Morgunblaðið - 27.06.1990, Síða 18

Morgunblaðið - 27.06.1990, Síða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. JUNI 1990 SAMBAND UNGRA SJÁLFSTÆÐISMANNA SEXTÍU ÁRA: Baráttuhugnr í mönnum við stofhun sambandsins - segir Torfi Hjartarson, stofiiandi og fyrsti formaður SUS SAMBAND ungra sjálfstæðismanna er sextíu ára í dag, 27. júní. Þennan dag var SUS stofnað í Hvannagjá á Þingvöllum, meðan á Al- þingishátíðinni 1930 stóð. Helzti frumkvöðull að stofhun Sambands ungra sjálfstæðismanna og fyrsti formaður þess var Torfi Hjartarson, fyrrverandi tollstjóri. Hann er við góða heilsu, kominn hátt á níræðis- aldur, og man glögglega aðdragandann að stofnun SUS. „Eg tók lagapróf um miðjan febr- úar 1930 og skömmu síðar datt mér þetta í hug einhvern morguninn þeg- ar ég var að fara á fætur,“ segir Torfi er hann er spurður hvenær hugmyndin að stofnun Sambands ungra sjálfstæðismanna hafi fyrst fæðzt. Hann bar hugmyndina upp við Magnús Guðmundsson, vara- formann og framkvæmdastjóra Sjálfstæðisflokksins, sem tók hug- myndinni opnum örmum. Ákveðið var að nota aðdráttarafl Alþingishát- íðarinnar á Þingvöllum um sumarið og halda stofnfundinn samhliða henni. Torfi var á þessum tíma varaform- aður Heimdallar og starfandi for- maður félagsins þar sem Pétur Haf- stein formaður var erlendis. Heimd- allur skipaði Torfa, Pétur og Guðna Jónsson sagnfræðing í nefnd til að vinna að málinu. Félög ungra sjálf- stæðismanna voru á þessum tíma aðeins sex. Torfa var falið að skrifa sjálfstæðismönnum úti um land, sem kunnir voru að dugnaði, og fá þá til að stofna fleiri félög ungra sjálfstæð- ismanna áður en af stofnun SUS yrði. Torfi segist hafa staðið í bréfa- og símasambandi við þessa menn á landsbyggðinni, og árangurinn hafi ekki látið á sér standa, yfirleitt hafi vel verið tekið í málaleitan hans. Sjö félög bættust í hópinn áður en hald- ið var til Þingvalla. „Það færðist líf í starf ungra manna í kjölfar samein- ingar Fijálslynda flokksins og íhalds- fiokksins í Sjálfstæðisflokkinn árið 1929. Það var bjánalegt að hafa tvo flokka með sömu stefnu, en nú gátu menn farið að vinna saman,“ segir Torfi. „Sameiningin og óvinsældir ríkisstjómar Framsóknarflokksins hleyptu kappi í menn.“ Stofhfundur í Hvannagjá Föstudaginn 27. júní, annan dag Alþingishátíðarinnar, söfnuðust full- trúar 13 félaga ungra sjálfstæðis- manna saman um klukkan átta að morgni. „Það var ljómandi veður, glampandi sól og logn. Ég hafði tjald fyrir Heimdall niðri á Leirunum, í gríðarlegri tjaldborg sem þar stóð. Ég flaggaði á því með fána, sem ég hafði útbúið til þess sérstaklega. Þar safnaðist fólkið saman og við geng- um svo upp í Hvannagjá, þar sem ég var búinn að velja stað, skammt innan við Leiralækinn," segir Torfi. Stofnendumir vora 45, og var hver þeirra fulltrúi fyrir 25 unga sjálf- stæðismenn. Fulltrúar 1125 meðlima voru því á stofnfundinum, en talið var að um 1.400 manns væra alls í félögum ungra sjálfstæðismanna við stofnun SUS. Torfi segir að mikill baráttuhugur hafi verið í mönnum þennan dag, og menn hafi auðvitað verið undir áhrif- um af stemmningu Alþingishátíðar- innar. „Við héldum fund í Reykjavík þremur dögum eftir stofnfundinn, og þar kom andinn, sem ríkti á Þing- völlum, vel í ljós,“ segir Torfi. Um þennan fund ritar Guðni Jónsson í