Morgunblaðið - 30.08.1990, Side 15

Morgunblaðið - 30.08.1990, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. ÁGÚST 1990 15 launin í krónum, án tillits til þess hvert verðgildi þær hafa, á sama tíma og séð er til þess að fjármagn- seigendur hafi allt sitt á þurru að þessu leyti. Þá fyrst er farið að reikna vexti að verðbótaþátturinn hafi verið dreginn frá fjármagnstekj- unum. Launin eru reiknuð út frá tekjustreymi en ijármagnið sam- kvæmt eignastöðu fyrst og síðan tekjustreymi. Erlendis mun þessi reikningsmáti ekki tíðkast og alls ekki hjá þeim þjóðum sem menn bera sig saman við varðandi hlutfall launatekna. Nú geri ég ráð fyrir því að á það yrði bent að þar sem verðbólga hefur verið mjög há hér á landi en í þess- um löndum lág þá sé samanburður óraunhæfur án þess að leiðréttingum verði komið við. Það breytir ekki þeirri staðreynd að menn eru að bera saman ósambærilegar stærðir. Svo vitnað sé í grein Gunnars Tóm- assonar: „Tillitssemi lö-ggjafans í garð Jjármagnseigenda breytir ekki hagsmunavörzlu þeirra í hagfræði- leg rök“. Því er hér með komið á framfæri við Seðlabanka og Þjóðhagsstofnun að framvegis verði gætt samræmis í útreikningum þjóðhagsstærða jafn- framt því sem athyglisvert væri að fá þjóðhagsstærðir fyrri ára leiðrétt- ar til samræmis við veruleikann. Upplýsingum um hann á ekki að hagræða í þágu eignafólks og íjár- magnseigenda heldur skal einfald- lega hafa það sem réttast er og sann- ast. Höfundur er formaður BSRB. um, sem í landinu hafa verið brúkan- legir, og engan veginn líða að þær sé lesnar eður kveðnar í þeirra hús- um, svo börnin og þeir uppvaxandi villist ekki þar af... “ Engin leið er að vita hvað kirkj- unni tókst með þessu móti að drepa mikið af menningu okkar. Perlurnar sem við eigum eftir eru stórkostleg- ar en við vitum að margt er það sem hefur glatast um aldur og ævi. í stað þess að læra um Egil Skal- lagrímsson, Guðrúnu Ósvífursdótt- ur, Hlíðarenda og Helgafell, hafa íslensk börn í aldanna rás lært um Kain, Rut, Kapemaum og Olíufjallið. Svo virðist það alveg gleymast að norrænir menn áttu sér sína eigin trú og það var hér á landi sem sá germanski arfur hélst lengst og bestu heimildimar um ásatrú éru íslenskar. Ekkert hef ég séð gert fyrir Þór og Óðin eða minninguna um Valhöll og ask Yggdrasils. Ekki skortir okkur fé til kirkjubygginga, guðfræðideildar og prestastéttar en það fæst ekki einu sinni fé til að rannsaka hofrústir, og ekki er Árna- stofnun eða okkar fáu norrænufræð- ingar ofaldir. Það eru gömul sannindi að það eru sigurvegararnir sem skrifa mannkynssöguna og hún er því oftar en ekki afbökuð. Winston Churchill var sannfærður um að hann kæmi vel út í mannkynssögunni og þegar hann var spurður hvers vegna hann héldi það, svaraði hann: „Því ég ætla mér að skrifa hana.“ Og hann gerði það. Með þetta í huga ættum við að íhuga okkar eigin sögu og ekki síst þá ákvörðun Alþingis nú nýlega sem hljóðar svo: „Alþingi samþykkir, með tilvísun til þingsályktunar frá 17. apríl 1986 um þúsund ára afmæli kristnitök- unnar, að fela forsetum þingsins, í samráði við þjóðkirkju Islands og guðfræðideild Háskóla íslands, að standa fyrir samningu ritverks um kristni á íslandi og áhrif hennar á þjóðlíf og menningu í Þúsund ár.“ (Leturbr. R.H.) Ég legg til að við hugum að okk- ar eigin sögu, og það í réttu ljósi, og árið 2000 verði ríki og kirkja skilin að fyrir fullt og allt. Það sam- ræmist ekki almennum mannréttind- um og upplýsingu síðustu alda að ríkisstjórnin haldi hér uppi einni ríkistrú með gífurlegum kostnaði fyrir alla skattgreiðendur. Eitt þús- und ára veldi trúarstefnu frá Aust- urlöndum hlýtur að vera meira en nóg hér á íslandi. Sé trúin á testa- mentin jafnsterk og almenn og af er látið ætti hún að geta staðið hér óstudd á eigin fótum, illu heilli. óskum eftir fleiri söluaðilum. K.E.W HOBBY Þessar litlu en kraftmiklu háþrýstidælur fást nú hjá söluaðilúm okkar um land allt á ótrúlega hagstæðu verði. Þekking - Úrval - Þjónusta REKSTRARVÖRUR Réttarhálsi2 - HOR.vik - Simar31956-685554 Reykjavfk: RV-Markaöur Réttarhálsi 2, sími: 685554. Gripiö og Greitt Skútuvogi 4. Feröamarkaöurinn Skeifunni 8. Bæjarnesti vA/esturlandsveg. Kópavogur: BYKÓ Breiddinni Akranes: Trésmiöjan Akur sími: 12666. Borgarnes: B.T.B. sími: 71000. ísafjöröur: Hafsteinn Vilhjálmsson sími: 3207. Sauöárkrókur: Röst sími: 36700. Akureyri: Þ. Björgúlfsson hf. Hafnarstræti 19 sími: 25411. Húsavfkt Á. G. Guömundsson sf. sími: 41580. Egilsstaöir: M. Snædal sími: 11415. Neskaupstaöur: Varahlutaverslunin Vík sími: 71776. Höfn: Tindur Dalbraut 6 sími: 81517. Hella Hjólbarðaverkstæöi Björns Jóhannssonar simi: 75960. Selfoss: Vörubásinn Gagnheiöi 31 simi: 22590. Vestmannaeyjar: Skipaafgreiösla Vestmannaeyja simi: 12004. NÝJUNG ! \mumsHi MEIRI ORKA - SAMA BENSINEYÐSLA NYIR HREYFI_______________ 1,3 lítrar/1,5 lítrar — 12 ventlar — Einn yfirliggjandi kambás Þessir nýhönnuðu 12 ventla hreyflar hafa áberandi meira snúningsvægi yfir allt snúningshraða- sviðið, en þeir eldri. Þetta hefur tekist með því að koma fyrir þremur ventlum fyrir hvern strokk, tveimur mismunandi stórum sogventlum og einum mjög stórum'útblástursventli. Með þessu móti verður gegnumstreymi eldsneytisblöndunnar virkaraog skolun útblástursloftsins betri. Þannig afkastar 1,3 I hreyfillinn 79 hö. í stað 70 áðurog 1,5 I hreyfillinn 87 hö. í stað 75 áður. Höfundur er þýðandi. fc t | iftJkUI

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.