Morgunblaðið - 30.08.1990, Page 45
45
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTHR FIMMTUDAGUR 30. ÁGÚST 1990
ÍÞRÓTTIR UNGLINGA
Morgunblaðið/Árni Sæberg^
Aron Tómas Haraldsson fyrirliði Breiðabliks með ís-
landsbikarinn.
Drengjalandslið-
ið leikur í Wales
Dréngjalandsliðið í knattsþymu leikur gegn
Wales í Evrópukeppni drangjalandsliða í
dag á Somerset-leikvanginum í Newport. Seinni
leikurinn verður hér á landi 24. september.
Kristinn Björnsson, þjálfari drengjaliðsins,
valdi eftirtalda leikmenn í ferðina til írlands:
Markverðir: Árni Arason, Akranesi og Egill
Þórisson, Víkingi. Aðrir leikmenn: Alfreð Karls-
son, Gunnlaugur Jónsson og Pálmi Haraldsson,
Akranesi. Helgi Sigurðsson, Víkingi. Guðmund-
ur Benediktsson, Þór Akureyri, Brynjólfur
Sveinsson, KA, Jóhann Steinarsson, Keflavík.
Sigurbjörn Hreiðarsson, Dalvík. Einar Árnason,
KR, Hrafnkell Kristjánsson, Orri Þórðarson og
Jón Gunnar Gunnarsson, FH. Lúðvík Jónasson
og Viðar Erlingsson, Stjörnunni.
Þetta eru sömu leikmenn og tóku þátt í
Norðurlandamótinu í Finnlandi fyrir skömmu.
Skráning ferfmm í Golfskálanum í Grafarholtt
ísíma 82815.
Þátttökugjald er kr. 6.000.- á sveit.
Álfabakki 16, PO box 9180, 129 Reykjavílc, Sími 60 3060
Við vorum lengi að komast í gang í sumar en
síðan kom þetta hjá okkur. Við komumst ekki
beint í úrslitakeppnina en þurftum að fara til .Akur-
eyrar til að keppa sérstaklega um tvö laus sæti
úrslitakeppnini. Síðan þá hefur allt gengið upp. Við
vissum, að við ættum möguleika gegn KR-ingum,
þótt þeim hefði gengið vel í sumar og þættu líklegir
til að vinna. Við stefndum á að vera á undan að
skora og j)að tókst,“ sagði Aron Tómas Haraldsson,
fyrirliði Islandsmeistara Breiðabliks, við Morgun-
blaðið eftir sigurleikinn gegn KR.
Það var skammt stórra högga á milli hjá honum,
því að helgina áður náði hann glæsilegum árangri
í Reykjavíkurmaraþoninu. „Ég fann það í leiknum
að ég var ennþá hálfþreyttur eftir maraþonið. í
framtíðinni ætla ég að einbeita mér að hlaupunum
og fótboltanum en veit ekki hvort ég tek síðan fram
yfir þegar ég verð ennþá eldri. En ég ætla að hætta
í handboltanum. Ég hef áður orðið íslandsmeistari
í hlaupum og handbolta en ég held að þetta sé
sætasti sigurinn á ferlinum sagði Aron Tómas. Hann
sagðist þakka sigurinn góðri liðsheild og frábærum
þjálfara, Antoni Bjarnasyni.
ÚRVALS-ÚTSÝNAR
Um nœstu helgi, laugardag og sunnudag, fer fram
STÓRMÓT ÚRVALS-ÚTSÝNAR
hjá Golfklúbbi Reykjavíkur í Grafarholti.
Leiknar veröa 36 holur á tveimur dögum ísveitakeppni.
Hver sveit skal skipuö þrem kylfingum.
íhverri sveit leikureinn kylfíngur
án forgjafar en tveir meö forgjöf.
Tvö bestu skor reiknast
á hverja holu.
í verölaun eru veglegir ferbavinningar, ab
verömæti kr. 300.000.-, í golfferbir ó þessu dri
eba því næsta, d vegum URVALS-ÚTSÝNAR.
1. sæti. Þrír ferbavinningar ab verbmæti 50.000 hver.
2. sæti. Þrír ferbavinningar ab verbmæti 30.000 hver.
3. sæti. Þrír ferbavinningar ab verbmæti 20.000 hver.
