Morgunblaðið - 09.09.1990, Qupperneq 4
4 FRÉTTIR/YFIRLIT
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. SEPTEMBER 1990
ERLENT
INWLEIMT
900tonnaf
ísfíski utan
án leyfis
Um 900 tonn af ísfíski voru
flutt út án leyfis aflamiðlunar í
júlí og fyrstu þijár vikurnar í
ágúst. Sjávarútvegsráðuneytið
hefur farið fram á rannsókn á
málinu.
Geir Hallgrímsson látínn
Geir Hall-
grímsson, seðla-
bankastjóri og
fyrrverandi for-
sætisráðherra,
lézt í Reykjavík.
Útför hans var
gerð með við-
höfn frá Dómkirkjunni.
Flugfargjaldahækkun
væntanlegi
Flugleiðir hafa boðað að sótt
verði um hækkun á fargjöldum
félagsins um 5-8% vegna aukins
eldsneytis- og tryggingakostnað-
ar.
Bæði flugfélögin með áætlun
í nóvember
Óvissa um það, hvort Arnarflug
fær aftur flugleyfi sín, sem Flug-
leiðir nýta nú, veldur því að bæði
flugfélögin verða að hafa áætlun
á Amsterdam í nóvember til þess
að farþegar geti bókað sig vand-
ræðalaust.
Tregða í húsbréfaviðskiptum
Landsbréf hf., verðbréfafyrir-
tæki Landsbankans, á nú óseld
húsbréf fyrir 695 milljónir króna.
ERLENT
Stuðningsmenn
Mandela myrtir
Blökkumenn af Zúlú-ættbálkn-
um í Suður-Afríku myrtu eigi
færri en 31 stuðningsmann
blökkumannaleiðtogans Nelsons
Mandela í Sebokeng-hverfinu
skammt suður af Jóhannesarborg
á þriðjudag. Að sögn sjónarvotta
nutu Zúlú-mennimir aðstoðar ör-
yggissveita suður-afrískra stjórn-
valda er þeir frömdu illvirkið.
Mandela og F.W. de Klerk, for-
seti Suður-Afríku, hafa hvatt til
friðar.
Deilt um brottflutning
Ágreiningur um brottflutning
sovéskra hermanna frá Austur-
Þýskalandi og afnám sérréttinda
og skuldbindinga fjórveldanna úr
síðari heimsstyrjöldinni í Þýska-
landi hefur að sögn embættis-
manna í Vestur-Þýskalandi tafíð
fyrir svokölluðum „4+2-samn-
ingaviðræðum“ um sameiningu
Þýskalands. Sumir telja að óger-
legt muni reynast að undirrita
samninginn fyrir 12. október
næstkomandi.
Varalið kallað út
Saddam Hussein, forseti íraks,
lýsti því yfir á
miðvikudag að
fimm milljónir
íraka væru til-
búnar að heyja
heilagt stríð í
nafni Múhameðs
spámanns. Ut-
anríkisráðherra
íraks, Tariq Aziz, átti fund með
Míkhafl S. Gorbatsjov, leiðtoga
sovéskra kommúnista, í Moskvu
sama dag og þótti tilkynning sem
Tass-fréttstofan birtí eftir fund-
inn gefa til kynna að Sovétleiðtog-
inn hefði ítrekað þá afdráttar-
lausu kröfu ráðamanna í Kreml
Treglega gengur að selja húsbréf,
og er þetta slæmt fyir lausafjár-
stöðu bankans.
íþróttahöllin of lítil?
Gunnar I. Birgisson, forseti
bæjarstjórnar Kópavogs, segir að
íþróttahúsið, sem búið var að
hanna fyrir heimsmeistarakeppn-
ina í handbolta, sé vitlaust hann-
að, taki of fáa og samræmist ekki
kröfum Alþjóða handknattleiks-
sambandsins, IHF. Jón Hákon
Magnússon, formaður Hand-
knattleikssambands Islands, segir
að IHF hafí ekki breytt kröfum
sínum og ef húsið sé of lítið, sé
það vegna þess að Kópavogsbær
geri aðrar kröfur til stærðar og
gerðar sæta en i upphafi.
