með einhveijum hætti; í heimalöndum, hjá EFTA og/eða hjá EES-stofnun. Til að tryggja réttarstöðu innan efnahagssvæðisins verður að skil- greina með hvaða hætti menn geti leitað réttar síns og sjá til þess að samskonar túlkun á réttarreglum giidi um svæðið allt. í EB er þetta leyst m.a. með því að komið hefur verið á sérstökum Evrópudómstóli í Lúxemborg, sem hefur það hlutverk að túlka EB-reglur og þá m.a. gagn- vart dómstólum í EB-löndunum. Það liggur beint við að innan EES yrði að vera fyrir hendi samskonar dóm- stóll til að fjalla um EES-regiur. Helst er nú rætt um einhvers konar útvíkkun Evrópudómsins í Lúxem- borg til úrlausnar á þessu. Þessi grundvallaratriði eru óum- deilanleg forsenda sameiginlegs efnahagssvæðis. Á þessu sviði eru margvísleg lagaleg atriði til úrlausn- ar og sum allvandasöm. Ákvarðanataka Ekki er nóg að fínna liinn sameig- inlega laga- og reglugerðargrundvöll í upphafí, því aðstæður breytast og þar með þörfín fyrir breytingar á lögum og reglum. Þess vegna er vita- skuld til úrlausnar hvernig haga eigi undirbúningi og töku ákvarðana fyr- ir hið evrópska efnahagssvæði. Aðil- a¥%ru sarhmála um að ekki eigi' að koma á fót meiriháttar stjórnarstofn- un. Hvor aðili leggur áherslu á sjálf- stæði af sinni hálfu. EB vill geta haldið sínu striki, EFTA-ríkin vilja standa vörð um sjálfstæði sitt. Lög- gjafarvaldið er hjá þingmönnum í EFTA-löndunum og því verður ekki breytt. Urlausnarefnið er nánast að koma á nánu samráði og samráðsvettvangi við allan undirbúning ákvarðana og mótun þeirra í því skyni að ná sam- hljóða niðurstöðu, sem EB annars vegar og EFTA-löndin hins vegar geta sætt sig við. í þeim tilvikum að slík sameiginleg niðurstaða feng- ist ekki, verður að gera ráð fyrir að leiðir skildu í viðkomandi máli, öðru- vísi verður sjálfstæði í ákvarðana- töku ekki haldið. Fyrirkomulagið ætti að hinu ieytinu að tryggja að tillit yrði tekið til sjónarmiða mótaðil- ans áður en hvor aðili tæki nokkra ákvörðun um mál sem varða EES. Hvorugur aðili yrði því látinn standa frammi fyrir orðnum hlut. Jafnframt er gert ráð fyrir að bæði innan EFTA og EES yrðu ákvarðanir einungis teknar sámhljóða. Að því er EFTA- Iöndin varðar, færu tillögur varðandi lagasetningar síðan fyrir þjóðþingin. Sú mynd sem ég hef hér dregið sýnir einungis megindrætti. Hlutverk og skipan undirbúningsnefnda og stjórnarnefnda á einstökum sviðum t.d. angi þessa máls, sem og verk- efni og skipan samráðsvettvangs, sem í könnunarviðræðunum hefur gengið undir nafngiftinni EES-ráðið. Frávik frá reglum EB Á leiðtogafundi EFTA-landanna í Osló í mars 1989 var samþykkt að stefna skyldi að ijórfrelsinu svo- nefnda í fyllsta mögulega mæli. EFTA-löndin féllust á að til að ná þessum markmiðum yrði að leggja réttarfar EB til grundvallar. Starfíð seinustu 3 mánuði á vegum EFTA hefur að miklu leyti snúist um að skoða þessar reglur, meta hveijar þeirra ættu við í EES og athuga hvort toi-merki væru á að tileinka sér þær. Rétt er að taka fram að um þriðjungur af réttarreglum EB lýtur að landbúnaðarmálum. Þær koma ekki til álita, því ekki er ætlun- in að EES nái til landbúnaðarmála. Athugunin á réttarfari EB hefur leitt í ljós — eins og reyndar vænta mátti — að langstærstur hlutinn er í sam- ræmi við réttarreglur í EFTA-lönd- unum. Upptaka nýrra formreglna mundi því að því er þennan hluta varðar ekki þýða raunverulegar efn- isbreytingar. I annan stað er rétt að benda á að þessi yfirferð hefur stór- lega aukið þekkingu