Morgunblaðið - 15.07.1990, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 15.07.1990, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15. JÚLÍ ---------------------------------. C 15 Maðurinn sem vissi of mikið Kvikmyndir Amaldur Indridason Total Recall. Sýnd í Bíóborginni og Bióhöllinni. Leikstjóri: Paul Verhoeven. Handrit: Ron Shu- sett og Dan O’Bannon. Aðalhlut- verk: Arnold Schwarzenegger, Sharon Stone, Michael Ironside. Ronnie Cox. Velkomin til Mars. Feitlagin kona lendir í vandræðum í tollinum en allt í einu sneiðist af henni haus- inn og í ljos kemur Amold Schwarzenegger undir honum. Hann grípur gervihausinn, sem búinn er að raða sér aftur saman fyrir ofan hann, og hendir honum í öryggisverði. Þar springur hann, skothríð hefst og kúlumar tætast inní mannslíkama. Ein fer í hlífðar- glerið sem skilur mennina frá loft- leysinu á Mars og helmingur leikar- anna hendist út í svartnættið í hrikalegu útsogi. Schwarzenegger er lentur. Hollywood-sumarið er komið í hraðpósti með framtíðarþrillernum Fullkominn hugur, nýjasta Arnold Schwarzenegger-smellinum, sem frumsýndur var vestra fyrir aðeins nokkram vikum. Ef eitthvað er að marka þessa fyrstu sumarkomu eigum við góða tíð í vændum. í Fullkomnum hug er flest af því sem maður átti von á frá sam- starfi Schwarzeneggers og hol- lenska leikstjórans Paul Verhoe- vens (RoboCop) og meira en það. Myndin er nánast stanslaus árás á sjón og heyrn með hverju blóðugu hasaratriðinu á fætur öðru, þrot- lausum eltingarleikjum, blossandi skotbardögum og skefjalausu of- beldi í bland við kaldranalega framtíðarsýn og spaugilegar framtíðarbrellur eins og þá sem Schwarzenegger notar til að dulbú- ast við komuna til Mars. Hún kost- aði sjálfsagt gommu af peningum en þú færð líka sannarlega að njóta þess. Fullkominn hugur er fullkom- inn sumarsmellur og þótt ofbeldið sé mikið er það fjarlægt manni og nær fráleitt innfyrir hörundið í grínaktugum teiknimyndasögustíl sínum. Schwarzenegger á alltaf brandara fyrir réttu tækifærin svo salurinn getur klappað með. Handrit þeirra Ron Shucetts og Dan O’Bannons er ansi lunkinn vísindaskáldskapur byggt á smá- sögu Philips K. Dick. Myndin gæti verið ein löng martröð verka- mannsins Doug Quaids (Schwarz- enegger), sem hann hefur pantað með minnisígræðslu, og hún gæti líka verið raunveruleikinn. Hún gerist seint á 21. öldinni og Quaid, sem hefur tilfínningu fyrir því að hafa komið til Mars — nú orðin námunýlenda — þótt hann telji sig líka vita að þar hafi hann aldrei verið, pantar minnisígræðslu hjá fyrirtækinu Recall og velur að vera njósnari í hættulegri sendiför til Mars þar sem hann „vinnur á bóf- unum, hreppir gelluna og bjargar plánetunni” eins og sölumaðurinn segir. En eitthvað fer úrskeiðis og ekki batnar það þegar Quaid svo kemst að því að hann hafi ekki aðeins komið á Mars áður heldur verið þar sannkallaður óþverri, morðingi í þjónustu námufyrirtækisins sem virðist eiga plánetuna, og hann veit stóra leyndarmálið í sambandi við Mars. Quaid er í aðra röndina klassísk Hitchcock-persóna, lengst af er hann sakleysingi sem lendir í hremmingum sem hann hefur enga stjórn eða skilning á. Hann er Maðurinn sem vissi of mikið og lenti á Mars fyrir vikið. Eitt af því sem myndin gerir en gleymist sjálfsagt strax í öllum -hamaganginum í Verhoeven