Morgunblaðið - 30.08.1990, Síða 1
56 SIÐUR B
195: tbl. 78. árg.
FIMMTUDAGUR 30. ÁGÚST 1990
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Sovétríkin:
Morgunblaðið/Börkur
Frakklandsforseti í Islandsheimsókn
FRANQOIS Mitterrand, Frakklandsforseti, kom í opinbera heimsókn til íslands í gær. Átti forsetinn með-
al annars viðræður við Steingrím Hermannsson, forsætisráðherra, og Jón Baldvin Hannibalsson, utanríkis-
ráðherra. Á blaðamannafundi sem Frakklandsforseti hélt síðdegis í gær lýsti hann yfir skilningi sínum á
sérstöðu Islands gagnvart EB, sökum þess hve háð þjóðin væri einni afurð og hversu fáir íbúarnir væru.
Sagðist hann telja það vera skynsamlegast að ísland gerði sérsamning við Evrópubandalagið eða ef það
gengi ekki að gerður yrði samningur á milli EFTA-ríkjanna og EB. Opinberri heimsókn Frakklandsforseta
lauk síðdegis í gær en í dag verður hann hér í einkaheimsókn. Iieimsækir hann fyrst Árnastofnun en
heldur síðan að Gullfossi og þaðan á Þingvelli. Heimför Frakklandsforseta er áætluð klukkan hálf fjögur í dag.
Sjá nánar á bls. 2, 24, 25 og 26.
Fundur Jeltsíns
og Gorbatsjovs
Þeir Míkhaíl S. Gorbatsjov, leið-
togi sovéskra kommúnista, og
Borís Jeltsín, forseti Sovétlýðveld-
isins Rússlands og þekktasti leið-
togi umbótasinna eystra, komu
saman til fundar í Moskvu í gær
til að ræða stöðu efnahagsmála.
Sögðust þeir að fundinum loknum
vilja að öll lýðveldi Sovétríkjanna
undirrituðu sérstakan sáttmála
þeirra og Sovétstjórnarinnar um
framtíðarskipan efnahagsmála í
því skyni að koma markaðsbúskap
á í Sovétríkjunum. Sameiginlegar
tillögur þeirra yrðu kynntar nánar
í næstu viku.
Neyðarástand og út-
göngnbaiin 1 Armeníu
Moskvu. Reuter.
ARMENSKA þingið lýsti yfir neyðarástandi og útgöngubanni í gær
og samþykkti samhljóða að banna stærstu hersveit armenskra þjóð-
ernissinna, ANA, eftir að sex manns létu lifið, þ.á m. einn þingmaður,
í átökum milli hersveitarinnar og hóps samningamanna yfirvalda
snemma í gærmorgun.
Þá skipaði þingið liðsmönnum
hersveitarinnar að yfirgefa ramm-
gerar höfuðstöðvar sínar í borginni
Jerevan og afhenda vopn sín fyrir
kl. 22. Ef ekki yrði staðið við þessa
tímasetningu myndu innanríkis-
ráðuneyti Armeníu og sérsveitir
sovésku öryggislögreglunnar, KGB,
grípatil aðgerða gegn hersveitinni.
Míkhaíl Gorbatsjov, forseti Sov-
Líbería:
étríkjanna, fyrirskipaði í júlí öllum
hersveitum þjóðernissinna að skila
vopnum sínum innan 15 daga en
eftir viðræður við Levon Ter-Petro-
sjan, forseta Armeníu, lengdi hann
frestinn í tvo mánuði. Þjóðernishóp-
arnir hafa notið stuðnings almenn-
ings og óopinbers stuðnings þings-
ins í deilum við Azera um héraðið
Nagorno-Karabak sem staðið hafa
í rúmlega tvö og hálft ár. Meiri-
hluti íbúa Nagorno-Karabaks er
Armenar.
Friðargæslu-
sveitir biðja
um mat og lyf
Monróvíu. Reuter.
Friðargæslusveitirnar í
Líberíu sendu frá sér neyðar-
kall í gær og hvöttu ríki heims
til að senda þegar í stað mat-
væii og lyf til landsins til þess
að lina þjáningar íbúa sem líða
sult og seyru vegna borgara-
styrjaldar.
Skoruðu sveitirnar á alþjóðleg
líknarsamtök að láta ástandið í
Líberíu til sín taka og senda þang-
að hjálpargögn. Daglega safnast
þúsundir sveltandi borgarbúa sam-
an við höfuðstöðvar friðargæslu-
sveitanna í leit að mat en þar eð
sveitirnar hafa aðeins 30 daga vist-
ir geta þær litla matarbjörg veitt.
