Morgunblaðið - 27.06.1990, Page 22

Morgunblaðið - 27.06.1990, Page 22
22 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. JUNI 1990 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aðstoðarritstjóri Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri Árvakur, Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Fr'eysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sírrii 83033. Áskrift- argjald 1000 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 90 kr. eintakið. Frelsi einstaklinga hafið til virðingar Um helgina var þess minnst að 60 ár eru lið- in frá því að Samband ungra sjálfstæðismanna var stofn- að. Af því tilefni heiðruðu ungir sjálfstæðismenn Geir Hallgrímsson, seðlabanka- stjóra og fyrrum formann Sjálfstæðisflokksins, í þakk- lætis- og virðingarskyni fyrir störf hans í þágu sjálfstæðis- stefnunnar, og sérstaklega einarða afstöðu hans i ut- anríkismálum. Var vel við hæfí að staðfesta þennan heiður með því að gefa Geir brot úr Berlínarmúrnum, smánarmúr kommúnismans sem hrundi í nóvember 1989 fyrir þrýsting einstakling- anna og þrá þeirra eftir frelsi. Geir Hallgrímsson er af þeirri kynslóð sem hóf virka þátttöku í stjórnmálum um það leyti sem ísland hlaut fullt sjálfstæði og lýðveldi var stofnað hér á landi. í ávarpi sem hann sendi af- mælisfundi Sambands ungra sjálfstæðismanna riíjar Geir upp, hver voru höfuðbaráttu- mál fijálshuga manna á þeim árum. í fyrsta lagi var það baráttan gegn kommún- isma og sósíalisma innan lands og utan. í öðru lagi vildu menn sporna við upp- gangi Sambands íslenskra samvinnufélaga, er þá naut sérréttinda í pólitísku skjóli. Nú er öldin önnur eins og Geir Hallgrímsson bendir á í ávarpi sínu: „í þá daga vildu sósíalist- ar þjóðnýta atvinnufyrirtæk- in og koma á miðstýrðum áætlunarbúskap sem átti að tryggja kjör fólksins og út- rýma arðráni kapítalismans. Nú afneita jafnvel þeir sem enn kalla sig sósíalista ríkis- rekstri og miðstýringu. í þá daga töldu sumir menn það sér til gildis að vera miðjumenn og boða hugsjón samvinnuhreyfingar sem bjargráð í efnahagsmál- um. Nú keppast samvinnu- menn við að gera samvinnu- félögin að hlutafélögum." Þegar stórtíðindi hafa gerst eins og þau sem hér er lýst í fáum orðum, láta margir eins og þau séu sjálf- sögð og eðlileg, það liggi einfaldlega í hlutarins eðli að menn hafni ekki frum- kvæði einstaklingsins eða takmarki ekki svigrúm hans í atvinnulífi eða svipti hann eignarrétti. Þeim, sem að- hylltust önnur viðhorf en þau sem nú eru í sigurför um heiminn, er að sjálfsögðu mesta kappsmál að gera sem minnst úr breytingunum. Sé sagan skoðuð kemur hins vegar í ljós, að þeir sem hafna forræðishyggjunni í hverri mynd sem hún birtist, hafa orðið að beijast af hörku fyrir skoðunum sínum. Það hefur síður en svo verið sjálfgefið, að sjón- armið þeirra sigruðu. Eða eins og Geir Hallgrímsson orðar það: „Ungir sjálfstæðismenn héldu því fram gegn harðri andstöðu að eignarréttur einstaklinga og markaðsbú- skapur væri forsenda lýð- ræðis og mannréttinda. Við þurfum ekki að hafa mörg orð um það hvað reynslan í þessum deilumálum hefur sýnt og hvaða árangur starf sjálfstæðismanna og ann- arra einstaklingshyggju- manna hefur borið. En það væri glámskyggni ef við héldum að fullur sigur væri unninn fyrir hugsjónir sjálfstæðisstefnunnar.