Morgunblaðið - 27.06.1990, Side 32

Morgunblaðið - 27.06.1990, Side 32
32 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. JÚNÍ 1990 Minning: Sigfús Magnússon fískmatsmaður Fæddur 13. júlí 1905 Dáinn 19. júní 1990 í dag, miðvikudaginn 27. júní kl. 13.30, verður jarðsunginn frá Víði- staðakirkju í Hafnarfirði Sigfús Magnússon, fiskmatsmaður. Sigfús Sigmar Magnússon, eins og hann hét fullu nafni, var borinn ogbarnfæddur Hafnfirðingur og var' þai' búsettur lengst af ævi sinnar. Foreldrar hans voru Magnús Jó- hannesson, verkstjóri og bæjarfull- trúi þar í bæ, og eiginkona hans, Jóhanna Bergsteinsdóttir. Magnús var frammámaður í Firðinum í sinni tíð. Brautryðjandi og forystumaður í verkalýðshreyfingunni og bæjar- málum, en formaður verkamanna- félagsins Hlífar var hann á árunum 1913 til 1915 og bæjarfulltrúi 1914 til 1916. Sigfús kvæntist Ástu Ásbjörns- dóttur frá Hellissandi árið 1931. Þau eignuðust sex börn: Sverrir, bankaútibússtjóri, kvæntur Sól- veigu Þórðardóttur, Baldur, húsa- smiður, kvæntur Elsu Hönnu Ágústsdóttur, Jóhanna, gift Birni Helga Björnssyni, Magnús, húsa- smiður, kvæntur Auðdísi Karlsdótt- ur, Ásbjörn, læknir, kvæntur Jó- hönnu Björnsdóttur, Hólmfríður, gift Birni Þór Egilssyni. Þá ólu þau upp Hólmfríði Jónasdóttur, systur- dóttur Ástu, eiginkonu Sigfúsar, sem gift er Sigurði Guðjónssyni. Sá sem þessar línur ritar átti því láni að fagna að vinna sem Sigfúsi um árabil. Fyrst var það í sumar- vinnu á námsárunum, árlega frá 1938 til 1948 við fiskveiðar á togur- um, þegar afla var svo til eingöngu landað á erlendum mörkuðum, að minnsta kosti á sumrum. Þá hófust kynni sem ég nú minnist með mik- illi ánægju og þakklæti. Um árabil stundaði Sigfús sjó- mennsku, aðallega á þeim skipum sem hér skulu nefnd: Um skeið var hann á hafnfirska Bæjarútgerðar- togaranum Maí undir skipstjórn Benedikts Ögmundssonar. Þegar Bæjarútgerðin keypti síðar annan togara, Júní, fluttist hann þangað með Þorsteini Eyjólfssyni, sem þar tók við skipstjórn eftir stýrimanns- störf á Maí. Þaðan fór hann á togar- ann Óla Garða, sem keyptur var til Hafnarfjarðar, með Baldvini Hall- dórssyni, sem þá hafði um skeið verið skipstjóri á Júní, og svo með honum á nýsköpunartogarann Bjarna riddara þegar hann kom nýr til landsins árið 1947, en Sigfús var þá orðinn bátsmaður. Mér er minnisstætt að hlusta á tal föður míns og Ásgeirs frænda, forstjóra togarafyrirtækisins, skömmu áður en ég lagði upp í fyrstu togaraferðina ungur að árum, aðeins 13 ára. Ræddu þeir um, að rétt væri og nauðsynlegt að einhver hefði sérstakt auga með drengnum unga. Ákveðið var að tala um það við Fúsa Magg, en undir því nafni gekk Sigfús gjarnan í Firðinum meðal vina og kunn- ingja. Segir þetta sína sögu um það álit og traust sem hann þá þegar hafði áunnið sér, en hann var þá ekki orðinn yfírmaður á togara. Það var samdóma álit allra sem til þekktu, að Sigfús væri afburða togarasjómaður, hörkulegur, kunni til allra verka út í ystu æsar á dekki á togara, útsjónarsamur, handlag- inn og handfljótur. Sem stjórnandi á dekkinu var hann öruggur og traustur. Hann naut