Morgunblaðið - 15.07.1990, Síða 9

Morgunblaðið - 15.07.1990, Síða 9
C 9 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15. JÚLÍ Michnik (fyrir miðju) ásamt Walesa: sakar hann um að vilja verða keisari. Grær um heilt: Mazowiecki og Walesa áður en eijurn- ar hófust. Jaruzelski: verður hann rekinn að kröfu Walesa? Sætir gagnrýni: vildi reka ritstjóra málgagns Sam- stöðu. Verðhækkanir: þröngt í búi hjá mörgum. kröfur hans um örari breytingar, en hann hefur ekki getað komið á fót stjómmálahreyfíngu til að fá baráttumálum sínum framgengt. Nokkrir stuðningsmenn hans hafa myndað laustengt bandalag, „Lýð- ræðis-miðjuna", en þeir segjast ekki vilja stofna stjórnmálaflokk eða kljúfa sig úr meginfylkingu Sam- stöðu. Borgaranefndirnar — kosninga- samtök Samstöðu sem Mazowiecki reyndi að fá til fylgis við sig — hafa hvarvetna barizt undir merkj- um Walesa. En þær hafa ekki litið á sig sem stjórnmálasamtök og áhrif þeirra hafa ekki verið mikil, þar sem þau hafa ekki fylgt skýrt mótaðri stefnu og ekki haft raun- vemlegan leiðtoga. Tengsl nefnd- anna og Walesa hafa verið óljós og tengsl þeirra við þingið og Mazowi- ecki forsætisráðherra enn óljósari. Í apríl var Walesa endurkjörinn formaður Samstöðu á fýrsta lands- fundi samtakanna síðan þau voru stofnuð 1981. Á fundinum var hann gagnrýndur fyrir „ólýðræðislega framkomu“ og sakaður um að van- rækja Samstöðu, en fáir gátu hugs- að sér hreyfínguna án hans. í maí fóru fram fyrstu bæjar- og sveitarstjórnakosningar frá því valdatíma kommúnista lauk. Rúm- lega 80 stjómmálaflokkar buðu fram, en flestir þeirra voru örsmáir og borgaranefndir Walesa sigmðu víðast hvar. Kjörsókn var hins veg- ar aðeins 42% og það bar vott um áhugaleysi kjósenda. Þrátt fyrir baráttu Walesa fýrir stofnun stjórn- málaflokka hafa flestir kjósendur óbeit á flokkum. Orðið táknar í huga fólks að fáir útvaldir drottni yfir öllum öðrum eins og á valda- tíma kommúnista. „Keisarinn“ Walesa Um sama leyti batt Walesa enda á ólögleg verkföll járnbrautar- starfsmanna. Verkfallsmennirnir voru ekki í neino verkalýðsfélagi, en fengu stuðning frá fyrrverandi verkalýðsleiðtoga og kommúnista, Alfred Miodowicz, og róttækum andstæðingi Walesa í Samstöðu, Marian Jurczyk. Stjórn Mazowieck- is óttast fátt meira en slíkt banda- lag óánægjuhópa og margir voru uggandi um að verkföllin mundu breiðast út og stofna stjórninni í hættu. Mazowiecki neitaði að semja við verkfallsmenn um kröfur þeirra um 110% kauphækkun og efndir á lof- orðum um að dregið yrði úr „bákn- inu“, sem stjórnar járnbrautunum. Rúmlega 60% Pólveija virtust and- vígir verkfallinu og þegar járn- brautarstarfsmennirnir höfðu snúið sér til Walesa samþykktu þeir að aflýsa því um stundarsakir. Verkfallið og dræm kjörsókn í kosningunum sýndu að breyting- arnar í Póllandi hafa verið hæg- fara, að Walesa kemur í stað póli- tískra stofnana og að óánægja er með 40% lífskjararýrnun, sem djörf stefna Mazowieckis hefur valdið, þótt verðbólga hafi minnkað úr 54% í 5%. Klofningurinn í Samstöðu jókst í kringum kosningarnar. I júníbyij- un reyndi Walesa að reka tvo af leiðtogum hreyfingarinnar, Henryk Wujec, leiðtoga borgaranefndanna, og Adam Michnik, ritstjóra Gazeta Wyborcza, málgagns Samstöðu. Báðir neituðu að víkja og Michnik vildi ekki verða við kröfu Walesa um að blaðið hætti að nota merki Samstöðu. „Þú ert smám saman að breytast úr leiðtoga Samstöðu og baráttu- manni lýðræðis í keisara," sagði Michnik í opnu bréfi til Walesa. Hann fullyrti að forsetadraumar Walesa hefðu grafíð undan póli- tískri dómgreind hans og ítrekaði stuðning við tillögu frá Mazowiecki um kosningar snemma á næsta ári. „Ég sé fyrir mér pólskt af- brigði af perónisma, sem mun leiða til öngþveitis og verða banabiti efnahagsumbótanna," sagði Michn- ik. „Stjórnmálaþróunin hefur stöðv- azt og ég vil koma henni aftur á skrið,“ sagði Walesa. Skömmu síðar sagði hann í viðtali við Gazeta: „Ég vil ekki verða forseti, en ég verð að verða forseti. Pólland þarf for- seta með exi, eitilharðan mann, sem þolir enga vitleysu, stendur ekki í vegi fyrir lýðræði og bætir það sem aflaga fer.