Morgunblaðið - 27.06.1990, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 27.06.1990, Blaðsíða 42
42 MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 27. JÚNÍ 1990 KNATTSPYRNA / HEIMSMEtSTARAKEPPNIN A ITALIU Charfton vissi ekki hverjir tækju vrtin... Vinsældir Jacks Charlton, lands- liðsþjálfara íra, meðal blaða- manna hvaðanæva úr heiminum aukast nú daglega. Þeim fjölgar á fundum með honum FráBob eftir hvern leik liðs- Hennessy ins; menn hafa gam- á/ía//l/ an þv]- jjyg aj_ slappaður hann er og svarar vel fyrir sig. Eftir sigurleikinn gegn Rúmen- um í fyrradag vakti það furðu þeg- ar hann sagðist ekki hafa haft hug- mynd um hverjir tækju vítaspyrn- umar, þegar að þeim kom í leiks- lok! Menn trúðu varla sínum eigin eyrum, greinilega vanir því að þjálf- arar landsliðanna skipuleggi slíkt vandlega fyrir fram, en Jack var hinn rólegasti og sagði: „Eg treysti strákunum alveg fyrir þessu!“ Mikill fjöldi stuðningsmanna fylgir írska liðinu til Ítalíu og fögn- uðu þeir ákaft í fyrrakvöld. Engin vandræði urðu þó; það var nú eitt- hvað annað. Allt fór fram í friði og spekt. Menn trúa varla því sem hefur gerst, finnst þeir sem í draumi. Enginn hafði búist við þess- um árangri og ljóst er að írar fara ánægðir heim á sunnudag, eftir leikinn við Ítalíu á laugardag. Nema... írar hitta páfann í dag ÆT . rar komu til Rómar í gáír, en þar mæta þeir Itölum í átta liða úr- I slitum á laugardag. Jack Charlton hafði ákveðið að vera með æf- ingu fyrir hádegi í dag, en hún feliur niður. í staðinn fer landsliðs- hópurinn á fund Jóhannesar Páls páfa og er gert ráð fyrir um tveggja stunda dagskrá í Páfagarði. Jack Charlton þjálfari íra, sem komið hafa gífurlega á óvart. ■ JACK Charlton sótti um stöðu landsliðsþjálfara Englands 1982. Hann þótti ekki merkilegur pappír og ekki svaraverður. ■ „JACK, farðu heim,“ voru skilaboðin frá stuðningsmönnum írska landsliðsins, sem Jack Charlton fékk, þegar hann kom í fyrsta sinn til Dublin sem nýráðinn landsliðsþjálfari Ira fyrir rúmlega fjórum árum. Hánn var útlending- ur, sem var slæmt og að auki var hann Englendingur, sem var enn verra í augum íra. ■ „HEILAGI JACK“ var nafnið, >2%em flugvél írska flugfélagsins Air Lingus var gefið, áður en hún sótti írska landsliðshópinn til Vestur- Þýskalands tveimur árum síðar eftir frækilega frammistöðu liðsins í Evrópukeppninni. ■ „STÓRI“ JACK er þessa dag- ana vinsælasti „Irinn“ á Irlandi. Fótbolti er málið, liðið er komið í átta liða úrslit á HM og Englend- ingurinn er í hávegum hafður. ■ JACKIE fer sínar eigin leiðir í einu og öllu. Hann segir að FAI [The Football Association of Ireland — Knatttspyrnusamband írlands] standi fyrir „Find an Irishman“ [finnið íra] og hefur staðið sig vel í því efni með aðstoð kirkjubóka. TONY Cascarino taldi sig alla tíð Englending þrátt fyrir ítalskan föður. Jackie komst að því að amma pilts var af írsku bergi brot- in. Þar með var Cascarino íri og löglegur í írska landsliðið. I RAY Houghton hafði lítið spáð í ættfræðina fyrr en Jackie spurði hann hvort faðir hans væri ekki fæddur í Donegal á Irlandi. „Það veit ég ekki, en ég skal hringja heim og spyija,“ var svarið. Stað- reyndin kom í ljós og ekki að sökum að spyija. IRAR hræddust ekki Ruud Gullit á dögunum, en hann var hættulegri fyrir tveimur árum. „Þú hefur auga með þessum með hey- sátuna,“ sagði þjálfarinn við Paul McGrath fyrir leik þjóðanna. ■ ENGLENDINGAR sætta sig ekki allir við velgengni íra og .^spyrja hvað sé sameiginlegt með lilnglendingu, Skotum og Wales- búum. Jú, þeir spila allir fyrir Jackie Charlton. „ítalska liðið ósigrandi“ „ÞAÐ þarf hjálp Guðs til að Beckenbauer hælir mjög ítalska eiga möguleika á að sigra liðinu og sagði að allir leikmenn ítalska landsliðið í keppninni. liðsins væru í „heimsklassa". Fyr- Ef það nær að leika eins vel ir nokkrum dögum sagði hann að og það hefurgerttil þessa ekkert lið gæti unnið Vestur- erþaðósigrandi,“sagði Þjóðveija nema það sjálft. En Franz Beckenbauer, þjálfari tákna þessi orð hans að Vestur- Vestur-Þjóðverja, eftir að Þjóðverjar eigi ekki möguleika hafa séð Itali vinna fjórða leik gegn ítölum ef þeir mæta þeim í sinn íröðá HM, gegn Urugu- úrslitum? „Öll lið geta tapað," ay, 2:0. sagði landsliðsþjálfarinn. „En það Beckenbauer sagði að ítalir þarf mikið til, hver leikmaður hafa leikið fjóra leiki án þess verður að spila af 100 prósent að hafa fengið á sig mark og það getu jafnframt því að að hafa væri draumastaða. „Við höfum heppnina með sér.