Morgunblaðið - 15.07.1990, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15. JULI
5
Sjúkrahúsið á Friðriksbergi í Kaupmannahöfn:
Tveir Islendingar standa fyr
ir tilraun í áfengismeðferð
TVEIR íslenskir meðferðarráðgjafar, Gizur í. Helgason og Guðrún
íslandi, hafa gert samkomulag við forráðamenn sjúkrahússins á
Friðriksbergi í Kaupmannahöfii um að standa þar fyrir áfengismeð-
ferð af því tagi, sem stunduð hefur verið á meðferðarstofnunum
hér á landi um nokkurra ára skeið. Þessi aðferð við meðferð áfeng-
issjúklinga hefúr aldrei áður verið notuð á opinberum stofiiunum
í Danmörku.
Gizur í. Helgason og Guðrún
íslandi hafa unnið að með-
ferðarmálum í Danmörku um
nokkurt skeið. Þau leituðu til forr-
áðamanna Friðriksbergsspítala í
vetur og spurðust fyrir um það,
hvort ekki væri mögulegt að gera
í nafni spítalans tilraun með áfeng-
ismeðferð á göngudeild samkvæmt
svokallaðri Minnesota-aðferð, sem
notuð hefur verið á meðferðar-
stofnunum hér á landi og í Banda-
ríkjunum um nokkurra ára skeið.
Niðurstaðan varð sú, að spítalinn
mun taka þátt í tilraun, sem standa
á í 12 mánuði. Samkvæmt sam-
komulaginu útvegar spítalinn hús-
næði, síma og alla aðstöðu, en
ætlunin er að laun starfsfólks verði
greidd með styrkjum frá fyrirtækj-
um og sjóðum. Munu læknar við
geðdeild spítalans fylgjast með
framkvæmdinni. Meðferðin verður
sjúklingunum að kostnaðarlausu.
Fyrsti hópurinn kom í meðferðina
9. þessa mánaðar.
Gizur í. Helgason segir að til
þessa hafi hið opinbera danska
heilbrigðiskerfi ekki þekkt aðra
aðferð við meðferð alkóhólisma 'en
að gefa antabus og róandi lyf. Sú
barátta hafi ekki tekist vel og hafi
sömu sjúkiingarnir leitað á náðir
stofnana aftur og aftur án þess
að ná bata. Árangurinn innan hins
opinbera kerfis hafi nánast ekki
verið neinn og því megi búast við
að sjúkrahús um alla Danmörku
muni fylgjast grannt með árangri
þessarar tilraunar.
Hann segir að í þeirri tegund
áfengismeðferðar, sem þau hygg-
ist beita, sé gengið út frá því, að
alkóhólismi sé í senn andlegur,
líkamlegur og félagslegur sjúk-
dómur og meðhöndlaður í sam-
ræmi við það. í meðferðinni sé
hverjum sjúklingi mörkuð ákveðin
lífsbraut í samráði við hann sjálf-
Gizur í. Helgason, meðferðar-
ráðgjafi.
an, og fylgi hann henni náist
árangur. Af þessum sökum sé
einnig lögð mikil áhersla á íjöl-
skyldumeðferð, enda sýkist öll Qöl-
skyldan í raun, þótt aðeins einn
drekki.
Að sögn Gizurar stendur göngu-
deildarmeðferðin yfjr í sex vikur.
Heppilegra hefði verið að geta lagt
alkóhólistana inn, en göngudeildin
væri næstbesti kosturinn. Þeir sem
verst væru staddir og hefðu misst
fjölskyldu sína og vinnu ættu litla
möguleika í göngudeildarkerfinu,
en reynslan sýndi hins vegar að
alls um 60% þeirra, sem farið hefðu
í slíka meðferð, næðu bata.