Vilja selja aröbum íslenzkt
kindakjöt
Kanadískt fyrirtæki hefur haft
samband við Samband íslenzkra
samvinnufélaga og óskað eftir að
kaupa kindakjöt, sem síðan á að
flytja inn til Egyptalands og
Líbýu. Sambandið hefur gefið
neikvæð svör við þessari málaleit-
an, þar sem ekkert kindakjöt sé
til og ekki sé hægt að slátra fé
hér á landi með aðferðum mú-
slima, þ.e. með því að skera það
á háls.-.
að herlið íraka yrði kallað heim
frá Kuvæt. Stjómvöid í írak köll-
uðu út þúsundir manna í varaliði
hersins á fimmtudag og sögðust
hvergi mundu hvika í Persaflóa-
deilunni. Allir 37 ára gamlir karl-
ar fengu þijá daga til að gefa sig
fram við herflokka sína og fjöl-
margir aðrir á fertugsaldri voru
einnig kallaðir út.
Kóresku forsætisráðherramir
heilsast í upphafi fundalotunnar.
Sögulegir fundir í S-Kóreu
Sögulegir fundir Kangs Yo-
ung-hoon og Yons Hyong-muk,
forsætisráðherra Kóreuríkjanna
tveggja, hófust í Seoul, höfuðborg
Suður-Kóreu á þriðjudag. Það var
í fyrsta sinn frá skiptingu KÓreu
að jafn háttsettir fulltrúar
ríkjanna hittust. Viðræðum ráð-
herranna lauk á fimmtudag án
þess að nokkuð hefði miðað í sam-
komulagsátt í deilumálum
ríkjanna.
Friðarviðræður hefjast
Stjórnvöld í Kína, Bandaríkjun-
um og Sovétríkjunum hafa talið
tvo af mikilvægustu fulltrúum
stríðandi fylkinga í Kambódíu á
að taka þátt í friðarviðræðunum
sem haldnar verða í Jakarta í
Indónesíu á næstu dögum, þá
Norodom Sihanouk prins og Hun
Sen, forsætisráðherra kommún-
istastjórnarinnar í Phnom Penh.
Vekur það auknar vonir -um að
raunhæfur árangur geti náðst í
viðræðunum.
Bijóstakrabbi:
Meiri batavon með hefð-
bundnum lækningum
London. Daily Telegraph.
KONUR með bijóstakrabbamein sem leita sér óhefðbundinna lækn-
inga, sem felast t.d. í snertiheilun, íhugun eða neyslu grænmetisfæð-
is, deyja fyrr af völdum sjúkdómsins en þær sem treysta algerlega
á hefðbundnar lækningaaðferðir við meðferð hans. Þetta kemur
fram í niðurstöðum rannsóknar sem birtar eru í hinu virta breska
læknatímariti, The Lancet. Samkvæmt könnuninni eru þrisvar sinn-
um meiri likur á að krabbamein berist úr brjóstum til annarra líkams-
hluta og ógni þannig lífi sjúklings hjá konum sem leita lækninga
hjá helstu krabbameinsmeðferðarstofnun landsins, sem beitir óhefð-
bundnum lækningaaðferðum, en þeim sem fá hefðbundna meðferð.
I þeim tilfellum þar sem útbreiðsla er hafín þegar meðferð hefst
eru tvöfalt meiri líkur á dauða hjá konum sem hljóta meðferð stofn-
unarinnar en þeim sem hljóta meðferð á ríkissjúkrahúsum.
Niðurstöðumar þykja meirihátt-
ar áfall fyrir þá er aðhyllast
óhefðbundnar lækningar. Prófessor
Tim McElwain, krabbameinssér-
fræðingur og ráðgjafí við Royal
Marsden-sjúkrahúsið í London, seg-
ist ekki lengur geta ráðlagt sjúkl-
ingum sínum að leita til stofnunar-
innar, sem staðsett er í borginni
Bristol. „Ég verð að segja þeim að
af einhveijum ástæðum deyi konur
fyrr sem leita til stofnunarinnar í
Bristol og að sjúkdómurinn taki sig
fyrr upp hjá þeim en öðrum,“ sagði
hann.