blaðið „Heimdall", sem út kom 16. júlí sama sumar: „Vora þar margar ræður haldnar og aldrei minnist sá, sem þetta ritar, að hafa séð jafn al- mennan og lifandi áhuga meðal ungra manna sem þar. Hver maður stóð upp á fætur öðram til þess að láta í ljós ánægju sína yfir stofnun sambandsins og eggja félaga sína til öflugrar framgöngu og samtaka bar- áttu fyrir hugsjónum sjálfstæðis- stefnunnar." Mikið ályktað á fyrsta þingi Fyrsta þing sambandsins var hald- ið 1932, og var að sögn Torfa mikið ályktunarþing. Greinilegt er að ung- um sjálfstæðismönnum lá_ mikið á hjarta á sínu fyrsta þingi. í ályktun- um þess má finna ýmsar hugmyndir, sem síðan hafa sett mark sitt á bar- Torfi Hjartarson ásamt Önnu Jónsdóttur konu sinni á heimili þeirra á Flókagötu. Frá stofhíundi Sambands ungra sjálfstæðismanna í Hvannagjá. áttu SUS. Ályktað er um sambands- slit við Dani svo fljótt, sem verða megi, og stofnun Iýðveldis. Þingið hét á alla góða Islendinga að vinna að því að íslenzkum ríkisborgurum yrðu sem bezt tryggð full ráð yfir auðsuppsprettum landsins og at- vinnufyrirtækjunum. Þá hvar hvatt til stofnunar sérstaks utanríkisráðu- neytis, en Danir fóra með utanríkis- málin fyrir íslands hönd. Hvatt var til þess að Islendingar tækju land- helgisgæzlu í eigin hendur. Baráttu- mál, sem enn má finna á stefnuskrá SUS, var að fá fram breytingar á kjördæmaskipan, þannig að stjórn- málaflokkar hlytu þingsæti í réttu hlutfalli við atkvæðamagn um allt land. Harðorð ályktun um ríkísfyár- málin var samþykkt, þar sem meðal annars var hvatt til þess að ríkis- stjórninni yrði bannað að nota varð- skipin til snattferða, og að skipuð yrði nefnd til rannsóknar á fjárhags- bruðli stjórnarinnar. Þingið lýsti sig á móti innflutningshöftum og einka- sölu á áfengi, tóbaki og útvarpsvið- tækjum. Þá hvöttu ungir sjálfstæðis- menn til þess að álögur á útgerðina yrðu léttar, að fengin yrði undanþága frá tolli á fisk í Bretlandi og Eim- skipafélaginu yrðu fengnar I hendur strandferðir, sem ríkið hélt uppi. Ályktanimar fylltu mörg tölublöð af „Heimdalli" og er hér fátt eitt talið af því, sem ályktað var. Sýndu sjálfstæði sitt „Þessir ungu menn fóru vel undir- búnir inn á landsfundinn, sem hald- inn var skömmu síðar, með allar þessar ályktanir upp á vasann. Þeir réðu því heilmiklu á fundinum, stund- um í lítilli þökk eldri manna,“ segir Torfi. SUS skipaði sér strax sess sem aflvaki nýrra hugmynda og veitt flokksforystunni aðhald. Fyrir ára- mótin 1929-1930 urðu deilur milli flokksforystunnar og ungra sjálf- stæðismanna í Heimdalli hvort einn af fyrrverandi bæjarfulltrúum Sjálf- stæðisflokksins eða formaður Heimdallar, Pétur Hafstein, skyldi vera fulltrúi ungra manna á fram- boðslistanum. Gekk Heimdallur þar með sigur af hólmi. Varð þetta til að félögum í Heimdalli fyölgaði mjög mikið og félagið efldist til áhrifa. Ungir sjálfstæðismenn trúir hugsjónunum Torfi segir að í þau sextíu ár, sem hann hefur fylgzt með starfi Sam- bands ungra sjálfstæðismanna, hafi sér fundizt samtökin trú þeim hug- sjónum sem þau hafi verið stofnuð um. „Þetta hafa verið myndarsamtök oft á tíðum.