Morgunblaðið - 09.09.1990, Side 6
6 FRÉTTIR/INIMLEIUT
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. SEPTEMBER 1990
Stærsti hjólabrettapallur landsins
Hjólabrettapallur, sagður sá
stærsti hérlendis, hefur verið
reistur á íþróttasvæðinu neðan við
nýju Sundmiðstöðina í Keflavík. A
litlu myndinni sjást Ingi Þór og
Asbjöm, tveir bestu hjólabretta-
kapparnir í bænum, sýna listir
sínar.
BB
Lista- og óperuklúbb-
urinn lýkur Rómarför
Lista- og ópemklúbburinn lauk fyrstu ferð sinni með veislu í Róm
á miðvikudagskvöld, en ferðin hefur verið samfelld veisla skilningar-
vitanna í tvær vikur.
Fólk stóð agndof-a frammi fyrir
snilldarverkum eins og fresku
mynd Leonardos da Vinci af síðustu
kvöldmáltíðinni í Mílanó, málverkum
Tizians og Tintorettos í Hertogahöll-
inni í Feneyjum, madonnumyndum
Filippos Lippi og Rafaels og dýrðar-
verkum á borð við Vorið eftir Bottic-
elli í Uffizisafnínu í Flórenz, eða
mynd Giottos á veggjum kirkju heil-
ags Frans í Assisi, svo að fátt eitt
sé • talið. Enginn mun gleyma
stemmningunni í Arenunni í Verona,
meðan 30.000 áhorfendur nutu frá-
bærs flutnings á óperunni Tosca, þar
sem algjör þögn ríkti í áheyrenda-
hringnum milli fagnaðarláta sem
minntu á knattspymusigur. Allt
þetta með ívafi af tónlist Vivaldis
og orðsnilld Dantes og Shakespeares
í öndvegisverkum heimsbókmennta.
Allt ferðalagið hefur gengið að ósk-
um og þátttakendur kynnst Jandi
listanna með nýju móti; sjá Ítalíu
og listina í 'nýju ljósi og taka sjóð
minninga með sér heim.
(Fréttatilkynning frá Lista- og óperukiúbbnum)
Heimsmeistaramótið í brids:
Islendingar eru úr
leik í sveitakeppni
Genf. Frá Jóni Baldurssyni, fréttaritara Morgunblaðsins á heimsmeistaramótinu í brids.
SVEIT Sigurðar Vilhjálmssonar tapaði I 32 liða úrslitum heimsmeist-
aramótsins í sveitakeppni sem nú fer fram í Genf. Sveitin spilaði 32
spila Ieik við sveit Mike Moss frá Bandaríkjunum og endaði leikurinn
94-50 Bandarikjamönnum í vil.
Moss og félagar hans unnu síðan
landa sína í sveit Peter Weic
hsels í 16 liða úrslitum og er því
núna kominn í fjórðungsúrslit. Þátt-
töku íslendinganna í sveitakeppninni
er hins vegar Iokið, en á laugardag
hófust undanrásir heimsmeistara-
mótsins í tvímenningi. Sex íslensk
pör taka þátt í opnum flokki og eitt
par í kvennaflokki.
Nú eru átta sveitir eftir í sveita-
keppninni. Tvær eru bandarískar,
ein kínversk, ein kanadísk, ein pólsk
og ein frá Bretlandi.
„Það er lífróður fram-
undan í bæjarfélaginu“
- segir Stefán Garðarsson, bæjarstjóri í Ólafsvík, um
fjárhagsvanda bæjarins og erfiða stöðu fyrirtækja
„ÞAÐ er alveg rétt, að íjárhagur bæjarins er mjög slæmur og
það þýðir ekkert að vera að fela það. Það er lífróður framundan
í þessu bæjarfélagi, að minnsta kosti næstu fjögur árin,“ segir
Stefán Garðarsson, nýráðinn bæjarstjóri í Ólafsvík. Skuldir Ol-
afsvíkurkaupstaðar eru eitthvað á þriðja hundrað milljóna króna,
bein vanskil umtalsverð og þar að auki er bærinn í miklum
ábyrgðum fyrir skuttogarann Má. Á sama tíma bíða ýmis brýn
verkefni úrlausnar en Stefán segist ekki sjá hvernig á þeim verði
tekið eins og staðan er.
