Morgunblaðið - 30.08.1990, Page 38
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. ÁGÚST 1990
Ekki er dregið af sér við blöðrurnar og voru allar sprengdar á
augabragði.
HUNDAKUNSTIR
Hundakúnstir á hestamóti
Santo kemur á fullri ferð að Snældu frá Miðhjáleigu sem ekki
kippti sér upp við hundakúnstirnar. Reynir Aðalsteinsson heldur
í Snældu.
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
Að síðustu stökk Santo upp á
öxl eigandans Unn Kroghen og
virtist kunna vel við sig þar.
Nýbökuðum íslandsmeistara í
tölti og fjórgangi, Unn
Kroghen, er fleira til lista lagt en
að ríða hestum svo vel fari. Unn
er Norðurlandámeistari í hlýðni-
keppni hunda og á íslandsmótinu
í Borgarnesi sýndi hún ýmsar list-
ir með hundi sínum Santo sem
hún hefur nýverið endurheimt úr
einangrunarstöðinni í Hrísey eftir
að hafa flutt hann með sér frá
Noregi þaðan sem hún er.
Voru Unn og Santo fengin til
að sýna á kvöldvöku mótsins og
aftur í mótslok og var hreint
undravert að sjá hvað hún gat
fengið Santo til að gera sem virt-
ist ekki síður skemmta sér en
áhorfendur.
Fyrst lét Unn Santo ganga við
hæl og var alveg sama hvort hún
gekk áfram aftur á bak eða til
hliðar, hratt eða hægt, alltaf var
eins og hann væri bundin við
vinstri fót hennar. Þá lét hún
hann sækja teskeið ofan í vatns-
fötu, hlaupa í áttu milli fóta sér
og stökkva á hestbak og grípa
tauminn í kjaftinn og ýmislegt
fleira. Þessu næst voru nokkrar
blöðrur bundnar við stutta stöng
og Santo stökk sem óður væri á
þær og linnti ekki látum fyrr en
hann hafði sprengt þær allar. Að
síðustu stökk Santo upp á öxl eig-
andans og áhorfendur klöppuðu
þeim lof í lófa fyrir stórkostlega
sýningu.
Þá er Santo kominn á bak og tekur tauminn.
RFMJELISTILBOfl «*
BMX:
20“ BMX Paihorn óður 9.700,- nfi 6.900,-
20“ BMX Gitane Freestyle óður 21.580,- nfi 15.200,-
stgr. 14.400,-
fJALLAHJOL:
24“ Gitane Rio 10 gíra óður 30.400,- nfi 20.950,-
26“ Gifane Sofari 15 gíra óður 33.800,- nfi 20.950,-
26“ Gitane Sovane 18 gíra óður 40.200,- nfi 31.500,-
26“ Haro Explorer 18 gíra óður 49.900,- nfi 24.950,-
stgr. 19.900,-
stgr. 19.900,-
stgr. 29.900,-
stgr. 23.700,-
RAFMA6NSBÍLAR - KETTLER
óður 20.500,- nfi 10.450,-
stgr. 9.900,-
STI6NIR BÍLAR - BUNNY
óður 4.950,- nfi 2.900,-
FJALLAHJÓLASKÓR LEÐUR
óður 5.100,- nfi 2.900,-
BQRÐTENNISBORÐ Á HJÓLUM
MED NETI - KETTLER
óður 21.065,- nfi 17.900,-
stgr. 17.000,-
DOMUHJOL:
26“ Gitane Faubourg 3 gíra
óður 23.200,- nfi 10.750,-
stgr. 15.900,-
©
„SKATEBIKE" - LE RUN
óður 12.900,- nfi 10.320,-
stgr. 9.000,-
GREIÐSLUKORTAÞJONUSTA
Varahluta- og viðgerðarþjónusta
ÁRMÚLA 40 - SÍMI 35320
1/erslunin