“ Aðspurður fyrir hvaða málum hann telji að ungir sjálfstæðismenn eigi að beijast á næstu árum, segist hann lítið geta ráðlagt þeim, sjálfir verði þeir að marka sína stefnu. sÞeir verða að beijast áfram fyrir Islandi fyrir Islendinga og athafna- frelsi og einstaklingsframtaki. Og vinna jafnframt að því að vanhugsað- ar ráðstafanir og framkvæmdir ríkis og einstaklinga verði ekki til þess að skapa hér láglaunasvæði og hættu á landflótta. Þetta er kjarninn," seg- ir Torfi. Um hugmyndir, sem uppi eru um aðild íslands að Evrópusamstarfi, segir hann að í allt slíkt þurfi að fara með mikilli gát. „Það þarf að varast að útlendingar fái vald á íslenzkum málefnum, það hefur allt- af gefizt illa,“ segir Torfi. GrundvaUarhugsjón- imar eru þær sömu - segir Davíð Stefánsson, formaður SUS Á SEXTUGASTA aldursárinu eru grundvallarhugsjónir ungra sjálf- stæðismanna þær sömu og fyrir sextíu árum, þótt stjórnmálabaráttan hafi ef til vill breytzt. SUS berst enn fyrir athafnafrelsi, sjálfseignar- rétti og takmörkuðum ríkisafskiptum, eins og ungir sjálfstæðismenn gerðu 1930. Þetta segir Davíð Stefánsson, formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna. Davíð er yngstur þeirra sautján, sem hafa verið for- menn SUS, var 24 ára er hann var kjörinn formaður á sambandsþingi á Sauðárkróki á síðasta ári. „Á heildina litið held ég að okkur sé óhætt að vera ánægð með þann árangur, sem Samband ungra sjálf- stæðismanna hefur náð. Það er varla ofsagt að engin önnur pólitísk æsku- lýðshreyfing kemst með tærnar þar sem SUS hefur hælana. Nú eru I SUS 32 félög með samtals um 6.000 félaga í sambandinu, og það bætist enn í hópinn. Á síðustu áram hafa mörg félög bætzt við, það yngsta í Neskaupstað, höfuðvígi sósíalista. Öll þessi félög hafa verið virk undanfarið. Forysta SUS leggur mik- ið upp úr því að halda sem beztum tengslum við þau öll, og á síðastliðn- um vetri ferðuðumst við um landið og héldum undirbúningsfundi fyrir sveitarstjórnarkosningarnar með langflestum félögum. Þetta starf skilaði sér vel. SUS hefur aldrei gert stærra átak á landsvísu fyrir sveitar- stjórnarkosningamar en nú, og félög ungra sjálfstæðismanna á hveijum stað lögðu stóran skerf af mörkum í kosningabaráttunni. Kosningabar- áttan sannaði að SUS er öflug og lifandi hreyfíng. Við geram líka okk- ar til að upplýsa hinn almenna félags- mann sem bezt um það, sem er að gerast, og fréttabréf okkar fer nú til 6.000 félaga um allt land með reglulegu millibili. Það hefur margt breytzt í starfi SUS á þessum 60 áram. Fundir, ráðstefnur og útgáfa þjóna enn mikil- vægu hlutverki í að skapa umræður og að ná til fólks. í fjölmiðlaþjóðfé- lagi, þar sem er endalaus keppni um hvem einstakling og tíma hans, verða stjómmálasamtök hins vegar að laga sig að breyttum tímum. Við þurfum sífellt að finna upp á ein- hveiju nýju til þess að ná athygli fjölmiðla, ekki sízt vegna þess að fjölmiðlaheimurinn hefur líka breytzt á þann veg að stjórnmálaflokkar eiga ekki aðgang að fjölmiðlunum með hvað sem er.