Morgunblaðið - 09.09.1990, Side 8
8
MORGUNBLAÐIÐ DAGBOK SUNNUDAGUR 9. SEPTEMBER 1990
j rx i per sunnudagur 9. september, 13. sd. eftirtrín-
1 UAvJ itatis. Árdegisflóð í Reykjavík ki. 8.46 og síðdeg-
isflóð kl. 21.08. Fjaraerkl. 2.42 og 15.01. Sólaruppkoma
íRvík kl. 6.32 og sólarlag kl. 20.16. Myrkurkl. 21.06. Sólin
er í hádegisstað í Reykjavík kl. 13.25 ogtunglið í suðri kl.
4.42. (Almanak Háskóla íslands.)
„Ónýtir þjónar erum vér, vér höfum gjört það eitt, sem
vér vorum skyldir að gera.“ (Lúk. 17,10.)
ÁRNAÐ HEiLLA
HJÓNA-
BAND. í Dan-
mörku hafa
verið gefið
saman í hjóna-
band Vil-
helmína Jóns-
dóttir og John
Bröndum
Jensen. Heim-
ili þeirra er:
Akjærsvej 1
Breum, 7870
Roslev, Dan-
mark. Hérlend-
is átti hún
heima á Tjam-
arbraut 19 í
Bfldudal.
Hjónavígslan'
fór fram í
Grenderkirkju í
heimabæ
þeirra.
Q ára afmæli. í dag,
OO sunnudag 9. septem-
ber, er 85 ára Sigríður
Björnsdóttir frá Steinum
undir Eyjafjöllum, Grænu-
mörk 3, SelfosSi. Maður
hennar var Halldór Vilhjálms-
son, bóndi og smiður. Hann
lést fyrir um 30 árum. Hún
ætlar að taka á móti gestum
í dag, afmælisdaginn, á heim-
ili sonar og tengdadóttur,
Birkivöllum 31 á Selfossi.
Q f? ára afmæli. í dag, 9.
ÖO september, er 85 ára
Jóhanna Rósants Júlíus-
dóttir, Tunguvegi 7, Hafn-
arfirði. Hún tekur á móti
gestum-í dag, afmælisdaginn,
kl. 15-18 í veitingahúsinu
Gaflinum, Dalshrauni 13, þar
í bænum.
ember, er áttræður Óskar
Halldórsson, Álagranda 8,
Rvík. Hann verður að heiman
á afmælisdaginn.
SKIPIN______________
REYKJAVÍKURHÖFN:
í fyrrakvöld fór Stuðlafoss á
ströndina. Stapafell kom af
ströndinni í gær. Á morgun
er' Laxfoss væntanlegur að
utan og leiguskipið Weser
Guide, svo og Grænlandsfar-
ið Magnus Jensen, það mun
halda ferð sinni áfram til
Grænlands samdægurs.
FRÉTTIR/
MANNAMÓT
STJARNVÍSINDI. í Lög-
birtingablaðinu auglýsir
menntamálaráðuneytið lausa
dósentsstöðu í stjarnvísindum
við raunvísindadeild Háskóla
íslands, eðlisfræðiskor. Hon-
um er ætlað að stunda rann-
sóknir í stjamvísindum, hafa
forystu um kennslu í þeim við
deildina og stuðla að aukinni
þekkingu á þessari vísinda-
grein í landinu, eins og kom-
ist er að orði í þessari auglýs-
ingu. Þá er þess óskað að
umsækjandi skili greinargerð
um þær rannsóknir sem hann
hyggst stunda, verði honum
veitt staðan, og ennfremur
segir að hann skuli geta tekið
að sér kennslu í eðlisfræði.
Umsóknarfrestur um dós-
entsstöðu þessa er til 11. þ.m.
UNGVERJALAND og ís-
land hafa með erindaskiptum
milli utanríkisráðherra land-
anna gengið frá samkomulagi
um gagnkvæmt afnám vega-
bréfsáritana, miðað við 3ja
mánaða dvöl. Samkomulagið
tók gildi 24. ágúst síðastlið-
inn, en utanríkisráðuneytið
hefur tilk. um þetta í nýlegum
Lögbirtingi.
HALLGRÍMSKIRKJA.
