Morgunblaðið - 15.07.1990, Page 19

Morgunblaðið - 15.07.1990, Page 19
C 19 Scala. Svo vel er búið að þegnum þessa lands að flestir hafa tækifæri til að ná frama svo lengi sem ekki skortir ásetning, hæfileika og ekki hvað síst heppni. Séríslenskt fyrirbæri í þessum stjörnufræðum er innflutta frægðin sem íslenskasta stjarna allra tíma, Garðar Hólm, er kaldhæðið dæmi um. Víst er að þær stjörnur sem glitra hvað tærast hér á landi baða sig í einnig í erlendum frægðar- ljóma. Hér á landi berast frekar fréttir af umsögnum erlendra fjöl- miðla af afrekum landans en af afrekunum sjálfum. Hvert hefði hlutskipti Sykurmola orðið hér á landi hefði Melody Maker ekki tek- ið þá upp á sína arma? Eins fjalla flestar fréttir af Ásgeiri Sigurvins- syni eða Arnóri, Guðna Bergs, Sigga Jóns o.s.frv. um frásagnir misjafnlega merkilegra blaða og tímarita um þá. Þó svo dalakofa- komplex okkar, þ.e. ekkert íslenskt er merkilegt, geti verið orsök þessa þá er þetta einnig vísbending um að raunverulegar stjörnur þrífist illa á íslandi. Önnur vísbending er sú að þrátt fyrir umtalsverða félags- lega breidd hér á landi þá er ofg- nóttinni og öfgunum ekki fyrir að fara eins og meðal hinna sönnu stjarna í Hollywood, New York, París og Róm. Hér á landi lifa allir gráu hvunndagslífi. Þegar kvik- myndaleikarar vestanhafs eru að hafa sig til kvöldverðar í miðri viku á úrvals veitingastað þá eru starfs- bræður þeirra í fremstu röð hér á landi að sækja börnin á barnaheim- ilið eða hlaupandi á eftir þeim í Kringlunni. Eða þegar erlendu tón- listarsjéníin vakna til tilbúnis morg- unverðar á sunnudagsmorgnum eru snillingar okkar að naglhreinsa og skafa timbur upp í Seljahverfi í Breiðholti. Ekki má heldur gleyma í þessu samhengi því að einkalíf íslenskra stjarna virðist hinn mesti lognpollur í samanburði við stormasöm hjóna- bönd alheimsstjarnanna. Islenskar stjörnur, með mjög fáum undan- tekningum, eru því ekki fet.i framar almenningi eða „einum of“ í einka- og félagslífi eins og þær erlendu. Að þessu leyti eru alþjóðlegar meg- astjörnur oft fyrirmyndir eða víti til varnaðar. Enn sem komið er hafa íslenskar stjörnur ekki ölast það hlutverk. E.t.v. stafar það af því að almenningur þekkir þær ekki nægjanlega. Fréttafjölmiðlar hafa lengst af lítið sinnt einkamáium frægra íslendinga. Að líkindum læsum við fyrr um hjúskaparvanda forseta Bandaríkjanna en kollega hans hér á landi. Af þessu má ljóst vera að ís- lensku stjörnurnar þurfa að upp- fylla allmörg skilyrði til þess að verða almennilegar stórstjörnur sem virkilega geislar af. FÓLK i jjölmiðlum ■Eggert Skúlason, hefur verið ráðinn fréttamaður á Stöð 2. Egg- ért hefur starfað við blaðamennsku um árabil, síðast sem fréttastjóri á Tímanum. Annar nýr fréttamaður, Jóhanna Tómasdóttir, kemur til starfa á Stöð 2 undir Iok mánaðar- ins. Jóhanna hefur nýlokið masters námi í fjölmiðlafræðum í New York en í 16 ár starfaði hún sem ritari í utanríkisþjónustunni í Reykjavík, New York, Genf, París og Brussel. Auk þessara nýju fréttamanna er Auðbjörg Haraldsdóttir í afleys- ingum í sumar, en hún er í námi í fjölmiðlafræðum í Boston í Banda- ríkjunum. MORGUNBLAÐIÐ FJOLMIÐLAR SUNNUDAGUR 15. JÚLÍ Bergerac kominn í útrýmingarhættu BRESKA ríkissjónvarpið BBC inun líklega hætta við að flytja gamalt og vinsælt sjónvarpsefni á borð við þættina um Bergerac — sem nú er verið að sýna í íslenska ríkissjónvarpinu — til að bæta versnandi stöðu í keppninni um hylli áhorfenda í Bretlandi að sögn The Observer. þættirnir Dýrin mín stór og smá verða líklega einnig Látnir (júka. BBC hefur ekki haft jafnfáa áhorfendur í sex ár vegna harðnandi keppni frá óháðu sjón- varpssamsteypunni ITV. Nokkrum milljónum punda verður varið til að vinna aftur hylli áhorfenda, sem hafa leitað á önnur mið, með endur- skipulagningu efnis og framleiðslu nýrra þáttaraða, þrátt fyrir áætlun um 75 milljóna punda sparnað fyrir 1993. „Þreytulegir" þættir verða látnir víkja fyrir „aðgengilegum gæða- leikritum" á besta sýningartíma. Nýjar sápuóperur eru einnig áform- aðar í síðdegisdagskránni. í ráði er að nýir þættir taki um síðir við af gömlum og vinsælum staðreynda- þáttum eins og That’s Life og Mast- ermind — getraunaþætti Magnúsar Magnússonar. í nóvember horfði nánast sami fjöldi á BBCl og ITV. í lok júní horfðu 36,5% á BBCl, en 45,5% á ITV. Tíu af hundraði horfðu á BBC2 og 8% á „fjórðu rásina“ (Channel Four). Aðalbreytingarnar verða kl. 7-9 e.h. Ein helsta skráveifan, sem ITV Líflátsliótun? John Nettles í hlut- verki Bergerac, rannsóknarlög- reglumanns á eynni Jersey. hefur gert BBC, var að fjölga þátt- um sápuóperunnar Coronation Street í þijá f viku. Tvær aðrar sápuóperur, önnur þeirra um sveita- líf, hafa verið bættar og endurnýj- aðar. Þættir ITV um Morse lög- regluforingja hafa náð hylli vel- stæðs fólks. Blómaskeið BBC-þátta eins og Austurhæingar og Wogan virðist á enda runnið. Rás 1 fær nútímalegra yfirbragð Með haustinu eru fyrirliug- aðar töluverðar breytingar á dagskrá Rásar 1 lijá Ríkisút- varpinu. Að sögn Margrétar Oddsdóttur dagskrárstjóra hefúr útvarpsráð samþykkt helstu áherslur, en endanleg mynd af dagskránni verður ákveðin þegar nýtt fólk kemur til slarfa. Auglýst hefur verið eftir umsjónarmanni morg- unútvarps og ritstjórum ár- degisútvarps, midegisútvarps og síðdegisútvarps. ið höldum áfram í ákveðnar hefðir, en teljum tímabært að ljá Rás 1 nútímalegra yfir- bragð og byggja dagskrána upp á markvissari hátt en verið hef- ur,“ sagði Margrét Oddsdóttir. Aðspurð sagði hún of sterkt til orða tekið að verið sé „poppa upp“ dagskrána, en engu að síð- ur verði breytingar töluverðar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.