Morgunblaðið - 30.08.1990, Qupperneq 42

Morgunblaðið - 30.08.1990, Qupperneq 42
42 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. ÁGÚST 1990 ^14- © 1990 Umvereal Press Syndicate „Sndfa &u burt, /conex^, ej eraS /'eitci d£ '£ón tg en c/eJ/<JCnrvC-." * Ast er... ... að láta hann svima í návist þinni. TM Reg. U.S. Pat Off —all rights reserved © 1990 Los Angeles Times Syndicate // M mioor veeo ée aotrufla 5ýW»W<5UNA ... .** : % m Ferðaskrifstofur með auglýsingapretti? Til Velvakanda. Ég vil taka undir grein M.Þ. sem birtist í Morgunblaðinu þ. 25. ágúst. Það er hveiju orði sannara að ferða- skrifstofur hérlendis hafa um langt skeið komist uupp með alls kyns svik og auglýsingapretti og þannig tekist að seija græskulausum ís- lendingum utanlandsferðir á dul- búnu „útsöluverði", sem eru, þegar allt kemur til alls, með litlum eða engum afslætti. Nú fyrir skömmu auglýsti ein ferðaskrifstofan hér í bæ vikuferðir til sólarlanda á hausttilboði. í fljótu bragði virtist hér um að ræða ferðir á sanngjörnu verði, svo ég stóðst ekki mátið og hringdi í ferðaskrif- stofuna. Þá fékk ég uppgefíð að heildarverðið fyrir mig með lítið barn væri um 66.000 krónur, miðað við 12.000 króna afslátt fyrir barn- ið, og með öllum þeim sköttum og gjöldum sem fylgja þessum sólar- landaferðum bæði á flugvelli hér heima og á Spáni. Mér fannst það strax hálf skrítið að barn innan fjög- urra ára fengi ekki meiri afslátt en sem næmi 12.000, á ferð sem kost- aði 36.300 kr. pr. mann (miðað við 2 1 íbúð) eða 44.700 kr. pr. mann (miðað við 1 í íbúð). Ég fór nú samt á ferðaskrifstofuna samdægurs í þeim tilgangi að staðfesta ferðina, en þegar þangað kom var verðið komið upp í tæpar 72.000 og mér Þessir hringdu Kettlingur tapaðist í Grafarvogi Svartur kettlingur með hvítt trýni og tær tapaðist við Gullinbrúna í Grafarvogshverfí á laugardag. Góð fundarlaun. Finnandi vinsam- legast hringi í s. 41649. Kettlingar fást gefins Tveir átta vikna kettlingar, högni oglæða, fást gefinsí s. 674614. Gleraugu fundust í Túngötu Nýleg gullspangargleraugu fund- ust á Túngötu í síðustu viku, trú- lega fyrir framan þýska sendiráð- ið. Upplýsingar gefur Hafdís í s. 625017. Gullarmaband tapaðist Gullarmaband með múrsteins- munstri tapaðist við Sólheima 23 sl. föstudag. Finnandi vinsamleg- ast hringi í s. 686725. Fundar- laun. Kápa týndist Ljósbrún ullarkápa tapaðist í Hollywood í lok júlí. Finnandi vinsaml. hringi í s. 26467. Brjóstnálar töpuðust Tvær bijóstnælur töpuðust í aust- urborginni, með nokkru millibili. Önnur oddlaga stálnæla. Hin silf- urnæla merkt m.j. að innanverðu. Finnandi vinsaml. hringi í s. 10311 eða 685377. Eyrnarlokkur týndist Gulleyrnarlokkur með steini týnd- ist mánudaginn 13. ágúst annað hvort fyrir utan Vesturgötu 7 eða Landsspítalann. Finnandi vinsam- legast hringi í s. 12943. Axlartaska týndist Frekar lítil dökkblá axlartaska tapaðist sl. laugardag á leiðinni frá miðborginni upp í Seljahveri. í henni voru tvær samfastar lykla- kippur með sjö lyklum á. Finnandi vinsamlegast skili töskunni á Lög- reglustöðina. Reiðhjól í óskilum Dökkblátt Kynast-fjallahjól fannst sl. fimmtudagskvöld á Laufásvegi. Má vitja þess í s. 16908. Reiðhjóli hnuplað Tíu gíra grátt Motobecane karls- mannshjól var tekið traustataki við Haðaland 12 í Fossvogi annað hvort að kvöldi miðvikudags eða morgni fímmtudags í sl. viku. Þeir sem veitt gætu upplýsingar um afdrif þess hringi í s. 36560. þangað tilkynnt að barnið ætti í raun ekki að fá neinn afslátt þar sem það færi bara með einum full- orðnum, afslátturinn kæmi ekki til fyrr en tveir fullorðnir væru saman með barn! En fyrst að sölumaðurinn hafði gefíð mér upp þessar „röngu“ upplýsingar ákváðu þau af góð- mennsku sinni á ferðaskrifstofunni að veita barninu 6.000 kr. afslátt! Nú var það svo hér áður fyrr að börn innan viss aldurs fengu allt að helmings afs|átt á utanlandsferð- um, en það virðist algerlega liðin tíð og leikur mér forvitni á að vita hveiju þessi breyting sætir. Að krefjast fulls verðs fyrir lítil börn