virðingar þeirra sem með honum unnu, ekki síst hásetanna sem voru undir hans stjórn eftir að hann varð bátsmað- ur. Jafnframt var hann einkar vin- sæll meðal þeirra, þótt beita þyrfti stjórnsemi á stundum, éins og gefur að skilja, enda gat hann verið hrók- ur alls fagnaðar, hafandi góða frá- sagnar- og kímnigáfu og á taktein- um ýmis konar kveðskap sem hann gat kastað fram án nokkurrar fyrir- hafnar. Óbilandi dómgreind hans, æðru- leysi og rósemi, jafnvel við erfiðar og andsnúnar kringumstæður, og tillitssemi gagnvart undirmönnum var þannig, að ekki gleymist. Eftir að ég hætti að stunda sjó- inn lágu leiðir okkar Sigfúsar ekki mikið saman um nokkurra ára skeið. En það átti eftir að breytast. Hann mun hafa farið í land um 1955 og fór fljótlega upp úr því að vinna við fiskmat í Hafnarfirði, en árið 1956 var hann kallaður til að sinna stærri verkefnum á vegum Fiskmats ríkisins. Var hann gerður að yfirfiskmatsmanni 1966 og 1968 varð hann yfirmaður þeirrar deildar sem hafði með höndum yfirstjórn á mati saltfisks og skreiðar á vegum ríkisins. Því starfi gegndi hann til sjötugs. En Sölusamband ísl. fisk- framleiðenda óskaði eftir að hann héldi áfram eftirlits-, leiðbeininga- og kennslustörfum vegna gæða- mats á saltfiski á þess vegum svo lengi sem hann treysti sér til og gæti, og það mun hann hafa gert til ársins 1987. Slíkan starfa hafði hann m.a. á sinni könnu hjá Fisk- mati ríkisins ásamt sams konar starfi vegna gæðamats skreiðar. Þá mun hann hafa sinnt kennslu- störfum hjá Fiskvinnsluskólanum og á námskeiðum Fiskmats ríkisins. Á þeim starfsvettvangi sem hér hefur verið nefndur hófust sam- skipti okkar á nýjan leik. Eins og verða vill í kaupsýslu og viðskiptum, svo sem eins og við sölu afurða á erlenda markaði, kemur fyrir, að seljendur og kaupendur deila um gæði, söluverð og þyngd. Við slíkar aðstæður kemur fyrir að opinberir aðilar eru kallaðir til að greiða fyr- ir lausn mála. Einkum undir þess háttar kringumstæðum lágu leiðir okkar saman að nýju. Voru þau samskipti öll hin ánægjulegustu, þótt afskipti af deilumálum séu í sjálfu sér óskemmtileg viðfangs- efni. Ekki aðeins varð ég var við mik- ið traust sem menn hér heima á íslandi báru til Sigfúsar á starfs- sviði hans í landi, heldur varð ég vitni að því erlendis, er við vorum þar saman í embættiserindum, að þar var hann þekktur og virtur meðal kaupenda saltfisks og skreið- ar vegna framlags hans í gæðamál- um sjávarafurða. Hann hafði þann- ig unnið sér traust útlendinga vegna starfa sinna á þeim vettvangi, svo mikilvægt sem slíkt er fyrir farsæla markaðssetningu afurðanna. Segja má, að á orð Sigfúsar væri litið sem Iög, þegar um gæða- mál saltfisks og skreiðar var að ræða, sem m.a. lýsir sér í því, að þeir, sem með honum unnu eða undir hans stjórn voru settir í þess- um málum, höfðu gjarnan á orði sín á milli í góðlátlegu gamni og sjálfsagt einnig í nokkurri alvöru að Fúsi Magg væri „Guðfaðirinn" á vettvangi umræddra sjávaraf- urða. Segir það auðvitað sitt um það traust sem til hans var borið vegna þekkingar og góðrar dóm- greindar á umræddu sviði. Þegar