Morgunblaðið - 30.08.1990, Side 17

Morgunblaðið - 30.08.1990, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. ÁGÚST 1990 17 ekki í fólk, en hann komi ekki fram fyrr en eftir 25 ár frá sýkingu. „Riðuveiki er ekki fyrir hendi í lömbum,“ svaraði Brynjólfur, „svo Jmr á ekki að vera nein smithætta. Á riðusvæðum þar sem niðurskurð- ur hefur farið fram, hefur fénu verið fargað og grafið og það fer ekki á markaðinn." Sjúkdómar í svínum — Talsvert svínaeldi er í landinu, hvaða sjúkdómar sækja á svínin? „Snúðtrýni er nokkuð algengt, því veldur baktería sem sækir á slímhúð í nefi og eyðir brjóskinu þannig að snúningur kemur á trýn- ið og veldur öndunarsjúkdómum. Dýrin ná ekki eðlilegum þroska, það dregur úr vaxtarhraða, fóðurkostn- aður eykst, skrokkurinn uppfyllii' ekki eðlilegar kröfur og kjötið er fellt í mati. Frá heilbrigðislegu sjón- armiði hefur þetta sáralítil áhrif fyrir neytendur. Fúkkalyf eru notuð við þessu á vissu stigi. Við erum nú með fúkkalyfsathuganir og dýralæknar taka innyfli til fúkka- lyfsprófana til að kanna hvort lyfin hafi ekki brotnað niður í líkaman- um.“ — Eru fleskormar, tricinoses, hér á landi? (Þeir geta valdið mönn- um skaða.) „Það voru gerðar rannsóknir á því hér fyrir nokkuð mörgum árum og hefur aldrei verið staðfest að trikínur séu til staðar hér á landi.“ — Fer ekki fram reglubundið eftirlit á kjötinu? Hér eru framleidd- ar afurðir úr hráu kjöti eins og peperoni sem ætlast er til að borðað sé hrátt. í verslunum er einnig selt hakkað hrátt svínakjöt sem oft-er snöggsteikt. „Hér er ekki reglubundið eftirlit. I nágrannalöndunum hefur sýni úr hveiju svíni verið rannsakað og hafa trikínur fundist í svínakjöti u.þ.b. eitt tilfelli á ári. Þar er rætt um að fella eftirlitið niður.“ Hormónar — Eru hormónar notaðir við svína-, nautgripa- eða kjúklinga- eldi? „Nei, eftir því sem ég best veit þá er það ekki gert. Það eiga að fylgja vottorð frá fóðurframleiðend- um erlendis um að í fóðrið sé ekki blandað fúkkalyfjum eða hormón- um.“ Salmonella í kjúklingum? — Salmonella og aðrir sjúkdóm- ar eru í kjúklingum. „Stærsti hluti salmonellu sem kemst í kjúklinga berst með fóðr- inu. Dýralæknisembættið hefur barist fyrir því, að fá viðurkennt að salmonella sé ekki í fóðrinu og að sýni séu tekin úr kjúklingum á kjúklingabúum áður en þau fara í sláturhús, þannig að komið verði í veg fyrir að sýktir kjúklingar fari í sláturhús. Af öðrum sjúkdómum má nefna mareks vírussjúkdóm og hníslasótt (niðurgangur) sem al- geng var í kjúklingum en á ekki að skaða fólk.“ Auknar kröfur í heilbrigðiseftirliti „Ég vil leggja á það áherslu,“ sagði Bi-ynjólfur, „að heilbrigðiseft- irlit verður aldrei fullkomið, mann: legi þátturinn kemur þar inní. í þessu eftirliti er alltaf reiknað með að eitthvað magn fari í gegn sem uppfyllir ekki allar kröfur. Nei, við erum ekki að slá af kröfum, heldur þvert á móti að auka þær. Það er ekki hægt að gera ráð fyrir 100 prósent öryggi í eftirliti, það yrði svo dýrt að enginn yrði tilbúninn að greiða þann kostnað sem því fylgdi." M. Þorv. HINN EINIOG SANNI BILDSHOFÐA 10 hefst í dagkl. 13.00 OTRULEGT VERD 'P’títOkfái. 1/UUi/tom fafnin ^wnin. ARTÚNSBREKKA VESTURLANDSVEGUR straumub OjiHBiartí®' íöstudogo... LaogaKÍoga- IVðro dogQ; w. . J. «'5 STEINAR Hljómplötur - kasettur rmmn Tískufatnaður herra og dömu mm'mmumm Sportvörur alls konar VINNUFATABUDIN Fatnaður PARTY Tískuvörur BOMBEY SAUMALIST Alls konar efni SKOVERSLUN FJOLSKYLDUNNAR Skór ó alla fjölskylduna SKÆÐI Skófatnaður BLOMALIST Blóm og gjafavörur STUDIO Fatnaður THEODORA Kventískufatnaður SONJA Fatnaður HENSON Sportfatnaður FATABÆR Fatnaður mýtt s\iv\AwOry\ER Barnafatnaður 60H3& Fjöldifyrirtœkja — gífurlegt vöruúrval STÓRÚTSÖLUMARKAÐUR

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.