UBK
meistari
í 4. flokki
ÞAÐ voru strákarnir úr Breiða-
bliki sem urðu íslandsmeistar-
ar í 4. flokki. Þeir unnu KR-inga
2:1 íjöfnum og spennandi úr-
slitaleik á Kópavogsvelli á
sunnudag.
Framan af sumri var fátt sem
benti til þess að Breiðablik
myndi hreppa titilinn eftirsótta, því
að liðið tapaði nokkrum leikjum í
röð í upphafi móts
Guðmundur og tókst með erfiðis-
Jóhannsson munum að komast í
skrifar úrslitakeppnina. En
í úrslitakeppninni
gekk þeim allt í haginn og upp-
skáru íslandsmeistaratitilinn.
Úrslitaleikurinn var spennandi
og oft brá fyrir ágætum samleik á
báða bóga. KR-liðið virtist líkam-
lega sterkara og líklegra til afreka
í upphafi. Breiðabliksmenn léku
hins vegar agaðri leik og náðu bet-
ur saman sem liðsheild.
Mörkin létu standa á séj þangað
til í lok fyrri hálfleiks. Þa skoraði
Aron Tómas Haraldsson, fyrirliði
Breiðabliks, með glæsilegum skalla
eftir að hafa fengið góða sendingu
fyrir markið.
KR-ingar byrjuðu seinni hálfleik
með látum og sóttu stíft en án ár-
„ Morgunblaðið/Ami Sæberg
Lið Breiðabliks, Islandsmeistari í 4. flokki. Aftari röð frá vinstri: Eyþór Arnason liðsstjóri, Atli Már Daðason, Hreiðar Þór Jónssn, Albert Egilsson, Gunnar
Olafsson, Kjartan Antonsson, Bjami Jónsson, Guðmundur Árnason, Jóhann G. Harðarson, Guðmundur Guðmundsson, Anton Bjarnason þjálfari, Valdimar Bergs-
son, formaður knattspyrnudeildar. Fremri röð frá vinstri: Ómar Ómarsson, ívar Siguijónsson, Grétar Már Sveinsson, Gísli Þór Einarsson, Aron Tómas Haralds-
son fyrirliði, Magnús Sighvatsson, Arni Þór Eyþórsson, Einar Sumarliðason liðsstjóri.
angurs. Stundum gleymdu þeir sér
í sóknaraðgerðum sínum og það
notfærðu Blikar sér og komust í
2:0 um miðjan síðari hálfleik með
marki Guðmundar Árnasonar af
stuttu færi. KR-ingum tókst að
klóra í bakkann skömmu síðar þeg-
ar Bjami Jónsson skoraði af stuttu
færi en fleiri urðu mörkin ekki og
Breiðabliksmenn stóðu uppi sem
íslandsmeistarar.
Leikurinn hefði getað farið á
hvorn veginn sem var en það sem
gerði gæfumuninn í þessum leik var
að leikmenn Breiðabliks héldu stöð-
um sínum betur en KR-ingarnir sem
gerðust of „villtir" í leik sínum er
þeir komust marki undir.
„Ennþá hálfþreytftur
eftir maraþonið“
- sagði Aron Tómas Haraldsson, fyrirliði Breiðabliks eftir leikinn
Ljótur blettur
Eitt setti leiðinlegan svip á úrsiitaleik Breiðabliks og KR í 4. flokki
íslandsmótsins í knattspyrnu. Það var ljótur munnsöfnuður sumra
piltanna, sem eru aðeins 13-14 ára. Voru þeir sífellt að agnúast út í
dómarann og kaila hann illum nöfnum í stað þess að einbeita sér að
leiknum. Svo fór að einum leikmanna KR var vikið af leikvelli fyrir
síendurtekinn ljótan munnsöfnuð. Orð eins og „dómaradrulla" og fleiri
siík eiga ekki að heyrast í knattspyrnuleik og koma ekki að neinu gagni
í leiknum heldur eru þeim sem þau nota einungis til vansæmdar. Það
er ekkert að því að menn hafi keppnisskap en því þarf að beina í
réttan farveg, þannig að menn gefi sig enn betur í leikinn og takist á
við vandamáiin í stað þess að flýja þau og eyða orkunni í skítkast.
STORMOT