Sigfús er kvaddur hinstu kveðju koma í hugann ýmsar ljúfar endurminningar af samskiptum og samveru okkar á lífsleiðinni. Þær eru margar og margvíslegar, af sjónum og í landi, frá ferðum til Bretlands með togara á stríðsárun- um, og til Þýskalands strax eftir stríðið og síðar nokkrum sinnum til Ítalíu í embættiserindum. Með þessum orðum vil ég kveðja vin minn Sigfús Magnússon með virðingu og þökk fyrir samfylgdina. Ég votta Ástu, börnunum og fjöl- skyldunni allri, samúð mína. Stefán Gunnlaugsson Mig langar með örfáum orðum að minnast elsku afa míns, Sigfúsar Magnússonar, er varð bráðkvaddur á heimili sínu 19. júní sl. Þrátt fyr- ir háan aldur var afi mjög ern, og bar aldur sinn vel. Hann var mjög glaðlyndur og hlýr persónuleiki. Alltaf var mjög gaman að koma í heimsókn til afa og ömmu í Boða- hlein, og ekki var tilhlökkun lang- afabarnanna minni, þar sem hann gaf þeim alla sína athygli, og þau fengu virkilega að njóta sín, og nú verður erfitt fyrir þau að skilja af hvetju Fúsi afi er ekki lengur til staðar fyrir þau. Nú er afa sárt saknað af sínum nánustu, en nú hefur hann naustað sinni knörr og hrindir ekki aftur fram. Elsku amma megi góður kraftur gefa þér styrk í þinni miklu sorg. Ásta Björk og fjölskylda Hann afi, Sigfús S. Magnússon, er dáinn. Þegar ég fékk þessar fréttir í hádeginu þriðjudaginn 19. júní varð ég undrandi. Þegar manni sem aldrei hafði kennt sér meins er kippt í burtu á einu augnabliki fyllist maður söknuði og eftirsjá. Eftirsjá eftir afa sem gaf sér tíma til að sitja með mig tímunum saman í fanginu, afa sem aldrei hækkaði róminn þótt eitthvað bæri útaf, afa sem tók mig með sér að taka upp kartöflur og sagði mér sögur á meðan ég sat og horfði á hann hnýta netin. Eftir því sem ég eltist sá ég betur hvern gæðamann hann hafði að geyma. Fyrir stuttu var ég að hjálpa honum við að helluleggja á meðan hann vann í kartöflugarðinum. Og þótt hann hafi ekki náð upp- skerunni að þessu sinni þá hefur hann á langri ævi uppskorið mikið og látið margt gott af sér leiða. Síðustu árin hefur hann ásamt ömmu búið að Boðahlein 10 við Hrafnistu í Hafnarfirði og átt þar góð efri ár. Ég kveð afa með söknuði og þakka honum samfylgdina. Hjörtur Þegar mér var sagt frá því að Fúsi afi minn væri dáinn trúði ég því ekki. Hann var svo stór og sterk- ur í mínum augum og ég hafði ekki getað ímyndað mér að hann gæti dáið. Núna verð ég þó að sætta mig við dauða hans þó það sé mjög sárt og erfitt. Núna þegar hann er farinn finn ég hve mikla þýðingu hann hafði fyrir mig. Ég á ótal margar góðar minningar um afa minn. Sárt þykir mér að litlu systkinin mín fái ekki sama tæki- færi og ég að kynnast indæla afa okkar sem var alltaf svo lífsglaður. Ég ætla því að reyna að gefa þeim hluta af mínum minningum. Ég þakka Guði fyrir svona góðan afa og bið hann um að veita ömmu minni styrk. Jenný Rut Mig langar með fáum orðum að kveðja elsku afa minn, Sigfús Sig- mar Magnússon, sem svo skyndi- lega var kallaður frá okkur. Ekki grunaði mig er ég og dóttir mín heimsóttum afa og ömmu að- eins tæpum þrem sólarhringum áður en hann lést að þetta væri í síðasta sinn sem ég sæi Mann. Full- ur af lífsþrótti eltist hann við dóttur mína úti sem inni og lék á als oddi, því ávallt hafði hún Fúsa langafa frá mörgu að segja. Afi hafði sérstakt lag á börnum og hændust þau öll að honum. Oft er ég spurði börnin mín hvert við ættum að fara var svar þeirra beggja: „til Fúsa langafa og langömmu.