okkar íslend- inga og annarra EFTA-þjóða á öðr- um hlutum Evrópu, þargildandi lög- um og reglugerðum, markmiðum og væntingum. Hitt hefur allar götur verið ljóst, að EFTA-Iöndin gætu ekki að öllu leyti tileinkað sér þær reglur sem gilda innan EB. Frá upphafi hefur verið gert ráð fyrir því að samið yrði um undantekningar eða aðlögun- artíma fyrir svið sem hin ýmsu EFTA-lönd ættu af ýmsum ástæðum í erfiðleikum með að taka upp. Vöruskipti Fyrsta frelsissviðið snýr að vöru- skiptum. í því sambandi er vert að minna á að markmið EFTA-Iandanna er að sömu ákvæði gildi um við- skipti með físk og fískafurðir eins og önnur vöruviðskipti. Á blöðum hafa Verið tvær hug- myndir varðandi skipulagsramma vöruskipta, annars vegar tollabanda- lag og hins vegar útvíkkað og dýpk- að fríverslunarsvæði. Hið síðar- nefnda er nú ofan á. Á fríverslunar- svæði er leitast við að ná frelsi í við- skiptum vara, sem eiga sér uppruna innan svæðisins. Innan tollabanda- lags gilda hins vegar sömu skilyrði hjá öllum löndum inhán" þess* gágn- Kjartan Jóhannsson „Ég veit að vísu að íslend- ingar hafa verið hikandi við hvert skref sem þeir hafa stigið í átt til aíháms hindrana í hagkerfinu og til samvinnu við erlenda aðila. Og þessi skref hafa verið umdeild. Þau hafa þó tvímælalaust skilað okkur verulegum ábata. Þetta á við um viðskipta- frelsi og afiiám skömmt- unar í upphafi viðreisn- ar.“ vart utanaðkomandi vörum, en þá eru jafnframt hindrunarlaus viðskipti innan svæðisins með vörur frá þriðju löndum. Vel að merkja; tollabanda- laginu fylgir þá sameiginleg við- skiptastefna út á við. EFTA-löndin ætla sér hins vegar sjálfstæði í þeim efnum. Fríverslunarsvæðum fylgja ákvæði um svonefndar upprunaregl- ur. Innan EES er markmið EFTA- landanna að tryggja að ekki sé beitt hindrunum gegn framleiðsluvörum frá þeim, þótt rekja megi aðföng til varningsins til annars uppruna. Mikilvægasta EB ákvörðunin sem tryggir fijáls vöruviðskipti snýr að banni gegn magntakmörkunum. Sú einfalda aðgerð að þetta eigi við inn- an EES og gildi þá jafnframt um fiskafurðir myndi hafa mikla þýðingu fyrir ísland. Tæknilegar viðskiptahindranir torvelda mjög viðskipti milli landa. Með þeim er fyrst og fremst átt við mismunandi skilyrði um eiginleika, merkingar og eftirlit með vörum. Sömuleiðis fylgir þessu skoðun og prófun í hveiju Iandi með tilliti til þargildandi reglna. EB stefnir að afnámi þessara viðskiptahindrana, ýmist með sameiginlegum reglum eða gagnkvæmri viðurkenningu á reglum og prófunum í einstökum þjóðlöndum innan EB. Hið sama ætti að eiga við innan EES. Til þessa sviðs heyrir að sömu samkeppnisreglur gildi um allt svæð- ið. Löggjöf okkar á' þessu sviði er öðruvísi uppbyggð en hjá EB, en hin efnislegu markmið eru hin sömu. Ákvæði um undirboð sem Járn- blendiverksmiðjan á Grundartanga hefur fengið að finna fyrir, er sömu- leiðis til umfjöllunar í þessum viðræð- um. EFTA-ríkin halda því fram að á sameiginlegu efnahagssvæði yrðu þau óþörf og án forsendna. Reglur um ríkisstyrk yrði að samræma innan EES, en byggðastefna og styrkir á grundvelli hennar yrðu sérmál hvers lands. Opinber innkaup yrðu opnuð fyrir sánikeþþrii iririan álls svæðiéihs:: Þjónustuviðskipti Á þjónustusviðinu sem telst þá annað frelsissviðið er ætlunin að þjónustu megi í megindráttum bjóða hindrunarlaust á öllu EES-svæðinu. Þjónusta felur í sér fjármálaþjónustu, tryggingastarfsemi og samgöngur þ.m.t. síma, útvarp og sjónvarps- rekstur. Varðandi flutningastarfsemi