“ Baráttan fyrir frelsi ein- staklingsins heldur áfram og er eilíf eins og varðstaða þjóðar um menningu sína og arf. Við lifum nú þá tíma að almennt er viðurkennt að frelsi manna og náið sam- starf þjóða sé besta leiðin til að tryggja frið og farsæld. Megi þeir tímar vara sem lengst og bera mikinn ávöxt, því að eins og Geir Hall- grímsson segir í lok ávarps síns til ungra sjálfstæðis- manna: „Mestu skiptir að virðing- in fyrir manninum, einstakl- ingnum, sé í heiðri höfð og um leið og einstaklingsfram- takið tryggi hagvöxt og batnandi lífskjör þá hafi menn ávallt skilning á að vernda rétt lítilmagnans." HEIMSOKN ELISABETAR II. BRETADROTTNINGAR Gestir í mat- arboði Breta- drottningar HÉR fer á eflir listi yfir gesti í matar- boði hennar hátignar Elísabetar II Bretadrottningar og Filipps prins, hertoga af Edinborg, um borð í snekkjunni Britanníu klukkan 20.15 í gærkvöldi: Forseti íslands, frú Vigdís Finnboga- dóttir, Steingrímur Hermannsson for- sætisráðherra og frú, frú Halldóra Eld- járn, Guðrún Helgadóttir forseti samein- aðs Alþingis, Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra og frú, Ólafur Ragnar Grímsson fjármálaráðherra og frú, Hall- dór Ásgrímsson sjávarútvegsráðherra og frú, Jón Sigurðsson viðskipta- og iðnað- arráðherra og frú, Svavar Gestsson menntamálaráðherra, Guðmundur Jóns- son forseti hæstaréttar og frú, herra Ólafur Skúlason biskup og frú, Davíð Oddsson borgarstjóri og frú, dr. Sig- mundur Guðbjarnason háskólarektor og frú, Þorsteinn Pálsson alþingismaður og frú, Jóhannes Nordal Seðlabankastjóri og frú, Guðmundur Benediktsson ráðu- neytisstjóri og frú, Þorsteinn Ingólfsson ráðuneytisstjóri og frú, Helgi Ágústsson sendiherra og frú, Sturla Friðriksson fulltrúi World Wildlife Fund og frú, Magnús Magnússon fylgdarmaður her- togans, Sveinn Bjömsson skrifstofustjóri og frú, Kristín Einarsdóttir alþingismað- ur og eiginmaður, Komelíus Sigmunds- son forsetaritari og frú, Gunnar Dungal eigandi hrossabúsins Dals í Mosfellssveit og frú, William Waldegrave aðstoðarut- anríkisráðherra, Richard Best sendiherra og frú, hertogaynjan af Airlie hirðmey, sir William Heseltine einkaritari drottn- ingar, sir Paul Greening aðmíráll ráðs- maður, John Perlin einkaritari drottning- ar í ferð hennar til Kanada, sir Robert Fellowes aðstoðareinkaritari drottning- ar, Robin Janvrin blaðafulltrúi, Dominic Asquith einkaritari aðstoðamtanríkisráð- herra, John Garnier aðmíráll, skipherra á snekkjum drottningar. Davíð Oddsson borgarstjóri og eiginkona hans, frú Ástríður Thorar- ensen, taka á móti Elísabetu II. Bretadrottningu og Filippusi prins, hertoga af Edinborg, við Höfða. Heimsókn yðar eykur enn mikilvægi Höfða - sagði Davíð Oddsson við móttöku Elísabetar II. og Filippusar prins BRETADROTTNING og Filipp- us prins komu til móttöku borg- arstjórans í Reykjavík í Höfða um kl. 16.00 í gærdag. Davíð Oddsson borgarstjóri og firú Ástríður Thorarensen tóku á móti drottningunni og hertog- anum þegar þau stigu úr bifreið sinni við Höfða. Hinir tignu gestir rituðu í gestabók hússins, skoðuðu húsakynni og málverk og ræddu við gestina. „Þau voru