“ Davíð segir að ætla megi að stjóm- málin háfi orðið sérhæfðari með ár- unum. „Þegar SUS var stofnað stóðu átök milli tveggja andstæðra fylk- inga, sem deildu í grandvallaratrið- um um það hvert sjálft þjóðskipulag- ið skyldi vera hér á landi, miðstýrt kerfi sósíalismans eða fijálst og lýð- ræðislegt markaðsþjóðfélag. Þessar öfgar era ekki lengur til staðar, vinstriflokkarnir hafa færzt nær sjálfstæðismönnum. Hrun sósialis- mans í Austur-Evrópu innsiglar von- andi endanlega endalok átaka af þessu tagi. Nú deila menn frekar um ýmis útfærsluatriði lýðræðisskipu- lagsins. Þessi útfærsluatriði krefjast sérþekkingar, og stjórnmálaflokkar verða að hafa þessa þekkingu innan sinna raða. Sem betur fer hefur SUS á að skipa mörgu ungu fólki með góða menntun og þekkingu á ýmsum málum, sem era ofarlega á baugi í pólitískri umræðu." Davíð tiltekur enn eina breytingu á starfsemi SUS, sem stofnendur sambandsins hafi tæplega séð fyrir, en það séu hin síauknu alþjóðlegu samskipti hreyfingarinnar. „A þeim tíu árum, sem ég hef starfað með ungum sjálfstæðismönnum , hefur orðið mikil breyting á virkni okkar á alþjóðavettvangi. Nú er svo komið að mánaðarlega sendum við tvo til Davíð Stefánsson þijá menn á ráðstefnur, námskeið eða samráðsfundi erlendis. Á síðasta ári komu hingað um 75 erlendir gest- ir í boði SUS, annars vegar 35 manna hópur á vegum Samtaka ungra íhaldsmanna á Norðurlöndum, NUU, og hins vegar héldum við 40 manna ráðstefnu á vegum DEMYC, sem eru samtök ungliðahreyfinga lýðræðis- flokka í Vestur-Evrópu. SUS er virk- ur aðili í báðum þessum samtökum. Á vettvangi þeirra ræðum við örygg- is- og varnarmál, menntamál, menn- ingarmál, fy'arskipti, viðskipti og margt fleira, sem snertir þjóðimar sameiginlega í sífellt meira mæli. Þátttaka okkar í þessu alþjóðasam- starfi er eitt merkið um það, hvernig ísland færist sífellt nær öðram ríkjum.“ Davíð segist telja það eitt helzta framtíðarverkefni SUS að leiða um- ræðuna um þátttöku íslendinga í Evrópusamstarfi. „Við eigum að láta á það reyna í beinum könnunarvið- ræðum við Evrópubandalagið hvaða kostir standa okkur opnir, ef við sækjum um aðild að EB. Hræðsla og hik í þessum efnum getur komið okkur í koll. Staðreyndin er sú, að opin landamæri, óheft viðskipti og fijáls samskipti milli þjóða eru undir- staða velsældar í samfélagi lýðræð- isríkja. Ég held að eitt flóknasta úrlausnarefni sjálfstæðismanna á næstu árum verði að sætta strauma alþjóðahyggju annars vegar og þjóð- emishyggju hins vegar í flokknum. Allt frá seinna stríði höfum við barizt fyrir vestrænni samvinnu og opnun landamæra. Núna blasir það við okk- ur að enn nánara samstarf lýðræðis- ríkja í Evrópu er að verða að veru- leika, og þá vilja margir staldra við og velta því fyrir sér, hvort þetta sé sú leið, sem við eigum að fara. Sjálf- stæðismenn verða að finna leið, sem ekki aðeins getur orðið eining um í Sjálfstæðisflokknum, heldur meðal allra íslendinga. Sú leið kann að verða vandfundin, en Sjálfstæðis- menn eiga engan kost annan en að finna hana. Það er horfttil Sjálfstæð- isflokksins um forystu í íslenzkum utanríkismálum. Það ber að fara varlega í þessa hluti, og um leið og við göngum inn í alþjóðasamstarf, verðum við að hafa augun á sérkenn- um okkar. SUS vill beijast fyrir vemd íslenzkra verðmæta, tungu okkar, menningar, sögu og umhverf- is. Það er grandvallaratriði, sem aldr- ei má gleymast." Davíð segir að ungir sjálfstæðis- menn verði á næstu áram að beita sér fyrir breytingum á kosningakerf- inu. „Það verður að afleggja óréttl- átt og óeðlilegt kerfi, sem í fyrsta lagi gerir smáflokkum og sprengi- framboðum auðvelt um vik að koma mönnum á þing og mismunar í öðru lagi kjósendum mjög eftir búsetu

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.