Morgunblaðið - 30.08.1990, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. AGUST 1990
37
Magnús T. Jónas-
son — Minning
Handbók um skólamál
Fæddur 19. júní 1917
Dáinn 16. ágúst 1990
Já, þannig endar lífsins sólskinssaga!
Vort sumar stendur aðeins fáa daga.
(Tómás Guðmundsson)
Ég hringdi til hennar kunningja-
konu minnar, Ingveldur Guðjóns-
dóttir heitir hún en flestir kalla
hana Ingu, föstudaginn 17. ágúst.
Auðvitað eru þau austur í Ási
hugsaði ég um leið og ég valdi síma-
númerið. En hún svaraði lágum
rómi. Ertu lasin sagði ég, því síðast
þegar við vorum hjá þeim var hún
ekki jafn hress og ég mundi hana
síðastliðið ár.
„Nei, ekki er nú það,“ svaraði
hún, „hann Maggi dó í gær fyrir
austan.“ Ég varð hljóð um stund
og fannst sem ég hefði gert eitt-
hvað af mér.
Fyrir rúmri viku höfðum við Ólaf-
ur verið gestir á þeirra heimili.
Það er svo fjarskalega oft stutt
milli blíðu og éls.
Magnús Tómas hét hann og for-
eldrar hans voru sæmdarhjónin Vil-
helmína Tómasdóttir og Jónas
Magnússon. Jónas var um árabil
verkstjóri hjá útgerðarfélaginu
Kveldúlfi. Á árum kreppu og ör-
birgðar hefur ekki verið auðvelt
fyrir góðhjartaðan mann að stjórna
þegar baráttan um brauðið var hvað
hörðust. Sem unglingur byrjaði
Maggi að vinna við þau störf sem
faðir hans stjórnaði. Síðar vann
hann öll sín vinnuár hjá Eimskip,
iyrst sem bílstjóri, síðar við störf
þar sem trúmennska og lipurð komu
sér vel. Á síðari árum sagði ég
stundum við Magga, „það var stór
lífsreynsla fyrir okkar kynslóð að
muna kreppuárin 1929-1940“.
Yngra fólk hefur ekki gert sér grein
fyrir þeirri baráttu sem þá var háð
og jafnvel ímyndað sér að allar þær
lífsbreytingar sem síðar urðu, hafi
komið af sjálfu sér og jafnvel færð-
ar okkur á silfurfati. Að vísu var
Maggi barn þessarar borgar en ég
sveitastelpa austan úr Suðursveit.
Hin síðari ár var kransæðasjúk-
dómur hans förunautur, en hann
stundaði samt sína vinnu meðan
samfélagið hafði þörf fyrir störf
hans.
Við Inga eigum okkur langa vin-
áttusögu að baki. Sem lítt mótaðir
unglingar höfðum við dvalið tvo
vetur saman á Laugarvatnsskóla
og síðari veturinn búið á sama her-
bergi.
Kringum 1954 lágu leiðir þeirra
Magnúsar og Ingu saman. Á Njáls-
götu 104 bjuggu þau öll sín búskap-
arár.
Það hús höfðu foreldrar hans
keypt og þar bjó þeirra fjölskylda
nokkur ár. Systkinin voru þrjú; tveir
bræður og ein systir sem lifir bræð-
ur sína.
Þau Inga og Magnús eignuðust
einn yndislegan son, hann ber nafn
afa síns Jónasar. Jónas er rafiðn-
fræðingur, hann á sér sambýlis-
stúlku frá Húsavík af góðum ætt-
um. Þau hafa búið sér hlýlegt hreið-
ur þar sem hlýja og mannkærleikur
eiga örugglega eftir að ráða ríkjum.
Síðan Inga og Magnús hættu
störfum, hafa þau að sumri til dval-
ið meira og minna á hennar
bernskuheimili að Ási í Ásahreppi
í Rangárvallasýslu. Þar er hátt til
lofts og vítt til veggja.
Einhvern veginn er það nú svo,
þegar aldurinn færist yfir, er lífið
í sveitinni okkur svo kært, yfir því
hvílir ró og friðsæld. Þar er líka
gaman að ganga um grónar götur
bernskunnar og rifja upp nöfn á
ýmsum kennileitum og hugleiða
önnur atvik.