vekur óneitanlega með manni spurningu um það hveijir séu að græða á hveijum? Annað dæmi sem ég vil nefna er reynsla nokkurra meðlima innan fjölskyldunnar. Ferðin var fengin í gegnum eitt verkalýðsfélagið en það var algerlega á vegum einnar ferða- skrifstofunnar að sjá um hana. Fjöl- skyldan hafði bókað þessa ferð með löngum fyrirvara, eða hálfu ári áð- ur, svo hún var hin rólegasta og átti sér einskis ills von. Þegar svo kom að því að greiða upp ferðina nokkrum vikum fyrir brottför kom í ljós að fátt af því sem þau höfðu pantað stóðst. Sumarhúsið sem þau ætluðu að leigja í 3 vikur áttu þau bara að fá að hafa í eina viku, og virtist á öllu að ætlast væri til að sex manna fjölskyldan myndi búa í bílaleigubílnum næstu tvær vikurn- ar! Auk þessa klúðurs höfðu þau beðið um að fá bílstól með bílnum, en það brást einnig og ferðaskrif- stofan taldi sér ekki fært að leið- rétta þau mistök þó svo að nægur tími virtist vera til þess ennþá. Eft- ir mikið þref við ferðaskrifstofuna, var þeim boðið annað sumarhús á öðrum stað þessar tvær vikur, sem þýddi töluvert rót og umstang við að flytja sig um set svo stuttu eftir að komið var á fyrri staðinn. Ég vil eindregið hvetja fólk til að hafa gát á gylliboðum ferðaskrif- stofanna, vera vakandi fyrir verð- hækkunum, og klár í kollinum gegn öllu klúðri! Bindum hnút á skóna og spyrnum við öllu plati! S.H. Hjóli stolið Um hvítasunnuhelgina var stolið kvenreiðhjóli fyrir utan Vesturgötu 40. Hjólið er blátt og frekar stórt af tegundinni Panasonic. Ef einhver rekst á hjólið er viðkomandi vinsam- legast beðinn að hringja í síma 19193. Víkverji skrifar Tvær vestur-íslenskar konur voru nýlega gestir á heimili Víkveija dagsins. Heimilisfólkinu þótti margt athyglisvert í viðhorfum þeirra til lands og þjóðar. Konurnar skilja ekki orð í íslensku en eru samt að mörgu leyti miklu meiri og betri íslendingar en við sem landið byggjum nú. Þær hrifust mjög af landinu, nánast öllu sem fyrir augu bar á ferðalagi þeirra. Þessi sérstaka tilfinning þeirra virð- ist ná til barna þeirra líka. Önnur konan hefur áður komið til íslands. Hún sagði: „Þá skildi ég eftir hluta af mér. Nú skil ég eftir annan hluta. Ætli ég verði ekki eftir í þriðju ferðinni?" xxx Sem dæmi um Iítið atvik sem einhverjir hefðu gert að miklu leið- indaatviki en íslensku konurn- ar að vestan hrifust af má nefna málsverð þeirra í Borgarnesi. Hóp- urinn þurfti að bíða lengi eftir laxin- um á hótelinu og var biðin skýrð með því að verið væri að vitja um netin. Laxinn bragðaðist sérstak- lega vel, þær sögðust aldrei hafa fengið jafn góðan lax. Hann hefði verið mátulega soðinn og ekki drekkt í sósum og kryddi til að fela eðlilegt bragð og lykt. Og að bíða eftir matnum á meðan kokkurinn var að veiða laxinn (hvort sem það er nú rétt eða ekki) gerði máltíðina ennþá eftirminnilegri. xxx lesa bréfin frá þeim. Stundum væri þetta svo slæmt að viðtakandinn þyrfti að reyna að átta sig á efni bréfsins með því að rýna í förin eftir prentarahausinn á bréfsefninu. Víkveiji er mjög fylgjandi sparnaði í ríkisrekstrinum en þarna finnst honum full langt gengið. Það getur varla verið svo mikill kostnaður í blekborðum að ekki sé skipt um þá mánuðum saman, eins og viðmæl- andinn fullyrti. xxx að var einlægur ásetningur Fimmtudagsvíkveijans að nöldra ekkert að þessu sinni. Þau áform ruku þó út um veður og vind þegar í hann hringdi maður sem átt hefur í bréfaskriftum við tvö skattstjóraembætti, skattstjórann f Reykjanesumdæmi og skattstjór- ann í Reykjavík. Maðurinn sagði að blekborðarnir í tölvuprenturum embættanna væru svo slæmir og hefðu lengi verið að erfitt væri að Til þess að verða aftur jákvæður þó af litlu tilefni sé er hér sagt frá ferð upp í Borgarnes á dögunum. Borgarnesrútan var að þessu sinni tveggja hæða útsýn- isbíll Sæmundar Sigmundssonar sérleyfíshafa. Notaði Víkveiji sér það að vera á annarri hæðinni og naut ferðarinnar vel, sá umhverfið á þessari leið í allt öðru ljósi en venjulega.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.