Morgunblaðið - 30.08.1990, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 30.08.1990, Qupperneq 14
14 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. ÁGÚST 1990 BJARTIR TfMAR fyrir bókaþjóðina frá 1. septeraber V lll»IS \l ll \ siivrini fellur af öllum bókum á íslensku. Kauptu þér bók í tilefni dagsins FÉLAG BÓKAÚTGEFENDA Nóbelsskáldið HALLDÓR laxness SNILLDARVERK HÓBELSSKÁLDSINS Fútt er betur við hæfi en að fagna nýjum menningar- áfanga með því að kaupa íslenskar heimsbókmenntir. Sigildar perlur Halldórs Laxness eiga erindi inn á öll Umtalsverð verðlækkun Áður Brekkukotsannáll Salka Valka 3.139 kr.- 3.413 kr.- Frá 1 .sept. 2.521 kr- 2.741 kr- Til hamingju með 1. september 1990! HELCAFELL Siðumúla 6 • sími 688300 Tilmæli til Þjóð- hag’ssto fnunar og Seðlabanka eftir Ögmund Jónasson í umræðum um kjaramál er oft skírskotað til hlutdeildar launatekna í þjóðartekjum og vilja launagreið- endur iðulega gera sem mest úr launareikningnum. Ríkisstjórnir hafa oftsinnis borið saman launa- reikning íslensku þjóðarinnar við það sem gerist hjá grannþjóðum okkar og hefur þetta yfirleitt verið gert til að færa sönnur á að íslenskir launa- menn geti sæmilega unað við sinn hiut. í greinargerð sem Þjóðhags- stofnun sendi frá sér fyrir síðustu áramót kom fram að hlutur launa- tekna á árinu 1988 hefði verið 72,7% sem er mun hærra hlutfall en gerist víðast hvar annars staðar. Ráðherrar hentu þetta á lofti í umræðu um kjaramál. Nú er spurningin hversu rétt sé reiknað. í mjög athyglisverðri grein sem Gunnar Tómasson hagfræðing- ur ritar í Morgunblaðið 22. ágúst kemst hann að þeirri niðurstöðu að launareikningurinn væri miklum mun lægri, eða af e.t.v. um 60% á árinu 1988, ef vaxtakostnaður hefði verið reiknaður með sömu aðferðum og aðrar þjóðhagsstærðir. Þar sem vaxtakostnaður hafi hins vegar verið vanreiknaður hafi vægi launatekna aukist að sama skapi. Ekki er deilt um tölulegar grunnforsendur því Gunnar notar sömu gögn og Þjóð- hagsstofnun og Seðlabanki. Kjarninn í málflutningi Gunnars Tómassonar er sá að útreikningar á hlutfalli vaxtakostnaðar miðað við þjóðartekjur hljóti að reiknast ann- aðhvort á verðlagi hvers árs eða á föstu verðlagi, en um samræmi þurfi að vera að ræða í öllum útreikning- um. Seðlabanki íslands og Þjóðhags- stofnun byggja sína útreikninga á þeirri forsendu að þar sem verðbólga hafi verið mikil á íslandi þurfi að „leiðrétta" upphæð fjármagnskostn- aðar. Sú upphæð er með öðrum orð- um reiknuð á „föstu verðlagi" samtímis því að upphæðir annarra þátta þjóðartekna, launatekjur og atvinnutekjur, eru reiknaðar á verð- lagi hvers árs. Nú segir það sína sögu um við- Ögmundur Jónasson „Því er hér með komið á framfæri við Seðla- banka og Þjóðhags- stofnun að framvegis verði gætt samræmis í útreikningum þjóð- hagsstærða.