Við rannsóknina vora bomar
saman 334 konur, sem vora til
meðferðar á stofnuninni í Bristol,
og 461 kona sem hlaut meðferð á
þremur venjulegum sjúkrahúsum.
Allar vora konumar með eitt ill-
kynja æxli í bijósti.
Niðurstöðumar vora þær að í 21
konu tók sjúkdómurinn sig upp aft-
ur og átta konur dóu af 126 konum
sem sóttu stofnunina í Bristol eftir
meðferð við bijóstakrabbameini.
Meðal svipaðs fjölda kvenna, sem
hlaut hefðbundna meðferð, tók
sjúkdómurinn sig upp hjá aðeins sex
þeirra og tvær dóu.
Claire Chilvers, prófessor í far-
aldursfræði við Nottingham-
háskóla, sem stjómaði rannsókn-
inni, gat ekki útskýrt hvers vegna
óhefðbundin meðferð, til viðbótar
við sjúkrahúsmeðferð, leiddi af sér
skjótari dauða. „Það gæti verið að
konumar, sem leituðu sér meðferð-
ar á stofnuninni í Bristol, hafi anri-
ars konar sálfræðileg viðbrögð við
sjúkdómi sínum. Við vitum það
bara ekki,“ sagði hún. „Mataræði
gæti einnig verið möguleg ástæða;
stofnunin er þekkt fyrir mataræðið
sem þar er ráðlagt, þótt ekki sé það
nærri eins strangt og áður fyrr.“
Dr. Michael Wetzler, yfirlæknir
stofnunarinnar í Bristol, sagðist
vera þess fullviss að meðferð stofn-
unarinnar hefði ekki skaðleg áhrif
á sjúklinga. Þótt grænmetisfæði
væri ráðlagt þá væri öllum, sem
ættu í vandræðum með að neyta
þess, gefinn fiskur, kjúklingur og
egg. Það væri hugsanlegt að þeir
sjúklingar, sem leituðu til stofnun-
arinnar í Bristol, væra veikari en
þeir, sem gerðu það ekki.
Penny Brohn, einn af stofnendum
stofnunarinnar, sagðist eiga erfitt
með að ímynda sér að nokkuð sem
gert væri á vegum stofnunarinnar
gæti mögulega haft slæm áhrif á
sjúklingana. „Við eram fræg fyrir
hvað við meðhöndlum krabbameins-
sjúklinga nærfærnislega. Sjúkling-
amir læra að hafa hemil á streitu,
að íhuga og þeir öðlast lífsbætandi
hæfileika. Þeir eru á stórgóðu mat-
aræði, tala við ráðgjafa og hug-
lækna og taka þátt í hópmeðferð í
tjáningu,“ sagði hún.
Stofnunin, sem tekur þúsund
nýja sjúklinga til meðferðar á ári
hveiju, er skrásett sem góðgerða-
stofnun og nemur þóknun hennar
rúmlega 60.000 ÍSK á viku.
Fyrsta stríð Sameinuðu
þjóðanna var Kóreustríðið
ÞEGAR Öryggisráð Sameinuðu
þjóðanna samþykkti á dögun-
um, að krefjast þess, að Irak
hætti hernáminu í Kúvæt, og
setti bann, með hervaldi, á
vöruflutninga til og frá Irak,
sögðu ýmsir fjölmiðlar, að þetta
væri í fyrsta skipti í sögunni,
að Öryggisráðið samþykkti
hernaðarlegar aðgerðir gegn
árásarþjóð. Þetta er ekki rétt.
Öryggisráð Sameinuðu þjóð-
anna samþykkti í júní 1950, að
stöðva með hervaldi innrás
kommúnista í Suður-Kóreu
gegn löglegri ríkisstjórn lands-
ins.
Innrásin í Kúvæt fordæmd í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna.