er ætlunin að setja samræmdar regl- ur. Þær ættu að því er okkur varðar að tryggja markaðsaðgang íslenskra aðila á þessu sviði þ.e.a.s. í flugi og sjóflutningum. Á sviði fjárskipta hangir m.a. á spýtunni þátttaka í sameiginlegum þróunarverkefnum. Nánar tiltekið er hér á ferðinni, ef við lítum á málin af okkar sjónar- hóli, að íslenskum fyrirtækjum væri fijálst og hindrunarlaust að leita lána eða annarra fjármálaviðskipta hvar sein þau lysti innan EES. Á hinn bóginn fengju fjármálafýr- irtæki frá EES-löndunum_rétt til að koma upp þjónustu á íslandi og íslensk fjármálafyrirtæki samskonar rétt til að koma sér fyrir hvar sem þau kysu innan EES. Á íslandi eins og annars staðar á svæðinu hefði þetta fyrirkomulag í för með sér lægri fjármagnskostnað, en jafnframt aukna samkeppni fyrir innlendar bankastofnanir, sem þá yrðu knúnar til aukinnar hagræðing- ar. Varðandi vátryggingastarfsemi eru áformin í megindráttum sams- konar og lýst hefur verið um fjár- málaþjónustu. Fjármagnshreyfingar Þriðja frelsið snýr að fjármagns- hreyfingum. Hugmyndir um afnám hindrana í ijármagnshreyfingum eru vitaskuld nátengdar því sem fyrr var reifað um íjármálaþjónustuna því án frelsis í fjármagnshreyfíngum yrði torvelt að ná árangri í fjármálaþjón- ustunni. Meðal helstu iðnaðarþjóða hefur á undanförnum árum stefnt sífellt í átt til afnáms á hvers kyns gjaldeyr- isreglugerðum. Norðurlöndin eru nú í óðá önn að afnema takmarkanir sínar. Þessu ræður annars vegar þörf atvinnuiífsins og hins vegar að takmarkanir hafa ekki svarað til- gangi sínum. Á íslandi búum við enn við miklar takmarkanir og meiri en annars staðar, þótt líka hjá okkur hafí stefnt nokkuð í fijálsræðisátt. Atvinnu- og búseturéttur Komum þá að íjórða frelsinu, þ.e.a.s. um atvinnu- og búseturétt. I samningnum um EES verður samið um rétt íbúa EES-ríkjanna til þess að leita sér atvinnu og setjast að hvar sem er innan svæðisins án til- lits til þjóðernis. Hér er reyndar ekki á ferðinni að fólk geti flykkst hvert sem er og sest upp án þess að geta séð fyrir sér. Það sem um er að ræða er réttur til dvalar í 3 mánuði í öðru landi en heimalandi í þeim tilgangi að leita sér atvinnu. Fái við- komandi vinnu á hann rétt á dvalar- leyfí, annars verður hann að hverfa á braut úr landinu að ofangreindum þrem mánuðum liðnum. Til þessa máls heyrir að gert er ráð fyrir að samið verði um gagn- kvæma viðurkenningu á prófgráðum til þess að tryggja starfsréttindi fólks. Vert er að benda á að þau ákvæði sem hér eru til umfjöllunar varðandi atvinnuréttindi eru mun takmarkaðri en þau sem í gildi eru á hinum nor- ræna vinnumarkaði, sem ísland er aðili að. Til umíjöllunar eru auk þess margvísleg önnur samstarfsmál, sem miklu máli skipta en ég mun ekki gera hér nein frekari skil önnur en að nefna þau helstu, nefnilega -um- hverfismál, menntamál, ranrisókir og þróun, menningarmál og ferðamál. Ljóst er að ísland hefur mikilla hagsmuna að gæta á þessum sviðum, ekki síst að því er varðar samstarf í menntamálum þ.m.t. aðgang að menntastofnunum, og á sviði rann- sókna og þróunarstarfs. Þetta er í grófum dráttum megin inntakið í því evrópska efnahags- svæði, sem senn munu væntanlega hefjast formlegir samningar um. Atvinnustefna á íslandi Víkjum þá sérstaklega að íslandi. Hver eru efnahagsleg markmið okk- ar íslendinga, hveijar eru horfurnar í efnahags- og atvinnumálum, hvaða leiðir liggjá áð þeim inarkmiðum sem

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.