“ horf þessara reiknistofnana ríkisins til launamanna annars vegar og fjár- magnseigenda hins vegar að reikna Nokkur orð um þing- bréf iiin kiistnitökuna eftirReyni Harðarson Hinn 22. ágúst sl. birtist í Morg- unblaðinu þingbréf Stefáns Frið- bjarnarsonar þar sem hann fer nokkrum fögrum orðum um kristni- tökuna og áhrif hennar á íslenskt samfélag. Ég verð þó að játa að mér þykir afstaða Stefáns og flestra annarra sem um þetta fjalla vera helst til einfeldnisleg og skammsýn. Menn tína til allt það sem þeir telja best og fegurst við þessa ákvörðun og afleiðingar hennar en loka augun- um fyrir öllu því sem miður fór. Vissulega ber að minnast þessa merka atburðar er Þorgeir Ljósvetn- ingagoði ákvað að allir skyldu kristn- ir vera og skírn taka þótt þeir mættu blóta á laun. Reyndar fór kristnitaka líklega fram árið 999 en það þykir eflaust ekki nógu fín tala. Við skul- um þó ekki gleyma því að kristni- taka fór fram undir ógnandi sverði Ólafs Tryggvasonar Noregskonungs sem leit á hana sem fyrsta skrefið í þá átt að ná völdum og áhrifum á þessari fjarlægu eyju. Það sama gild- ir raunar um siðaskiptin er hér fóru fram fyrir „danska slekt og kóngsins mekt“. Er við fögnum kristnitökunni „fögnum" við því einnig fyrstu beinu afskiptum erlends konungsvalds af íslensku þjóðlífi. Stefán vill einnig eigna katólskum IALAÍ Reynir Harðarson klaustrum heiðurinn að gullaldar- bókmenntum okkar en lítur framhjá því að þær sögur sem mest gildi hafa voru ritaðar af veraldlegum höfðingjum áður en kirkjan náði heljartaki því á íslendingum sem hún hefur ekki sleppt enn þótt máttur hennar sé þorrinn. Menntir bárust hingað með kirkj- unni og þær náðu að springa út á undan valdi kirkjunnar. Þannig eign- uðumst við gullaldarbókmenntirnar en þegar kirkjan færði sig upp á „Ekkert hef ég séð gert fyrir Þór og Oðin eða minninguna um Valhöll og ask Yggdrasils.“ skaptið urðu bókmenntirnar mærð- arlegar og ýkjukenndar dýrlinga- og biskupasögur og annað þess háttar. Þegar kirkjan hafði svo sölsað undir sig öll völd og helming jarða á Islandi var hún komin í nógu sterka stöðu til að skipa mönnum fyrir verk- um. Og þá var það nú öðru nær að frelsi og listir fengju að dafna. I stað þess að efla enn frekar sögurit- un voru íslendingasögurnar og ann- ar ámóta „ósómi“ litinn hornauga því hann gat ekki talist guði þóknan- legur. Biskuparnir gengu svo langt að banna ýmsa þjóðlega siðu og þjóð- legar skemmtanir og hótuðu bann- færingu kirkjunnar ef menn létu sér ekki segjast. En sem betur fer þumb- uðust Islendingar við og lásu forn- sögurnar, sögðu sögur og þjóðsögur, ortu og kváðu rímur og annað þess háttar. Ofsóknir þessar héldust langa hríð og í Húsvitjunar Forordningu sem kom út árið 1746 stendur með- al annars: „Presturinn skal það al- varlegasta áminna heimilisfólkið að vakta sig fyrir ónytsamlegum sögum og ólíklegum ævintýrum og uppdikt- 26908 ■'énskoLjiyska, franska, ííalská'spænska og ísle Innritun daglega frá kl. jnnslfl hefst '17. .september. „ Í -Q'Skírteini afhentJL september. (föstud.) fr □ Auk kvaldtíma eru líka síðdegistímafí nokl Þ □ Fiölbreytfkennslutækí, m.a. seguL □ 10% afsláttur fyrir hjón, systkini,' öryrkja og ellilífeyrisþega. □ Starfsmenntunarsjóður BSRB og BHMR greiðir skólagjöld félagsmanna og Verslunarmannafétag Reykjavíkur veitir sínum mönnum námsstyjk. m

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.