Morgunblaðið - 15.07.1990, Síða 32

Morgunblaðið - 15.07.1990, Síða 32
32 C MORGUNBLAÐIÐ SUNNUD'AGUR 15. JÚLÍ BAIiÞANKAR Að missa af strætisvagn- inum eftir Helgu Thorberg Þetta var einn af þessum dá- samlegu sólskinsdögum i júní. Ég var búin aö vera bíllaus i hálfan mánuð því fjallabílar þurfa sitt viðhald sem og önnur farartæki og mínir viðgerðar- snillingar í Súð- arvoginum taka lífinu með ró. Þeir gáfu sér góðan tíma til að kikja á varahlutina sem ég bar í þá og út- skýra fyrir mér að þetta væri ekki rétti hluturinn. 1 millitíðinni, meðan ég fór að leiðrétta inn- kaupin, þá gáfu þeir sér tíma tii að finna eitthvað enn annað sem þyrfti að skipta um eða laga. Mér finnst það í raun alveg ótrúlegt að það þyrftu vera svona margir mismunandi varahlutir i einum bíl! Er það ekki óþarflega flókið að hanna t.d. eitt drifskaft með þrjá mismunandi stúta sem þurfa jafnmargar og ólíkar pakkdósir? Manni, eða „konu". fyndist þetta gæti verið eitthvað einfaldara. Hvað um það. ég var bíllaus og því þurfti ég að endurnýja kynnin við SVR. Ég sviftist út um rafmagns- dyrnar á Útvarpshúsinu, rétt til að sjá á eftir strætisvagninum aka frá endastöðinni. Ég var á leiðinni að láta þetta fara i mitt „fína skap" . . . en það er dálítið erfitt að standa einn úti á stoppustöð og reyna að æsa sig upp í geð- vonsku á yndislegum sumardegi. Ég átti því ekki annan kost en að líta á björtu hllðarnar og gera gott úr þessu. Sko, þarna fékk ég á silfurfati heilar 20 mínútur til að vera úti, njóta góða veðursins, fegurðar fjaílanna og náttúrunn- ar. Ég gekk svo langt í þessu já- kvæða hugarfari að ég fleygði mér í grasið við biðskýlið og ákvað að nota timann til að sóla mig. Þegar ég var lögst í slakkann hafði ég sólina beint i hnakkann. Það fannst mér ekki nógu góð nýting svo ég fór að hnika mér til svo ég fengi sólina í andlitið enda þótt ég þyrfti að liggfa svo gott sem á haus. Strax kom næsti vagn. Ég ákvað að halda mínu striki og láta líta út eins og það færi vel um mig þarna í sólbaðinu. Vagn- stjórinn sté út úr vagninum, skildi hurðina eftir opna og hvarf inn í Útvarpshúsið. Tvær konur biðu i vagninum og gáfu mér auga. Eg losnaði úr prísundinni þeg- ar vagnstjórinn sté um borð aftur og af stað var haldið í sólskininu. Mikið lifandis skelfing var nú annars gaman að vera bara far- þegi í strætó. Þurfa ekki að hafa áhyggjur af eigin aksturslagi né annarra, heldur sitja bara áhyggjulaus og njóta þess sem fyrir augun bar. í Háaleitinu var ekið um glæsilega íbúðargötu og snyrtimennskan blasti við í opnu bílskúrunum. Garðslöngur og siátturvélar, allt í röð og reglu. Lítill snáði í stuttbuxum hljóp allt í einu út á götuna en strætó átti eftir að liðast blíðlega yfir upp- hækkunina. Við nálguðumst Hlemm og þá fór skrifstofufólkið að sjást úti á gangstéttunum að sleikja hádegissólina og ég tók eftir manni í hjólastól scm sólaði sig fyrir utan eina skrifstofubygg- inguna. Fyrir utan hús á Rauðar- árstígnum sat maður úti í sól- inni, sem hafði fleygt yfir höfuð sitt bláa sumarjakkanum sínum. Já, skyldi vera mikil hætta á því að fá sólstíng í hádegíssólinni á Rauðarárstígnum í Reykjavík! Ég skipti um vagn á Hlemmi sem varð til þess að ég hitti vin minn og skíðafélaga. Allt i cinu var strætó kominn vestur í bæ. Þegar ég fór út að aftan hafði mér áskotnast bók um íslenska mynd- list og ég veifaði vini mínum í kveðjuskyni. Ég gluggaði aðeins í þessa nýfengnu bók á göngunni heim, sem ég gat þakkað að hafa misst af strætó! Ég tók dreng- skaparloforð af sjálfri mér að fara aldrei í vont skap þegar ég missti af strætó. Mér varð síðan hugsað til ungu konunnar sem vagnstjór- inn var svo elskulegur að bíða eftir á stoppustöðinni á Háaleitis- brautinni. Skyldi hún hafa misst af einhverju? ÚTSALA hefst á mánudag kl. 10.00. KRINGLUNNI Njóttu þess besta -útilokaðu regnið, rokið og kuldann BORGARTÚNI 31 • SÍMI 62 72 22 íslensk veörátta er ekkert lamb að leika við. Þess vegna nýtum við hverja þá tækni sem léttir okkur sambúðina við veðrið. LEXAN ylplastið er nýjung sem gjörbreytir möguleikum okkar til þess að njóta þess besta sem íslensk veðrátta hefur að bjóða - íslensku birtunnar. LEXAN ylplastið er hægt að nota hvar sem hægt er að hugsa sér að Ijósið fái að skína, t.d. í garðsofur, yfir sundlaugar, yfirbyggingu gatna, yfir húsagarð, anddyri og húshluta. Möguleikamir eru óþrjótandi. LEXAN ylplast • Flytur ekki eld. Er viðurkennt af Brunamálastofnun. • Mjög hátt brotþol. DIN 52290. • Beygist kalt. • Meiri hitaeinangrun en gengur og gerist. • Hluti innrauðra geisla ná í gegn. GENERAL ELECTRIC PLáSTICS LEXAN ylplast velur það besta úr veðrinu SINDRI

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.