Morgunblaðið - 27.06.1990, Qupperneq 44
Krafíst gjald-
þrots Isfílm hf.:
Skuldir á
milli 60 og
7 0 milljóna
LAGÐAR hafa verið fram tvær
beiðnir um gjaldþrotaskipti kvik-
myndafyrirtækisins ísfilm hf. hjá
borgarfógetaembættinu í Reykja
vik. Reikningar Isfilm fyrir
síðastliðið ár liggja ekki fyrir.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins eru skuldir félagsins að
minnsta kosti 60-70 milljónir kr.
en eignir eru taldar óverulegar.
'v- ifejaldþrotabeiðnirnar eru frá
Tollstjóraembættinu í Reykjavík og
Sigurði Guðjónssyni lögmanni. Þær
verða teknar fyrir hjá embættinu í
dag eða á morgun.
Isfilm skuldar mest hjá Iðnlána-
sjóði, Búnaðarbankanum og Fé-
fangi. Stjórn félagsins hefur reynt
hlutafjársöfnun til að rétta við hag
þess. Helstu eigendur ísfilm hf. eru
Samband íslenskra samvinnufé-
laga, Tíminn, Haust hf., Aða hf.
,og Almenna bókafélagið.
Ljósagang-
ur í Esjunni
LÖGREGLUNNI í Reykjavík var
rétt fyrir miðnættið í gærkvöldi
tilkynnt um hvítt blikkandi ljós
í Esjunni, við Kistufell. Ljósið
sást úr Grafarvogi og töldu menn
að það gæti verið neyðarmerki.
Lögreglumenn fóru á staðinn að
áthuga málið. Þegar Morgunblaðið
háfði seinast spurnii’ af voru þeir á
leið upp í hlíðina að grennslast fyr-
ir um orsök ljósagangsins.
-^Txigreglumenn hitfu fjallgöngu-
menn, sem voru a,ðj koma af Esj-
unni, en þeir höfðu ekki orðið varir
við neitt óvenjulegt; enda voru þeir
alllangt frá staðnum, þár sem ijósið
sást.
Fagurgul hófsóley í Grasagarðinum
Morgunblaðið/KGA
Helmings
verðlækkun
á tómötum
o g papriku
ÚTSALA verður á tómötum og
grænni papriku næstu daga. I
dag lækkar verðið um helming,
að sögn Níelsar Marteinssonar
sölusljóra hjá Sölufélagi garð-
yrkjumanna.
Níels sagði að vegna sólar og
hagstæðra ræktunarskilyrða hefði
mikið borist að af grænmeti. Afurð-
irnar væru farnar að safnast upp
og því hefði verið ákveðið að slá
upp þessari tómata- og papriku-
veislu og láta fólk njóta góðs af
góðri uppskeru. Sölufélagið lækkar
heildsöluverð á tómötum úr 150 í
75 krónur kílóið og á grænni papr-
iku úr 399 í 200 krónur. Útsöluverð
er mismunandi á milli verslana, en
búast má við að það lækki sem
svarar lækkun heildsöluverðs.
Níels sagði að nýtt íslenskt
kínakál væri að byija að koma á
markaðinn. Þá væru góð kaup í
rabarbara um þessar mundir.
Alviðræður
í Reykjavík
FUNDUR viðræðunefinda iðnað-
arráðherra og Atlantsáls hófst í
Reykjavík í gær og stendur fram
á fimmtudag.
Jóhannes Nordal, seðlabanka-
stjóri og formaður álviðræðunefnd-
ar, sagði við Morgunblaðið að í við-
ræðunum væri farið yfir öll helstu
mál varðandi byggingu nýs álvers
hér á landi. Ekkert lægi fyrir í þeim
efnum eftir fyrsta viðræðudaginn.
A fundinum er meðal annars
rætt um staðarval fyrir álverið.
Jóhannes sagði að nokkrir úr Atl-
antsálshópnum myndu fara og
skoða þá staði sem helst koma til
greina.
Sjómenn í Eyjafírði ráðgera aðgerðir;
Helmingi lægra verð en
á fiskmörkuðum syðra
í^RfÓMENN á Eyjafjarðarsvæðimi eru óánægðir með kjör sín, þar sem
þeir njóta ekki hins háa fiskverðs fískmarkaðanna á suðvesturhorni
landsins. Fyrir vænan togaraþorsk sem gengur á um 100 krónur á
fiskmörkuðum fæst helmingi lægra verð í Eyjafirði, eða um 50 krón-
ur. Sjómenn hafa rætt um aðgerðir í sínum hópi, þar sem þeim þyk-
ir ástandið óviðunandi, en enn hefur ekki verið fastákveðið hvort
og þá hvenær gripið verður til aðgerða.