einkar aðlaðandi og áhugasöm í hvívetna. Þau voru að sjálf- sögðu einkar virðuleg en virtist lagið að tala við fólk,“ sagði Davíð Oddsson borgarsljóri í samtali við blaðið að hófinu loknu. Viðstaddir móttökuna voru um 75 gestir, þeirra á meðal allir borg- arfulltrúar, fyrrverandi borgar- stjórar og forsetar borgarstjórnar, ýmsir embættismenn borgarinnar, fulltrúar forsetaskrifstofu, ut- anríkisráðuneytis, breska sendi- ráðsins og makar þeirra. Elísabet II. og Filippus prins gerðu sér far um að ræða við alla gestina. Með- an á móttökunni stóð var borið fram hvítvín, rauðvín og léttar veitingar. Borgarstjori ávarpaði gestina og sagði meðal annars: „Það er einnig ánægjulegt að taka á móti yðar konunglegu tignum í þessari byggingu, Höfða, sem tilheyrði einu sinni bresku krúnunni, þar sem hún er fyrrum bústaður breska sendiherrans. Margir land- ar yðar hafa verið gestir í þessu húsi. Þeirra þekktastur er eflaust stjórnmálaskörungurinn sir Wins- ton Churchill, sem snæddi hér hádegisverð fyrir 49 árum. Þessi litla bygging hefur í mörgu tilliti gegnt sögulegu hlutverki í þessu landi og nú hefur heimsókn yðar aukið enn gildi hennar og mikil- vægi.“ Móttakan stóð í 50 mínútur, en að því búnu héldu Elísabet II. og Filippus prins til snekkju sinnar við Ægisgarð. Drottningin og her- toginn rituðu nöfn sín í gestabók hússins. Þessi bók er bundin í geitaskinn, en fyrstu gestimir sem skrifuðu nöfn sín í hana voru Mik- haíl Gorbatsjov og Ronald Reagan forsetar Sovétríkjanna og Banda- ríkjanna, á leiðtogafundi þeirra Reykjavík. • • Oryggi drottningar: Kafari, sprengju- leit og; sérsveit ALLT tiltækt lögreglulið í Reykjavík hefúr eitthvað haft hönd í bagga við öryggisgæslu vegna heimsóknar Bretadrottningar hing- að til lands. Lítill kjarni sérsveitarmanna og breskra öryggisvarða fylgir drottningunni flest fótmál. Kafari hefúr leitað í höfninni við snekkju hennar hátignar, Brittaníu, og bátur Landhelgisgæslunn- ar er skammt undan. Um 280 lögreglumenn í Reykjavík hafa komið við sögu öryggisgæslu vegna heimsóknar Bretadrottningar. Menn úr vega- eftirliti og umferðardeild fylgja bifreiðum drottningar og Edin- borgarhertoga og lögregla stendur vörð á ýmsum stöðum sem gestirn- ir fara hjá. Þá er snekkju Elísabetar II. gætt nótt og dag og hefur kafari leitað í höfninni nokkrum sinnum. Jafnframt er gerð sprengjuleit á fólki og farangri sem um borð fer. Bátur Landhelgisgæslunnar er á siglingu utar í höfninni, en Ægisgarði og raunar Suðurbugt allri hefur verið lokað vegna heim- sóknarinar. Þorri þeirra lögreglumanna og öryggisvarða sem fylgja drottn- ingu eru óeinkennisklæddir að sögn lögreglu. Sama fyrirkomulag hefur verið við aðrar heimsóknir tiginna gesta að undanförnu. Til dæmis voru aðeins 6 öryggisverðir í lögreglubúningi af þeim 30 sem gættu páfa hvað best þegar hann kom hingað í fyrra. Lögregla segir afar mismunandi hve margir menn fylgi drottningu eftir, flestir hafi þeir líklega verið þegar hún gekk innan um mann- fjölda við Fríkirkjuveg eftir heim- sókn í Listasafnið í fyrradag. MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. JÚNÍ 1990 í Vinaskógi: I íramtíðiiini verða þetta stærstu trén sagði Bretadrottning eftir gróðursetninguna