Morgunblaðið - 30.08.1990, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. ÁGÚST 1990
800 tonna samdrátt-
ur í sölu kindakjöts
Reykjuin í Hrútafirði. Frá Helga Bjarnasyni, blaðamanni Morgunblaðsins.
SALA á kindakjöti verður £00 tonnum minni á því verðlagsári sem
nú er að ljúka en hún var á síðasta ári samkvæmt nýrri áætlun
Samstarfshóps um sölu lambakjöts. Salan verður rétt um 8.000
tonn sem er 9,2% samdráttur. Steingrímur J. Sigfússon landbúnað-
arráðherra greindi frá þessu í ávarpi sinu á aðalfundi Stéttarsam-
bands bænda á Reykjum í Hrútafirði í gær.
Landbúnaðarráðherra sagði að
þetta væru dapurleg tíðindi. Ljóst
væri að þau markmið sem sett
hefðu verið um birgðaminnkun á
þessu ári næðust ekki. Nú stefnir
í að birgðir fyrir upphaf sláturtíðar
verði 1.700 tonn, rúmlega 300
Eyjólfur
Konráð Jónsson:
Yfírlýsing
Mitterrands
mikilvæg og
ánægjuleg
EYJÓLFUR Konráð Jóns-
son, formaður EB-nefndar
Alþingis, segir yfírlýsingu
Frakklandsforseta um Is-
land og EB vera mjög mikil-
væga og ánægjulega. Hún
sé einnig í samræmi við það
sem hann og fleiri hafí hald-
ið fram að væri eðlilegt og
sjálfsagt.
„Það var meðal annars deilt
um þessi mál í mjög hörðum
umræðum á Alþingi í fyrra þar
sem því var jafnvel haldið fram
að hættulegt væri að óska eft-
ir viðræðum við EB. Var þá
sérstaklega talað um bókun
sex í því sambandi,“ sagði
Eyjólfur Konráð. „Nú nefndi
Frakklandsforseti hér almenna
samninga og greinir frá skiln-
ingi sínum á okkar sérstöðu
og fyrirvörum. Þetta finnst
mér að eigi að verða til þess
að við leggjum mikla áherslu
á að fá málin í þennan farveg
og það höfum við sjálfstæðis-
menn gert bæði í EB-nefndinni
óg í utanríkismálanefnd Al-
þingis."
Eyjólfur Konráð sagði að
svo vel vildi til að EB-nefndin
væri að fara í hálfs mánaðar
ferð til Evrópu til að hlusta á
menn og setja fram sjónarmið
íslendinga. Yrði þessi yfirlýs-
ing eflaust til þess að menn
myndu fylgja enn harðar þeirri
stefnu sem Frakklandsforseti
talaði um og að reynt yrði að
hraða slíkum samningum sem
mest.
tonnum minni en fyrir ári, en stefnt
hafði verið að mun meiri birgða-
minnkun og unnið að því meðal
annars með niðurgreiðslum og
söluátakinu Lambakjöt á lág-
marksverði.
I ávarpi sínu sagði landbúnaðar-
ráðherra að tilraunir til útflutnings
á dilkakjöti hefðu ekki gengið nógu
vel. Hann spurði hvort rétt væri
að hætta þeim alveg eða hvað
bændur vildu leggja á sig til að
halda þeim áfram af alvöru.
Sló ráðherrann fram þeirri hug-
mynd að hvert meðalsauðfjárbú
legði fram einn dilk á ári til þess
verkefnis að reyna að afla markaða
erlendis fyrir kjötið. Þannig væri
hægt að reyna fyrir sér erlendis
með 45-50 tonn á ári. Þannig
væri hægt að láta á það reyna
hvort grundvöllur væri til útflutn-
ings á einhverri viðbótarfram-
leiðslu á hveijum tíma.
Sjá frétt á bls. 20.
