Morgunblaðið - 09.09.1990, Side 2
2 FRÉTTIR/INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. SEPTEMBER 1990
Tónleikar þunga-
rokksveitanna:
Það var kátt
í Reiðhölliiuii
Bresku hljómsveitimar White-
snake og Quireboys héldu
tvenna tónleika hér á landi á
föstudags- og laugardagskvöld.
Um sex þúsund manns voru
samankomin í Reiðhöllinni á
föstudagskvöld og segir Ámi
Matthíasson, fréttamaður Morg-
unblaðsins á tónleikunum, að
bresku hljómlistarmennimir hafí
leikið á als oddi og greinilega
kunnað vel að meta viðtökur
áheyrenda, sem skemmtu sér hið
besta í miklum hita og troðningi.
Þegar blaðið fór í prentun var
búið að selja um 4.000 miðá á
tónleikana á laugardagsköld og
útlit fyrir að nokkuð færri yrðu á
þeim tónleikum.
Morgunblaðið/Börkur
Heimsókn fulltrúa Thyssen:
Rætt um kaup á áli ogjárnblendi
FULLTRÚAR þýsku fyrirtækja-
samsteypunnar Thyssen komu
hingað til lands í vikulokin til að
kanna möguleika á hráefniskaup-
um, áli og járnblendi en einnig
hugsanlega framleiðslu. Þama
voru á ferð tæknilegur fram-
kvæmdastjóri Thyssen-Guss, sem
er mál msteypu fyrirtæki innan
samsteypunnar, og forsljóri
Thyssen-Guss, sem einnig á sæti
í stjóm Thyssen-samsteypunnar.
Meðan á heimsókninni stóð hittu
þeir forsvarsmenn Islenska álfé-
lagsins, íslenska járnblendifélags-
ins og Alpan á Eyrarbakka. Þá
ræddu þeir m.a. við aðila hjá Iðn-
tæknistofnun, markaðsskrifstofu
iðnaðarráðuneytisins og Lands-
virlgunar og hittu Jón Sigurðs-
son, iðnaðarráðherra, að máli.
Jón Sigurðsson, iðnaðarráðherra,
sagði fulltrúa Thyssen fyrst og
fremst hafa haft áhuga á að kynna
sér möguleika á kaupum á áli og
jámblendi en hugsanlega einnig
framleiðslu. „Við höfum mikinn
áhuga á að komast í samband við
fyrirtæki sem kynnu að vilja hefja
úrvinnslu á áli hér,“ sagði Jón Sig-
urðsson. „Ég vona að í samningum
við álfélögin, sem nú er verið að
gera, verði nokkur ráðstöfunarréttur
á hluta af framleiðslunni. Að öðru
leyti er það athugandi hvort þeir
kynnu að hafa áhuga á að taka
þátt síðar í álframleiðslu á íslandi í
næsta verkefni af því tagi sem ráð-
ist verður í.“
„Þessi heimsókn gekk mjög vel.
Þeir hittu þá aðila sem þeir óskuðu
eftir að hitta og voru mjög ánægðir
með viðtölin sem þeir áttu,“ sagði
Aðalsteinn Karlsson, forstjóri A.
Karlsson hf., sem hafði milligöngu
um heimsókn fulltrúa Thyssen til
íslands. Sagði hann þá hafa sagt
að heimsókn lokinni að þeir teldu
hana hafi verið verulega jákvæða.
„Svona fyrirtæki hugsa mörg ár
fram í tímann, tryggja sér sambönd
og gera athuganir fyrir framtíðina,"
sagði Aðalsteinn. „Þetta er ekkert
sem verður hlaupið í á næstunni en
áreiðanlega eitthvað sem verður at-
hugað vel og gæti hugsanlega leitt
til einhvers samstarfs Thyssen við
okkur íslendinga."
Eftirspurn eftir umhverfishollum vörum eykst:
Skrifað á endurunmnn papp-
ír með ólökkuðum blýöntum
Á SÍÐASTLIÐNUM tveimur árum virðast íslendingar hafa byrjað
að tileinka sér áhuga grannþjóðanna á ýmsum neyzluvörum, sem
ekki hafa skaðleg áhrif á umhverfið eða stuðla á einhvern hátt
að varðveizlu náttúrunnar. Almenningur, einkum yngra fólk,
sýnist í talsverðum mæli vera farinn að gera innkaup sín með
það markvisst í huga að kaupa umhverfishollar vörur. Áróður
umhverfisverndarsamtaka virðist vera að skila sér, þótt sumum
þyki ganga hægt að virkja almenning í vemd lífríkisins.
