Morgunblaðið - 30.08.1990, Side 21

Morgunblaðið - 30.08.1990, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. ÁGÚST 1990 21 Caput-hópurinn.ásamt Finni Torfa Stefánssyni tónskáldi Ljósmynd/Kristinn íngvarsson Fernir tónleikar Caput-tónlistarhópsins HÓPUR ungs tónlistarfólks sem kallar sig „Caput“ mun í septem- ber halda ferna tónleika á höfuðborgarsvæðinu. Leikin verða ýmis tónverk eftir íslensk og erlend tónskáld, en alls munu nítján tónlist- armenn taka þátt í þessari tónleikaröð, og verða fyrstu tónleikarn- ir laugardaginn 1. september kl. 16 í Borgarleikhúsinu. Þar verða leikin verk eftir Finn Torfa Stefánsson. Caput-hópurinn er ekki nýr af nálinni, því hann hefur starfað í þijú ár undir nafninu Nýi Músík- hópurinn. Að Caput standa um 15 hljómlistarmenn úr yngsta geira íslensks tónlistarlífs, og starfar hópurinn í nánu samstarfí við íslensk tónskáld. Starfið takmark- ast hins vegar nokkuð af því að um helmingur hópsins er búsettur erlendis við nám og störf. Sem fyrr segir verða fyrstu tón- leikamir í þessari tónleikaröð hóps- ins í Borgarleikhúsinu þann 1. sept- ember næstkomandi. Á þeim tón- leikum verða eingöngu leikin verk eftir Finn Torfa Stefánsson, en verk hans hafa ekki verið flutt áður hérlendis. Aðrir tónleikar Cap- ut verða síðan í íslensku óperunni fimmtudaginn 6. september kl. 21, en þar verður tónlist fyrir kammer- hljómsveit í fyrirrúmi. Á efnis- skránni ber einna hæst flutning Kammerkonsertsins eftir Györgi Ligeti, sem saminn var á árunum 1969-70. Þriðju tónleikarnir verða þann 10. september í Borgarleikhúsinu, og hefjast klukkan 21.30. Þarna verður mikil áhersla lögð á söng, en það verður Signý Sæmundsdótt- ir sópransöngkona sem syngur á þessum tónleikum Caput. Að síðustu mun hópurinn standa að tónleikum þann 27. september í Listasafni Sigurjóns Olafssonar, og verða þeir haldnir í samvinnu við Ung Nordisk Musik. Tónleik- arnir hefjast klukkan 20.30. r Vöhvamótorar = HÉÐINN = VÉLAVERSLUN SÍMI 624260 SÉRFRÆÐIÞJÓNUSTA - LAGER l^olcs&cil með stíS Salome Þorkelsdóttir Formsatriði að fara fram á greiðslu SALOME Þorkelsdóttir, varaforseti Sameinaðs þings, segir það vera forsmatriði af hennar hálfu að óska eftir greiðslum fyrir störf sín sem einn af handhöfum forsetavalds í fjarveru forseta íslands. Hefur hún nokkrum sinnum sinnt þeim störfum sem staðgengill forseta samein- aðs þings. Salome sagði að hún hefði ákveð- ið að senda bréf til skrifstofu for- seta íslands eftir að hafa gegnt störfum handhafa forsetavalds í fimm daga í júní. Hefði hún þá þeg- ar sinnt þessum störfum nokkrum sinnum en ekki velt því fyrir sér hvort greitt væri fyrir þau eða ekki. Sagðist Salome hafa vanist því að þegar varamenn gripu inn í störf launaðra aðalmanna fengju þeir greiðslu fyrir. Þannig væri það til dæmis með varaþingmenn og vara- borgarfulltrúa. „Þetta er ekki stórt mál í mínum huga og ég hef ekki hugsað mér að gera meira í því en fannst formsins vegna vera rétt að snúa mér til réttra aðila.“ Salome sagðist ekki hafa borið þessi mál upp við Guðrúnu Helga- dóttur, forseta Sameinaðs þings, enda hefði það aldrei hvarflað að henni að kreíja hana um greiðslu. Forseti sameinaðs þings væri laun- þegi en ekki launagreiðandi. Þetta væri líka nokkurs konar prófmál og gott að fá úrskurð um þetta atriði í eitt skipti fyrir öll. Hefur skrifstofa forseta íslands falið ríkislögmanni að semja álits- gerð um greiðslur til handhafa for- setavalds en það mun ekki hafa komið upp áður að staðgengill fari fram á greiðslu fyrir störf sín. Sam- kvæmt lögum um laun forseta ís- lands eiga þeir sem fara með forseta- vald um stundarsakir í fjarveru for- seta að „njóta jafnra launa, miðað við mánaðarstarfstíma, og mánaðar- laun forsetans eru“ á meðan þeir gegna starfanum. Skiptast launin jafnt á milli hinna þriggja handhafa forsetavalds í fjarveru forseta: For- sætisráðherra, forseta sameinaðs þings og forseta hæstaréttar. Piannja þakstál Aðrlr helstu sölu- og þjónustuaðilar: Blikksmiöjan Funi sf, Kópavogi, sími 78733. Blikkrás hf, Akureyri, sími 96-26524. Vélaverkstæði Bjöms og Kristjáns, Reyðarfiröi, sími 97-41271. Vélaverksteeðið Þór, Vestmannaeyjum, sími 98-12111 Hjá okkur færðu allar nýjustu gerðir hins vinsæla og vandaða þakstáls frá Plannja. Urval lita og mynstra, m.a. Plannja jiakstál með mattri litaáferð, svartri eða tígulrauðri. ÍSVÖR HF. Smiðjuveg 4e, 200 Kópavogur. Póstbox: 435,202 Kópavogur. S: 91-67 04 55. Fax: 67 04 67 ... Já, vœntanlega. Leitaðu ráða hjá okkur. VERÐBRÉFAMARKAÐUR FJÁRFESTINGARFÉLAGSINS HF. - Löggilt verðbréfafyrirtæki - HAFNARSTRÆTI28566 • KRINGLUNNI689700 • AKUREYR111100

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.