“ Eg hef orðið þeirrar gæfu aðnjót- andi að búa ætíð skammt frá afa og ömmu og á heimili þeirra hefur ávallt verið jafn gott að koma og vel tekið á móti mér. Þaðan á ég margar góðar minningar og sér- staklega hin fjölmennu jólaboð á jóladag þegar öll barnabörnin hitt- ust og þá var glatt á hjalla. Hin síðari ár. eru mér ógleymanlegar þær stundir er við sátum yfir kaffi- bolla og ræddum um allt milli him- ins og jarðar. Því afi hafði frá svo mörgu að segja og sagði svo skemmtilega frá, enda var hann mikill fróðleiksmaður og fylgdist vel með samtímanum. _ Elsku amma mín. Ég, Ási, og krakkarnir biðjum Guð að styrkja þig í sorg þinni og söknuði. Við söknum hans öll. Sigrún t Eiginmaður minn, HALLGRÍMUR SIGTRYGGSSON, Nökkvavogi 22, Reykjavík, lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli aðfaranótt 26. júní. Fyrir hönd aðstandenda, Kristín Sigurðardóttir. )i t RAGNAR Ó. ÓLAFSSON, Austurbrún6, er látinn. Fyrir hönd aðstandenda, Kristján E. Þórðarsson, Unnur Oddsdóttir. t Hjartkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, SIGRÍÐUR BJARNADÓTTIR, ^ Miðtúni 8, Reykjavík, lést í Landspítalanum 25. júní. Eðvald Hinriksson, Jóhannes Eðvaldsson, Atli Eðvaldsson, Steinunn Guðnadóttir, Anna Eðvaldsdóttir, Gísli Guðmundsson, Bjarni Jónsson, Alda Sigurðardóttir og barnabörn. t Faðir okkar, tengdafaðir og afi, HJÁLMAR GUNNAR STEFÁNSSON verslunarmaður, 4 Safamýri 57, Reykjavík, lést í Landspítalanum fimmtudaginn 21. júní. Útförin fer fram ,frá Háteigskirkju föstudaginn 29. júní kl. 15.00. María Helga Hjálmarsdóttir, Ágúst Þorsteinssón, Ingibjörg Unnur Hjálmarsdóttir, Lars Holm, Edda Elín Hjálmarsdóttir, Sigmar Sigurðsson og barnabörn. ■ t y, Minningarathöfn um elskulegan son okkar og bróður, REYNI FREY ÖLAFSSON, Mánagötu 27, Grindavik, sem féll fyrir borð af m/b Hafliða GK 140 26. apríl sl., fer fram i Grindavíkurkirkju laugardaginn 30. júní kl. 15.30. Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á björgunarsveitina Þor- björn, Grindavík. K Ólafur Guðbjartsson, Anna Kjartansdóttir, Heiðbjört Ólafsdóttir, Páll Ólafsson, Ómar Davið Ólafsson. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu, langömmu og langa- langömmu, SVEIIMBJARGAR ORMSDÓTTUR, Garðavegi 6, Keflavík. Sérstakar þakkir færum við læknum og öðru starfsfólki sjúkra- hússins í Keflavík. Vilborg Eiríksdóttir, Július Eiríksson, Fjóla Eiríksdóttir, Svéinbjörn Eiríksson, Eirikur Eiríksson, Sigrún Eiríksdóttir, Sigurður K. Eiríksson, Hildur Eiríksdóttir, Reynir Eiríksson, barnabörn, Þurfður Þórarinsdóttir, Rannveig Guðmundsdóttir, Þóra Hjelm, Guðrún Lárusdóttir, Andreas Færseth, Sigurður Guðjónsson, Kristín Hermannsdóttir, barnabarnabörn og barnabárnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.