Morgunblaðið - 27.06.1990, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 27.06.1990, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 27. JÚNÍ 1990 41 HANDKNATTLEIKUR / LANDSLSÐIÐ Þurfum að sjá hvar við stöndum - segirÞorbergurAðalsteinsson, lands- liðsþjálfari. Jakob tekur við tyrirliðastöðunni ÍSLENSKA landsliðið í hand- knattleiktekur þátt í fyrsta móti sínu undir stjórn Þorbergs Aðalsteinssonar. Það erfjög- urra þjóða mót sem hefst í Hafnarfirði á morgun. Auk ís- lendinga eru mætttil leiks sterkustu lið Danmerkur, Nor- egs og Kuvait. etta er mjög mikilvægt mót fyrir landsliðið. Við erum að reyna að-byggja upp nýtt lið fyrir B-keppnina og þurfum að sjá hvar við stöndum. Þess vegna er gott að leika við Dani og Norðmenn sem eru með lið sem þeir ætla að nota í B-keppninni,“ sagði Þorbergur Aðalsteinsson, þjálfari íslenska landsliðsins. „Liðið hefur ekki æft nema í tæpar þijár vikur en mér líst vel á mótið. Það er góð stemmning í hópnum og mikill hugur í liðinu,“ sagði Þorbergur. Jakob Sigurðsson tekur við fyr- irliðastöðunni. Sigurður Sveinsson, sem var fyrirliði í leikjunum í Nor- egi, gefur ekki kost á sér í liðið. Magnús Sigurðsson, eini nýliðinn í hópnum, tekur stöðu Sigurðar í sókninni og leikur líklega stærsta hluta mótsins. Fimm markverðir eru í hópnum og hafa þeir verið á sérstökum æfingum hjá Einari Þorvarðarsyni, aðstoðarþjálfara landsliðsins. „Þeir hafa staðið sig vel og við erum að reyna að byggja markverðina upp fyrir B-keppnina. Þeir eru fimm og því verður meiri samkeppni og barátta á milli þeirra,“ sagði Þor- bergur. ísland mætir Kuvait í fyrsta leiknum og sagðist Þorbergur hovkri þekkja haus né sporð á lið- inu. „Við þekkjum lið Noregs og Danmerkur og eigum von á góðum leikjum af þeirra hálfu,“ sagði Þorbergur. íslendingar mæta svo Norð- mönnum á föstudaginn og síðasti leikurinn verður á laugardaginn gegn Dönum. Allir leikirnir fara fram í nýja íþróttahúsinu í Kapla- krika. Lið íslands í mótinu er skipað eftirtöldum leikmönnum: Markverðir: Hrafn Margeirsson, Víkingi........... 24 Guðmundur Hrafnkelsson, FH........... 93 Leifur Dagfinnsson, KR............... 10 Páll Guðnason, Val.................... 2 Bergsveinn Bergsveinsson, FH.......... 2 Aðrir leikmenn: Birgir Sigurðsson, Víkingi........... 33 Jakob Sigurðsson, Val................177 Bjarki Sigurðsson, Víkingi........... 79 ValdimarGrímsson, Val................ 74 Gunnar Gunnarsson, Ystad.............. 8 Óskar Ármannsson, FH................. 33 Sigurður Bjarnason, Stjörnunni........ 6 Konráð Olavsson, KR.................. 14 Héðinn Gilsson, FH................. 70 Geir Sveinsson, Granollers...........167 Magnús Sigurðsson, HK................. 0 Gunnar Beinteinsson, FH.............. 19 Július Jónasson, Paris Asnieres......121 Ólafur Gylfason, ÍR................... 2 Morgunblaðið/Einar Falur Jakob Sigurðsson tekur við fyrirliðastöðu íslenska landsiðsins. IMorðmenn og Danir mætamed sterk lið Danir og Norðmenn mæta til leiks á fjögurra þjóða mótið í Hafnarfirði með mjög sterk lið. Þeir eru að undirbúa sig fyrir B- keppnina í Austurríki og allir bestu leikmenn liðanna eru með. í liði Dana má m.a. nefna Erik Veje Rasmussen, Otto Mertz, Lars Lundbye, Claus Bo Munkdal og Michael Fenger en þessir leikmenn eiga flestir um eða yfir hundrað landsleiki að baki. Erik Veje Rasmussen er líklega þekktastur dönsku leikmannanna og jafnfram elstur, 31 árs. Hann hefur gert 701 mark í 176 lands- leikjum. Helstu tromp Noi'ðmanna eru tveir leikmenn úr vestur-þýsku úr- valsdeildinni. Roger Kjendalen, sem leikur með Schutterwald og Rune Erland, sem leikur með Gummers- bach. Norðmönnum hefur gengffr vel að undanförnu og sigruðu m.a. í C-keppninni þar sem þeir lögðu Þjóðveija að velli. „Þetta eru sterk lið og skemmti- leg. Mér líst sérstaklega vel é norska liðið sem er ungt og efni- legt. Norðmenn ákváðu að byggj; upp nýtt lið fyrir tveimur árum o[ það er að skila sér nú,“ sagði Þor- bergur Aðalsteinsson. „Það samj má segja um Dani, þeir hafa yngt upp í