Sextán aðildarþjóðir SÞ lögðu
til herlið undir herstjórn og
fána Sameinuðu þjóðanna í
Kóreu. Fyrst undir yfirstjórn
bandaríska hershöfðingjans Dou-
glas McArthurs, og síðar annarra
bandarískra
hershöfðingja,
eftir að Harry
Traman Banda-
ríkjaforseti
hafði vikið
McAithur úr
herforingjaembættinu vegna
ósamkomulags þeirra í milli um
hvemig haga skyldi hernaðinum.
Hitt er rétt, að það var í fyrsta
skipti í Iraksmálinu, að stórveldin
fimm, sem hafa neitunarvald í
Öryggisráðinu, vora sammála um
að nota sameiginlegt hervald gegn
hemaðarinnrás.
Sovétmenn hefðu vafalaust
notað neitunarvald sitt í Kóreu-
málinu, ef það hefði ekki viljað
svo til, að fulltrúar þeirra í ráðinu
ruku af fundi Öryggisráðsins í
fússi. Á meðan þeir vora fjarver-
andi samþykkti ráðið að senda
herlið Sameinuðu þjóðanna til
Kóreu til að stöðva innrás komm-
únista suður fyrir „miðlínuna",
sem svo var kölluð og skipti Kór-
euskaganum nokkurnveginn í
tvennt við 38. breiddarbaug.
Spaugilegt atvik, sem gamlir
starfsmenn SÞ, sem viðstaddir
vora, hafa gaman af að segja frá,
gerðist er Sovétmenn strunsuðu
úr samkomusal Öryggisráðsins.
Rennilás, eða
hnappar, sem
áttú að halda
saman buxna-
klauf eins af
fulltrúum Sov-
étmanna,
höfðu bilað, eða farið úr lagi.
Skarpeygður öryggisvörður tók
eftir þessu og sá að það gæti
valdið óþægindum ef t.d. blaða-
ljósmyndarar (sjónvarpsvélar voru
ekki á hveiju strái þá) næðu mynd
af brók sendiherrans í þessu
ástandi. Yfirmaður öryggisvarða
SÞ, sem var hár maður og þrek-
vaxinn, sá hvað verða vildi og
valdi sér strax stað þétt fyrir
framan sendiherrann, þar til sov-
étnefndin var komin örugglega í
horn setustofu öryggisráðsins.
Lokaúrslitin í Kóreustríðinu
urðu sem kunnugt er þau að tvö
ríki hafa síðan verið á Kóreuskag-
anum, sem skiptist í suðurríkið,
þar sem lýðræði er við lýði, og
norðrið, undir harðvítugri stjórn
kommúnista. Skaganum er skipt
nokkurn veginn jafn stór lönd við
38. breiddarbaug. Nú þegar óvíg-
ur her safnast saman með sam-
þykkt SÞ við írak era Kóreuríkin
að nálgast hvort annað með sögu-
legum fundi forsætisráðherra
sinna.
Meðal þeirra ríkja, sem lögðu
til hermenn í lið Sameinuðu þjóð-
anna í Kóreu voru Bretland,
Kanada, Tyrkland og Thailand,
Ástralía, Frakkland, Grikkland og
Holland.
Norðurlöndin; Danmörk, Nor-
egur og Svíþjóð, og Suður-Afríka
sendu lækna og sjúkralið.
Mannfall var mikið í liði Sam-
einuðu þjóðanna í Kóreustríðinu,
sem stundum var nefnt „lögreglu-
átak Sameinuðu þjóðanna“ og
stóð í nærri þrjú ár. Alls féllu 74
þúsund manns af liði SÞ, 250
þúsund særðust og 83 þúsund
voru handteknir, eða „týndust“.
Bandaríkin báru mest manntjón
af liði Sameinuðu þjóðanna í
Kóreu, eða alls rúml. 36 þúsund
fallnir, 103 þúsund særðir og
4.700 „týndir".
Mannfall kommúnistahersins í
Kóreu var talið 900 þúsund Kín-
veijar og 520 þúsund Norður-
Kóreumenn.
BAKSVID
eflir ívar Gudmundsson