Þótt Magnús væri uppalinn í
borg, og hafi unnið þar öll sín
starfsár, þá átti hann svo auðvelt
með að aðlagast sveitinni hennar
Ingu. Þar var svo auðvelt að ganga
um gróin tún eða tijálundinn, þar
var líka margt hægt að finna til
að betrumbæta og stytta sér stund-
ir við á góðum sumardögum eftir
sem þrekið leyfði.
Síðastliðið vor, dagana fyrir
hvítasunnu, dvöldum við fjögur
saman þijár dagstundir austur í
Olfusborgum. Það voru bjartir og
hlýlegir dagar, þó vorið sem við
íslendingar bíðum svo oft lengi eft-
ir, kæmi seint. Við Inga áttum
skólasystur á Bakka í Ölfusi. Hún
og hennar maður voru okkar vina-
fólk, á þeirra heimili áttum við þá
ljúfa kvöldstund. Líka heimsóttum
við frænku mína og hennar fólk sem
búa á Selfossi. Alltaf var Magnús
glaður og ljúfur að aka með okkur
milli staða.
Síðast vorum við á heimili þeirra
8. ágúst, öll hress og kát. (Eftir
aldri er ég vön að taka til orða.)
Um miðjan dag 16. ágúst gekk
hann götuna sína til enda, austur
í Ási, þar sem hann hné niður og
var allur á samri stundu.
I fáum orðum er þetta lífsbókin
hans Magnúsar, þó fleira komi þar
við sögu.
Hver veit nema við eigum eftir
að rölta saman aftur um grónar
grundir einhvers annars lands eða
hnattar.
Til hvers er pá allt okkar lífsstríð,
ef því er lokið með líkamsdauðan-
um?
Kæra Inga mín! Jónas og sambýl-
isstúlkan þín, frá okkur Olafi fáið
þið innilegustu samúðarkveðjur, og
óskir um nýtt vor með blómum í
haga, án þess að nokkru af því liðna
verði gleymt.
Anna Þóra Steinþórsdóttir
HELGA Sigurjónsdóttir kennari
og námsráðgjafí, hefur skrifað
og gefið út bók um skólamál.
Bókin heitir Foreldrar — nem-
endur — kennarar og er hugsuð
sem handbok fyrir þá aðila. Bók-
in skiptist í 6 kafla sem heita
Foreldrar og kennarar, Máltaka
— lestur — læsi, Almennar reglur
um skólanám, Stefnur i skólamál-
um, Námstækni og Kvíði og
streita.
Höfundur segir í formála að bók-
inni sé ekki síst ætlað að ná eyrum
foreldra sem sér finnist að hafi
verið nokkuð afskiptir og utangátta
varðandi skóla og skólamál undan-
farna tvo áratugi eða síðan nýi
skólinn, þ.e. grunnskólinn og hug-
myndafræðin sem hann byggir á,
tók við af gamla, íslenska skyldu-
námsskólanum. Foreldrar og allur
almenningur þekkti þann skóla vel
og var sammála markmiðum hans
og skólastefnu, nú sé skólinn
ókunnuglegri og fja>r almenningi
eftir að nýtt námsefni og nýjar
kennsluaðferðir ruddu sér til rúms
fyrir 20-25 árum. Þar með hafi
breikkað bilið milli heimila og skóla,
Ieikara og lærðra og þetta bil þurfi
HÁSKÓLABÍÓ hefur tekið til
sýninga myndina „Aðrar 48
stundir". Með aðalhlutverk fara
Eddie Murphy og Nick Nolte.
Leikstjóri er Walter Hill.
Myndin hefst á því að tveir vél-
hjólamenn hittast á krá langt frá
alfaraleið og það leynir sér ekki
að þar eru engin góðmenni á ferð.
Skömmu síðar bætist sá þriðji í
hópinn. Nokkru síðar ber lögreglu-
bifreið þar að og kemur til skotbar-
daga, sem í fljótu bragði virðist
að ástæðulausu.
HF.LGA SIGIJRJÓNSDÓTTIR
FORELDRAR - NEMENDUR - KENNARAR
Handbók um skólamál
..Kcnnarat eru (agmcnn scm annast kcnnslu og upp-
eldi í skólum. (oreldrar eru uppalcndur scm annast
uppcldi og kcnnslu á hcimilum stnum. Þessir Iveir
hópar ciga að haía sem ja(nasta aóstöóu og völd til aö
sinna störfum sínum. Hvorugur hópurinn gctur komið
í stað hins cn saman vínna þcir mikilvxgustu störfin i
samfclaginu. Þeirra í milli vcrður því að rikja fullkomiö
traust og gagnkvxm virðing*
„Mannuðlcg viðhorf kennara. kxrlcikur þcirra og
umhyggja fynr ncmendum sinum skiptir öllu máli.
