Morgunblaðið - 30.08.1990, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. ÁGÚST 1990
33
TANGÓ OG SVEIFLA
__________Jass____________
Guðjón Guðmundsson
Suður-amerískir tónar, arg-
entínskur tregatangó og jass-
standardar hljómuðu í Heita
pottinum síðastliðið sunnudags-
kvöld á tónleikum kvartetts
franska nikkuleikarans OIivi-
ers Manoury. Sveitin var skipuð
Tómasi R. Einarsson bassaleik-
ara, Martin Van der Valk
trommuleikara og Kjartan
Valdimarsson píanóleikara auk
Manoury.
Kvöldið hófst á Ólagi með
sömbutakti eftir Tómas og því
næst kom undurfalleg túlkun
Manoury á Corcovado eftir Jobim.
Tónar takkanikkunnar, eða
bandeoneóns eins og hún nefnist
á erlendum málum, eru ákaflega
brothættir og aðeins á færi musi-
kanta með næma skynjun og til-
finningu að fá réttan styrk og
hugblæ út úr hljóðfærinu. Það
gerði Manoury sannarlega í
Corcovado og hann leyfði sér líka
að spila algjörlega út úr lagi,
ómstrítt, í hraðari bopp-lögum
með eftirminnilegum árangri.
Kvartettinn lék sjö verk fyrir
hlé, þeirra á meðal nýstárlega
útsetningu af So What, þar sem
nikka og píanó fóru styttri vega—
lengdir í skóm stórsveitarinnar og
sveiflan var heit og hröð. Hún lék
líka Torpedo eftir Manoury, hrað-
an suður-amerískan dans og drag-
spilið hlóð hljómum ofan á hljóma,
Vangadans ballöðu í sígildri main-
stream-upppbyggingu eftir Tóm-
as R. og svo var aftur leikin
sveifla, Birk’s Work, eftir meist-
ara Gillespie.
Fyrri hluta tónleikanna lauk á
því sem flestir fjölmargra áheyr-
enda virtust vera komnir til að
hlýða á: Hreinræktaðan argentín-
skan tangó í flutningi Manoury.
Tónlist sem lítið hefur heyrst hér
nyrst á Dumbshafí. Ástríðurnar
flæddu af hnjám Manoury og tón-
listin var þrungin kvöðinni af því
að finna til og vera. Argentínskur
tangó eins og hann gerist sannast-
ur og Astor Piazolla, argentínskur
nikkuleikari sem hefur getið sér
gott órð í Bandaríkjunum upp á
síðkastið, er frægur fyrir.
Eftir hlé lék kvartettinn tvö
verk eftir Tómas R. og önnúr tvö
eftir Manoury. Tangoneando var
eins og nafnið gefur til kynna
með tangóáhrifum og sömuleiðis
Milongue. Inn á milli kom boppað
.Húlabopp og ballaðan Það sem
einu sinni var eftir Tómas og
heildarsvipur tónleikanna,
Suður-Ameríka, Afríka og Evr-
ópa, var fullkomnaður. Manoury
kvaddi síðan gesti með einleik og
velheppnuðum tónleikum var lok-
ið.
TILBOÐ
FRYSTIKISTUR
MÁL H x B X D STÆRÐ GERÐ STAÐGR. VERÐ
90x73x65 1851 B20 31.950
90 x 98 x 65 2751 B30 35.730
90x128x65 3801 B40 39.960
90x150x65 4601 B50 43.470
ÁRATUCAREYNSLA
DÖNSK CÆÐATÆKI A GÓÐU VERÐI
j’Skrifstofutækninám
5 Betra verö
\ Varist eftirlíkingar
j Tölvuskóli íslands
* s: 67 14 66, opið til kl.22
SAMBANDSINS
VIÐ MIKLAGARÐ SÍMAR 68 55 50 - 681266
hmbOM á «boösv««
10% afslóttur af öllum skolatöskum
- ÍÁ _ í skólann:
298,-“*“ ““ nAift’ 99,-
Nopa pvottaduft 3kg. • ■ • | / m— ..............
## 9 Coca Cola mr Ö# 1
Haust fV 1 _ vinnubókarbtöö
99,- 689,-
Bynkeby ávaxtasafi 11- _ — Pennaveski
m1w6 6„a, C
... 1098,” oplð laugardag
165,-
Unghsenur pr. kg.
@| KAUPSTADUR AIIKLIG4RDUR
“ íh/l innn reykja vík-garðabæ
HAFNARFÍRÐÍ