MorgunDiaoio/övernr
Forsetarnir hlýddu á Sykurmolana
Forseti íslands, Vigdís Finnbogadóttir, og Frakk-
landsforseti, Francois Mitterrand, mættu óvænt
ásamt Jack Lang menningarmálaráðherra Frakka
til tónleika sem Sykurmolarnir héldu Lang í Duus-
húsi við Fischersund síðdegis í gær. Að sögn Árna
Benediktssonar framkvæmdastjóra Sykurmolanna
vissi hljómsveitin með hálftíma fyrirvara að forset-
amir yrðu einnig meðal gesta.
Hljómsveitin spilaði í um það bil 45 mínútur en að
loknum fjórum lögum þurftu forsetarnir að fara
vegna strangrar dagskrár. Hljómleikarnir héldu
áfram fyrir Lang og um það bil 70 gesti mennta-
málaráðuneytisins og Sykurmolanna. Að loknum
tónleikunum heilsaði Jack Lang upp á hljómsveitina
og virtist hinn ánægðasti, að sögn Braga Ólafssonar
bassaléikara.
Framhaldsskólar hefjast ekki á tilskildum tíma:
HIK með margvíslegar
aðgerðir í undirbúningi
segir Elna Katrín Jónsdóttir varaformaður félagsins
KENNSLA í nokkrum framhaldsskólum landsins hefst ekki á venju-
legum tíma, það er að segja mánudaginn 3. september næstkom-
andi. Kennarar í Hinu íslenska kennarafélagi vilja með þessu mót-
mæla setningu bráðabirgðalaga á kjarasamning BHMR og ríkisin^
Fjölbrautaskólinn í Breiðholti
verður settur mánudaginn 3. septem-
ber og ráðgert er að kennsla hefjist
þar sama dag. Kennsla í Fjölbrauta-
skólanum í Ármúla og Menntaskól-
anum í Reykjavík hefst 4. septem-
ber, í Verslunarskólanum, Mennta-
skólanum við Sund og í Fjölbrauta-
skólanum á Akranesi hefst kennsla
5. september. Kennsla í Menntaskól-
anum við Hamrahlíð hefst 6. septem-
ber.
í kjarasamningum framhalds-
skólakennara segir meðal annars:
„Árlegan vinnutíma í bóklegum
greinum í skóla með 9 mánaða
starfstíma innir kennari svo af hendi:
1. Með viðverutíma, þ.e. kennslu
og öðrum störfum í skólanum í 28
klukkustundir á viku á árlegum
starfstíma skólans.
2. Með undirbúningi undir kennslu í
20 klukkustundir og 26 mínútur.
3. Með undirbúningi undir kennslu
í samtals 153 klukkustundir utan
árlegs starfstíma skólans.“ Undir-
búningur framhaldsskólakennara í
fullu starfi fyrir kennslu utan starfs-
tíma skólans er því tæpar fjórar vik-
ur samkvæmt kjarasamningnum.
Elna Katrín Jónsdóttir, varaform-
aður Hins íslenska kennarafélags,
sagði að 153 tíma starfsSkylda utan
árlegs starfstíma skólans sem kveðið
væri á um í kjarasamningi fram-
haldsskólakennara væri almennt að
fullu nýtt til að semja námsefni og
kennsluáætlun. Auk þess væri í
kjarasamningnum ákvæði um að hið
opinbera geti ákveðið námskeið fyrir
kennara í tvær vikur utan árlegs
starfstíma skóla annað hvert ár. Hún
benti einnig á að í nýrri reglugerð
um framhaldsskóla væri skýrt tekið
fram að kennarafundi skuli halda
innan starfstíma skólans.
Elna sagði að kennarar hefðu
ákveðið að taka kjarasamning sinn
bókstaflega og hefja ekki störf fyrr
en á tilskildum tíma. Líta mætti á
þetta sem eina af mörgum aðgerðum
sem kennarar hyggjast grípa til í því
skyni að rétta hag sinn.
„Við erum með margvíslegar að-
gerðir í smíðum og ein af þeim er
sú að við munum ekki vinna sjálf-
boðavinnu í ágústmánuði. Þá má
nefna það að víða er pottur brotinn
hvað varðar vinnuaðstöðu kennara
og við ætlum að ná fram leiðréttingu
á því máli. Einnig ætlum við að fara
gaumgæfilega ofan í saumana á
vinnutíma kennara en sú hefð hefur
skapast að kennarar vinni óhóflega
langan vinnudag þegar próf standa
yfir í skólunum. Það er einnig ljóst
að við munum standa með BHMR-
félögum í hverjum þeim aðgerðum
sem þeir efna til í því skyni að ná
fram leiðréttingu á sínum kjörum,"
sagði Elna Katrín.
