Morgunblaðið - 30.08.1990, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 30.08.1990, Blaðsíða 7
Skattstjóri: Bifreiða- hlunnindi rannsökuð SKATTSTJÓRINN í Rcykjavík er nú að undirbúa rannsókn á bif- reiðahlunnindum skattborgara. Gestur Steinþórsson skattstjóri sagði í samtali við Morgunblaðið, að mjög fljótlega færu frá emb- ættinu fyrirspurnir til stofnana og fyrirtækja, sem ekki hafa gert nægilega grein fyrir mögulegum hlunnindum starfsmanna af bif- reiðum í eigu þessara aðila, og þess farið á leit að gerð verði grein fyrir notkun bílanna og hvort einhverjir hafi af þeim hlunnindi. Beri svörum um hlunn- indi ekki saman við skattframtöl viðkomandi manna, verði áætlað- ur á þá skattur samkvæmt því. Gestur segir að þessi athugun sé mjög viðamikil, enda um margar stofnanir og fyrirtæki að ræða með allmarga bíla á sínum vegum. Hann á þó von á að úrvinnsla svara geti hafíst í næsta mánuði. Skattstjóraembættið hefur skrá yfír þá aðila sem eru með skráða bíla og ef þessi fyrirtæki og stofn- anir hafa ekki gert nægilega grein fyrir mögulegum hlunnindum af þeim eða afnotum starfsmanna, er þeim skrifað bréf og þeir beðnir um að gera grein fyrir hvar bílarnir eru og hvernig þeir eru notaðir og hvort einhver hefur heimild til að nota þá, að hluta eða án takmarkana. Svörin eru síðan borin saman við skattframtöl viðkomandi manna og ef hlunnindin eru ekki talin fram þar, er áætlaður á þá skattur vegna þeirra. Fram hefur komið í Morgunblað- inu, að ráðherrar greiða ekki stað- greiðsluskatt af bifreiðahlunnind- um, einnig að hlunnindi þeirra séu þó gefín upp á launamiða. Einnig hefur komið fram það álit ríkis- skattstjóra að ráðherrum beri að greiða skatt af bifreiðahlunnindum á sama hátt og öðrum skattborgur- um sem njóta slíkra hlunninda. Athugun skattstjórans í Reykjavík mun samkvæmt orðum Gests Stein- þórssonar leiða í ljós hvort einhverj- ir opinberir starfsmenn eða starfs- menn fyrirtækja hafí vanrækt að teija fram skattskyld hlunnindi og greiða af þeim skatta. Flugleiðir Qölga ferðum til Lúxemborgar í september FLUGLEIÐIR hf. hafa ákveðið að fjölga ferðum til Lúxemborg- ar um 16% í septembermánuði^ vegna mikillar eftirspurnar. I frétt frá félaginu segir, að ákveð- ið hafí verið að bæta við að minnsta kosti fimm ferðum í mánuðinum. í fréttinni segir ennfremur, að fjölgunin sé tilkomin vegna góðrar sölu í Norður-Atlantshafsflugi, og eftirspurn eftir ferðum á milli Is- lands og Lúxemborgar. Áður var gert ráð fyrir daglegu flugi til Lúx- emborgar, og tveimur ferðum suma daga. Tónleikar í Firðinum ROKKABILLYBAND Reykjavík- ur verður með tónleika í veit- ingahúsinu Firðinum í kvöld, fimmtudagskvöld klukkan 22. Húsið opnað klukkan 21.30. Á Nillabar skemmtir Guðmundur Rúnar gestum fram á nótt. MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. ÁGÚST 1990 7 A vit ævintýra og íburðar með Hemma Qunn. 10.OKT. Flogið til Kaupmanna- hafnar með Flugleiðum og þaðan beint til Bangkok með Thai International. 11.-16. OKT. Dvalið í Bangkok og borgin skoðuð til hlítar. Fljótandi markaður, Rósagarðurinn, konungs- höllin, Gull-Búdda, krókódíla- búgarður, gull- og silfurverslanir, o.fl. 16.-18. OKT. Priggja daga ævintýri á Kwai-fljótinu. Dauðalestin skoðuð og farið yfir brúna frægu, auk þess sem skoðaðir verða staðhættir á draumastöðum. 18.-20. OKT. Ferð til Chiang Mai og „Rós Norðursins" tekin með trompi. Farið í frumskógar- ferð á fílum og fleira í þeim dúr. 20.-22. OKT. Þriggja daga ferð á framandi slóðir í Norður Thailandi, meðal annars í gullna þríhyrninginn, auk heimsóknar í frumstætt fjallaþorp, þar sem lífið hefur staðið í stað í aldaraðir og fólk afneitar aðstoð nútímasamfélagsins. 22.-31. OKT. Flogið frá Chiang Mai til ævintýra og paradísareyjunnar Phuket í suðri, þar sem allir finna eitthvað við sitt hæfi. Þetta er draumastaður kafara og froskmanna. Sjávarlífið er eitt það fjölskrúðugusta í veröldinni, drifhvítar strendur og skemmtanafíklar fá nægju sína. Auk þess verður siglt út í smáeyjar í nágrenninu t.d. Phi Phi eyju, eða farið á slóðir James Bond, við Phang-nga flóann. Afslöppun eða ævintýri á hverjum degi, allt eftir óskum hvers og eins. Möguleiki er einnig á 3 daga ferð til Malasíu frá Phuket. Hægt er að framlengja dvölina í Thailandi um eina viku á frábæru hóteli á Pattaya ströndinni. 31. OKT. Flogið til Bangkok og þaðan til London, þar sem fólk getur framlengt dvöl. 1.NÓV. Flogið heim til Keflavíkur. essemm

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.