Morgunblaðið - 27.06.1990, Side 43

Morgunblaðið - 27.06.1990, Side 43
T T ' 1» MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 27. JUNI 1990 43 KNATTSPYRNA / HEIMSMEISTARAKEPPNIN AITALIU Draumur varamannsins David Platt kom inn á og gerði eina markið á 119. mínútu! VARAMAÐURINN David Platt var hetja Englendinga í gær- kvöldi. Hann gerði 100. mark Heimsmeistarakeppninnar á Ítalíu, sem jafnframt var fyrsta mark hans fyrir England. Það tryggði liðinu 1:0 sigur gegn mótherjunum frá Belgíu á síðustu stundu í framlengdum leik og England mætir Kamerún í átta liða úrslitum. Leikurinn í Bologna var skemmtilegur á að horfa. Belgarnir voru aðgangsharðari, en fimm manna vörn Englendinga var þétt. Engu að síður komu mark- stangirnar Englendingum tvisvar til bjargar og þegar vítakeppni virt- ist óumflýjanleg fékk Paul Gas- coigne einhvern aukakraft. Hann þaut upp völlinn, en Gerets náði að stöðva samheija Guðna Bergssonar hjá Tottenham rétt utan vítateigs. Gascoigne tók aukaspyrnuna, iyfti boltanum yfir þreytta varnarmenn Belga og þar var Platt á réttum stað — sneri sér á vinstra fæti, tók boltann á lofti með hægri og hamraði í netið. Englendingar beittu skyndisókn- um og sýndu sinn besta leik í keppn- inni. John Barnes skoraði í lok fyrri hálfleiks, en markið var dæmt af vegna rangstöðu. „Markið var full- komlega löglegt," sagði Bobby Rob- son, þjálfari. „En sigurinn var sæt- ur — þökk sé Gascoigne og Platt. Eins var ánægjulegt að sjá liðs- heildina svo sterka sem raun bar vitni, þrátt fyrir að Terry Butcher og Des Walker væru meiddir og yrðu að ljúka leiknum sem slíkir. Úrslitin voru vonbrigði fyrir Belga, en þeir eru með sterkt lið.“ Þetta var 18. landsleikur þjóð- anna — eini sigur Belga var árið 1936. „Óheppni er til,“ sagði Guy Thys. „Við réðum gangi leiksins lengst af og menn mínir voru frá- bærir. Ég er hreykinn af liðinu, en þetta var ekki okkar dagur. Ég hef stjórnað liðinu í 108 leikjum og þetta var sá besti.“ SIGURMARK A ELLEFTU STUNDU GASCOIGNE REUTER Urslit: ENGLAND 1 - BELGIA 0 Átla liða úrslit Laugardagur Flórens: Kl. 15:00 Argentína — Júgóslavía Róm: Kl. 19:00 Ítalía — írland Sunnudagur Mílanó: KI. 15:00 Tékkósl. — V-Þýskaland Napólí: Kl. 19:00 Kamerún — England ■ Undanúrslit fara fram 3. og 4. júlí kl. 18:00. ÚRSUT 16-liða úrslit Veróna Júgóslavia — Spánn..................2:1 (Eftir framlengingu) Dragan Stojkovic (77., 92.) - Julio Salinas (82.). Bologn a Engíand — Belgía....................1:0 (Eftir framlengingu) David Platt (119.). Reuter Varamenn Englendinga fagna markinu. David Platt, sem skoraði, krýpur á vellinum og Steve Bull kemur aðvífandi. náfram hefndum“ Júgóslvar mæta heimsmeisturum Argentínu í átta liða úrslitum HM. Þeir tryggðu sér áframhald- andi keppni með 2:1 sigri gegn Spánveijum í gær, en að venjuleg- um leiktíma loknum var jafnt, 1:1. „Spánveijar léku vel, en við vildum ná fram hefndum,“ sagði Ivica Osim, þjálfari Júgóslava, en Spáj£j- veijar fóru með sigur af hólmi í viðureign þjóðanna í HM á Spáni 1982. Dragan Stojkovic var í sviðsljós- inu og gerði bæði mörk Júgóslava. Luis Suariz, þjálfari Spánveija, hrósaði Stojkovic og sagði að hann hefði sýnt góðan leik, „en hann gerði ekki gæfumuninn. Óheppni okkar réð úrslitum — við fengum ótal færi, en nýttum þau ekki. Við áttum skilið að sigra, mínir menn stóðu sig vel, en svona er fótbolfc*í- inn.