Morgunblaðið/Þorkell Forseti Islands og Bretadrottning gróðursettu hvor sína birkiplöntuna í Vinaskógi við Þingvelli í gær. Þeim til aðstoðar eru Kristinn Skæringsson skógarvörður og Hulda Valtýsdóttir formaður Skógræktar- félags Islands. „ÞETTA verða stærstu trén í skóginum,“ sagði Elísabet Bretadrottning glaðlega eftir að hún gróðursetti birkiplöntur með forseta Islands í Vinaskógi í gær. Skógarreiturinn í landi Kárastaða í Þingvallasveit var síðasti viðkomustaður bresku gestanna á ferð þeirra um ná- grenni Reykjavíkur. Bílalest gestanna kom að Vina- skógi sem svo hefur verið nefndur um tíu mínútum yfir þtjú. Þar er tæplega 30 hektara land sem áætl- að er að planta í um 10 þúsund tijáplöntum í sumar, en sendiráð erlendra ríkja á íslandi hafa nýlega gefið á aðra milljón króna til verks- ins; í Vinaskógi tóku á móti gestun- um þau Hulda Valtýsdóttir, formað- ur Skógræktarfélags íslands, Sig- urður Blöndal, fyrrverandi skóg- ræktarstjóri, Brynjólfur Jónsson, framkvæmdastjóri Skógræktarfé- lags íslands, og Kristinn Skærings- son, skógarvörður Skógræktar ríkisins á Suðvesturlandi. Vigdís Finnbogadóttir byijaði á því að sýna Bretadrottningu um 400 birkiplöntur sem sendiherrar er- lendra ríkja gi'óðursettu nýlega á þessum stað. Þær skoðuðu aðeins villtan gróður í skógarreitnum og gróðursettu síðan hvor sína birki- plöntuna með aðstoð ofangreindra aðila. Plönturnar eru báðar 116 sentimetra háar. Bretadrottning sýndi gróðursetn- ingunni mikinn áhuga og virtist leggja sig fram um að vanda vel til verksins. Hún er fyrsti erlendi þjóðhöfðinginn sem gróðursetur tré á þessum stað. Að verkinu loknu var henni sýnflega skemmt, en þá hió hún við og varð að orði að þess- ar plöntur yrðu í framtíðinni stærstu trén í skóginum. Ljósmynd/Árni Bjarnason Bretadrottning bauð til kvöldverðar og móttöku í snekkju sinni, Brittaniu í gærkvöldi. Myndin af drottningu, forseta og hertoga var tekin við það tækifæri. Hátt í 300 gestir um borð í Britanníu BRETADROTTNING og eiginmaður hennar héldu kvöldverðarboð til heiðurs forseta íslands um borð í snekkjunni Britanníu í gær- kvöldi. Eftir kvöldverðinn hélt drottningin og hertoginn móttöku fyrir um 225 gesti um borð í skipinu. Kvöldverðurinn hófst klukkan 20, í hátíðarsal snekkjunnar. Elísa- bet II. og Filippus prins sátu við háborð ásamt forseta íslands, ráð- herrum úr ríkisstjórn íslands, for- seta Sameinaðs Alþingis, breska sendiherranum, aðstoðarutanríkis- ráðherra Breta, einkaritara drottn- ingar og hertogaynjunni af Airlie. í hópi annarra gesta voru biskupinn yfir íslandi, háskólarektor, forseti hæstaréttar, formenn stjórnmála- flokka á Alþingi og breskir og íslenskir embættismenn. Gestir í veislunni voru 56 talsins. Elísabet II. drottning bar smá- kórónu á höfði setta safírum og demöntum. Hún var klædd í kjól úr hvítu siffonni, með gylltum út- saumi og bar demantshálsmen og -eyrnalokka. Kjólinn hannaði Ian Thomas. í forrétt gæddu gestir sér á sand- hverfuflökum „Bréval". Aðalréttur var úrbeinuð kjúklingabringa með mangó, gufusoðnum spergli, París- arkartöflum og salati. Þá var borin fram eftirréttur, hindbeija ísfrauð. Undir borðum lék liljómsveit skips- ins tónlist eftir ýmsa höfunda, frá ólíkum