Morgunblaðið - 12.04.1990, Page 17

Morgunblaðið - 12.04.1990, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. APRIL 1990 e n Rétta eðlið sýnir sig eftir dr. Gunnlaug Þórðarson Haustið 1985 sóttum við Sigurður Georgsson, hæstaréttarlögmaður, alþjóðaráðstefnu lögfræðinga, sem haldin var í Vestur-Berlín. Að aflok- inni ráðstefnunni fórum við eina dagstund yfir til Austur-Berlínar. Þótti Sigurði nóg um alla eymdina og dapurleikann, sem yfir öllu hvíldi. Hvergi var nýbyggingar að sjá og allt athafnalíf virtist í dróma. Þó vakti ein bygging, sem var í smíðum, athygli okkar, en það var ógnarmikið stórhýsi, sem var verið að ljúka við fyrir sendiráð Búlgaríu. Aður en við fengum að snúa aftur til Vestur-Berlínar, var bifreiðin okkar rannsökuð af þýskri ná- kvæmni, kerrum með speglum ofan á var rennt undir bílinn, svo að hægt væri að sjá hvort flóttamaður hengi neðan í bílnum. Sætum í bílnum var lyft upp. Hefði ferðafélagi minn ætlað eitt- hvað austar, var þessi forsmekkur af ástandinu í sæluríkinu austan- tjalds nógur til þess að fæla hann frá þeirri hugmynd. Slíkur var óhugnaðurinn. Ofsóttir lögmenn Aftur á móti hafði ég bundið fast- mælum við átta bandaríska iög- menn, að fara til Prag, Búda-Pest og Búkarest og hitta þarlenda lög- menn að máli. Auðvitað skyldi það standa. Bandarísku lögmennirnir höfðu undirbúið ferðina af mikilli fyrirhyggju, þar á meðal haft bréf- legt samband, ári áður, við stjórnir lögmannafélaga á hveijum stað og óskað eftir fundi með þeim. Það var sammerkt með fundum þeim, sem við áttum með austan- tjaldslögmönnum hve fáir lögmenn mættu. Þeir sem komu voru allir mjög á varðbergi um hvað eina, sem amerískir kollegar mínir vildu punkta niður hjá sér. Þeir þorðu t.d. ekki einu sinni að skiptast á nafnspjöldum við okkur, sem er ósköp saklaus kurteisisathöfn. Þeir tóku sérstaklega fram, að þeim þætti mikilvægt að þessir fundir væru nánast trúnaðarmál og yrði a.m.k. ekki getið í ijölmiðlum, er við kæmum heim. Framkoma þeirra gaf manni hug- boð um, að þeir hefðu orðið fyrir áreitni eða óttuðust hana. Þeir sögðu, að störf þeirra væru undir mjög ströngu opinberu eftirliti. Einkamálarekstur þekktist ekki að heitið gæti. Þeir væru á launum hjá ríkinu og það, sem þeir öfluðu, rynni til þess. Þeir kváðu það vera áhyggjuefni, að ungt fólk hefði ekki hug á að leggja stund á lögfræði. Viðsjárvert starf í ljós kom, að í öllum þrem höfuð- borgunum hafði lögmönnum fækk- að svo um munaði. Það mátti skilja á þeim flestum, að það stafaði af því hve lögmennska þætti viðsjár- vert starf frá almennu sjónarmiði. Þannig hefðu fyrir seinni heims- styijöldina verið um 10.000 starf- andi lögmenn í Prag, en þegar við vorum þar voru þeir um 1.600. Svip- aða sögu var að segja um Búda- Pest, en þar virtust lögmenn þó ekki eins bugaðir. Þar hefðu verið um 6.000 lögmenn fyrir 1940, en voru 1985 aðeins um 1.200. í Búk- arest voru aðstæður svipaðar. Þeir voru sammála hinum amerísku starfsbræðrum sínum um það, að lögmenn hefðu mikilvægu hlutverki Afar óheppi- legar málalyktir að