“ Stojkovic lét ummæii þjálfarans ekki á sig fá. „Ef hann ségir að við höfum verið heppnir þá hann um það. Við lékum vel og uppskár- um samkvæmt því. Við höfum oft leikið vel í vináttuleikjum og tapað, en það var kominn tími til að sigra, þegar mikið lá við.“ Osim sagði að hitinn hefði haft mikil áhrif á leikmenn, „en við stóð- umst álagið og Spánveijar voru frá sínu besta. Heppnin var okkur hlið- holl, en liðið lék vel og ég get ekki beðið um meira.“ Spánveijar voru aðgangsharðari til að byija með, en vörn Júgóslava var yfirleitt vel á verði. Hún vqjgr hins vegar ekki vel með á nótunum, þegar Julio Salinas jafnaði. Þrír Júgóslavar og tveir Spánveijar fengu að sjá gula spjaldið, en Júgó- slavarnir höfðu ekki fengið spjald fyrr í keppninni og verða því ekki í banni gegn heimsmeisturunum. Stojkovic útnefndur! Einvígi hans við Maradona á laugardag beðið með eftirvæntingu Reuter Dragan Stojkovic fagnar síðara marki sínu ! gaer. DRAGAN Stojkovic er tvímælalaust hetja Júgóslava eftir leikinn gegn Spánverjum f gær. Stojkovic skoraði bæði mörk Júgóslava í framleng- ingunni og var maðurinn bak við sigurinn á Spánverjum og þarmeð besta árangur júgó- slavnesks landsliðs f 28 ár. Hann er litríkur leikmaður og þykir hafa sjálfstraustið í lagi. Það er kannski ekki svo skrítið þarsem hann er talinn líklegur arftaki Maradona sem besti knattspyrnumaður heims. Stojkovic hélt aðalhlutverkinu á blaðamannafundi eftir leik- inn og svaraði spurningum á ör- uggan og allt að því hrokafullan hátt með sólgleraugun á nefinu allan tímann. „Það er ykkar að dæma hvort ég er eins góður og Maradona og þið fáið bráðum tækifæri til þess,“ sagði Stoj- kovic, en Júgóslavar mæta Arg- entínumönnum í átta liða úrslit- um. Mörkin gegn Spánveijum voru ekki af verri endanum. Hið fyrra gerði Stojkovic af stuttu færi eftir að hafa leikið varnar- mann Spánveija illa og síðara markið var þrumuskot úr auka- spyrnu af 25 metra færi, en slíkar aukaspyrnur eru sérgrein hans. Stojkovic hefur leikið með Rauðu stjörnunni frá Belgrað, en flytur sig um set fyrir næsta vet- ur þarsem franska liðið Marseille keypti hann í vor. „Þessi mörk gegn Spánveijum eru vafalítið þau mikilvægustu sem . ég hef gert á ferlinum,“ sagði kappinn eftir leikinn. Hann gaf lítið út á það að úrslitin hefðu verið ósann- gjörn í Ijósi þess að Spánverjar réðu ferðinni mestallan leikinn. „Kannski er það bara svo að þeim er umbunað sem láta ekki bugast við mótlæti,“ var svar hans. Stojkovic þykir skapmikill leik- maður. Hann hefur þegar fengið eitt gult spjald í keppninni og þarf því að gæta sín í leiknum gegn Argentínumönnum. Gegn Spánverjum virtist hann eyða miklum tíma í að skamma $am- heija sína fyrir að styðja ekki nógnj vel við bakið á sér. „Ég held að allir hafi gert sitt besta,“ sagði hann þó með lítillátu brosi eftir leikinn. Einvígi Stojkovics og Maradona á laugardag er beðið með mikilli eftirvæntingu. Það er nokkuð vfst að Maradona er ekki á þvi að láta' titilinn sem besti leikmaður heims af hendi baráttulaust. Eins má telja jafn öruggt að Stojkovic leggi sig allan fram til þess að ná tvöföldum áfanga á laugardag, slá heimsmeistarana útúr keppn- inni og sýna heiminum að Mara- dona hafí eignast verðugan arf- taka. J

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.