tímabilum, meðal annars eftir Mozart, Sullivan og Lloyd Webber. Að kvöldverðinum loknum, laust eftir klukkan 22, hófst móttaka fyrir um 225 gesti um borð í snekkj- unni. Meðal gesta voru ýmsir embættismenn ríkis og Reykjavík- urborgar, framámenn í viðskiptalífi og fjölmiðlun, ræðismenn, sendi- herrar og makar þeirra. Veislunni lauk um klukkan 23, með því að lúðrasveit skipsins sté á bryggju og lék heiðurssyrpu fyrir veislugesti. Þessi athöfn nefnist á ensku „Beating retreat“, sem út- leggst bókstaflega „hop við trumbu- slátt“. Þessi siður byggir á alda- gamalli hefð sem fólst í því að trum- buslagarar söfnuðu hermönnum til búða sinna þegar húmaði að kvöldi. Lagasyrpunni lauk með því að fán- ar á skipinu voru dregnir niður og þjóðsöngvar ríkjanna beggja voru leiknir. Töluverður mannfjöldi var á bryggjunni og fylgdist með at- höfninni, sem lauk um klukkan 23.30. Gestir í móttöku um borð í Britaimíu BRETADROTTNING og eiginmaður hennar veittu inóttöku gestum um borð í snekkjunni Britanníu í gærkvöldi, að loknum kvöldverði. Listi yfír gestina fer hér á eftir: Ungfrú Ástríður Magnúsdóttir, Guð- mundur Bjarnason heilbrigðisráðherra, Óli Þ. Guðbjartsson dóms- og kirkjumálaráð- herra og frú, Hannes Hafstein sendihena og frú, Hörður H. Bjarnason siðameistari utanríkisráðuneytisins og frú, Matthías Á. Mathiesen alþingismaður og frú, Jóhann Einvarðsson alþingismaður og frú, Böðvar Bragason lögreglustjóri og frú, Árni Sigur- jónsson aðstoðarlögreglustjóri og frú, Guðni Bragason sendiráðsritari og frú, Sigríður Gunnarsdóttir aðstoðarmaður siðameistara, Aðalsteinn Maack fulltrúi húsameistara ríkisins og frú, Davíð Á. Gunnarsson for- stjóri ríkisspítalanna og frú, Gunnar Berg- steinsson forstjóri Landhelgisgæslunnar og frú, Ólafur Jónsson og frú, Hannes Valdi- marsson hafnarstjóri og frú, Pétur Guð- mundsson flugvallarstjóri og frú, Þorgeir Þorsteinsson lögreglustjóri og frú, Jóhann Jóhannsson forstöðumaður útlendingaeftir- litsins og frú, Jóhann H. Jónsson fram- kvæmdastjóri og frú, Jón Helgason forseti efri deildar og frú, Árni Gunnarsson forseti neðri deildar og frú, Ólafur O. Johnson fram- kvæmdastjóri og frú, Garðar Cortes óperu- söngvari og frú, Sigfús Sigfússon fram- kvæmdastjóri Heklu og frú, Orri Vigfússon framkvæmdastjóri Sporti og frú, Magnús L. Sveinsson forseti borgarstjórnar og frú, Sigurður Þorgrímsson hafnsögumaður og frú, Katrín Fjeldsted sendiráðslæknir og eig- inmaður, Thomas F. Hall aðmíráll, yfirmað- ur herstöðvarinnar á Keflavíkurflugvelli og frú, R. Perkins aðstoðaryfírmaður herstöðv- arinnar og frú, Lars-Ake Engblom forstöðu- maður Norræna hússins og frú, Bera Nor- dal forstöðumaður Listasafns íslands og eig- inmaður, Jónas Kristjánsson forstöðumaður Stofnunar Árna Magnússonar og frú, Ás- björn Björnsson forstöðumaður kirkjugarðs- ins í Fossvogi og frú, Pétur Einarsson flug- málastjóri og frú, Haukur Hauksson vara- flugmálastjóri og frú, Ólafur Tómasson póst- og símamálastjóri og frú, Friðrik Ólafsson skrifstofustjóri Alþingis og frú, séra Karl Sigurbjörnsson og frú, séra Amgrímur Jóns- son og frú, séra Alfred J. Jolson biskup kaþólska safnaðarins, Haraldur Haraldsson formaður Félags íslenskra stórkaupmanna og