Morgunblaðið - 15.07.1990, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15. JÚLÍ
C 7
Við sundlaugina í
garðinum heima í
Scottsdale, Arizona.
Náttúrufegurð er mikil við Tahoe-vatnið, jafnt að sumri sem vetri.
hjá strætisvagnafyrirtæki í Washing-
ton og töldust heppnir að fá vinnu
því að fæstir vilja ráða flugmenn í
vinnu, vitandi það að þeir eru roknir
um leið og aftur fer að rofa til. En
það var á vegum Air Charter West-
flugfélagsins, sem ég flaug fyrst til
Phoenix í Arizona og kynntist þar
staðháttum sem síðar varð'svo til
að ég settist þar að. Ég fann það
strax þegar ég kom út úr vélinni í
fyrsta skiptið að þetta var staður sem
átti vel við mig.“
Þegar bensínskömmtuninni lauk
var Sigurður kallaður aftur til starfa
hjá Allegheny-flugfélaginu og fór
hann þá að fljúga DC 9 og Boeing-
727 þotum hjá félaginu. Síðan 1984
hefur hann verið flugstjóri á Boeing
737 og.flýgur frá Pittsburgh í Penn-
sylvania til borga vítt og breytt um
Bandaríkin og aftur til baka. Þetta
er skorpuvinna með góðum fríum á
milli, en þar sem eiginkonan Sjöfn
vinnur einnig í Pittsburgh, fyrir
Delta-flugfélagið, eiga þau hjón einn-
ig raðhús þar í borginni þar sem þau
dvelja á meðan á þessum törnum
stendur. Hann sagði að til stæði að
selja það hús þar sem Sjöfn hyggðist
fá sig flutta til í vinnu, til Phoenix.
Þau hafa líka fest kaup á skíðahúsi
á einu eftirsóttasta skíðasvæði
Bandaríkjanna, við Tahoe-vatn á
mörkum Nevada og Kaliforníu.
Aðspurður um áhugamál fyrir
utan flugið sagði Sigurður að
skíðaíþróttin hefði lengi verið sitt
aðaláhugamál og reyndar allrar fjöl-
skyldunnar. Hér áðui' fyrr fóru þau
gjarnan í vetrarfrí til Austurríkis, en
síðan kynntust þau aðstöðunni við
Tahoe-vatnið og eftir að þau keyptu
húsið þar hafa þau dvalið þar yfir
vetrartímann. Hann sagði að staður-
inn væri reyndar ekki síður vinsæll
sumardvalarstaður enda væri afar
fallegt þarna hvort heldur sem er
að sumri eða vetri og hefðu þau hug
á að láta á það reyna, hvort skíðahús-
ið dygði ekki eins vel sem sumarbú- •
staður. Sigurður kvaðst hafa „dottið
niður á“ húsið fyrir hálfgerða tilvilj-
un, en sá sem seldi þurfti að losa fé
í skyndi og þannig fengu þau húsið
á góðum kjörum.
„Annars eru fasteignakaup ekki
eins mikið mál í Bandaríkjunum og
hér á íslandi,“ segir Sigurður þegar
ég spyr hann út í þau mál. „Þú verð-
ur auðvitað að vera í öruggri vinnu
og geta sýnt fram á að það sé líklegt
að þú haldir henni til að fá fyrir-
greiðslu í bönkunum. Síðan semja
menn um fastar greiðslur til tíu, tutt-
ugu eða þijátíu ára, og þú getur
verið nokkuð öruggur um að afborg-
anir haldist eins og um var sarnið
en ijúki ekki upp úr öllu valdi eins
og hér hefur tíðkast til skamms tíma.
Fasteignaverð er heldur ekki eins
hátt þar og hér á landi og þú getur
fengið sæmilega gott einbýlishús
með sundlaug fyrir svona tíu milljón-
ir íslenskar."
- Þú ert auðvitað með sundlaug
>arna í Arizona?
„Já, í Scottsdale er það nú frekar
reglan en undantekningin. Stað-
reyndin er að í svona loftslagi er
jafnvel þýðingarmeira að aðstaðan
úti við sé góð því að sjálft húsið
nota menn yfirleitt ekki til annars
en að sofa í. Menn borða oftast úti
í garði og eru úti við allan daginn.
Lífíð þarna er að þessu leyti afar
ólíkt því sem menn eiga að venjast
á íslandi."
- Gætir þú hugsað þér að söðla
aftur um og flytjast heim til íslands?
„Ég vil taka það skýrt fram, að í
Bandaríkjunum lít ég alltaf á mig
sem íslending, þótt ég sé með ríkis-
fang í báðum löndunum. Við reynum
að koma eins oft hingað heim og við
getum og tölum alltaf íslensku á
heimilinu. Dóttir okkar, Svandís
Unnur, sem er sex ára, lítur líka á
sig sem íslending og segir það öllum,
þótt hún sé fædd og uppalin í Banda-
ríkjunum. Ég sé hins vegar ekki
ástæðu til að flytjast hingað heim
að svo stöddu. Mér finnst að ég sé
oksins að festa rætur og myndi sjálf-
lagt eiga erfítt með að breyta um
ífsstíi úr því sem komið er. En ég
ir og verð alltaf íslendingur."