Hann segir að áfengisneysla sé
mikið vandamál í Danmörku en
afar stutt sé síðan Danir fóru að
viðurkenna það. Hlutfallslega
drekki Danir meira af hreinum
vínanda á hveiju ári en hinar Norð-
urlandaþjóðirnar. Umræður um
þessi mál hafi aukist mikið í
landinu að undanförnu, ekki síst
eftir að Von Veritas hóf starfsemi
sína. Jafnframt hafi skilningur
vaxið til muna innan fyrirtækja á
gagnsemi áfengismeðferðar og
sífellt verði algengara að þau að-
stoði starfsmenn sína við að fara
í meðferð. Reynslan sé líka sú, að
yfirleitt borgi það sig frekar fyrir
fyrirtækin en að segja starfámönn-
unum upp og þjálfa nýja.
Norrænt
skátaþing
á Islandi
ELDRI skátar í St. Georgsgild-
um á Norðurlöndum fjölmenna
til íslands til að halda reglulegt
þing sitt hér nú i vikunni. Skráð-
ir þátttakendur eru 254. Þing
St. Georgsskáta erU lialdin til
skiptis á Norðurlöndum annað
hvert ár. Nú halda íslenskir
skátar þing í þriðja sinn. St.
Georgsskátar eru hópur starf-
andi og fyrrverandi foringja,
sem vilja standa við bakið á
skátastarfinu og efla samvinnu
skáta í mismunandi löndum.
Þingið hefst með fánaathöfn á
Hótel Loftleiðum, mánudag-
inn 16. júlí kl. 14.00. Að fánaat-
höfn lokinni verður þingið sett
formlega með athöfn í Hallgríms-
kirkju kl. 14.30'.
Þingfulltrúar munu ræða innra
starf sitt meðan á þinginu stend-
ur, hlýða á fyrirlestra, ferðast um
landið og jafnframt kynnast
íslenskum skátum í starfi sem og
á heimilum þeirra.
Rætt verður um þá stöðu sem
nú er komin upp í Austantjald-
slöndunum. Eftir 45 ára bann á
skátastarfi þar, eru eldri skátar,
sem störfuðu fyrir heimsstyrjöld-
ina, að koma upp skátafélögum
og þjálfa nýja foringja til starfa.
Vitað er um nokkra skátahópa sem
störfuðu leynilega þrátt fyrir að
skátastarf væri þar bannað.
Þing St. Georgsskáta að þessu
sinni ber yfirskriftina „Betri heim-
ur — Hvað geta gildin lagt af
mörkum?“ Undirbúningur að
þessu sinni hefur verið í fullum
gangi sl. tvö ár undir stjórn Ás-
laugar Friðriksdóttur, landsgildis-
meistara, ásamt undirbúnings-
nefnd sem Björn Stefánsson er
formaður fyrir, en honum til halds ■
og trausts eru Guðni Jónsson og
Hilmar Bjartmarz. Þingforsetar
verða Franch Michelsen og Þor-
steinn Magnússon.
Fróöleikur og
skemmtun
fyrirháa semlága!
Nýr samningur vió þennan nýja
gististaé tryggir þér lægsta
veróió til Mallorka í sumar
24. julí frá kr. 7. og 14. ágúst frá kr.
30.900,- 41.050,-
2 í íbúð kr. 49.900,- 2 í íbúð kr. 59.600,-
í síðustu viku seldust yfir 100 sæti á þessu einstaka verói
Á MÁNUDAG SELJUM VIÐ SÍÐUSTU 28 SÆTIN
Gestir okkar sem gistu í á þessum glæsilega nýja gististað júlí voru
sammála um frábæra aðstöðu á þessari fegurstu strönd Mallorka.
Nú getum við boðið nýjan samning við þetta
glæsilega hótel á einstöku
verðifyrirsíðustu
sætin í júlí
og ágúst.
ví
AUSTURSTRÆT117,101 REYKJAVÍK , SÍMI: (91) 622 011 & 62 22 00
LONDON
Helgarveislan 19. júlí
Aðeins þetta eina
tækifæri
Flug, gisting, ferðir til og frá
flugvelli og íslensk farar-
stjórn, aðeins kr. 29.900,-
8 sæti laus
* Miðað við hjón með tvö börn 2ja-5 ára.