frú, Björgvin Vilmundarsson bankastjóri Landsbanka og frú, Valur Valsson banka- stjóri Landsbanka og frú, Ólafur B. Thors formaður stjórnar Seðlabankans og frú, Jón H. Bergs aðalræðismaður Kanada og frú, Þór Magnússon þjóðminjavöi*ður og frú, Sig- urður Bjamason sendiherra og frú, H.H. Haferkamp sendiherra Þýska sambandslýð- veldisins og frú, Sveinn Björnsson, við- skiptaskrifstofu utanríkisráðuneytisins, og frú, Halldór Jónatansson forstjóri Lands- virkjunar og frú, Leifur Breiðfjörð glerlista- maður og frú, Kristján Ragnarsson formað- ur LÍÚ og frú, Sveinn Einarsson dagskrár- stjóri og frú, Vigdís Bjamadóttir deildar- stjóri forsetaskrifstofu og eiginmaður, Vil- borg G. Kristjánsdóttir fulltrúi á forseta- skrifstofu og eiginmaður, Markús Örn Ant- onsson útvarpsstjóri og frú, Indriði G. Þor- steinsson ritstjóri Tímans og frú, Óli Kr. Sigurðsson forstjóri Olíuverslunar íslands og frú, Indriði Pálsson forstjóri Skeljungs og frú, Guðjón B. Ólafsson forstjóri SIS og frú, Sigurður Helgason stjórnarformaður Flugleiða og frú, Sigurður Helgason for- stjóri Flugleiða og frú, séra Heimir Steins- son og frú, séra Bragi Friðriksson og frú, Lúðvík Geirsson formaður Blaðamannafé- lags íslands og frú, Aðalsteinn Jónsson vara- ræðismaður Bretlands og frú, Guðrún Agn- arsdóttir alþingismaður og eiginmaður, Ragnar Borg ræðismaður og frú, Tony Welch fyrrverandi radartæknir og frú, Gísli Alfreðsson Þjóðleikhússtjóri og frú, Halldór Snorrason framkvæmdastjóri Light Nights og frú, Árni Bergmann ritstjóri Þjóðviljans og frú, Björn Bjarnason aðstoðarritstjóri Morgunblaðsins og frú, Gunnar Dyrset sendiráðstannlæknir og frú, Frank Ponzi listfræðingur og frú, Vilhjálmur Egilsson framkvæmdastjóri Verslunarráðs Islands og fní, Stella Hálfdánardóttir íslenskukennari, Einar Halldórsson forstjóri Kringlunnar og frú, Haraldur J. Hamar ritstjóri Iceland Review og frú, Þorvaldur Gylfason, stjórn íslensku ópemnnar, og frú, Gunnar Kristins- son forstjóri Hitaveitu Reykjavíkur og frú, Jón T. Olgeirsson ræðismaður í Grimshy og frú, Niels P. Sigurðsson sendiherra og frú, R.H.G. Mitchell sendiherra Kanada og frú, Hallmar Sigurðsson leikhússtjóri LR og-frú, Sigþrúður Friðriksdóttir ráðskona sendiráði og eiginmaður, Páll Magnússon fréttastjóri Stöðvar tvö og frú, Albert Jónsson starfs- maður Öryggismálanefndar og frú, Bogi Ágústsson fréttastóri RÚV og frú, Kári Jónasson fréttastjóri RÚV og frú, Guðmund- ur Matthíasson framkvæmdastjóri flugum- ferðarþjónustu og frú, Skúli Þorvaldsson hótelstjóri Hótels Holts og frú, Pálmi Jóns- son forstjóri Hagkaupa og frú, Jóhannes Ingólfsson framkvæmdastjóri Reykjavíkur- hafnar og frú, Jón Þorvaldsson yfíiwerk- fræðingur Reykjavíkurhafnar og frú, Jónas Hvannberg aðstoðarhótelstjóri Hótels Sögu, Björn Friðfínnsson skrifstofustjóri viðskipta- ráðuneytis og frú, Páll Flygenring skrif- stofustjóri iðnaðarráðuneytis og frú, Sverrir 'Sigfússon framkvæmdastjóri Heklu og frú, Einar Sigurðsson yfirbókavörður Háskóla- bókasafns og frú, Stefán Friðfínnsson að- stoðarmaður utanríkisráðherra og frú, Ólaf- ur Egilsson sendiherra og frú, Páll Tryggva- son, utanríkisráðuneyti, og frú, George Jo- hnson fylkisstjóri Manitoba og frú. Frá Breska