Starf aldraðra. Á miðviku-
daginn kemur verður farin
dagsferð austur á Nesjavelli
og til Þingvalla. Lagt verður
af stað frá kirkjunni kl. 13.
Nánari uppl. gefur Dómhildur
á þriðjudaginn í síma 39965
og í síma kirkjunnar 10745.
V ÁTRY GGIN GAFÉLÖG. í
nýju Lögbirtingablaði birtir
Tryggingaeftirlitið megin-
niðurstöður ársreikninga
þeirra vátryggingafélaga sem
leyfí hafa til vátrygginga-
starfsemi hérlendis, en þau
eru milli 25 og 30 alls og eru
þar meðtalin vátryggingafé-
lag hins opinbera.
HÉRAÐSLÆKNI hefur heil-
brigðis- og tryggingamála-
ráðherra skipað í Austur-
landshéraði og er það tilk. í
nýlegum Lögbirtingi. Stefán
Þórarinsson heilsugæslu-
læknir, verður héraðslæknir
þar fram á sumar árið 1994.
NESKIRKJA. Næstkomandi
þriðjudagsmorgun kl. 10-12
verður opið hús fyrír mæður
og börn þeirra.
HVASSALEITI 56-58. Fé-
lags- og þjónustumiðstöð
aldraðra. Á morgun, mánu-
dag, er opið hús kl. 13. M.a.
mun Guðrún S. Jónsdóttir
hafa kennslustund í brids-
spili, en líka verður fijáls
spilamennska.
ITC-deildir halda fund á
morgun, mánudag. Deildin
Kvistur heldur fund á
Holiday Inn-hótelinu kl. 20.
Nánari uppl. gefur Olga, s.
35562. Deildin Eik heldur
fund kl. 20 á Hallveigarstöð-
um og er hann öllum opinn.
RÆÐISMAÐUR íslands
hefur verið skipaður í borg-
inni Seattle. Utanríkisráðu-
neytið tilk. um hinn nýja ræð-
ismann í Lögbirtingablaðinu.
Er það Jón Marvin Jónsson
sem er kjörræðismaður með
aðalræðismannsstigi; Utaná-
skrift skrifstofunnar er: 5610
20th Ave., N.W. Seattle,
Washinton 98107, U.S.A.
SJÚKRAVINIR í heimsókn-
arþjónustu kvennadeildar
RKÍ ætla að hittast á morg-
un, mánudag kl. 17 í Múlabæ,
Ármúla 34. Verður þetta
fyrsti fundurinn á haustinu
og er hann opinn öllum kon-
um. Kaffí verður borið fram.
SÉRFRÆÐINGAR. í tilk. í
Lögbirtingi frá heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytinu
segir að það hafí veitt Þóri
S. Njálssyni lækni, leyfí til
að starfa hérlendis sem sér-
fræðingur í lýtalækningum.
Það hefur veitt Borghildi
Einarsdóttur lækni, leyfí til
að starfa sem sérfræðingur í
geðlækningum og Þorvaldi
Brynjólfssyni lækni, starfs-
leyfí sem sérfræðingur í
heimilislækningum.
MORGUNBLAÐIÐ
FYRIR 25 ÁRUM
Um 500 manns var við
listmunauppboð á Hótel
Sögu í gær. Þar voru
boðin upp rúmlega 70
málverk eftir Jóhannes
Kjarval. Sjálfur hafði
Kjarval sagt að hann
væri að hreinsa til í
vinnustofunni og væru
málverkin gömul og ný.
Stóð uppboðið sem Sig-
urður Benediktsson
stjórnaði yfír í rúmlega
tvær klst. Verkið sem
Kjarval kallar Vinur og
sólfar var slegið á hæst
verð kr. 47.000. Það
keypti Þórir Skarphéð-
insson. Er það síðasta
landslagsmynd Kjarvals
og hún árituð dagsetn-
ingunni daginn áður en
málverkið fór á þetta
uppboð.