“ einnig leikið fjóra leiki, en fengið FÍestir spá því að ítalir og Vest- á okkur mörk í þeim öllurn - það ur-Þjóðveijar leiki til úrslita í er martröð.“ keppninni. franz Beckenbauer. Reuter Marco Van Basten kemur til Hollands á mánudag, með Rebeccu dóttur sína í burðarrúmi. Hollenska liðinu vel fagnað - þrátt fyrirallt Hollenska landsliðið í knattspyrnu kom heim á mánudag frá ít- alíu. Fagnaðarlætin voru ólík því Kjartan L. Pálsson skrífar frá Hollandi sem var fyrri tveimur árum, þegar liðið kom heim með Evrópumeistaratitilinn frá Þýskalandi. Þá var sungið og dansað um all- ar götur. Nú var hvorki sungið né dansað. Engu að síður biðu fleiri hundr- uð manns er liðið kom á Schiphol-flugvöll. Var vel tekið á móti leikmönnum - dúndrandi lófatak og húrrahróp, blóm og bros- andi andlit biðu þeirra þegar þeir komu. Áttu leikmennirnir ekki von þessu og voru hrærðir yfir móttökunum. í augum Hollendinga er keppnin búin. „Ég hef engan áhuga á henni lengur," sagði einn góður kunningi minn f gær. „Mér er alveg sama hver vinnur úr þessu. Ég horfi ekki á leikina lengur. Nú fylgist ég bara með Wimbledon tenniskeppn- inni. Það er miklu skemmtilegra," sagði hann. Verslunareigendur og aðrir hafa líka þurrkað HM keppnina út eftir að Holland var úr leik. Sjón- varpið sýndi í gær frá þvf er eigendur verslanna og fleiri voru að taka niður flögg, blöðrur, myndir og fleira úr hill- unum og gluggum. „Veislan er búin,“ sagði einn verslunareigandinn. „Verst er að við liggum með milljónir króna í þessu og þetta er ónýtt fyrir okkur.“ Allir ætluðu að græða á HM keppninni. Fram- leiddir voru hundruð hluta sem minntu á holl- enska liðið og HM keppn- ina. Einhveijir sitja nú eftir með sárt ennið og mikið fjárhagslegt tap. Völler neitar - Rijkaard talar ei TVEIR af leikmönnum hol- lenska liðsins komu ekki heim með þvítil Hollands. Fyrirlið- inn, Ruud Gullit og besti vinur hans, Frank Rijkaard, sem gerður hefur verið að bióra- bögli fyrir að hrækja á Þjóðverj- ann Rudi Völler, urðu eftir á Ítalíu. Hollenska sjónvarpið margsýndi myndir frá „uppþotinu" milli Rijkaards og Völlers. Þar kemur greinilega í ljós að Völler segir eitt- hvað við Rijkaard Kjartan L. sem æsir hann upp. Pálsson Einnig sést greini- skrifar jega ag Rijkaard snýr upp á eyrað á Völler, þar sem hann situr á jörð- inni eftir samstuðið, sem ekkert var, við Van Braukelen, markvörð Hollands. Völler neitar því í viðtölum að hafa farið háðulegum orðum um litarhátt hins, eða sagt eitthvað í þeim dúr. „Ég held bara að hann hafi verið svona yfirspenntur á taugum. Ég var það raunar líka - og við allir,“ segir hann. Rijkaard vill ekkert um málið segja. Hann hefur lokað sig inni í íbúð sinni í Mílanó, og talar ekki við neinn nema æskuvin sinn Ruud Gullit, segja blöðin. Gullit vill heldur ekkert segja um málið, eða þennan vin sinn. „Eg veit að honum líður illa út af þessu. Þetta er ekki sá Frank sem ég þekki sem gerir svona lagað,“ sagði Gullit. Undir þetta taka aðrir leikmenn. Meðal þeirra er Völler sjálfur: „Þetta er ekkert líkt honum. Við höfum leikið á móti hvor öðrum margoft. Hann er harður andstæð- ingur, en ekki neinn ruddi eða dóni,“ sagði Völler. Hann harðneit- ar því að hafa beðið eftir Rijkaard í ganginum í búningsklefanum eftir að þeir voru báðir reknir útaf. „Þetta er tilbúningur hjá frétta- mönnum hér á Ítalíu. Ég hefði ver- ið rekinn úr keppninni ef ég hefði gert það, og það vissi ég þegar ég hljóp útaf,“ sagði Völler við blaða- menn í gær.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.