______________Brids___________________
Arnór Ragnarsson
Sumarbrids
Fimmtudaginn 10. júlí mættu 40 pör
til leiks og er þáttakan nú að glæðast
eftir að HM í knattspyrnu lauk.
I A-riðli voru 16 pör og urðu úrslit
þess:
A-riðill (meðalskor 210):
Jón Stefánsson - Sveinn Sigurgeirsson 257
Vilhjálmur Sigurðsson - Þráinn Sigurðsson 255
Friðrik Jónsson — Óskar Sigurðsson 237
Hulda Hjálmarsdóttir - Andrés Þórarinsson 226
Guðrún Jóhannesdóttir - Jón H. Elíasson 222
I B-riðli voru 14 pör og urðu úrslit
þessi:
B-riðill (meðalskor 156):
Sigurður B. Þorsteinsson - Gylfi Baldursson 206
Sigurður ívarsson - Unnar Guðmundsson 177
Hrund Einarsdóttir - Einar Sigurðsson 167
Erla Sigurjónsdóttir - ’Oskar Karlsson 167
BaldurBjartmarsson-BjömArnason 167
í C-riðli voru 10 pör og urðu úrslit þessi:
C-riðill (meðalskor 108):
Helgi Viborg-OddurJakobsson 126
Magnús Sverrisson - Rúnar Lárusson 120
Albert Þorsteinsson - Sigurður Helgason 11S
Spilað er í Sigtúni-9 alla þriðjudaga
og fimmtudaga frá kl. 17.00, en síðasti
riðill fer í gang kl. 19.00. Allir eru
veikotnnir.
Sumarbrids
Fimmtudaginn 12. júlí mættu 36 pör
til leiks. f A-riðli voru 16 pör (meðal-
skor 210) og urðu úrslit þessi:
A-riðill:
Óskar Sigurðsson - Friðrik Jónsson 242
Jón Stefánsson - Ragnar Þorvaldsson 238
Björn Árnason - Baldur Bjartmarsson 228
■Gunnþórunn Erlingsdóttir - Ingunn Bernburg 227
Ingólfur Böðvarsson - Jón St. Ingólfsson 227
í B-riðli voru 12 pör (meðalskor
165) og urðu úrslit þessi:
B-riðill:
Sigurður B. Þorsteinsson - Gylfi Baldursson 212
Guðlaug Jónsdóttir- Sveinn Þorvaldsson 195
MuratSerdaroglu-JónHjaltason 194
Kristjana Steingrímsdóttir - Erla Siguijónsdóttir
177
í C-riðli voru 8 pör (meðalskor 1400)
og urðu úrslit þessi:
C-riðill:
Reynir Eiríksson - Sigtryggur Jónsson 1591
Páll Valdimarsson - Magnús Ólaísson 1538
Anna Þóra Jónsdóttir - Ragnar Hermannsson 1439
1088 spilarar hafa nú mætt í sum-
arbrids, það eru 272 einstaklingar og
þar af hafa 135 fengið stig. Þeir sem
hafa fengið yfir 100 stig eru:
Þröstur Ingimarsson 235
Þórður 0. Bjömsson 177
Murat Serdaroglu 162
SigurðurB.Þorsteinsson v 160
Gylfi Baldursson 144
RagnarJónsson 117
FriðrikJónsson 112
LánisHennannsson 104
Vilhjálmur Sigurðsson 103
Þráinn Sigurðsson 103
GuðrúnJóhannesdóttir 101
Spilað er í Sigtúni 9 alla þriðjudaga
og fimmtudaga frá kl. 17.00, en síðasti
riðill fer í gang kl. 19.00. Allir eru
velkomnir.
STÓRÚTSALA Á GARNI
AHt Giýor9es Picaod acu+tpers
garmó a utsölu J7 ÖTORKURINN
Kjörgarói
KAFFI
STRÆTO"
ftir breytingarnar
á Kaffi strætó eru
stelpurnar á barnum
í bana stuði, og gætu
þurft á aðstoð þinni að
halda þ.e.a.s ef þú ert orðin
tveggja tuga að aldri þroskuð
og þurfandi (eftir vinnu) en
umfram allt kannt að brosa.
Þá vantar okkur ekki síður
fallega vaxna menn (konur
eru líka menn) með stjörnur
augum til að sjá um
dyravörslu.
Nánari upplýsingar veröa veittar á staðnum
mánudaginn 16 júlí á milli kl. 16 og 18
KAFFI
STRÆTO-
BARINN
I BÆNUM
NY SMURÐUR
OG FREISTANDl