sendiráðinu: Alper Mehmet sendiráðsritari og frú, Caroline Gibson sendiráðsritari, Barry Ross skjalavörður, Carole Mitchell aðstoðarmaður, Örn Valdi- mai*sson viðskiptafulltrúi og frú, Phil Lead- better fulltrúi Konunglega breska flughers- ins og frú. Úr áhöfn HMS Penelope: Nigel Bray, Andrew Davies, David McKenzie, Iain Ca- meron og Stephen Chaston. _____________________2Í Arsfiindur Osló- arsamningsins: Samkomulag um bann við brennslu úr- gangseftia á hafi úti Á ÁRSFUNDI Oslóarsamnings- ins um varnir gegn mengun sjáv- ar, sem lauk í Reykjavík á laug- ardaginn, var ákveðið að brennslu úrgangsefna á liafi úti verði hætt fyrir árslok 1991. Þá var einnig ákveðið að hætt verði að varpa iðnaðarúrgangi í hafið eigi síðar en 31. desember 1992, og sainkomulag náðist uin að öll aðildarríki samningsins hætti að losa úrgang frá skolphreinsi- stöðvuin í hafíð fyrir árslok 1998. Magnús Jóhannesson siglinga- málastjóri sagði í samtali við Morg- unblaðið áð hann teldi mjög mikil- vægt að bann við brennslu úrgangs- efna á hafinu hefði náðst á árs- fundi Oslóarsamningsins. „Meng- unarefni frá slíkri brennslu hafa borist víða, bæði með andrúmsloft- inu og sjávarstraumi, og þar haf^ komið fram efni sem eru þrávirk í umhverfinu. í fyrra fannst til dæm- is díoxín í íslensku þorskalýsi, og þótti margt benda til þess að efnið hefði komið úr slíkri brennslu frek- ar en úr frárennsli frá pappírsiðn- aði.“ Á ársfundinum greindi Júlíus Sólnes umhverfisráðherra frá því að hér á landi væri stefnt að því að hætta að sökkva skipum í sjó, en að sögn Magnúsar fellur það undir Oslóarsamninginn. „Sökkvuri þessara skipa hefur verið gerð í fullu samráði við ákvæði samnings- ins þó þetta sé ekki flokkað sem hættulegur úrgangur. Þetta hefur fallið undir ákvæði í samningnum er fjallar um rúmfrekan úrgang, sem gæti' haft áhrif á lögmæta notkun hafsins, eins og til dæmis að skipum sé ekki sökkt þar sem menn stunda fiskveiðar eða aðra nýtingu hafsins. Ekki hefur verið um mjög mikið af þessu að ræða hjá okkur, en á undanförnum tíu árum hefur að meðaltali verið sökkt 3-4 skipum á ári.“ Að sögn Magnúsar fyrirsjáanlegt að gildi Oslóarsamningsins muni minnka mjög á næstu árum, þar sem þær aðgerðir sem hann var t upphafi settur til að hafa stjórn á eru nánast að leggjast af. Næstu ársfundir Parísar- og Oslóarsamn- inganna verða haldnir í Berlín að ári liðnu, og ráðherrafundir verða síðan haldnir í Frakklandi 1992. Grindavík: Góð veiði á eldislaxi Grindavík. GÓÐ laxveiði liefur verið það sem af er sumri í lóninu við Laxeldi Grindavíkur. Þar er laxi sleppt reglulega og þeir stærstu hafa verið um 14 pund. Að sögn Árna Vals Þórólfssonar hjá Laxeldi Grindavíkur hafa komið 412 laxar á land frá miðjurn maí. Hann sagði þeir sem hafi komið séu ánægðir með veiðina og fiskurinn er stærri heldur en síðasta sumar. „Menn fá_ meira á flugu en áð* ur,“ sagði Árni, „nú nýlega fékk einn veiðimaður 9 laxa á flugu.“ Árni sagði einnig að í júlí væri í bígerð að bjóða upp á hópafslátt fyrir stærri hópa eða fyrirtæki sem taka sig saman. „Það er nægur fiskur í vatninu hjá okkur og þeir sem koma verða yfirleitt varir,“ sagði Árni að lokum. FÓ

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.