Sveinn Kristinsson varaformaður
Sjómannafélags Eyjafjarðar sagði
að búast mætti við aðgerðum af
hálfu sjómanna kæmi ekki til þess
að það kerfi sem nú væri við lýði
yrði brotið upp. „Það kraumar í
mönnum, sjómenn eru óánægðir
'.•fcð þessi kjör og þeir hafa verið
að ræða þessi mál í litlum hópum.
Mér sýnist á öllu að til aðgerða
verið gripið, en spurningin er bara
hvenær,“ sagði Sveinn.
Sveinn nefndi að á meðan fisk-
verð var frjálst á árinu 1987 hafi
sjómenn á Dalvíkurtogurunum gert
^^mning við frystihúsið og hefði það
leitt til þess að verðið sem þá fékkst
fyrir fisk var að meðaltali svipað
og gerðist á Fiskmarkaðnum í
Hafnarfirði. Meðalverð á þorski
hafi þá verið um 42 krónur fyrir
kílóið, en það væri svipað verð og
fengist á Dalvík nú, þremur árum
síðar. „Þetta ástand er algjörlega
óviðunandi,“ sagði Sveinn.
Eftir yfirtöku Kaupfélags Eyfirð-
inga á Útgerðarfélagi Dalvíkinga,
sagði Sveinn að engar siglingar
væru fyrirhugaðar, en áður hefði
um 30% aflans verið selt utan í
gámum. Laun sjómanna á ÚD-tog-
urunum hefðú því lækkað umtals-
vert og þyrftu menn að vinna 6-8
vikum meira á þessu ári til að hafa
sömu laun og þeir fengu greidd á
síðasta ári.
Félagar í Sjómannafélagi Eyja-
fjarðar eru frá Akureyri, Dalvík og
Hrísey og sagði Sveinn að rætt
hefði verið um aðgerðir af hálfu
félagsmanna til að fá leiðréttingu
sinna mála. Sagði Sveinn að sam-
stöðu þyrfti að ná á meðal undir-
manna um að segja upp störfum
sínum. „Það virkar auðvitað ekki
nema allir taki sig saman og segi
upp jafnt. Það er bara harkan sex
sem dugar núna,“ sagði Sveinn.
''Hann nefndi að skipverjar á
Björgúlfi EA hefðu sett um 47 tonn
af þorski í gáma og selt í Vest-
mannaeyjum skömmu fyrir páska.
Hásetahluturinn hefði við það auk-
ist um 84-5 þúsund krónur, en ef
sami afli hefði verið seldur á Dalvík
hefði hluturinn orðið um 29 þúsund
krónur. Það verð sem fæst fyrir
góðan togaraþorsk hjá útgerðunum
í Eyjafirði losar um 50 krónur á
kílóið, að sögn Sveins, á meðan
meðalverðið er á bilinu 90-100
krónur á kílóið á fiskmörkuðum
syðra.
Morgunblaðið/KGA •
Heimsókn drottningar lýkur í dag
ÞRIGGJA daga opinberri heiinsókn Bretadrottningar og hertogans
af Edinborg lýkur í dag. Héðan fer drottningin til Kanada.
Þetta var fyrsta heimsókn drottningarinnar til íslands, en hertog-
inn af Edinborg hefur komið hér áður í opinbera heimsókn og oft í
einkaerindum. Aður en flugvél drottningar lyftir sér frá Keflavík á
hádegi leggur Elísabet II. blómsveig að leiðum breskra hermanna í
Fossvogskirkjugarði og kemur í kirkjuna að Bessastöðum. Þar sem
viðgerð stendur yfir á Bessastaðastofu verður ekki farið þangað.
Bresku gestirnir fóru í skoðunarferð í Mosfellssveit og á Þingvöll
í gærdag. Borgarstjórinn í Reykjavík tók á móti þeim í Höfða og
drottningin bauð til kvöldverðar og móttöku í snekkju sinni, Britt-
aníu. Myndin af forseta, forsætisráðherra, drottningu og hertoga var
tekin í lok veislunnar þegar þau komu út á þilfar ásamt fleiri gestum
og fylgdust með lúðrasveit skipsins leika heiðurssyrpu á bryggjunni.