liðinu og sett stefnuna á lit—. keppnina í Austurríki," sagði Þor- bergur. íslendingar í erfiðum riðli Mæta Júgóslavíu, Spáni og Suður-Kóreu á Friðarleikunum Islendingar eru í erfiðum riðli á Friðarleikunum sem fara fram í Seattle í Bandaríkjunum í lok júlí. íslendingar mæta Spánveij- um, Júgóslövum og Suður:Kóreu- mönnum í riðlakeppninni. í hinum riðlinum leika Sovétríkin, Tékkó- slóvakía, Bandaríkin og Japan. íslendingar voru í riðli með Spánveijum og Júgóslövum í heimsmeistarakeppninni í Tékkó- slóvakíu og töpuðu fyrir báðum þjóðunum, og töpuðu reyndar einnig fyrir Sovétmönnum. Þorbergur Aðalsteinsson, þjálf- ari íslenska landsliðsins, hyggst nota sama lið og í mótinu í Hafn- arfirði og gefa yngri leikmönnum liðsins tækifæri til að afla sér mikilvægrar reynslu. HANDKNATTLEIKUR / KVENNALANDSLIÐ Morgunblaðið/Sverrir íslenska kvennalandsliðið í handknattleik fer í dag til Portúgals þar sem liðið mun taka þátt í alþjóðlegu móti Þaðan liggur leiðin til Spánar á annað slíkt mót. TENNIS Wimbledon: John McEnroe úr leik - tapaðióvæntí tyrstu umferð á Wimbledon JOHN McEnroe, þrefaldur Wimbledonmeistari ítennis, tapaði óvænt í fyrstu umferð á Wimbledonmótinu ígærkvöldi fyrir landa sínum Derrick Rostagno. Það voru reyndar ekki einu óvæntu úrslitin í gær því Andres Gomez, nýkrýndur sigurvegari Opna franska meistaramótsins, tapaði fyrir Bandaríkjamanninum Jim Grabb. McEnroe, sem er í fjórða sæti heimsafrekalistans, átti ekk- ert svar við kröftugum leik Rostagno og tapaði 7:5, 6:4 og 6:4. Rostagno sem er 24 ára var á síðasta ári nálægt því að sigra Bor- is Becker á Opna bandaríska mót- inu, en hefur ekki unnið stórafrek á tennisvellinum hingað til. Andres Gomez, sigurvegara Opna franska meistaramótsins fyrr í mánuðinum, var kippt harkalega niður á jörðina er hann tapaði gegn lítt þekktum Bandaríkjamanni Jim Grabbs, 6:4, 6:2 og 6:2, í fyrstu umferð. Gomez er í fimmta sæti heimsafrekalistans og sá sjötti er líka úr leik. Það er Tim Mayotte sem tapaði fyrir Gary Muller frá Suður-Afríku, 4:6,7:6,7:5 og6:3. í einliðaleik kvenna tapaði Manu- ela Maleeva frá Sviss fyrir bresku stúlkunni Söru Gomer, 6:3 og 6:2, en ekkert var um önnur óvænt úr- slit þar. Kvenna- landsliðið til Portú- galsog Spánar - tekurþáttí tveimuralþjóðleg- um mótum ÍSLENSKA kvennalandsliðið í handknattleik fer í dag í keppn- isferð til Portúgal og Spánar þar sem liðið tekur þátt í tveim- ur alþjóðlegum mótum. MT IPortúgal verður leikið við An- góla, Ítalíu, Túnis, Uruguay og Alsír auk Portúgal. Alsír var reynd- ar boðin þátttaka í mótinu á síðustu stundu og í gær fékk íslenska hand- knattleikssambandið skeyti þess efnis að ísland ætti að leika við Alsír i kvöld klukkan 10.30 að port- úgölskum tíma, tveimur tímum eft- ir kQmuna til landsins. Á Spáni verður leikið gegn öllu sterkari liðum. Andstæðingar íslenska liðsins þar verða gestgjaf- arnir, Rúmenía og Hvíta Rússland. Áður en mótið hefst verða tveir vináttulandsleikir við Spán. Eftirtaldir leikmenn skipa íslenska liðið, en Guðný Gunnsteins- dóttir er fyrirliði. Markverðir: Kolbrún Jóhannsdóttir........Fram Hjördís Guðmundsdóttir....Víkingi Hugrún Þorsteinsdóttir.......Fram Aðrir leikmenn: Guðný Gunnsteinsdóttir-.Stjörnunni Herdís Sigurbergsdóttir..Stjörnunni Helga Sigmundsdóttir ....Stjörnunni Inga Lára Þórisdóttir.....Víkingi Ikvöld SEX leikir verða í 4. deild Islandsmótsins í knattspyrnu í kvöld: ÍBR og Víkveiji leika á gervigrasinu, Augnablik og Ægir í Kópavogi, Sindri og Huginn á Höfn, KSH og Hött- ur á Staðarborgarvelli, Leikn- ir og Valur Rf. á Fáskrúðs- fírði og Neisti og Umf. Stjarn- an á Djúpavogi. Allir leikirnir heijat kl. 20.00. Halla M. Helgadóttir........Víking Heiða Erlingsdóttir........Víking^ Matthildur Hannesdóttir....Víking Ósk Víðisdóttir..............Frair Auður Hermannsdóttir.......Selfoss Svava Sigurðardóttir............IF Laufey Sigvaldadóttir......GrótíK' • Elísabet Þorgeirsdóttir.....Gróttt Brynhildur Þorgeirsdóttir....Grótti

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.