Stefán Garðarsson tók við bæj-
arstjórastarfi á Ólafsvfk fyrir
rúmum mánuði en var áður úti-
bússtjóri Iðnaðarbankans á Sel-
fossi. I samtali við Morgunblaðið
sagði hann, að vistaskiptin legð-
ust vel í sig þótt það væri vissu-
lega mikil breyting að fara úr
bankastarfsemi í sveitarstjórnar-
málin. Hann er þó ekki ókunnug-
ur þeim því að hann var sveitar-
stjóri í Þorlákshöfn frá 1981-85
og hafði unnið þar á skrifstofunni
frá 1977. Sagði Stefán, að verk-
efnin, sem blöstu í Ólafsvík, væru
mikil og erfið en vonandi ánægju-
leg ef vel tækist til. Sagði hann,
að það styrkti sig líka, að honum
hefði verið einstaklega vel tekið
af Ólafsvíkingum og ekki mætt
öðru en hlýju og velvilja.
Miklir íjárhagserfiðleikar
„Því er hins vegar ekki að
leyna,“ segir Stefán, „að ijárhags-
'erfiðleikar bæjarins eru miklir og
það þýðir ekkert að vera að fela
það. Það er lífróður framundan.
Skuldirnar eru á þriðja hundrað
milljóna króna og vanskilin veru-
leg og þeim verður að koma í lag.
Það byggist svo aftur á, að lánar-
drottnarnir verði okkur hliðhollir
í samningum og ég hef raunar
ekki fundið annað en velvild í
þeim efnum. Ég trúi því, að þetta
takist en það verður erfitt, um
annað er ekki að ræða.“
Stefán segir, að orsakirnar fyr-
ir erfíðleikunum séu margþættar
og vafalaust eigi margumrædd
félagsheimilisbygging sinn þátt í
þeim en ástæðurnar séu þó fleiri.
Meðal annars staða atvinnu-
rekstrarins í bænum.
„Ég held, að hagur fyrirtækja
hér í bæ sé að mörgu leyti erfið-
ur. Hér hefur verið minnkandi
afii og kvótakerfið hefur komið
illa við Ólafsvík. Menn hafa ekk-
ert verið að kaupa kvóta út um
hvippinn og hvappinn eins og víða
hefur verið gert og við höfum
misst 2-3.000 tonn út úr sveitarfé-
laginu. Það segir auðvitað til sín
hjá fyrirtækjunum og í öllu bæjar-
félaginu og auk þess eru erfíðleik-
ar í rekstri Más, togara Hrað-
frystihússins, sem nokkur fyrir-
tæki og bæjarfélagið standa að.
Fyrir utan heildarskuldirnar
stendur bærinn í ábyrgðum fyrir
hann upp á 70-80 milljónir. Ég
hef að vísu lítið komið inn í þau
mál en það hafa átt sér stað við-
ræður við Byggðasjóð og Ríkis-
ábyrgðasjóð og þarna er róinn
lífróður eins og víðar. Nú stendur
fyrir dyrum sjö mánaða uppgjör
hjá bænum og þá vil ég, að allt
komi fram. Menn eiga heimtingu
á að vita hvernig málin standa.
Þetta er opinbert fyrirtæki."
Mikilvæg verkefni bíða
Stefán sagði, að í Ólafsvík biðu
mörg og mikilvæg verkefni úr-
lausnar þótt vandséð væri hvernig
við yrði brugðist eins og staðan er.
„Það vantar íþróttahús, skólinn
er tvísetinn og úrbætur í vatns-
málunum eru aðkallandi. Miðað
við stærð bæjarins er vatnið
hvorki nægilega mikið né nógu
gott en uppi í Enni mun vera
hægt að fá 20-30 sekúndulítra,
Stefán Garðarsson, bæjarstjóri
í Ólafsvík.
sem leiða má beint inn á aðalæð-
ina án mikils kostnaðar. Þetta eru
kannski brýnustu verkefni næstu
ára en hvort úr rætist með þau
eftir þrjú, fjögur eða fimm ár
veit ég bara ekki. Það markast
af fjárhagsstöðu bæjarins. Sjálfur
hef ég mikinn áhuga á, að gerðar
verði gangstéttir með öllum göt-
um og bærinn fegraður og gerður
eins manneskjulegur og unnt er.
Ólafsvík er að vísu fallegur bær
og snyrtilegur að mörgu leyti en
það má alltaf gera betur.“
Hingað til hefur samstarf sveit-
arfélaganna á norðanverðu Snæ-
fellsnesi ekki verið nógu mikið að
því er Stefán telur en hann bindur
vonir við, að á því verði breyting
enda muni nánari samvinna
byggðarlaganna, Hellissands,
Rifs, Ólafsvíkur, Grundarfjarðar
og Stykkishólms, skipta sköpum
fyrir viðleitni þeirra við að byggja
upp gott mannlíf á Nesinu. Sagði
Stefán að lokum, að núverandi
bæjarstjórnarmeirihluti í Ólafsvík
væri mjög samhentur og raunur
einhugur í allri bæjarstjórninni
um að takast á við vandamálin
og sigrast á þeim.