er að leika mjög skemmtilega með bilið á milli draums og veruleika. Við getum aldrei vitað hvort er hvað og Quaid að lokum ekki heldur en í einu eftirminnilegasta atriði myndarinnar bankar skyndilega prófessor uppá hjá Quaid og segist hafa verið sendur inní draum hans til að vekja hann. Quaid er andar- tak á báðum áttum. Er hann virki- lega að dreyma þetta allt saman? En það er aðeins andartak. Svo eru það náttúrulega ekki krefjandi vangaveltur sem skipta svona glæsilega innbundinn hasar- pakka máli. Hér er allt kapp lagt á afþreyinguna. Hinar framand- legu sviðsmyndir era sérlega vel úr garði gerðar og hasarinn pump- ast látlaust um þær, kröftuglega sviðsettur af Verhoeven. Eins og í RoboCop er óvinurinn stórfyrirtæk- ið á staðnum (Ronnie Cox endur- tekur hlutverk höfuðandstæðings- ins sem forstjóri þess) sem á í bar- áttu við uppreisnaröfl á pláne- tunni. Helmingur þeirra sem byggja Mars er hryllilega afmynd- aður vegna geislunar og byggir melluhverfið Venusville á Mars. Það er furðulega lítið sláandi (nema uppreisnarforinginn er skemmti- lega staðsettur). en gefur Verhoe- ven sérstakt tækfæri til að upplýsa okkur um sirkushúmor sinn sem birtist in.a. í mörgum skotum af þríbijósta mellu. Illmennasérfræðingurinn Mich- ael Ironside er vondi kallinn og hlýtur að vonum makleg endalok. Sharon Stone er voðakvendið og tekur hlutverkið fantatökum en enginn skyggir á Schwarzenegger sem er í hveiju atriði gersamlega óbugandi ofurmenni. Hinn full- komni harðhaus. Arnold Schwarzenegger Mannúð og menning Rauði kross íslands heldur námskeið fyrir| börn á aldrinum 8-10 ára dagana 7.-17. ágúst nk. Námskeiðið verður haldið í félags- heimilinu Bóli í Mosfellsbæ. Meðal efnis á námskeiðinu: Skyndihjálp, fræðsla um þróunarlönd, flóttamenn, um- hverfismál, myndlist, leikir o.fl. UPPLÝSINGAR OG SKRÁNING í SÍMA 91-26722. Raudi Krosslslands B&nltaEEtbaBiíí 2> » RfteyKjpuí sámii 6i2i7?T4)44 p jri | Metsölublad á hveijum degi! 0 SAY ANYTHING... Útgáfa 16. júlí John Cusack leikur ráðvilltan kickboxara sem á sér aðeins eitt takmark, að negla flottustu píuna á svæðinu LEAN ON ME Vih Q Morgan Freeman fer á kostum sem Joe Clark, skólastjóri vopnaður kylfu og gjallarhorni. Ótrúleg mynd um sannsögulega atburði. A SUMMER STORY Útgáfa 16. júlí Virkilega vönduð og góð mynd sem nær sterkum tökum á áhorfandanum. ▲ 1 n JOHNNY HANDSOME ▲ 2 CHILD S PLAY ▲ 3 /] THE PACKAGE A 4 Vj THE ABYSS ▲ 5 YOUNG EINSTEIN cs 6 PET SEMATERY ▲ 7 HISTORY OF THE WORLD, PART 1 V 8 ■-] WHEN HARRY MET SALLY ▲ 9 DEAD CALM ▲ 10 '1 IT TAKES TWO ▲ 11 i K-9000 V1 12 ERIKTHE VIKING ▲ 13 MEMORIES OF ME V C3 14 15 4TJ COUSINS CRY FOR HELP ▲ 16 PINK PANTHER "SAFNIÐ" ▲ 17 18 DEAD BANG FIELD OF DREAMS ▲ 19 JAMES BOND "SAFNIÐ" V 20 U GHOSTBUSTERS 2 VIÐ MINNUM Á ENDURÚTGÁFURNAR: JAMES BOND - ALLAR THE SHINING THE BOYS FROM BRAZIL CAPRICORN ONE THE MAN WITH TWO BRAINS TOUNG FRANKENSTEIN THE GOOD, THE BAD AND THE UGLY PINK PANTHER - ALLAR OG MEIRA Á LEIÐINNI! Greinagóðar merkingar Fj0rir verðflokkar: 200 kr, 300 kr, 350 kr, 400 kr. BÓNUSKORT, tíunda hver spóla frí! S T E I N A R Þar sem myndirnar fást MYNDIR myndbandaleigur SKIPH0LTI 9 s: 626171 - ÁLFABAKKA 14 MJÓDD S: 79050 KRINGLAN 4 s: 679015 - REYKJAVÍKURVEGUR 64 s: 651425

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.