Þá er orðinn tilfinnanlegur skortur
á lyfjum og sáraumbúðum á eina
sjúkrahúsi borgarinnar sem enn
starfar.
Friðargæslusveitirnar hafa náð
fótfestu í norðurhluta Monróvíu.
Eiga þær enn í átökum við sveitir
uppreisnarmanna undir forystu
Charles Taylors sem hafa úthverfi
í austurhluta borgarinnar á valdi
sínu. Vestrænir stjórnarerindrekar
segja framtíð Líberíu í höndum
Taylors því hann ráði um 90%
landsins.
Reuter
Óháða fréttastofan Interfax
skýrði frá því að þingmaðurinn
Viktor Aivatsjan hefði ætlað að
reyna að miðla málum í deilum
tveggja þjóðernishópa ásamt öðrum
sendimönnum stjórnvalda. Þeir
voru við höfuðstöðvar ANA þegar
þeir voru skotnir til bana.
Þing Armeníu samþykkti þegar
í stað að lýsa yfir neyðarástandi
og setja útgöngubann. Þá skipaði
þingið hópum þjóðernissinna að
skila vopnum sínum fyrir kl. 22 í
gærkvöld að staðartíma eða kl. 17
að íslenskum tíma. Þjóðernissinnar
neituðu að láta vopn sín af hendi
en báðu um viðræður við yfirvöld.
Bretar væna íraka um blekkingar í gíslamáiinu:
Ástæðulaust að leita mála-
miðlana í Persaflóadeilunni
- segir Margaret Thatcher, forsætisráðherra Bretlands
Helsinki, Lundúnum, Nikósíu. Reuter.
STJÓRNVÖLD í frak ítrekuðu í
gær að öllum vestrænum konum
og börnum sem haldið hefur ver-
ið í gíslingu yrði leyft að halda
frá írak og Kúvæt. Gíslarnir voru
þó ekki á meðal farþega sem
héldu flugleiðis frá höfuðborg
íraks, Bagdad, til Jórdaníu og
bresk stjórnvöld vændu Saddam
Hussein íraksforseta um að
stunda ómerkilegan blekkingar-
leik með líf gíslanna. Margaret
Thatcher, forsætisráðherra
Bretlands, livatti Saddam í gær
til að sleppa ölluin gíslum sínuin
úr haldi, vændi hann um hug-
leysi og lýsti yfir því að ástæðu-
laust væri að leita málamiðlana
í Persafióadeilunni.
Forstöðumaður upplýsingaskrif-
stofu ríkisstjórnar Iraks, Naji al-
Hadithi, sagði í samtali við Reut-
ers-fréttastofuna að vestrænar kon-
ur gætu nálgast sérstök brottfarar-
leyfi sín og barna sinna og haldið
úr landi, æsktu þær þess. Saddam
Hussein lýsti óvænt yfir því á
þriðjudag að konur og börn gætu
snúið til síns heima og var þeirri
tilkynningu íraksforseta fagnað,
með varfærnislegum hætti þó, á
Vesturlöndum. Sérfræðingar í mál-
efnum Iraks, sem fréttamenn Reut-
ers ræddu við í gær, sögðu tilkynn-
ingu forsetans til merkis urn að
staðfesta hans væri tekin að dvína
og að harin vonaðist til að vestræn
ríki frestuðu þugsanlegum hern-
aðaraðgei'ðum sökum þessa.
Stjórnvöld á Bretlandi sögðu það
fagnaðarefni yrði konum og börn-
um leyft að fara frá írak en Dougl-
as Hurd utanríkisráðherra sagði
framferði íraka í gíslamálinu öld-
ungis óafsakanlegt. Sagði hann
Saddam forseta iðka ómet'kilegan
hráskinnaleik með líf gíslanna að
veði með því að beita fagurmælum
og hótunum á víxl. Flugvélar voru
í gærdag hafðar til taks í nágranna-
ríkjum færi svo að gíslunum yrði
sleppt en efasemdir um að sú yrði
raunin fór vaxandi er líða tók á
daginn.
I dag, fimmtudag, munu fram-
kvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna,
Javier Perez de Cuellar, og utanrík-
isráðherra íraks koma saman til
fundar í Amman í Jórdaníu. Marg-
aret Thatcher, forsætisráðherra
Bretlands, sagði í Helsinki í Finn-
landi í gær að ástæðulaust væri að
leita málamiðlana í Persaflóadeil-
unni. Samþykktir Öryggisráðs SÞ
lægju fyrir og þær væru afdráttar-
lausar; Irakar yrðu að kalla heim
lierlið sitt frá Kúvæt. Saddam for-
seta kvað hún fela sig í pilsfaldi
kvenna og nota börn sem skjól.
Sjá fréttir á bls. 22.