“ Mótleikur Mazowieckis Eftir kosningarnar í maí hófst Mazowiecki handa um að sameina borgaranefndirnar í stuðningsflokk stjórnarinnar. Fyrir honum vakti að tryggja stjórninni stuðning þeirr- ar breiðfylkingar, sem kom komm- únistum frá völdum, til þess að geta stjórnað landinu. Stjórnin stendur höllum fæti vegna þeirra þrenginga og ólgu, sem efnahags- stefnan hefur valdið, en margt hef- ur áunnizt og Mazowiecki er sann- færður um að stefna hans sé hin eina rétta. Við tók hrein valdabarátta milli Mazowiecki og Walesa í borgara- nefndunum. Hvor aðili um sig hefur sakað hinn um að vinna gegn lýð- ræðisþróuninni, en deilurnar hafa vakið óbeit flestra Pólveija. Sú hætta jókst stöðugt að Samstöðu- hreyfingin splundraðist og klofnaði í fylkingar miðju- og hægrimanna annars vegar og miðju- og vinstri- manna hins vegar. Stundum hefur Walesa virzt hlynntur slíkri þróun, en hann vill að borgaranefndirnar verði óháðar sem hingað til, ýti undir fjölræði og stuðli að stofnun nýrra flokka. Walesa hefur sagt að áhugi fólks á stjórnmálum muni aukast, ef meiri umræður fari fram milli leið- toga þjóðarinnar en hingað til, en tekið fram að nokkuð „sterk stjórn" mundi ekki saka. Hann hefur neitað því að hann reyni að ógna forsætis- ráðherranum, en hamrað á því að Mazowiecki reyni að ná undirtökun- um í borgaranefndunum til að tryggja sér endurkosningu og stjórninni sömu valdaeinokun og kommúnistar höfðu. Stuðningsmenn Walesa í „miðju- bandalaginu" ítrekuðu kröfur um að fyrrverandi kommúnistar yrðu reknir úr stjórninni og efnt yrði til kosninga hið fyrsta. Walesa ræddi við leiðtoga Bænda- og Lýðræðis- flokkanna og í sameiginlegri yfir- lýsingu kom fram dulbúin hótun um myndun öflugrar fylkingar stjórnarandstæðinga og jafnvel nýrrar ríkisstjórnar. Um leið varð klofningurinn í Samstöðu enn greinilegri, þegar áhrifamestu menntamenn hreyfingarinnar sögðu sig úr borgaranefndunum og sökuðu Walesa um að haga sér eins og einræðisherra og grafa undan stjórninni. íhlutun páfans Úrsagnirnar virtust fá á Walesa. Það hafði einnig áhrif á hann að Jóhannes Páll páfi II skarst í leikinn og sendi honum og Mazowiecki bréf. Páfi kallaði Mazowiecki per- sónugerving óska pólsku þjóðarinn- ar og Walesa „leiðtoga og samein- ingartákn" Pólveija á langri frelsis- göngu. „Allir þeir sem unna Pól- landi verða að vinna saman og bind- ast samtökum um að endurreisa lýðveldið," sagði páfinn í bréfinu til Walesa. Þá hafði Mazowiecki haft for- göngu um að fulltrúar borgara- nefndanna í öllum 49 héruðum Pól- lands kæmu sáman 1. júlí til að ræða stofnun formlegra heildar- samtaka, sem styddu stjórnina. Fáum duldist að hann vildi breyta nefndunum í stjórnmálaflokk til að vega upp á móti vaxandi áhrifum Samstöðu. Að beiðni Walesa voru nefndirnar boðaðar til annars fundar einum degi fyrr. Fyrirfram var búizt við hörðum átökum og jafnvel klofn- ingi, en Walesa virtist ekki óttast það. „Samstaða verður að klofna til að halda fegurð sinni,“ sagði hann. Vikuna fyrir fundinn reyndu Mazowiecki og Walesa að breiða yfír ágreining sinn. Um tíma virt- ust þeir geta náð samkomulagi, en þegar fundirnir hófust var óvíst hvort það mundi takast. Ritstjórinn Kazimierz Woycicki, sem hefur reynt að miðla málum, taldi að „Walesa og Mazowiecki hefðu gengið svo langt að hæpið væri að þeir gætu snúið við.