Istórmörkuðum hefur það færzt
í vöxt að undanfömu að fólk
spyiji sérstaklega um umhverfis-
hollar vömr, til dæmis þvottaefni
án fosfats. Fosfat gefur rrjýkri og
hvítari þvott, en getur til dæmis
valdið mengun
í fiski, þar sem
það rennur til
sjávar með
skolvatninu. Þá
hefur lífrænt
ræktað græn-
meti, sem komið hefur í litlum
mæli á markaðinn, fengið góðar
viðtökur, en við ræktun þess er
ekki notaður tilbúinn áburður með
öllum þeim eiturefnum, sem hon-
um fylgja.
Mikið er spurt um endumnninn
og óbleiktan eldhús- og salemis-
pappír í verzlunum. Tilraunasend-
ing, sem Hagkaup fékk af endur-
unnum salemispappír fyrir stuttu,
seldist til að mynda upp á ör-
skömmum tíma. Endurvinnsla á
einu tonni af pappír er talin bjarga
fimm myndarlegum skógartijám
frá því að enda í pappírsverk-
smiðju. Áætlað er að um ein og
hálf milljón tijáa sé felld á hveiju
ári til að anna þörf íslendinga
BAKSVIÐ
eftir Ólaf Þ. Stephensen
fyrir heimilispappír og þjóðin ætti
því að geta bjargað dálitlum skóg-
arlundi árlega með því að kaupa
endumnninn pappír, þótt mest af
þeim skógi sé reyndar í Skand-
inavíu.
í Pennan-
■■■■■■■■■I um, sem
umsvifamesta
verzlunin í sölu
ritfanga, feng-
ust þær upp-
lýsingar að
skólafólk, sem er þessa dagana
að afla fanga fyrir veturinn,
keypti mikið af skrifblokkum og
stílabókum úr endumnnum papp-
ír. Starfsfólk Pennans segir að í
fyrra hafi varla nokkur maður
beðið um slíkt, en núna sé endur-
unni pappírinn nánast tízkuvara
hjá mennta- og háskólafólki.
Eldra fólk virðist hins vegar ekki
hafa tekið við sér í sama mæli
og yngri kynslóðin, enda em ekki
nemá tvö ár frá því endurunninn
pappír fór að sjást hér í verzlun-
um. Mismunandi er hvort endur-
unni pappírinn er dýrari eða ódýr-
ari en venjulegur. Enn sem komið
er eru framleiðslueiningamar
minni og pappírinn því dýrari í
framleiðslu þótt bleiki- og litar-
efnum sé sleppt.
Ritfangaverzlanir bjóða líka
upp á reglustikur, yddara og blý-
anta, sem ekki em lökkuð, en
lakkúði hefur slæm áhrif á and-
rúmsloftið. Úðabrúsar, sem inni-
halda ózoneyðandi efni, vom
bannaðir 1. júní síðastliðinn með
reglugerð, og eiga að vera horfn-
ir úr hillum verzlana.
Þeir, sem kaupa blýlaust benzín
á bílinn, hlífa andrúmsloftinu
umfram þá, sem kaupa kraftbenz-
ín. Að minnsta kosti 60% bílaflot-
ans geta notað blýlausa benzínið,
og notkun þess hefur aukizt hröð-
um skrefum frá því það kom
fyrst á markað á Islandi fyrir
rúmum tveimur ámm. Fyrstu
mánuðina keyptu tæplega 40%
bfleigenda blýlaust benzín, í ágúst
í fyrra vom þeir komnir í 47% og
nú er hlutdeild umhverfisholla
benzínsins komin í 51%. Umhverf-
isvemdaráhugi ræður þó tæplega
öllu um vinsældir blýlausa benz-
ínsins, heldur er það einfaldlega
ódýrara en kraftbenzínið. Vega-
gjaldið, sem ríkið leggur á það,
er lægra en á kraftbenzíninu - eða
öllu heldur ekki jafnhátt.
Afslátturinn af vegagjaldinu er
líkast til eina ráðstöfun ríkisvalds-
ins til að stuðla að því að almenn-
ingur kaupi umhverfisholla vöru,
í því tilviki benzín, en í grannlönd-
um okkar er ýmislegt gert til þess
að stuðla að slíku. í Danmörku
em toliar til dæmis lægri á inn-
fluttum bifreiðum með lofthreinsi-
búnaði (katalysator). í Þýzkalandi
fá menn bílaskattinn-niðurfelldan
í nokkur ár ef þeir kaupa sér bfl
með hreinsibúnaði eða setja slíkan
búnað í gamla bflinn. Komið hefur
til tals hér á landi að lækka tolla
á bflum með hreinsibúnaði en ekk-
ert hefur verið gert í málinu. Loft-
hreinsibúnaður getur kostað rúm-
lega 10% af bílverðinu, og hækkar
það því vemlega. Félag íslenzkra
bifreiðaeigenda hefur bent á að
tollaívilnanir séu eðlilegar til að
létta þessum aukakostnaði af bíl-
eigendum.