ÁHEIT OG GJAFIR
ÁHEIT á Strandarkirkju,
afhent Morgunblaðinu:
Ónefndur 20.000, VÞH og
HH 20.000, KÁ 15.000, ÞS
10.000, Ví 9000, HJ 5000,
DVS 4500, DÍA 3000, SKJ
3000, Ví 3000, GSV 3000,
NN 2700, MG 2000, ER
2000, EME 2000, TÞ 2000,
HR 2000, ÓSJ 2000, Guðríð-
ur 2000, SS 2000, HAÞ 2000,
Ben 2000, LHG 1750, AJ
1500, EK 1500, GE 1500,
AS 1500, GJT 1200, JG 1000,
Þorgeir 1000, ES 1000, HK
1000, SOS 1000, SB 1000,
IS 1000, Ágætt 1000, SG
1000, ÞK 1000, LS 1000,
Edda Gísla 1000, HH. 1000,
RB 1000, Hulda 1000, BÞ
1000, VG 800, Anna 500,
ónefnd 500, ónefnd 500,
Sigríður Ólafs 500, María
500, O og M 500, ÞGF 50.0,
SM 500, BÖ 500, Guðmundur
góði 500, Björg 500.
LÁRÉTT: — 1 önguls, 5
grenja, 8 hlassinu, 9 vökna,
11 báran, 14 krot, 15 ríka,
16 kjánar, 17 gyðja, 19 bor,
21 guði, 22 flennunni, 25
svelgur, 26 heiður, 27 undir-
staða.
LÓÐRÉTT: - 2 sefí, 3
ráðsnjöll, 4 býr til, 5 heng-
ingarólin, 6 andvari, 7 þreytu,
9 daðraði, 10 fíkna, 12 lækk-
aðir, 13 borðaði, 18 fyrr, 20
slá, 21 eldstæði, 23 svik, 24
frumefni.
MORGUNBLAÐIÐ FYRIR 50 ÁRUM
Hafnarstjórinn i
Reykjavík hefur tilk. að
breska herstjórnin hafi
ákveðið að Reykjavíkur-
höfn verði lokað á nótt-
unni og kemur það til
framkvæmda nú þegar í
nótt. Verður duflgirð-
ingu komið fýrir í sjálfu
hafnarmynninu og verð-
ur höfnin lokuð frá kl.
18 á kvöldin til kl. 6 næsta
morgun. Lokunin gildir
þar til öðruvísi verður
ákveði segir i tilk. hafn-
arstjóra.
☆
Aðalfyrirsögnin á er-
lendri fréttasíðu hljóðar
svo: Mesta loftárásin
fram til þessa: Eldar lýsa
upp himininn yfír austur
London. Og ár sömu síðu
er sagt frá mestu loftárás
Bandanianna á Berlínar-
borg. Breta tilk. að í þess-
ari loftárás þýska flug-
hersins hefðu yfír 60
þýskar flugvélar verið
skotnar niður yfir Lond-
on, en þeir sjálfir misst
18 flugvélar.
☆
Á Húsavík voru miklir
kuldar í byrjun septemb-
ermánaðar og snjóaði
iðulega í flöll. En að
morgni 11. september
var jörð alhvít á Húsavík
og gekk á með snjóéljum.
Þær heita: María Huld Sigfúsdóttir, Særós Rannveig
Björnsdóttir og Ylfa Óðinsdóttir. Þær héldu hlutaveltu
að Frostafold 20 í Grafarvogshverfí til ágóða fyrir Hjálp-
arsjóð Rauða krossins og söfnuðu 1700 krónum.
Þessir strákar efndu til hlutaveltu og grillpylsusölu til
ágóða fyrir Landgræðsluna og söfnuðu tæplega 3500
kr. Þeir heita: Guðni Sveinn Arnþórsson, Karl Jóh.
Hafliðason, Heiðar Smári Harðarson og Helgi Hrafn
Þorláksson. Hlutaveltan var haldin að Hraunbæ 112.
KROSSGATAN
SF
9
ffl
13
His—m—
22 23 2i
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
LÁRÉTT: - 1 ábati, 5 skjót, 8 ólina, 9 fálki, 11 elfur,
14 nef, 15 rósin, 16 iðjan, 17 ill, 19 óðar, 21 átta, 22 sól-
inni, 25 alt, 26 ann, 27 nói.
LÓÐRÉTT: — 2 brá, 3 tók, 4 ilinni, 5 snefil, 6 kal, 7 ólu,
9 forsóma, 10 lakast, 12 fljótin, 13 rangali, 18 lúin, 20 ró
21 án, 23 la, 24 NN.