Morgunblaðið - 09.09.1990, Page 1

Morgunblaðið - 09.09.1990, Page 1
112 SIÐUR B/C STOFNAÐ 1913 204. tbl. 78. árg. SUNNUDAGUR 9. SEPTEMBER 1990 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Keppikefli George Bush Bandaríkjaforseta á Helsinki-fundinum: Saddam verði gert ljóst að samstaðan sé óijúfanleg Washington. Reuter. LEIÐTOGAR risaveldanna, þeir George Bush Bandarílqaforseti og Míkhaíl S. Gorb- atsjov, ieiðtogi sovéska kommúnistaflokksins, koma í dag, sunnudag, saman til fundar í Helsinki í Finnlandi. Við komuna til Helsinki í gærmorgun sagðist Bush gera sér þær vonir að þeir Gorbatsjov myndu treysta samstöðu og samstarf risaveldanna í Persaflóadeilunni og auka þar með þrýstinginn á Saddam Hussein, forseta íraks. Sagðist hann þess fullviss að hernaðarofbeldi íraka gegn Kúvæt yrði stöðvað enda væri mikið í húfí fyrir heimsbyggðina. Danirtakmarka auglýsingar um áfenga drykki Kaupmannahöfn. Frá Nils Jörgen Bruun, fréttarit- ara Morgunblaðsins. AUGLÝSINGAR um öl, vín og sterkt áfengi hverfa að fullu og öllu úr járn- brautarlestum, járnbrautarstöðvum, strætisvögnum, leigubílum, skipum og söfnum í Danmörku frá og með 1. febrúar nk. Enn fremur verður bannað að auglýsa áfengi á myndböndum og á íþróttavörum. Þetta er í samræmi við reglur sem umboðsmaður neytenda hefur sett í samráði við fyrirtæki og stofnanir, svo og áfengis- og fíkniefna- ráð ásamt neytendaráði. Reglurnar setja einnig hömlur við að ungmenni séu notuð í áfengisauglýsingum. Billy Graham tapar erfðamáli Washington. Frá ívari Guðmundssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. SERA Billy Graham, bandaríski prédik- arinn víðkunni, tapaði nýlega erfða- máli, sem hefði getað fært „alþjóðleg- um“ prédikunarsjóði hans (BGEA) 60 millj- ónir króna. Kanadísk kona á tíræðisaldri, sem lét eftir sig þriggja milljóna dollara dán- arbú, hafði arfleitt sjóð Grahams að þriðjungi þess. Ættingjar kon- unnar fóru í mál fyrir rétti í Kanada og kröfðust þess, að erfðaskráin yrði dæmd ógild vegna þess, að fulltrúi Grahams hefði notað óheiðarlegar aðferðir til að fá konuna til að arfleiða sjóð prédikarans að fénu. Sakharov skildi eftir sig eignir í Bandaríkjunum New York. Reuter. ANDREJ Sakharov, sovéski andófs- maðurinn og handhafi friðarverðlauna Nóbels, skildi eftir sig dánarbú að verð- mæti um 100.000 dollarar, jafnvirði sex milljóna ÍSK, í Bandaríkjunum sam- kvæmt erfðaskrá sem skiptaréttur í New York hefur staðfest. í henni kem- ur fram að Sakharov hafi einnig átt eignir í Sviss. Þær, ásamt eignum í Bandaríkjunum, vildi hann að rynnu í styrktarsjóð sem hann stofnaði 1988 og er ætlað að framfleyta ekkju hans, Jelenu Bonner, og ættingjum. Er George Bush var spurður hver hann vonaðist til að niðurstaða Helsinki- fundarins með Gorbatsjov yrði svaraði hann að bragði: „Trygging fyrir því að við stöndum saman í Persaflóadeilunni." Talsmaður for- setans, Marlin Fitzwater, sagði að ráðamenn í Bandaríkjunum vonuðust til þess að viðræð- ur leiðtoganna sýndu að risaveldin tvö hefðu sameinast um það það markmið að stöðva Saddam íraksforseta. Fitzwater bætti við að með fundinum í dag gæfist leiðtogunum einnig tækifæri til að meta og skilgreina hagsmuni risaveldanna í ljósi þess að kalda stríðinu væri nú lokið. Þykir líklegt að Bush geri það að umtalsefni hvernig stórveldin geti í sameiningu tryggt heimsfriðinn með öðrum hætti en þeim sem fólst í gagnkvæmri hótun um gereyðingu í anda kalda stríðsins. Það þykir í sjálfu sér marka þáttaskil í samskiptum austurs og vesturs að leiðtogar Sovétríkjanna og Bandaríkjanna skuli koma saman til fundar til að leita lausna á sameig- inlegum vanda. Þannig vilja bandarískir embættismenn a.m.k. að heimsbyggðin líti á Helsinki-fundinn, sem boðað var til með mjög skömmum fyrirvara. Samkvæmt nýlegum skoðanakönnunum hefur Persaflóadeilan orðið til þess að auka vinsældir Bush og kveðast sjö af hveijum tíu Bandaríkjamönnum vera ánægðir með frammistöðu forsetans. Sérfræðingar benda hins vegar á að telja megi stuðninginn við forsetann eðlilegan og að almenningsálitið kunni að breytast dragist Persaflóadeilan á langinn eða taki bandarískir hermenn að falla í eyðimerkurbardögum í Mið-Austur- löndum. Á Helsinki-fundinum muni George Bush því jafnframt leitast við að fullvissa bandarísku þjóðina um að það yfirlýsta mark- mið stjórnvalda að koma herafla Saddams Husseins frá Kúvæt njóti stuðnings heims- byggðarinnar og Míkhafls S. Gorbatsjovs Sovétleiðtoga. DRAUMALENDINGIN MISTOKSí 12 VIRKALÝÐSFÍLAGID DAGSBRÚN INMAN fRA I nmd við KHAKI- LIÐIÐ i Jórdmtíu I ORÐI SEM Á BORÐI BLAÐ c

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.