Mörg bifreiðaumboð bjóða nú
viðskiptavinum sínum bifreiðar
með hreinsibúnaði, enda verður
ólöglegt að flytja inn bfla án hans
eftir 1992. Að sögn Geirs Gunn-
arssonar, forstjóra Honda-
umboðsins, em þónokkur dæmi
þéss að fólk velji frekar bfl með
hreinsibúnaði, þótt því standi
ódýrari sambærilegur bfll til boða.
Bflainnflytjendur em smám sam-
an að laga sig að því, sem verður
1992, og bílar Brimborgar hf. em
nú til dæmis hér um bil allir flutt-
ir inn með hreinsibúnaði.
Dregið hefur úr notkun plast-
poka eftir að farið var að taka
gjald fyrir þá í verzlunum, en
þeir eru skaðvaldur í náttúranni.
Mörgum þykir þægilegt að nota
burðarpoka úr verzlunum fyrir
sorp, en nú em æ fleiri farnir að
kaupa ruslapoka úr sérstöku
plasti, sem eyðist hraðar í náttúr-
unni, og nota innkaupanet eða
tösku undir vömrnar. Innkaupa-
tuðmr em með öðmm orðum
umhverfishollar líka.
EFNI
Draumalendingin mis-
tókst
►Stjórnendur Amarflugs börðust
um hæl og hnakka síðustu dagana
áður en félagið skilaði inn áætlun-
arleyfum sínum. Þeir hugðust
hefja sig til lofts á ný í nafni ís-
flugs og höfðu tiyggt sér þátttöku
sterka aðiia í viðskiptalífinu, en
stjómvöld höfnuðu þeim hugmynd-
um. Mál kynnu að hafa þróast
öðru vísi ef Arnarflugsmenn hefðu
fyrr á árinu tekið tilboði frá Skúla
Þorvaldssyni í Hótel Holti og fleir-
um í stað þess að veðja á Svavar
Egilsson/10
í nánd við khakiliðið í
Jórdaníu
►Jóhanna Kristjónsdóttir bregður
spéspeglinum á alþjóðlegu stór-
blaðamennina sem sendir em út
af örkinni til að fjalla um þróun
mála í púðurtunnunni í Miðausturl-
öndum/16
Uppreisn innanfrá
►Guðmundur Jaki ogsamstjórn-
armenn hans í Dagsbrún hafa
löngum haft orð á sér fyrir að
hafa góð tök á sínu liði. Nú er
hins vegar kurr í mörgum félags-
mönnum og nokkrir þeirra boða
mótframboð gegn núverandi stjóm
þegar kosið verður á næsta ári.
Þótt atlaga hafi áður verið gerð
að Dagsbrúnarforystunni og menn
ekki haft erindi sem erfíði, tekur
hún mótframboðið nú alvarlega og
jafnvel svo alvarlega að andófs-
menn saka J akann og forystuna
um austantjaldsvinnubrögð í því
skyni að gera þeim erfítt fyrir/18
Eftiriaunaklerkur á
sólarströnd
►Séra Jóhann Hlíðar varKaup-
mannahafnarprestur um árabil en
þegar hann hugðist snúa heim,
reyndist íbúðaverðið hér svo hátt
að hann sá sér þann kost vænstan
að kaupa hús á Spánarströndum
og þar býr hann enn/20
HEIMILI/
FASTEIGNIR
► 1-28
Orlofshús á Spáni
►Viðtal við Guðmund Óskarsson,
verkfræðing, sem selur orlofshús
áSpáni/16
í orði sem á borði
►Það fer vaxandi hér á Iandi að
þekkt fólk sé fengið til að koma
frAM í auglýsingum og mæla með
vöru eða þjónustu. En skyldi þetta
fólk sjálft trúa á það sem það er
að mæla með og jafnvel nota vör-
una eða þjónustuna dags dag-
lega?/l
Ég á ekki rætur I íran
lengur
►í heimsókn hjá Elinu Esmet
Peimani sem gift er íslenskum
tannlækni á Sauðárkróki/6
Erlend hringsjá
►Um ævintýralegt lífshlaup Ron-
ald Sinclair, öðm nafni Reginald
Teague-Jones, sem var njósnari
meðan hann gekk undir því nafni
og fór huidu höfði í 70 ár af ótta
við hefnd bolsévíka/8
Vínútlát í ríkinu
►Gluggað í skýrslur sem Ólafur
Sveinsson, sölustjóri í Áfenginu,
hélt á árunum kringum heimsstyij-
öldina, og gefa skemmtilega mynd
af áfengisumræðunni á þessum '
tíma/10