Nýr línubátur sækir í
tegundir utan kvótans
Norskur fískilóðs og hluti áhafnar hans „leggur línuna“ í fyrstu
LÍNUBÁTURINN Ásgeir Frímanns ÓF 21 hefur nú haldið til lúðu-
veiða í fyrsta sinn undir islenzku nafni. Báturinn er keyptur notað-
ur frá Noregi og kemur í stað Atlanúps ÞH, sem var siglt utan og
settur þar í brotajárn. Eigendur Ágeirs Frímanns eru Helgi Már
Reynisson, Ásgeir Logi Ásgeirsson og Sæunn hf. á Ólafsfirði, en það
er fyrirtæki í útgerð og fiskvinnslu í eigu íjölskyldu Ásgeirs.
Asgeir Frímanns er smíðaður í
Noregi 1986, er sérhæft línu
veiðiskip 299 tonn af stærð og yfir-
byggt. Hann er 32,8 metra langur
og 8 metra breiður. Hann er búinn
sjálfvirkri Mustad línubeitingarvél
og getur hún lagt og dregið um
32.000 króka á sólarhring. Þá er
Athugasemd
*
Olafur Dýrmundsson, landnýt-
ingar- og sauðfjárráðunautur,
vill taka fram vegna fréttar í blað-
inu á föstudag um útflutning lif-
andi sauðfjár, að hann telji ekki að
slíkur útflutningur geti farið fram
í stórum stfl. Varla verði um að
ræða tekjuöflunarleið fyrir bændur
á sama hátt og hrossaútflutningur
er.
um borð frystitæki, bæði plötufryst-
ar og lóðréttir frystar til heilfryst-
ingar um borð, tveir blásturfrysti-
klefar fyrir stórlúðu svo og frysti-
Iest. Aðalvél er 690 hestöfl af gerð-
inni Callesen og Ijósavélar eru frá
Volvo Penta. Spil eru frá Hydraul-
ikk Brattwaag. Skipið er búið full-
komnum fiskileitar- og siglingar-
tækjum, er með tvær Furuno rat-
sjár, „videoplotter", físksjá og dýpt-
armæli, sjálfstýringu frá Robertson,
tvo Furuno lóranmæla, tjarskipta-
tæki frá Skanti, vökustaura og
mjög fullkomið brunavarnakerfi.
íbúðir eru fyrir 14 manns. Kaup-
verð skipsins ásamt öðrum kostnaði
við að gera það klárt til Veiða er
um 150 milljónir króna.
Skipið hefur lítinn aflakvóta, en
áherzlan verður lögð á veiðar á teg-
Undum utan kvóta, lúðu, löngu og
keilu. Mjög gott verð fæst fyrir
þessar fisktegundir heilfrystar að
sögn Ásgeirs Loga, enda hafa Norð-
menn stundað línuveiðar á þessum
fisktegundum hér við land með
góðum árangri. Skipið hefur þegar
haldið til lúðuveiða á Reykjanes-
hryggnum og er norskur fískilóðs
um borð og fjórir Norðmenn úr
fyrri áhöfn hans leiðbeina hinum
nýju eigendum. Fiskilóðsinn hefur
stundað veiðar sem þessar hér við
land í 17 ár en hefur nú hætt út-
gerð. Skipstjóri er Jónas Krist-
björnsson og stýrimaður verður
Ásgeir. Logi Ásgeirsson í þessum
fyrsta túr, sem áætlað er að taki
mánuð.
Ásgeir Logi segist bjartsýnn á
árangurinn, enda sé skipið glæsi-
legt Og búið fullkomnustu tækjum
til veiða af þessu tagi. Mikilvægur
og erfíður áfangi sé að baki og nú
sé ekkert annað að gera en hefjast
handa og sanna það fyrir efasemd-
armönnum að útgerðin geti gengið.
Nafnið Ásgeir Frímanns er nafn
afa Ásgeirs Loga, en Ásgeir
Frímanns var þekktur skipstjóri á
Ólafsfírði og var meðal annars með
Einar Þveræing.
Morgunblaðið/Charles Egill Hirt
Ásgeir Frímanns við bryggju í Reykjavík.
Morgunblaðið/Frímann Ásgeirsson
Skipinu var gefið nafn við hátíðlega athöfn. Við það tækifæri færði
Sveinbjörn Axelsson skipinu heillaóskakveðju í bundu máli og las
systir hans Sæunn Axelsdóttir kveðjuna upp. Sæunn er þekkt að
sjósókn og fískverkun í Ólafsfirði, en þar rekur hún fyrirtæki í eigu
fjölskyldunnar og er hluthafi í útgerð nýja skipsins.