gegna í mannréttindabaráttu, en það gæti verið varhugavert að fara of geist í því efni. Mikill drungi hvíldi yfir þessum fundum, en það hvernig þessir elskulegu og kurteisu kollegar mínir lýstu ástandinu eins og t.d. persónu- njósnum og því hvernig það eitt að láta sjá sig í kirkju, að ekki sé talað um að láta ferma barn sitt, gæti stefnt öryggi fjölskyldunnar í voða sýndi svo ekki varð um villst, hvílíkur skuggi ógnana hvíldi yfir þeim. Það var allt annar blær yfir þess- um fundum en yfir þeim, sem ég hafði átt með bandarískum og suður-amerískum lögmönnum í nokkrum höfuðborgum Suður- Ameríku tveimur árum áður. Þetta kom mér ekki á óvart, því ég hafði lesið bækur eftir russneska lögmenn, sem íengið höfðu það hlut- verk að vetja fólk í Sovétríkjunum, sem hafði verið ákært fyrir hin ómerkilegustu andsovésku afbrot. Brotið var oft í því fólgið að hafa fengið send tímarit frá Bandaríkjun- um. Verjendur í slíkum sakamálum urðu á eftir fyrir slíku aðkasti, að margir þeirra áttu ekki aðra úr- kosti en að koma sér úr landi, til þess að lenda ekki sjálfir í vinnubúð- um. Obærileg þagnarskylda Þegar heim kom úr þessari Bjarmalandsför, kaus ég að segja hvergi opinberlega frá ferð minni cg hélt með því loforðið, sem ég hafði orðið að gefa þessum kúguðu lögmönnum. Auðvitað langaði mig til þess að segja frá skoðunarferð í Meyerling- höllina í Bæjaralandi, þar sem Rud- olf af Habsburg, erkihertogi og krónprins Austurríkis, fyrirfór sér og ástkonu sinni í lok síðustu aldar. Þá ekki síður frá komu okkar í kast- ala Drakúla greifa í Karpatafjöllum. En mér var ómögulegt að segja frá því án þess að segja frá öllu og kaus því að geyma leyndarmál hinna ofsóttu lögmanna samkvæmt ósk þeirra. Nú eftir að lögfræðingurinn Gorbatsjov virðist vera að reyna að gera Sovétríkin að réttarríki með „perestrojku" sinni, leyfi ég mér að segja frá þessu, í trausti þess að það komi engum illa. Fúkyrði og hótanir ráðherra Ástæðan til þess er þó all sér- stök, en það er ósiðleg árás þeirra Ólafs Ragnars Grímssonar og Svav- ars Gestssonar á ríkislögmann fyrir þær „sakir“ að gefa Alþingi sam- viskusamleg svör við spurningum varðandi meðferð Sturlumálsins svokallaða. í því máli hafa umrædd- ir tveir ráðherrar hegðað sér með svipuðu móti og starfsbræður þeirra í einræðisríkjum austur í Evrópu, áður en öllu var kollvarpað austur Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar Síðumúla 39, 108 Reykjavík, sími 678500 Fósturheimili Fjölskyldudeild félagsmálastofnunar Reykjavíkur óskar eftir fósturheimili í Reykjavík fyrir rólegan 13 ára gamlan dreng. Æskileg staðsetning á heimili er Breiðholt eða austurhluti borgarinnar. Nánari upplýsingar veitir Regína Ásvaldsdóttir, félags- ráðgjafi í.síma 678500. „Þó tekur út yfir allan þjófabálk, þegar þeir ausa fukyrðum yfir embættismenn eða heimta að embætti hans sé lagt niður og hann m.ö.o. rekinn vegna þess að hann gerir ekki grein fyrir málum á þann hátt, sem þeir vilja. Slík fiikyrði og hótanir afhjúpa hugar- far kommúnismans. Slíkir eru ráðherrar „terrorsins“ eða ógnar- innar.