“ Greinilegt var að bæði Mazowi- ecki og Walesa ætluðu að nota fundahöldin til að treysta stöðu sína fyrir næstu þingkosningar. Walesa hótaði að breyta Samstöðu í önnur kosningasamtök, ef ríkisstjórnin næði yfirráðum yfir borgaranefnd- unum. Hróp og ásakanir Þegar fyrri fundurinn hófst gerðu stuðningsmenn Mazowieckis hróp að fylgismönnum Walesa, en þeir svöruðu með hrópum um „svik“ og „ill markmið". Helztu mennta- menn Samstöðu gengu af fundi í stað þess að styðja Walesa. Áður en gengið var til atkvæða ítrekaði Walesa að tillagan um að breyta nefndunum í stuðningsflokk stjórnarinnar jafngilti tilraun til að koma á raunverulegri valdaaeinok- un og gæti að lokum leitt til þess að Pólland yrði aftur einræðisríki. Hann neitaði því að hann reyndi að stofna til illinda við stjórnina, þar sem hún væri treg að sam- þykkja að hann yrði forseti. „Ef ég vil verða forseti væri heimskulegt af mér að heyja stríð við Mazow- iecki, Bronislaw Geremek og Michnik," sagði hann. Walesa sagði að hætta væri á því að bylting Samstöðu villtist af leið eins og allar aðrar byltingar. Til þess að rækja það hlutverk sitt að efla veikburða lýðræði Póllands ættu nefndirnar að styðja pólitískt fjölræði, en ekki þá einingu, sem stjórnin beitti sér fyrir. „Ég get vel skilið fólk, sem segir að við þurfum einingu í uppbyggingarstarfí okk- ar,“ sagði hann, „en ég óttast slíkt tal. Við þurfum að koma á fót fjöl- ræðisskipulagi til þess að koma í veg fyrir valdatöku einræðisherra í framtíðinni." Hann hvatti fundarmenn til að hugsa sig vandlega um áður en þær samþykktu tillöguna um að borg- aranefndirnar yrðu sameinaðar í ein miðstýrð heildarsamtök, sem styddu stjórnina. Hver ræðumaður- inn á fætur öðrum lýsti yfír stuðn- ingi við andstöðu hans við tillöguna og hún var felld með 150 atkvæðum gegn 10. Walesa vann glæsilegan sigur og draumur Mazowieckis um stuðningsflokk á breiðum grund- velli virtist úr sögunni. í staðinn samþykktu fulltrúarnir tillögu frá Walesa um að þeir kæmu aftur saman að þremur viknum liðn- um til að ræða möguleika á því að nefndirnar hittist óformlega einu sinni í mánuði og ræði leiðir til að koma á pólitísku skipulagi. Stuðn- ingsmenn Walesa munu skipuleggja þessar ráðstefnur og þær geta orð- ið vettvangur fyrir gagnrýni á stjórnina. Eftir sigurinn virtist Walesa hins vegar staðráðinn í að koma í veg fyrir að deilurnar við stuðningsmenn Mazowieckis leiddu til endanlegs klofnings. Viðurkenndi ósigur Ósigur Mazowieckis var svo mik- 411 að hann ákvað að friðmælast við Walesa. Þegar hann mætti óvænt á síðari fundinn kvaðst hann fús að ræða við Walesa um „það sem við gætum gert til að tryggja að ágreiningur okkar eyðileggi ekki Samstöðu". Hins vegar væri hann ekki reiðubúinn að ganga á fund Walesa til að votta honum hollustu — hann vildi ræða við hann sem „samheija“ og sýna honum að hann vildi samvinnu. Pólverjar þyrftu að velja á milli þess að „fylgja hinni erfíðu braut umbóta" eða að gera stjórninni ókleift að starfa“. Fundir borgaranefndanna leiddu í ljós að þær vilja ekki klofning í röðum sínum og halda tryggð við Walesa. Walesa sýndi að hann ræð- ur lögum og lofum í nefndunum og treysti pólitíska stöðu sína eftir þann álitshnekki, sem hann hafði beðið vegna tilraunanna til að verða forseti. Ekki virðist með öllu útilok- að að sá draumur hans geti rætzt, ef aðstæður krefjast styrkari stjórn- ar. Mazowiecki hefur reynt að bæta veika stöðu sína. Tæpri viku síðar rak hann þijá fyrrverandi kommún- ista og tvo bandamenn þeirra úr stjórninni og hvatti til skjótra kosn- inga. Þá er Jaruzelski forseti eini kommúnistinn sem enn gegnir valdamiklu embætti. Síðan fundir borgaranefndanna fóru fram hefur virzt að Walesa sé fús að komast að málamiðlunar- samkomulagi við stjórnina og setji ekki lengur það skilyrði að gengið verði tafarlaust til forseta- og þing- kosninga. Walesa bauð Mazowiecki og öðr- um leiðtogum Samstöðu til við- ræðna í Gdansk til að sýna fram á einingu hreyfingarinnar. Samn- ingsaðstaða hans var sterk. Við- ræðurnar halda áfram og báðir aðilar virðast hafa dregið í land.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.