Olíuverð
fallandi
68% íslendinga telja af-
brot verulegt vandamál
87% andvígir dauðarefsingn
UM 68% íslendinga telja að af-
brot séu frekar mikið eða mjög
mikið vandamál hér á landi, og
90% telja að sá vandi fari vax-
andi, ef marka má könnun sem
Helgi Gunnlaugsson afbrota-
fræðingur hefur gert og náði
til 1.000 íslendinga á aldrinum
15-80 ára. Um 87% svarenda
reyndust andvígir því að beita
dauðarefsingu við alvarlegum
glæpum. Tæplega 73% telja
refsingar við afbrotum of væg-
ar hér á landi. Aðeins um 2%
þó nefna vægar refsingar sem
mikilvægustu ástæðu þess að
fólk leiðisl út í afbrot, 55% telja
að þar sé um að kenna áfengis-
eða eiturlyfjaneyslu en 22%
nefna erfíðar heimilisaðstæður.
40% svarenda töldu fíkniefn-
amisferli mesta vandamálið af
þessu tagi hér á landi og 25%
nefndu kynferðisafbrot. Um 18%
nefndu fjársvik tengd viðskiptum
og um 13% ofbeldi og líkamsárás-
ir. í tengslum við þá spurningu
eins og aðrar í könnuninni var
athugað hvort munur reyndist á
afstöðu kynjanna og kom í ljós
að nær jafnmargir karlar töldu
ijársvikamál og kynferðisafbrot
mesta vandamálið. 20,5% þeirra
nefndu fjársvik en um 22% kyn-
ferðisafbrot. Hins vegar töldu um
29% kvenna að kynferðisafbrot
væru mesta vandamálið en um
14% þeirra nefndu fjársvikamál.
Ekki greindist marktækur
munur á kynbundinni afstöðu þess
fjórðungs svarenda sem töldu
refsingar hæfilegar né heldur
meðal þeirra 2% sem töldu þær
of strangar. Hins vegar töldu 57%
kvenna að refsingar væru helst
til vægar en um 47% karla. 25%
karla töldu refsingar allt of vægar
en 20% kvenna töldu þá skilgrein-
ingu eiga við.
Fleiri konur en karlar telja að
afbrot séu frekar mikið eða mjög
mikið vandamál á Islandi. 50%
karla telja að afbrot séu frekar
mikið vandamál en 62% kvenna
eru sömu skoðunar. 37% karla en
25% kvenna telja hins vegar að
afbrot séu frekar lítið vandamál
hérlendis og um 1%, eingöngu
karlar, telja vandamálið mjög lítið.
OLÍUVERÐ féll talsvert á olíu-
mörkuðum á þriðjudag. Verð á
bensíni í Rotterdam féll um 40
til 56 dollara tonnið og hráolíu-
tunnan fór niður fyrir 26 dollara.
Að sögn Sigurgeirs Þorkelssonar
hjá Olíufélaginu hf. virðist ótti
manna við olíuleysi vera að sjatna,
hins vegar megi búast við miklum
hækkunum þegar í stað ef átök
verði við Persaflóann.
Sjá olíuverð á bls. 27
Fyrstu umferð
skákþings lokið
FYRSTA umferð Skákþings ís-
lands var tefíd á Hótel Höfn á
Hornafirði. í gærkvöldi.
Úrslit urðu þau að Margeir Pét-
ursson vann Björgvin Jónsson, Jón
L. Ámason vann Þröst Árnason,
Héðinn Steingrímsson vann Þröst
Þórhallsson, Hannes Hlífar Stefáns-
son vann Tómas Björnsson og
Snorri Bergsson vann Sigurð Daða.
Halldór Grétar hafði betra tafl gegn
Árna Árnasyni.