“ þar. Ráðherrar þessir hafa ekki frekar en aðrir í núverandi ríkis- stjórn fengið neina kennslu í rök- réttri hugsun, sem er undirstaða lögfræðinnar. Af þeim ástæðum skilja þeir ekki mismun þess þegar embættismaður lýsir því yfir fyrir- fram og vísvitandi, að hann muni hafa að engu ákvæði fjárlaga um embættisrekstur hans eða því er embættiskostnaður fer fram úr áætlun af meira og minna óviðráð- anlegum ástæðum. Af sömu ástæðu hafa þeir opinberað algjöra van- þekkingu sína á þeirri undirstöðu lýðræðis, sem byggist á þrískiptingu valdsins. Ráðherrar, se/n þessir, er skella skollaeymm við áliti héraðs- dóms og koma í veg fyrir að mál fái endanlega meðferð æðra dóm- stigs, þegar þess var brýn þörf, eru alls ekki vanda sínum vaxnir. Þó tekur út yfir allan þjófabálk, þegar þeir ausa fúkyrðum yfir embættis- menn eða heimta að embætti hans sé lagt niður og hann m.ö.o. rekinn vegna þess að hann gerir ekki grein fyrir málum á þann hátt, sem þeir vilja. Slík fúkyrði og hótanir afhjúpa hugarfar kommúnismans. Slíkir eru ráðherrar „terrorsins" eða ógnar- innar. Úthugsaður ódrengskapur í grein hér í blaði, 2. febrúar 1989, spáði ég því, að tilgangur þeirra Ólafs Ragnars Grímssonar Gunnlaugur Þórðarson og Svavars Gestssonar með því að láta hætta við áfrýjun Sturlumálsins til Hæstaréttar, væri fyrst og fremst sá að geta núið Sverri Hermanns- syni því um nasir um alla ókomna tíð, að Sverrir hafi verið dæmdur fyrir embættisverk. Slíkur er ódrengskapur þessara manna. Sturla og Sverrir eru löngu komnir út úr mynd þessa máls, en virðingar- leysi kommúnistaráðherranna, Ól- afs Ragnars Grímssonar og Svavars Gestssonar, fyrir lýðræði og dóm- stólum, verður aldrei af þeim skaf- ið. Rétt eðli þeirra hefur sýnt sig, að ekki sé talað um hrokann. Höfundur er hæstaréttarlögmaður. Auglýsing frá Orlofssjóði VR ORLOFSHÚS VR Dvalarleyfi Auglýst er eftir umsoknum um dvalarleyfi í orlofshúsum VR sumarið 1990. Umsóknir á þar til gerðum eyðublöðum þurfa að berast skrifstofu VR, Húsi verslunarinnar 9. hæð í síðasta lagi 20. apríl 1990. Orlofshús eru á eftirtöldum stöðum: Ölfusborgum Húsafelli í Borgarfirði Svignaskarði í Borgarfirði lllugastöðum í Fnjóskadal Vatnsfirði, Barðaströnd Einarsstöðum, Suður-Múlasýslu íbúðir á Akureyri Flúðum Miðhúsum, Biskupstungum Aðeins fullgildirfélagar hafa rétttil dvalarleyfis. Þeirsem ekki hafadvalið sl. 5 ár í orlofshúsum átíma- bilinu 28. maí til 17. september sitja fyrir dvalarleyfum. Hafi ekki verið gengið frá leigusamningi fyrir 18. maí n.k. fellur úthlutun úr gildi. Dregið verður milli umsækjenda ef fleiri umsóknir berast en hægt er að verða við. Verður það gert á skrifstofu félagsins laugardaginn 5. maí n.k. kl. 14 og hafa umsækj- endur rétt til að vera viðstaddir. Sérstök athygli er vakin á því að umsókinir verða að berast skrifstofu VR í síðasta lagi föstudaginn 20. apríl n.k. Umsóknareyðublöð eru afhent á skrifstofu VR, Húsi verslunarinnar 9. hæð. Ekki verður tekið á móti umsóknum símleiðis.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.