Hugmyndafrxði cr litilvxg i samanhurði við þaö.
Ilugsjónamcnn í kennarastctl hafa alltaf vcrið til og
kcnnsla þcirra er gcið og árangursrík hvaða kcnnslu-
aðferðum scm þcir beita."
Handbók um skólamál er komin
út.
að brúa. Þar verði skólinn að hafa
frumkvæði og vera.
Bókin er 85 bls. að stærð og fjöl-
rituð í Offsettfjölritun hf. Hún verð-
ur seld í Bóksölu stúdenta og bók-
sölu Kennaraháskóla íslands. Panta
má bókina hjá höfundi.
(Frcttatilkynning)
Eddie Murphy og Nick Nolte í
hlutverkum sínum í myndinni
„Aðrar 48 stundir".
Háskólabíó sýnir
„Aðrar 48 stundir“
t
MARÍN S. GUÐMUNDSDÓTTIR,
Barmahlíð 18,
verður jarðsungin frá Háteigskirkju föstudaginn 31. ágúst
kl. 13.30.
Blóm og kransar afþakkaðir, en þeim, sem vildu minnast henn-
ar, er bent á líknarstofnanir.
Brynjólfur Jónsson,
Brynjólfur Sveinsson, Jóhanna Fjetdsted,
Guðfríður Ólafsdóttir, Doyle Bisbee.
t
Móðir okkar,
GUÐRÚN TÓMASDÓTTIR,
áður til heimilis að Hæðargarði 28,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju föstudaginn 31. ágúst
t
AÐALBJÖRN S. GUNNLAUGSSON
kennari,
Lundi, Öxarfirði,
verður jarðsunginn frá Skinnastaðarkirkju, laugardaginn 1. sept-
ember kl. 14.00.
Erla Óskarsdóttir, Guðbjörg Magnúsdóttir,
Steinunn Aðalbjarnardóttir, Gunnlaugur Aðalbjarnarson,
Huld Aðalbjarnardóttir, Óskar Aðalbjarnarson,
Þröstur Aðalbjarnarson, Auður Aðalbjarnardóttir,
tengdasynir og dóttursonur.
t
Innilegar þakkir til allra þeirra, er sýndu okkur samúð og hlýhug
við andlát og útför
AUÐUNS AUÐUNSSONAR,
Ásgarði.
Guð blessi ykkur öll.
Börn, tengdabörn, barnabörn,
barnabarnabörn og systkini.
Legsteinar
Framleiðum allar
stærðir og gerðir
af legsteinum.
Veitum fúslega
upplýsingar og
ráðgjöf um gerð
og val legsteina.
S.HELGASON HF
STEINSNIIÐJA
SKEMMUVEGI48. SlMl 76677
t
Þökkum auðsýnda samúð við andlát og útför
GUÐLAUGAR ÓLAFSDÓTTUR
frá Eyri í Svínadal,
síðast til heimilis á Rauðarárstfg 5,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki vistheimilisins á Kumbara-
vogi við Stokkseyri fyrir umönnurí hinnar látnu.
Fyrir hönd vandamanna,
Gréta Árnadóttir,
Einar Hilmar Jónmundsson,
Sigurður Rúnar Jónmundsson.
t
Okkar einlægustu þakkir sendum við öllum þeim, sem sýndu okkur kærleik, vináttu og stuðning í
veikindum, við fráfall og útför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, sonar og bróður,
JÓNS GESTS BENEDIKTSSONAR
hárgreiðslumeistara,
Vighólastíg 12.
Sérstakar þakkir til lækna og annars starfsfölks Landspítalans, Heimahlynningar Krabbameinsfélags-
ins. Einnig til allra viðskiptavina okkar, sem hafa veitt okkur ómældan stuðning..
Heiða Ármannsdóttir,
Guðjón Þór Jónsson, Auður Ösp Jónsdóttir,
Auður Lella Eiríksdóttir, Benedikt E. Sigurðsson,
Sigrún Benediktsdóttir,
Eiríkur Benediktsson,
Þorsteinn Benediktsson.